Tíminn - 20.05.1972, Síða 3

Tíminn - 20.05.1972, Síða 3
Laugardagur 20. mai. 1972. TÍMINN 3 Nefnd skipuð til að endurskoða stjórnarskrána - Alþingi gerði í gær ályktun um málið og kaus nefndarmennina EB-Rcykjavik. Alþingi ályktaði i gær, að skip- uð skyldi 7 manna nefnd til að endurskoða stjórnarskrána og eru þeirkosnir af Aiþingi. Kveður forsætisráðherra nefndina saman til fyrsta fundar, en hún skiptir með sér verkum eins og segir i til- lögunni. Kaus Alþingi i gær nefndarmennina, og skipa hana þeir Jóhannes Eliasson, Sigurður Gizurarson, Ragnar Arnalds, Gunnar Thoroddsen, Ingólfur Jónsson, Hannibal Valdimarsson og Emil Jónsson. Samkvæmt tillögunni ber nefndinni að leita álist sýslu nefnda og bæjarstjórna, lands- hlutasambands sveitarfélaga og landssambands stéttarfélaga. Hún skal leita álits lagadeildar Háskólans og Hæstaréttar um lögfræðileg efni. Með opinberri tilkynningu skal þeim, sem þess kynnu að óska, gefinn kostur á að koma á framfæri við nefndina skriflegum og skriflega rökstudd- um breytingartillögum við nú- gildandi stjórnarskrá fyrir þann tima, sem nefndin tiltekur. Kostnaður við endurskoðunina greiðist úr rikissjóði. Eins og Timinn hefur áður sagt frá, fluttu þingmennirnir Gisli Guðmundsson og Gunnar Thor- oddsen tillögur til þingsályktunar um endurskoðun stjórnarskrár- innar fyrr á þessu þingi. Þessum tillögum var visað til allsherjar- nefndar þingsins. Afgreiddi nefndin tillögurnar á þann veg, að hún sjálf flutti tillögu um endur- skoðunina. Hin endanlega tillaga, sem nú hefur verið greint frá, er breytingartillaga við þá tillögu allsherjarnefndar og var flutt af Þórarni Þórarinssyni, Ragnari Arnalds og Birni Jónssyni. Sam- þykkti Alþingi þessa tillögu sam- hljóða. Seyðisf jörður: Vertíðarafli þrefalt meiri en í fyrra ÞÓ-Reykjavik. Vertið er fyrir nokkru lokið á Seyðisfirði. Alls bárust þar á land 2500 lestir, sem er þrefalt meira en kom á land á vertlðinni 1971. Óhætt er að fullyrða, að þessi vetrarvertið hafi gefizt mjög vel, Alþingi slitið í dag EB-Reykjavik. Ekki tókst að ljúka störfum Al- þingis i gær, eins og reiknað hafði verið með. Hins vegar verða þingslitin siðdegis i dag, liklega kl. hálf fimm, samkvæmt upp- lýsingum frá skrifstofu AÍþíngis í gærkvöldi. Það, sem einkum mun hafa valdið þvi, að þingstörfum lauk ekki i gær, voru miklar umræður um frumvarp stjórnarinnar um afnám visitölubindingar af lánum húsnæðismálastjórnar, en þing- menn Sjálfstæðisflokksins, sem vildu visa málinu frá með rök- studdri dagskrá, héldu uppi miklu málþófi i sambandi við frum- varpið. ' ifflÍ"" ! 18. nn. Ifi! iiiiiiiiiiiiiiiir.....:;iiil Ullarferð til útlanda Þess er að vænta, að blfðviðris- dagar hvetji til ferðalaga innan- lands, einkum núna, þegar vorið hrynur i bláum möttlum niður fjallahliðarnar, og lóan æfir kórinn með lömbum og folöldum. Þó er hvitasunnan ekki árviss til útilegu, og raunar enginn timi á tslandi. En um það er ekki að fást. Það er heldur engin ástæða að fást um ferðalög hinna mörgu til útlanda héðan úr islenzka vorinu eins og það verður bezt. Þetta er orðin venja og nokkurt tilhlökkunarefni ungum sem öldnum, af þvi að á þessum árum hafa ferðalögin verið uppgötvuð með þeim árangri m.a., aö fólk lendir i hassi og ofbeldismálum, en mcst auðvitað i búðum, á þessum ferðum. Þau ferðalög, sem tfðkuðust einkum fyrir tima flugsins og bílsins, hétu kaupstaðarferöir og svo feröalög í slagtogi með land- póstum og búferlaflutningar. Allt þótti þetta miklum Uðindum sæta, og stór hluti af þjóölegum fróðleik vorra tima fjailar um það, hvernig menn skriðu móti vindi yfir einhverja holtavörðuheiðina, eöa snöruðu sér úr brókunum til aö svamla berlæraðir yfir næstu jökulá, kannski f tólf stiga gaddi — allt brýnar hetjudáðir, sem ægja þeim f dag er setjast f hin mjúku hægindi Friendships eða Boeing og koma sveittir af hlýindum og konfaki á leiðar- enda. Af slikum ferðum