Tíminn - 19.05.1972, Blaðsíða 7
TÍMINN
7
Föstudagur 26. maí 1972.
íwA
Utg«fand); Framsóknarflokkurinn
1Í13-22. Auglýsingasimjl T9S23,.
ÁskrtfUtiííaW kr, H2S,öo á
kr. lí.oö ainUkfft. —
^ASrarxS^rtfítþförxislrntx'tajOg^X;:.:;:
tianúírxÍönájitáhijfeiiSÍiiiilÍÍUtStöÍ.ÍÍÍ::::::::::
fiíáSaprertt h.f, (Ótttát)
25,5% kaupmáttaraukning
Eitt helzta atriðið i ádeilu stjórnarandstæð-
inga á rikisstjórnina i útvarpsumræðunum var
sú fullyrðing, að rikisstjórnin hefði stórskert
kjör launþega með þeim verðhækkunum, sem
hún hefur óhjákvæmilega orðið að leyfa að
undanförnu. Alþýðuflokkurinn hafði t.d. naum-
ast nokkuð annað til að deila á rikisstjórnina
fyrir og taldi hana hafa svikið hinar vinnandi
stéttir og tekið þær kjarabætur, sem um samd-
ist i desember, allar aftur og vel það!
Hagrannsóknadeild Framkvæmdastofnunar
rikisins hefur nú gert útreikninga á kaupmætti
launa verkfólks og iðnaðarmanna 1. júni i fyrra
og eins og hann er áætlaður 1. júni n.k.
Samkvæmt þeim útreikningum, sem ekki
verða dregnir i efa, eru staðreyndirnar þessar:
• Kaupmáttur timakaups verkafólks og
iðnaðarmanna verður um næstu mánaða-
mót 25.5% meiri en hann var 1. júni i
fyrra.
• Kaupmáttur vikukaups verkafólks og
iðnaðarmanna verður 15.3% meiri 1. júni
1972 en hann var 1. júni 1971.
í útreikningunum á kaupmætti timakaups
kemur stytting vinnuviku fram að fullu sem
hækkun kauptaxta, en i vikukaupstöxtum kem-
ur stytting vinnuviku hins vegar ekki fram, þar
sem stytting vinnuviku veldur ekki hækkun
vikukaupstaxta fyrir dagvinnu.
Til viðbótar þessu ber að geta þess, að með
styttingu vinnuvikunnar hafa rauntekjur ým-
issa verkamanna og iðnaðarmanna aukizt
verulega, vegna þess að stytting vinnuvikunn-
ar, þ.e. fækkun dagvinnustunda, hefur ekki
stytt raunverulegan vinnudag, og þar með hef-
ur yfirvinnu og næturvinnustundum, sem
greiddar eru með álagi og miklu hærra verði,
fjölgað að sama skapi. Kaupmáttur rauntekna
starfsmanna i ýmsum greinum hefur þvi auk-
izt verulega meira en fram kemur i ofan-
greindum útreikningum Hagrannsóknadeildar
Framkvæmdastof nunarinnar.
Af þessu sést, hve fjarri öllum sanni ádeila
stjórnarandstöðunnar á rikisstjórnina er. En
þessi ádeila er einnig hámark ósanngirninnar,
þvi að það vita allir, sem þessi mál kynna sér,
að þær verðhækkanir, sem rikisstjórnin hefur
séð sig tilneydda að leyfa að undanförnu, þótt
hún reyni að spyrna fótum gegn verðhækkun-
um af fremsta megni, er að mestu leyti arfur
frá verðstöðvunartimabilinu, arfur frá stjórn-
artima þeirra manna, sem hæst hrópa nú gegn
verðhækkunum. Þessar verðhækkanir ætluðu
þeir að dylja fyrir þjóðinni meðan verið var að
kjósa, en svo oft voru þeir búnir að leika þann
leik, að þjóðin var farin að sjá i gegnum
sjónarspilið. Tvöfeldni stjórnarandstæðinga
gagnvart launþegum i þessu máli kemur
glögglega fram i leiðara Mbl. i gær, þar sem
látið er að þvi liggja, að kaupmáttaraukning
launþega hafi orðið allt of mikil og atvinnu-
vegirnir geti ekki undir henni staðið. — TK
ERLENT YFIRLIT
Cornelia hefur gert
Wallace að nýjum manni
Gengi hans í prófkjörunum er mikið henni að þakka
Cornelia Wallace nýtur sín vel, hvernig sem á hana er litiö.
