Tíminn - 01.07.1972, Qupperneq 16
Setningar-
athöfnin
í kvöld
OV-Reykjavík
Heimsmeistaraeinvigið i
skák verður sett i Þjóðleik-
húsinu kiukkan 8 á laugar-
dagskvöldið. Hefst athöfnin
með þvi, að leikinn verður
FlDE-óðurinn, sérstakt tón-
verk, sem tileinkað hefur
verið Alþjóðaskáksam -
bandinu, en siðan flytur
Guömundur G. Þórarinsson,
forseti Skáksambands
lslands ávarp.
Einnig flytja ávörp'
þeir Magnús Torfi Olafsson,
menntamálaráðherra, Geir
Hallgrimsson, borgarstjóri og
S. Astavin, sendiherra Sovét-
rikjanna á fslandi.
Að þvi loknu verður leikinn
þjóðsöngur Sovétrikjanna og
þar á eftir talar sendimaður
Bandarikjastjórnar, Theodore
Tremblay. Þá verður leikinn
þjóðsöngur Bandarikjanna,
dr. Max Kuwe, forseti FIDK,
flytur ávarp, en að þvi búnu
dregur aðaldómarinn, Lothar
Schmidt, um byrjunarleikinn i
einviginu. Loks verður
islen/.ki þjóðsöngurinn leikinn.
Að lokinni setningarathöfn-
inni mun menntamálaráð-
herra bjóða gestum til hóls i
Leikhúsk jallaranum.
Nokkuð iiruggt er, að Robert
,1. Fiseher verður ekki við-
sladdur setningarathöfnina.
Fyrsta skákin ef al verður
verður svo leikin á sunnu-
daginn og hefst hún klukkan
17. Rúmlcga 2000 miðar hala
sel/.t á fyrstu skákina en treg-
lega hel'ur gengið að selja á
næstu skákir, enda
lslendingar ekki vanir að puða
mikið lyrirfram i aðgiingu
miðakáupum, gerist þess ekki
bryn þiirl'.
Lézt á leið
til læknis
Fimm ára gamall drengur á
Ölafsfirði lézt á leið til læknis, s.l.
miðvikudag, en læknislaust hefur
veriðá Ólafsfirði siðan 18. júni s.l.
Drengurinn, sem hét Sigmar
Kárason, datt af reiðhjöli og slas-
aðist á höfði, hefur sennilega
höluðkúpubrotnað. 1 fyrstu var
ekki vitað. hve alvarlega barnið
var meitt, en siðar þyngdi Sig-
mari mjög og var hringt i
lækninn á Dalvik og kom hann i
bil á móti öðrum bil, sem
drengurinn var fluttur i. Rétt
áður en drengurinn komst undir
læknishendur lézt hann.
Tímaritið Skák
gefur út
einvígisblað á
3 tungumálum
Eins og komið hefur fram i
lréttum, mun timaritið Skák
koma út morguninn eftir hverja
umferð heimsmeistaraeinvigisins
og verður það á ensku, rússnesku
og islenzku. Verða i þvi myndir,
viðtöl og skýringar með skákum
og greinar um skák.
Er þetta i fyrsta skipti, sem
slikt blað kemur.útá skákmóti, og
hefur ritstjórn blaðsins þegar
borizt nokkur fjöldi pantana er-
lendis frá, svo og frá innlendum
skákáhugamönnum.
Fyrsta blaðið kemur út á sunnu-
daginn og má nefna, að meðal
efnis verður ávarp forseta ís-
lands, dr. Kristjáns Eldjárns,
fimm siðustu skákir þeirra Fisch-
ers og Spasskis og sitthvað fleira.
Ritstjóri þessa sérstaka heims-
meistaraeinvigisblaðs Skákar, er
Ingvar Asmundsson, en meðal
þeirra sem i ritið munu skrifa, er
Helgi Sæmundsson, ritstjóri.
Vietnam:
Bandaríkjamenn varpa
sprengjum á áveitukerfi
- segir ambassador Svía í landinu
Ambassador Sviþjóðar i
Norður-Vietnam fullyrti i gær, að
bandariskar herflugvélar hefðu
varpað sprengjum á áveitukerfi i
Norður-Vietnam. Sagðist hann
hafa séð skcmmdir á þvi við
Rauðuá.
Nixon sagði hins vegar á blaða-
mannafundi i fyrrinótt, að banda-
riskar herflugvélar hefðu ekki
varpað sprengjum á áveitukerfi
Norður-Vietnam. Fullyrðngar um
hið gagnstæða ætti ekki við rök að
styðjast. Nixon sagði á fundinum.
að loftárásum á landið yrði ekki
hætt, þær væru nauðsynlegar til
að koma i veg fyrir að kommún-
istar tækju völdin i Suður-Viet-
nam. Ennfremur þyrfti loftárásir
til að vernda bandariska her-
menn i Suður-Vietnam og til að
knýja fram frelsi fyrir banda-
riska striðsfanga i N-Vietnam.
Svart: Reykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
ABCDEFGH
■o»
-o
ABCDEFGB
Hvítt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðssonog Hólmgrimur
Heiðreksson.
22. leikur Reykvikinga: De(i-e4
Holtastaðakirkju
færð vegleg gjöf
Sunnudaginn 18. júni s.l. afhenti
Jónas Guðmundsson frá Miðgili i
Langadal, Holtastaðakirkju
skirnarfont að gjöf við hátiðlega
athöfn i kirkjunni.