verður engin saga. Einn undarlegur siður ætlar að fylgja ferðum til útlanda, og verða lífsseigari en ástæða var til að ætla, en þaö er kaupnáttúruna. Fólk kaupir bókstaflega alla skapaða hluti utaniands, i sig og á, eins og það sé að búa sig undir pólferðalag. Allt er reiknað út samkvæmt gengi og hagkvæmni, og sé eitthvað nokkrum krónum ódýrara i Princeys Street eða Amsterdam en á Laugavegi 112, Samningarnir staðfestir en þetta er annað áriö i iangan tima, sem gert hefur verið út á vetrarvertið ,frá Seyðisfirði, og gefst það ekki verr en i hinum hefðbundnu verstöðvum. Tveir netabátar voru gerðir út frá Seyðisfirði i vetur, Hannes Hafstein, sem fékk 660 lestir og Gullberg, sem fékk 580 lestir. Tveir trollbátar lögðu upp á Seyðisfirði i vetur og var afli þeirra i meðallagi. Nýi skuttogar- inn Gullver hefur nú verið gerður út i einn og hálfan mánuð og hefur fengið hátt i 400 tonn. Nú siðast kom Gullver með 50 tonn af stórri ýsu, sem hann fékk við SA-land, en það er frekar sjaldgæft, að svo góðir ýsufarmar fáist. 1 sumar verða gerðir út fjórir humarbátar frá Seyðisfirði, eru það Hannes Hafstein, Viglundur, Gullberg og Einar Þorðarson. Ólafur Magnússon, sem landar hjá Norðursild verður á trolli. Mjög mikil atvinna er nú á Seyðisfirði, og vantar verkafólk sér i lagi kvenfólk. Atvinnurek- endur á Seyöisfirði, segjast von- ast til, að skólafólk sæki i þessa vinnu. Karl Kristjánsson — hann er upphafsmaður þess á Alþingj að láta endurskoða stjórnarskrána. Flutti tillögu um það á Alþingi 1966 Turninn að koma í Ijós OÓ-Reykjavík. Turnspira Hallgrimskirkju er nú að koma i ljós. Verið er að rifa efstu vinnupaliana niður, og á næstunni er áætlaö aö taka timbrið utan af turninum, allt niður i 45 metra hæð. Lokiö er við að múrhúða og rakaverja efsta hluta turnsins, en i sumar verður unnið að múrhúðun neðri hlutans, og standa vonir til, að f haust verði turninn fullgerður aö utan og hægt hægt verði þá aö rifa niður alla vinnupallana. - Þýzkaland á barmi NTB—Bonn Efri deild Sambandsþingsins i Bonn samþykkti i gær að stað- festa griðarsáttmálana við Sovét- rikin og Pólland. Sem fyrr sátu kristilegir demókratar hjá við atkvæðagreiðsluna. Stjórnarkreppa er nú i Vestur- Þýzkalandi. Kristilegir demó- kratar hafa gert ljóst, að þeir muni ekki auðvelda Brandt kanslara að efna til nýrra kosninga,og sagði Rainer Bartzel, leiðtogi stjórnarandstööunnar, i gær, aö þjóðin gæti ekki búið viö leiðtoga, er hefði glatað trausti sinu á löggjafarþingi þjóðarinnaij og yrði Brandt þvi að segja af sér. Aftur á móti mun Brandt sjálfur ekki hafa i hyggju að segja af sér. fyrir kosningar, og mun hann hefja viðræður við stjórnarand- stöðuna innan skamms. Hoeneker, leiðtogi kommúnista flokks Austur-Þýzkalands, fagnaði i gær staðfestingu sátt- málanna og sagöist innan skamms hefja áður boðaðar við- ræður viö stjórnina i Bonn. Hoeneker sagði, að sáttmálarnir staðfestu samþykki Vestur-Þjóð- verja á landamærum Evrópu eins og þau væru nú, og þar á meðal landamæri Austur- og Vestur- Þýzkalands. Þykist stjórnin i Austur-Berlin þar með vera búin að fá óformlega viðurkenningu Bonn-stjónarinnar. Samningarnir eiga nú aðeins eftir aö fara fyrir Gustav Heine- mann, forseta Sambandslýð veldisins Þýzkalands, og mun hann undirrita þá i næstu viku, sennilega á föstudaginn. 1 annari NTB-frétt sagði, að umsókn Austur-Þýzkalands um aðild að heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna, WHO, heföi verið visað frá. Vestur-Þýzka- land, Bretland, Bandarikin og Japan voru meðal þeirra,er vildu Landið þitt í sérstakri ferðaútgáfu um, auk fróðleiks um þúsundir is- lenzkra manna, bæði lifs og liöna, atburði, bækur og margt og margt fleira Fólk hefir gjarnan tekið LANDIÐ ÞITT með sér i ferða- lög, og slegið upp i þeim, sér til fróðleiks og upprifjunar, þegar það hefur komið að sögulegum stöðum eða jarðfræðilega merk- um, enda þótt bækurnar