t AMERISKUM blöðum hef-
ur verið sagt frá þvi, að
Cornelia Wallace, rikisstjóra-
frú i Alabama, hafi boðið hópi
barna og foreldra þeirra til
morgunverðar i rikisstjóra
bústaðnum. Hópur þessi var á
ferðalagi, og hafði honum
seinkað af einhverjum
ástæðum, svo að rikisstjóra-
frúnni þótti rétt að greiða fyrir
honum. t hópnum voru bæði
hvit börn og svört. Wallace
rikisstjóri kom heim á meðan
á morgunverðinum stóð og
kallaði strax konu sina afsiðis
ogspurði með nokkrum þjósti,
hvort það væri tilhlýðilegt að
láta blandaðan hóp skóla-
barna borða i rikisstjóra-
bústaðnum. — Þú þarft ekki
að borða hér, elskan min,
svaraði rikisstjórafrúin blið-
lega, en þó ákveðið. Þá var
Wallace öllum lokið og hann
settist að snæðingi með gest-
unum.
Þessi saga hefur allmikið
verið sögð að undanförnu, þvi
að hún þykir allgott dæmi um
þá breytingu, sem orðið hefur
á Wallace siðan hann gekk i
siðara hjónabandið og þau
áhrif, sem siðari kona hans
hefur haft á hann.
WALLACE var 23 ára,
þegar hann kvæntist fyrri
konu sinni, Lurleen, en hún
var þá 16 ára. Hann var þá
vörubifreiðarstjóri, sem jafn-
framt stundaði nám, en hún
var búðarstúlka. Þau þoldu
siðan saman súrt og sætt
meðan hann var að brjótast til
valda i Alabama_Það féll
Lurleen illa, þegar hún þurfti
fyrst að mæta með manni sin-
um á fundum, þvi að hún var
hlédræg að eðlisfari. En þetta
vandist af henni, og þegar
Wallace gat ekki, vegna laga-
ákvæða, látið endurkjósa sig
rikisstjóra, bauð hann
Lurleen fram og
fékk hana kjörna. En
hún gegndi ekki rikisstjóra-
embættinu nema i tvö ár, þvi
að skömmu eftir að hún varð
rikisstjóri, veiktist hún af
krabbameini, og varð það
banamein hennar. Wallace
hafði raunar öllu ráðið meðan
hún var rikisstjóri. Vararikis-
stjórinn, sem tók við að henhi
látinni, reyndist Wallace hins
vegar óþægur i taumi, og varð
fullurfjantlskapurmilli þeirra.
Þeir kepptu i prófkjöri um
rikisstjóraembættið 1970, en
þá mátti Wallace aftur bjóða
sig fram. Wallace sigéaði
naumlega. Fráfall Lurleen
hafði bersýnilega gengið nærri
honum, og" hann virtist ekki
sami maður og áður. Farið
var að spá þvi, að hann myndi
ekki gefa kost á sér aftur sem
forsetaefni, enda myndi það
reynast tilgangslitið. En fyrir
rúmu ári varð hin mikla
breyting á högum hans. Hann
kvæntist þá i annað sinn, 52
ára gamall. Hin nýja kona
hans var ,19 árum yngri en
hann. Hún virðist ekki aðeins
hafa endurvakið lifsgleði hans
og baráttuvilja. Hún ger-
breytti klæðaburði hans og
ýmsum vafasömum fram-
gönguháttum, m.a. i sjón-
varpi. Jafnframt hafði hún,
beint og óbeint, áhrif á
skoðanir hans og málflutning,
auk þess sem hann hafði lært
af reynslunni. Hinn nýi
Wallace ákvað að freista
gæfunnar sem forsetaefni i
annað sinn, og úrslit próf-
kjörsins i Flórida sýndu, að
hann var hinum gamla
Wallace miklu sigursælli.
CORNELIA er vaxin upp i
allt öðru umhverfi en Lurleen.
