Tíminn - 15.07.1972, Page 1
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Símar 18395 & 86500
Reglugerð um 50 mílna
fiskveiðilandhelgi gefin út
Heildarlöggjöf um friðunarsvæði
væntanleg fyrir áramót
Reglugerðin um 50 milna fiskveiöilögsögu undirrituö. Til vinstri er Jón Arnalds, ráöuneytisstjóri I
sjávarútvegsráöuneytinu, þá Lúövík Jóspesson, sjá varútvegsráöherra og til hægri er Hannes Jónsson,
blaöafulltrúi rikisstjórnarinnar. Tímamynd GE
ÞAÐ ER FISCHER EINS
OG FYRRI DAGINN
ÞÓ—Reykjavik.
i gærkvöldi átti aö reyna, að fá
Spasski og Fischer til að koma
saman til fundar i Laugardals-
höllinni til að ræðast við, og til aö
fá Fischer til aö halda áfram aö
tefla.
Á þessum fundi i Laugardals-
höllinni átti að fá Fischer til að
láta uppi, hvað það væri i raun-
inni, sem hann vildi. Á blaða-
mannafundi, með dómnefndinni,
sem skipuð var til aðstoðar
Lothar Schmid yfirdómara i gær,
kom m.a. fram, að ef Fischer og
Spasski næðu einhverju sam-
komulagi, þá yrði reynt að gera
allt, sem i mannlegu valdi stæði
tilaðverða viðóskum þeirra.—A
fundinum kom fram, að menn
væru ekki svo hræddir við
Spasski, heldur við Fischer, sem
fyrri daginn.
Talið er, að aðalumræðuefnið
verði myndatökuvélarnar, en
þær hafa verið mikill þyrnir i
augum Fischers. Var jafnvel
talið, að ef þeir Fischer og
Spasski næðu samkomulagi um
það, að leyfa ekki myndatöku i
Laugardalshöllinni, þá yrði látið
að kröfum þeirra, um að banna
alla myndatöku.
Dr. Euvve komlnn
Forseti Alþjóðaskáksambands-
ins, dr. Max Euwe var væntan-
legur til tslands i gærkvöldi frá
Amsterdam. Mun dr. Euwe ætla
að reyna að koma einvigis-
málunum i rétt horf, — hvernig
sem það gengur nú, — eftir það
sem á hefur dunið.
Tveir lögfræðingar Fischers,
þeir Davis og Marshall, voru
einnig væntanlegir til landsins, til
að aðstoða Fischer i klipu þeirri,
sem hann er nú i.
Órakaður Fischer
á kaffiteriunni
Bobby Fischer kom niður i
kaffiterfu Loftleiöahótelsins um
sjö leytiö i gærmorgun. Sögöu
sjónarvottar, að Fischer hafi
verið mjög þreytulegur aö sjá.
Framhald á bls. 13
Lúövik Jósepsson, sjávarút-
vegsráöherra, undirritaöi f gær
reglugerö um 50 sjómilna
fiskveiðilandhelgi islands, sem
gengur i gildi I. sept n.k. Frá
þeim tima eru öllum erlendum
skipum bannaöar veiöar innan 50
milna markanna, nema aö
islenzk stjórnvöld gefi sérstakar
hcimildir til veiöanna. öll islenzk
skip hafa leyfi til veiöa, allt inn aö
12 milna linunni, meö þeim tak-
mörkunum, aö veiöar meö botn-
vörpu, flotvörpu eöa dragnót eru
bannaöar á svæði fyrir Norö-
Austurlandi tvo mánuöi ársins, til
aö koma i veg fyrir veiöi á
smáfiski, og á stóru svæöi á
Selvogsbanka einn mánuö á ári,
en þar eru þýöingarmiklar
brygningarstöövar.
í undirbúningi er reglugerö um
viðtækari friöun innan nýju fisk-
veiöilandhelginnar og er stefnt að
þvi, að sú löggjöf gangi i gildi um
næstu áramót. Falla úr gildi
takmarkanir á veiöum islenzkra
skipa innan núverandi fiskveiði-
lögsögu er nýju friðunarlögin
veröa lögtekin.