Skirnarfonturinn er gerður af
Jónasi Jakobssyni listamanni, og
er hinn fegursti gripur. Hann er
gefinn til minningar um foreldra
Jónasar Guðmundssonar, þau
hjónin Guðmund Þorkelsson á
Miðgili og Guðrúnu Einarsdóttur,
en að gjöfinni standa afkomendur
þeirra og voru þeir flestr við-
staddir afhendinguna.
Þessum inyndalega barnahóp mættuin við i Safamýrinni í gær, en þá var hann þar á ferðalagi með
fóstrunum. Freinstur i flokki gckk kotroskinn strákur, sem merktur var í bak og fyrir með orðinu
VAItúD Er þetta nýmæli i svona göngutúrum, en þó munu nokkur dagheimili hafa tekið þetta upp
(Timamynd G.E.)
„Skákeinvígi aldarinnar”
- lokuð sjónvarpsstöð
Myndir frá einvíginu sýndar
þegar opnað verður aftur
Þess er ekki að dyljast, að
inargir undrast. að sjónvarpið
skyldi ekki bregða venju sinni
um sumarleyfismánuð að
þessusinni — færa hann annað
tveggja frani eða fresta
leyfum þar til i september.
Fólki kemur spanskt fyrir
sjónir, að sjónvarpið islenzka
skuli loka i sama mund og sú
einstæða viðureign. sem
nefnd hefur verið skákeinvigi
aldarinnar. er að hefjast við
bæjardyr. þess.
Af þessum sökum hefur
blaðið snúið sér til þeirra
manna fjögurra, sem það taldi
einkum fara meö yfirstjórn
þessara mála, og spurðist
fyrir um afstöðu þeirra. Þeir
gáfu greið svör. sem hér fara
á eftir, hver frá sinum sjónar-
hóli. Það er siðan lesendanna
að meta. hverjum fyrir sig,
hversu gild rök þeim finnst
þau hafa við að styðjast.
Juli er sólmánöur okkar
Andrés Björnsson útvarp-
stjóri svaraði á þessa leið:
— Júli var upphaflega
valinn sumarleyfismánuður
sjónvarpsins vegna þess, að
þá er fólk langflest á ferð og
flugi. Þetta er sólmánuður
okkar. og þaö er einu sinni
svo, að við höfum ekki
fjárhagslegt bolmagn til þess
að hafa sjónvarpið opið alla
mánuði árs, þótt mitt viðhorf
sé, að vissulega væri gaman
að geta það.
Ég ber ekki á móti þvi, að ég
hef orðið var við kurr, en við
getum ekki breytt til i ár —
það verður ekki viö snúið
héðan af. En þess er þá lika að
geta, að fólk mun seint og
snemma fá rækilega
frásagnir af einviginu i gegn
um útvarpið og við höfum
notið þeirrar góðvildar
Skáksambandsins aö þegar
sjónvarp hefst á ný. fáum við
til sýningar allar þessar
myndirfrá einviginu, þótt það
hafi vegna peningaþarfar
sinnar orðið að selja
amerisku félagi sjónvarps-
rettindi.
Meöhöndlun myndavela
takmörkunum háö
Pétur Guðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri sjónvarpsins
sagði:
— Okkar stutta sumar er
bezt og bliðast i júli, og þá fara
flestir i sumarleyfi, er sumar-
leyfi fá a annað borð. Þess
vegna er júli sumarleyfis-
mánuðurinn. Svo verður lika
að vera nú, jafnvel þótt svona
j standi á, þótt illur kostur sé
að verða að loka.
Þess er lika að geta, að
meðhöndlun myndavéla hafa
verið miklar takmarkanir
settar i þessum sal, þar sem
teflt verður. og svo fer sjón-
varpið væntanlega i gang 1.
ágúst, löngu áður en einviginu
lýkur.
Lengi óvist, hvort mótið
yrði háö hér
Njörður Njarðvik, formaður
útvarpsráðs leysti úr
spurningum okkar á þennan
veg:
— Þetta er habölvaö að
loka i júlimártuði mesta
vandræðatíltæki. En þaö er
einskis annars kostur eins og
fjarhagsafkoman er nú.
Svo er þess að gæta að
einvigið stendur ekki bara i
júli, heldur einnig ágúst. Enn
fremur er þess að minnast,
hversu lengi rikti um það
óvissa, hvort mótið yrði háð
hér.
Annars heyrir þetta ekki
undir útvarpsráð. Þáð annast
eins konar ritstjórn dagskrár,
og það er utan valdsviðs þess
að ákvarða, hvenær sumar-
leyfi eru hjá þeim i sjón-
varpinu, og mér vitanlega
hefur það aldrei verið rætt i
útvarpsráði.
„Ég beiti mér ekki fyrir
breytingu"
Að siðustu kemur svo svar
Magnúsar Torfa Ólafssonar
menntamálaráöherra:
— Þetta mál hefur ekki
komið sérstaklega til minna
kasta, en úr þvi að spurt er,
svara ég þvi til að ég hyggst
ekki. að þessu sinni, beita mér
fyrir breytingu á fyrirkomu-
lagi, sem og öllum ætti að vera
kunnugt stafar af óvefengjan-
legri. fjarhagslegri anuðsyn.