Hún er af þekktum og efnuð-
um Suðurrikjaættum. Móðir
hennar var systir eins áhrifa-
mesta stjórnmálamanns
Alabama á sinum tima,
Folsoms rikisstjóra. Folsom
var orðinn ekkjumaður, þegar
hann varð rikisstjóri, og hlaut
móðir Corneliu þvi það hlut-
verk að annast veizlur fyrir
hann og taka á móti gestum
við hlið hans. Cornelia er þvi
frá gamalli tið heimagangur i
rikisstjórabústaðnum. Hún
varð snemma pólitisk og
studdi Adlai Stevenson ein-
dregið i forsetakosningunum
1952 og 1956. Arið 1958 vann
hún fyrir Wallace, þegar hann
reyndi að ná kosningu sem
rikisstjóri i fyrsta sinn.
Wallace var þá studdur af Fol-
som, sem gat þá ekki gefið
kost á sér, en Folsom hafði
upphafiega hjálpað Wallace til
að ná kosningu til þingsins i
Alabama og leit á hann sem
hálfgerðan lærisvein sinn.
Wallace tapaði i prófkjörinu
1958, en reyndi aftur 1962, og
var þá Folsom aðalkepþi-
nautur hans. Folsom var
framfarasinnaður og hóf-
samur i kynþáttamálum, og
notaði Wallace sér óspart hið
siðarnefnda. Það nægði hon-
um til að sigra Folsom i próf-
kjörinu, og til að vinna siðan i
sjálfum rikisstjórakosningun-
um. Arið 1966, þegar Wallace
gat ekki boðið sig fram aftur,
reyndi Folsom enn að ná kosn-
ingu, en hann féll fyrir Lur-
leen i profkjörinu. A þessum
baráttutima þeirra Wallace og
Folsoms mun Cornelia hafa
verið takmarkaður aðdáandi
hins fyrrnefnda.
CORNELIA hóf ung nám og
stundaði það við ýmsa þekkta
skóla i Suðurrikjunum með
góðum vitnisburði. Jafnhliða
náminu lagði hún stund á tón-
list og iþróttir. Hún tók þátt i
keppni um fegurðardrottningu
Alabama og hlaut annað sæti.
Hún var fengin til að leika i
kvikmynd, sem þó var aldrei
fullgerð, en i sambandi við
myndatökuna fór hún i langt
ferðalag, eða alla leið til
Hawaii, Astraliu og Flórida.
Ferðinni lauk i Flórida, og þar
kynntist hún ungum milljóna-
mæringi. Giftust þau nokkru
siðar, og bjó hún þar næstu
átta árin. Þá lauk hjóna-
bandinu með skilnaði, og
Cornelia fluttist með tvö börn
sin til Alabama. Þar kynntist
hún eldri dóttur Wallace, og
urðu þær vel kunnugar. Sá
kunningsskapur leiddi til þess,
að fundum hennar og Wallace
barsaman, sem aftur leiddi til
þess.að þau stofnuðu til ráða-
hags fyrir rúmu ári, eins og
áður segir.
Meðan Cornelia átti heima i
Flórida, lagði hún mikla stund
á ýmsar iþróttir. Hún tók þátt
i kappakstri og lauk flugprófi.
Hún sinnti þá minna stjórn-
málum en áður, en stjórn-
málaáhugi hennar óx að nýju
eftir heimkomuna til
Alabama. Hún er sögð frjáls-
lynd i skoðunum og framfara-
sinnuð, og miklu hófsamari i
kynþáttamálum en maður
hennar hefur verið. Hér gætir
þess vafalitið, að hún er alin
upp i röðum menntaðra
Suðurrikjamanna, sem á sin-
um tima voru einir beztu
stuðningsmenn Franklins D.
Roosvelt. Málefnalega hefur
hún vafalaust haft heppileg
áhrif á mann sinn.
Það hefur svo ekki verið
Wallace litill styrkur, að hún
er með friðustu konum i sjón
og framgöngu. Oneitanlega er
hún sú kona forsetaefna demo
krata, sem leitt hafa saman
hesta sina að undanförnu, sem
mesta eftirtekt og aðdáun hef-
ur vakið, en hún hefur verið
með manni sinum á flestum
kosningafundum hans. Þessa
dagana,eða eftir að skotárásin
var gerð á Wallace, beinist
meiri athygli að henni en
nokkurri annarri konu
Bandarikjanna. Þ.Þ.