Blaðamenn voru viöstaddir, er
sjávarútvegsráðherra undirritaöi
reglugerðina. Eftir að hann hafði
skrifað undir, sagði hann:
t málefnasamningi rikis-
stjórnarinnar, sem kunngerður
var fyrir réttu einu ári siðan, eða
14. júli 1971, var þvi lýst yfir,að
rikisstjórnin myndi leggja höfuð-
áherzlu á, að fiskveiöilandhelgin
yrði stækkuö i 50 sjómilur frá
grunnlinum og að stækkunin tæki
gildi eigi siðar en 1. september
1972.
1 samræmi við þessa yfir-
lýsingu hefir kappsamlega verið
unnið að því, að kynna
fyrirætlanir tslendinga i þessum
efnum og að þvi, að undirbúa
framkvæmd málsins. Þannig
hefir landhelgismál Islands
margsinnis verið rætt á erlendum
vettvangi: á þingi Sameinuðu
þjóöanna, á þingum og ráö-
stefnum meö öðrum þjóöum og i
sérstökum samningaviðræöum
m.a. við Breta og Vestur-bjóö-
verja.
Heima hefir málið veriö rætt
itarlega við alla þá, sem það
snertir sérstaklega og samráð
haft um allan undirbúning
málsins.
Sú reglugerð um 50 milna
fiskveiðilandhelgi við tsland, sem
i dag hefir veriö undirskrifuð og
gefin út, er sett samkvæmt land-
grunnslögunum frá 5. mai 1948,
en samkvæmt þeim lögum hafa
allar stækkanir á fiskveiði-Iand-
helginni verið gerðar, siðan þau
lög tóku gildi.
Hin nýja reglugerö er sett i
fullu samræmi við samþykkt
Alþingis frá 15. febrúar 1972, en
aö þeirri samþykkt stóðu allir
Ælþingismenn, 60 að tölu. Með
hinni nýju reglugerö er allt
hafsvæðiö út i 50 sjómflur frá
grunnlinum, allt i kringum
landiö, lýst lögsögusvæöi tslands.
Frá gildistökudegi reglugeröar-
Framhald á 3. siðu.
Fékk 25
punda hæng
EB—Reykjavik.
Simon Pálsson, reykvizkur
veiðimaður, veiddi fyrir skömmu
25 punda hæng i Laxá i Aðaldal.
Laxinn veiddist á spón á Núpa-
breiðu, og var honum landað eftir
þriggja stundarfjóröunga bar-
áttu.
Þessi lax var Kamel-laxinn i
annarri viku Kamel-laxveiði-
keppninnar. Fær Simon tiu þús-
und fyrir laxinn og Kamel-dýrið
fær góðan bita.
Orðsending utan-
ríkisróðherra í gær
TK—Reykjavik
Timinn hafði i gær samband
viö Einar Ágústsson, utan-
rikisráðherra vegna útgáfu
rcglugerðarinnar um 50 milna
fiskveiðilögsögu við island,
sem taka á gildi 1. september.
Einar Agústsson sagði:
„Ég tel, að við getum ekki
beðið lengur með að gefa
reglugerðina út, þar sem þeir
aðilar, er hún snertir, þurfa að
kynna sér ákvæði hennar til
hlitar og eðlilegt, að þeir þurfi
nokkurn fyrirvara til að að-
laga sig hinum nýju reglum.
Ég vil hins vegar taka skýrt
fram, að ég legg á það sér-
staka áherzlu að hér um tvö
aðskilin mál aö ræöa, þ.e. út-
færsluna annars vegar og við-
ræðurnar við Breta hins veg-
ar. Hérerum að ræða einhliða
útfærslu tslendinga á fisk-
veiðilögsögu i 50 mflur, sem
Bretar hafa þegar mótmælt,
og við vitum, að þeir munu
halda áfram að mótmæla
henni.
I tilefni af útgáfu reglugerð-
arinnar i gær sendi ég þeim
rikisstjórnum, sem við höfum
átt samningaviðræður við um
þessi mál að undanförnu orð-
sendingu, þar sem frá þvi er
greint, að i landgrunnslögun
um frá 1948 sé tekið fram, að
reglugerð skv. þeim lögum
viki fyrir millirikjasamning-
um.sem tsland er aðili að og
ekki samrýmast ákvæðum
reglugerða. Jafnframt er þar
tekið fram, að þrátt fyrir út-
gáfu reg! erðarinnar séum
við reiðubunir til áframhald-
andi viðræðna um gerð tvi-
hliða fiskveiöisamninga.
Einar Ágústsson utanrlkisráð-
herra.