nokkuð þungar og fyrirferðamiklar. Þess vegna hafa útgefendur brugðið á það ráð að gefa þær út i léttri og handhægri ferðaútgáfu, svo sem fyrr segir. Hinar vinsælu uppsláttarbækur um island, LANDID ÞITT, eru komnar út I sérstaklega meöfæri- legri ferðaútgáfu, prentaðar á þunnan,cn sterkan pappir og káp- an er úr plastefni, sem þolir mis- jafna meðferö. Svo sem kunnugt er þá, geyma báðar bækurnar mjög ítarlegan fróðleik um þúsundir islenzkra staða, bæði i byggðum og óbyggð- LEIÐRÉTTING Tvær meinlegar villur slæddust i greinina um afla togaranna. A einum staö stóð, aö togararnir væru á veiðum viö V-Grænland — á að vera A-Grænland. A öðrum stað stendur, að Júpiter hafi landað 196 lestum á að vera 296. stjórnarkreppu fresta afgreiðslu málsins, en austur-Evrópulöndin, þar á meðal Sovétrikin kröfðust þess, að Austur-Þýzkaland fengi aðild þegar i staö. Brezkir skip- brotsmenn til Reykjavíkur ÞÓ-Reykjavfk. Þýzka eftirlitsskipiö Fridtjof kom til Reykjavikur i gær- morgun, með brezku skipbrots- mennina af togaranum Ranger Ajax, sem brann og sökk suður af Hvarfi á Grænlandi á fimmtudag. Það var snemma á miðviku- dagsmorgun, aö kviknaöi i togar- anum. Skipverjar gerðu itrekaöar tilraunir til að slökkva i skipinu, en án árangurs. Fridtjof var statt i um það bil fjögurra stunda siglingu frá Ranger Ajax og er það kom á staðinn, voru skipverja á Ranger Ajax komnir i björgunarbátana. Reynt var að slökkva eldinn i togaranum frá Fridjof, en þaö reyndist erfitt, og barst eldurinn út um allt skipið, með þeim af- leiðingum að það sökk i gærdag. Enginn skipsbrotsmanna mun hafa slasazt i eldinum, en þeir voru 26. Tónleikar Gunnars Kvaran SJ-Reykjavik. Gunnar Kvaran sellóleikari heldur sina fyrstu tónleika i Reykjavik á þriðjudagskvöld kl. 7.15 i Austurbæjarbiói á vegum Tónlistarfélagsins. Siöan 1968 hefur Gunnar veriö aðstoðar- kennari Erlings Blöndal Bengt- son við Tónlistarskólann i Kaup- mannahöfn og hefur getiö sér gott orð sem sellóleikari i Danmörku. Hann hlaut tónlistarverðlaun Gades 1969. Gunnar stundaði nám i Tón- listarskólanum i Rvik, og var aöalkennari hans Einar Vigfús son. Siðan lærði hann hjá Erhng Blöndal og lauk námi i einleik aradeild Tónlistarskólans i Höfn vorið 1971. A efnisskrá tónleikanna á þriöjudag eru verk eftir Schubert, Bach, Beethoven, Han Werner Henze og Britten. m þá er hluturinn keyptur, þótt hann hafi verið til á Laugaveginum I tiu ár og engan varðað um hann, af því engínn hafði neitt með hann að gera. Þessi tombóluhugur er kannski skemmtileg tilbreyting á ferðalaginu, en hann eykur varla nokkru við ævigróðann. En verzlunarnáttúran getur átt sér fleiri rætur. t einn tima þótti mikil hind I þvi að fara með ullina i kaupstaðinn, og margar hjart- næmar frásagnir hafa birzt af þvi hvernig unglingar söfnuðu haga- lögðum til að geta lagt inn fyrir hnif I ullarferðinni eða ein- hverjum öðrum kjörgrip. Kannski rikja dagar ullarferð- anna enn. Fólk safnar sfnum hagalögðum og breytir þeim i gjaldeyri og hleypir siðan heim- draganum í leit að kjörgripunum. Hins vegar mundi það aldrei samþykkjafað það væri aðeins I ullarferð til útlanda, þvi hin nýja tið hefur að yfirskini eltingaleik við sól og vind, einnig þótt vori fallega á tslandi. Svarthöfði TILB0Ð ÓSKAST i nokkrar fólksbifreiðar, jeppabifreið 6 manna og sendiferðabifreið, er verða sýndar að Grensásvegi 9, miðvikudaginn 24. mai kl. 12-3. Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl. 5. Sölunefnd varnarliðseigna. V0RUBÍLASTJ0RAFÉLAGIÐ MJÖLNIR óskar að ráða skrifstofumann nú þegar. Upplýsingar um starfið veittar i skrifstofu félagsins á Selfossi. Simi 1526. VERZLUNARHUSNÆÐI TIL LEIGU Hefi til leigu húsnæði fyrir verzlun eða léttan iðnað i Brautarholti 22. Stærð ca. 135 fermetrar. Húsnæðið er laust nú þegar. Upplýsingar gefur Jón Snæ- bjömsson, simi 14927 og 36010.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.