Tíminn - 20.05.1972, Qupperneq 2

Tíminn - 20.05.1972, Qupperneq 2
TÍMINN Laugardagur 20. maí. 1972, 2 , Veggjaldið afnumið 1. jan. t frétt hér i blaðinu i gær, um afnám veggjaldsins á Reykjanesbraut, var sagt, að stjórnarandstæðingar hefðu flutt tiliöguna um að gjaldið yrði afnumiö. Þar var rangt með farið. Stjórnarand- stæðingar voru ekki einir um fiutning þessarar tillögu, sem samþykkt var á Alþingi á fimmtudagskvöld. Stjórnar- þingmennirnir Hilmar Pétursson úr Reykjaneskjör- dæmi, er nú situr á Alþingi i fjarveru Jóns Skaftasonar, en hann var fjarv. vegna setu á fundi forsætisn. Noröurlanda- ráðs, Björn Fr. Björnsson, Agúst Þorvaldsson og Garðar Sigurðsson úr Suðurlandskjör- dæmi, voru meðflutnings- menn að þessari tillögu. Þessi missögn gefur og til- efni til að rifja upp sögu þessa máls á þvi Alþingi, er nú situr. A öndveröu þingi fluttu þeir Halldór S. Magnússon, er þá átti sæti sem varamaður á þinginu, Jón Skaftason og Gils Guðmundsson frumvarp til laga um,aö veggjaldið skyldi niður falla 1. jan. n.k. Þetta frumvarp fékk ekki af- greiðslu. Við afgreiðsluvegaáætlunar stóðu svo fyrrgreindir flutn- ingsmenn stjórnarflokkanna, ásamt nokkrum stjórnarand- stæðingum, aö breytingartil- lögu viö vegáætlun, sama efn- is og frumvarp þeirra þre- menninganna. Þingmenn Suðurlandskjördæmis gengu i liö með Reyknesingum i þessu máli. Ástæðan var sú, að fyrirsjáanlega yrði veggjald lagt á Austurveg, ef halda ætti áfram innhcimtu veggjalds á Reykjanesbraut. Hið sama gildir auðvitað um Vestur- landsveg, þegar hraðbraut með varanlegu slitlagi hefur verið gerð þar. Breytingartillaga Vilhjálms Hjálmarssonar, um að niður- fellingu veggjaldsins skyldi mætt með hækkun benzfn- gjalds, var samþykkt aö við- höfðu nafnakalli. Greiddu allir stjórarsinnar þeirri tillögu at- kvæði, að undanskildum Birni Jónssyni. Þingmenn Sjálf- stæðisflokksins greiddu at- kvæði á móti, en þingmenn Al- þvðuflokksins sátu hjá. Þetta mál var talsvert hita mál á Alþingi og skiptar skoöanir um það, semséstbezt á því, aö tillagan um niöurfell- ingu veggjaldsins var sam- þykkt með aðeins 2ja atkvæða mun, 27 atkvæðum gegn 25, en 7 þingmenn sátu hjá viö at- kvæðagreiösluna. Meðal þeirra, sem greiddu atkvæði gegn niðurfellingunni, var sjálfur samgönguráðherrann, Hannibal Valdimarsson, svo og aðrir ráðherrar. Fálkaorðan Fyrirsjáanlegt er, að menn munu halda áfram deilum um Fálkaorðuna á næsta Alþingi. j Við umræður i Sameinuðu þingi í gærkvöldi mælti ólafur Jóhannesson forsætisráðherra gegn afnámi orðunnar. Fyrir þinginu lágu tvær til- lögur um þetta efni. Bjarni Guðnason lagði til að Fálka- orðan skyldi lögö niður að fullu og öllu. Þórarinn Þórar- insson lagði til, að orðan yröi aðeins veitt útlcndingum. Til- lögurnar dagaði báðar uppi. Eystcinn Jónsson, forseti Sameinaðs þings, tók málið út af dagskrá eftir ræðu forsætis- ráðherra, þar sem mjög margir þingmenn höföu kvatt sér hljóðs, en þinglausnir voru þá framundan. — TK Árelíus Níelsson: Ogleymanlegur æskulýðsleiðtögi Litir gera lífið fjölskrúðugt# Hversdagsleikinn í daglegu lífi er grárri en góðu hófi gegnir. Andstæða þessa gráma eru litir náttúrunnar, sem vekja gleði í brjósti þess, er gengur á vit þeirra. Litirnir frá Hörpu standast ef til vill ekki sam- anburð við litadýrð náttúrunnar, en þeir geta vikið hversdagsleikanum til hliðar og hresst upp á tilveruna. LÁTIÐ HÖRPU GEFA TÓNINN LlF í LITUM ER ÁNÆGJULEGRA Jón Grétar Sigurösson héraðsdómslögmaður Skólavörðustíg 12 Simi 18783 HARPA EINHOLTI 8 Þótt hér séu aðeins þessar bækur nefndar eftir 01. Ricard, ritaði hann margar fleiri. Og sumum finnst ein af fyrstu bókum hans, sem heitir „Kristur og menn hans,” meðal hinna snjöll- ustu. En þar rikir sá andi yfir öllu, sem gjörthefur þetta stórmenni á vegum Guðs ógleymanlegast, en það er æskulýðsstarf hans og sú sérstaka hæfni, sem hann virtist gæddur til að umgangast unga menn og og ungt fólk yfirleitt. Og þá ekki siður, hve vel honum tókst að koma orðum sinum þannig fyrir, að æskan skildi boðskap Krists og hrifist af boðskap hans. Einn af lærisveinum Olferts Ricards segir frá þessum fræðslustundum á þessa leið: „Við minnumst hinna óviðjafnan- legu kvöldstunda, þegar Ricard hafði bibliulestur fyrir drengina i unglingadeildinni og unga menn i aðaldeildinni. Meðan hann las ‘ textapn, hugsuðu sumir: ,,Ég held við þekkjum þetta nú, kunnum það næstum utanað, höfum svo oft heyrt þessa sögu.” En vart hafði Ricard tekið til við að útskýra og ihuga fyrr en sú athugasemd gerði vart við sig, sem mætti orða svo: „Ekki veit ég, hvernig ég hef heyrt og hlustað áður. Þetta er alveg nýtt. Þetta hefur mér aldrei dottið i hug fyrri”. Nú sátum við og hlutstuðum á þessar gamalkunnu frásagnir með ferskum áhuga, sáum allt i nýju ljósi. Og oft kom það fyrir, að Ricard kom með athuga- semdir svo sláandi og skemmti- legar, að sannleikur og fegurð orðánna máðist ekki úr vitundinni framar, heldur lifði þar og vakti og kom fram á réttu andartaki Einn af stórmennum dönsku kirkjunnar átti hundrað ára afmæli um páskana. Fæddur 2. apr. 1872. Þetta er Olfert Ricard, sem var allt i senn: mælskumaður, rit- höfundur og æskulýösleiðtogi. Hann var einn af frumherjum þeirra kirkjulegu æskulýðssam- taka i Danmörku, sem sr. Friörik Friðriksson stofnaði hér á landi og nefndi Kristilegt félag ungra manna og allir kannast við undir nafninu eða skammstöfuninni KFUM. Sr. Friðrik tók sér Olfert Ricard mjög til fyrirmyndar i einu og öllu og má teljast postuli hans hér á íslandi. Báöir voru þessir menn sterkir og sérstæðir að persónugerð, hugsjónum, gáfum og starfsþreki. Og þótt fæstum eftirmönnum þeirra i starfi hafi tekizt að feta i þeirra slóð, þá má áreiðanlega fullyrða, að brautryðjendastarf þeirra i æskulýðsmálum kirkj- unnar er hið merkasta. Og sannarlega væri þörf á að kynna þá, aðferðir þeirra, hugsjónir, trú og eldmóð.betur en gert er. Olfert Ricard tileinkaði sér margt hið bezta i bókmenntum og máli sinnar þjóðar og var nægi- lega frjálslyndur til að viöur- kenna höfuðkempur sinnar sam- tiðar i Danmörku, meira að segja sjálfan Brandes, sem klerkar áttu samt fæstir samleið með. t ritum sinum og tungutaki varð hann fyrir áhrifum af Ander sen Nexö, Jeppe Aakær og siðast en ekki sizt meistaranum H.C. Andersen. En samt var Olfert Ricard sér stæður og sjálfstæður rit- höfundur. Hann var snillingur, sem ekki þurfti að likja eftir neinum og gerði það ekki, þótt hann tileinkaði sér það bezta frá krafti og anda meistaranna. Helztu rit Olferts Ricards eru: „Kenn oss að biðja,” sem hann hafði sjálfur einna mestar mætur á, ,,Lif Jesú Krists”, og „Andi Postulakirkjunnar”. áratugum siðar til að hugga, blessa, hjálpa eða visa á rétta leið” Annar lærisveina eða áheyr- enda Olferts Ricards lýsir þessum timum þannig: Ég viður- kenni gjarnan, að þessar sam- verustundir undir leiðsögn sr. Olferts Ricards og við hans ræðu- stól eru einar þeirra fáu stunda, sem ég óska að lifa upp aftur. Aldrei hefur lifið fært mér óblandnari unað og gleði en þessi kvöld liðinnar æsku, aldrei hefi ég þekkt meiri tilhlökkun en þá, sem stýrði skrefum minum til hans. Ég hef ennþá ekkert til saman- burðar”. Þannig vitna þeir einn af öðrum, sem nutu vegsagnar og fræðslu hjá þessum ógleyman- lega æskulýðsleiðtoga dönsku kirkjunnar. Það væri ekki úr vegi, að æsku- lýðsfræðarar nútimans jafnvel hér úti á íslandi reyndu að kynnast ritum hans og tileinka sér sem mest af reynslu hans og snilli. FRÁ BARNASKOLUM HAFNARFJARÐAR Innritun þeirra 6 ára barna (fædd 1965), sem ekki voru i 6 ára deildum barnaskól- anna i vetur, fer fram i barnaskólunum miðvikudaginn 24. mai kl. 14. Fræðslustjórinn i Hafnarfirði Stýrisendar, spindil- kúlur, Uppihengjur og slit- fóðringar i margar gerðir bila BÍLABUÐIN . Hverfisgötu 54, R. simi 16765. Til Gullfoss, Geysis og Laugarvatns alla daga. Afgreiðsla B.S.í. Simi 22300 — Ólafur Ketilsson LtTIL FISKÞURRKUNARSTÖÐ til sölu á tækifærisverði. Til- valið fyrir duglegan mann, sem vill vinna sjálfstætt. Uppl. i sima 40638 eða 43138 eftir kl. 8 á kvöldin.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.