Tíminn - 15.07.1972, Síða 15
Laugardagur. 15. júli. 1972
TÍMINN
15
Vinnuvélar
TIL SÖLU
Eigum til afgreiðslu nú þegar ný-innfluttar
vinnuvélar — m.a.
Br0yt X2
með grofuarmi
árgerð 1967
International
jarðýta TD 8
argerð 1967
Caterpillar 933 F
skófla
1 1/2 cibic yard
Chaseside SL 3000 4x4
skófla
3 1/2 cubic yard/225 ha vél
árgerð 1965
MF 50 traktorsgrafa
árgerð 1970
Eigum a lager:
Skóflur á Broyt-gröfur, hjólbarða 1100x20, 12-
16 strigalaga, nylon og 750x16, 6 strigalaga,
nylon
Varahlutir fyrir flestar tegundir vinnuvéla.
Allar vélarnar eru með húsi
Hörður Gunnarsson
HEILDVERZLUN
Skúlatúni 6 — Sími 35055
340 stálstólar
OG
60 tréborð
TIL SÖLU
Einnig kæliborð og mjólkurisvél.
Upplýsingar gefur
Björgvin Árnason
simar 23333 og 23334 eftir kl. 2
Mikið ættarmót
í Trékyllisvík
GE—Trékyllisvik
Skammter nú milli stórra móta
hér i Árneshreppi. Afkomendur
þeirra hjóna önnu Jónasdóttur
og Guðjóns Kristjánssonar, sem
um árabil bjuggu i Skjaldar-
bjarnarvik, efndu til ættarmóts
hér i Trékvllisvik.
A föstudaginn fóru
ýmsir þeirra ættmenn að drifa
hér að á bilum sinum og nokkrir i
flugvélum. Fólkið hafði aðsetur i
barnaskólanum á Finnboga-
stöðum, auk þess sem mikil tjald-
borg reis upp á skömmum tima i
grennd við skólann. Voru þarna
samankomnir um 120-130 manns,
afkomendur þeirra hjóna og
venzlafólk þeirra. Þau Anna og
Guðjón eignuðust 9 börn, sem öll
náðu fullorðinsaldri. Hafa þau
orðið mjög kynsæl og ættingjar
dreifzt viða. Af þeim systkinum
eru 8 á lifi, 4 synir og 4 dætur,
Voru þau öll mætt til þessa ættar-
móts og stóðu fyrir þvi.
Ingigerður Guðjónsdóttir,
skólastjóri á Staðarfelli, sem er
ein systranna, hafði forystu
fyrir hópnum. Kom hún hingað
fyrir rúmri viku til að annast
undirbúning mótsins ásamt
Pálinu systur sinni, sem búsett er
hér i hreppnum og öðru að-
stoðarfólki. Á laugardagskvöld
efndi það til dansleikjar i félags-
heimili hreppsins að Arnesi og
bauð öllum hreppsbúum til hans.
Var það með þökkum þegið og
fjölsótt. Var dansað af miklu fjöri
fram eftir nóttu.
Dóttursonur þeirra önnu og
Guðjóns, Ingiberg Hannesson,
prestur að Hvoli i Saurbæ,
messaði i Arneskirkju á
sunnudaginn og skirði tvö börn i
ættinni. Fjölmenni var við kirkju
og eru prestinum hér með færðar
beztu þakkir fyrir komuna. Að
messu lokinni buðu afkomendur
hjónanna öllum hreppsbúum til
sameiginlegrar kaffidrykkju i
barnaskólanum. Var öllum veitt
af frábærri rausn.
Veður var betra þessa daga en
verið hefur og brá til sólskins-
stunda, sem fágætar hafa verið
um langt skeið.
Heimsókn þessa fólks og kynnin
við það voru öllum til ógleyman-
legrar ánægju. Á mánudag voru
tjöldin tekin upp og flestir héldu
heim.
Sveinsstykki
húsgagna
smíðanema
sýnd
í Iðnskólanum
um helgina
Sveinsprófum i húsgagnasmiðí
lauk 14. júli s.l. Að þessu sinni
gengu 12 nemar undir próf. Próf-
verkefni eru eftir vali hvers
nema: Flestir hafa þeir hannað
sveinsstykki sin sjálfir. Ber þar
mest á skrifborðum og borðstofu-
skápum.
Eins og undanfarin ár gangast
nýsveinar og Húsgagnameistara
félag Reykjavikur fyrir sýningu á
sveinsstykkjum. Verður hún i
samkomusal Iðnskólans I
Reykjavik, og hefst laugardaginn
15. júli n.k. og lýkur, að kvöldi
sunnudagsins 16. júli. Opið verður
frá kl. 14—22 báða dagana. Geng-
ið er inn frá Vitastig.
Ferðaskór
SHAHARA-SKÓR
Póstsendum
SKÓSEL
* 60 Sími 21270
Strandasýsla
Framsóknarmenn i Strandasýslu efna til héraðsmóts að Sæ-
vangi 12. ágúst næst komandi. Asar leika fyrir dansi. önnur
skemmtiatriði auglýst siðar.
r
Sumarferð Framsóknarmanna
í Reykjavík sunnudaginn 23. júlí
Lagt verður af staö frá Hring-
braut 30. kl. 8 að morgni 23.
júli og farið i aðaldráttum sem
hér segir: Þingvellir —
Laugarvatn — Gullfoss —
Hvitárvatn — Hveravellir, en
Hveravellir eru aðalviðkomu-
staðurinn.
Aö likindum verður farin
sama leið til baka, að þvi
undanteknu, að sennilega
verður komið við hjá Geysi.
Nauðsynlegt er að búa sig
vel, og taka með sér nesti.
Farmiðar kosta 750 kr. fyrir
fullorðna, en 550 fyrir börn
innan 10 ára. Miðar verða
seldir á skrifstofu Framsókm
arflokksins, Hringbraut 30,
simi 24480 og i afgreiðsluTim-
ans, Bankastræti 7, simi 12323.
Nauðsynlegt er aö menn
tryggi sér farmiða STRAX,
þvi að erfitt er að fá bfla,
nema samið sé um þá
með margra daga fyrirvara.
Fararstjóri er Eysteinn Jónsson, forseti
sameinaðs þings,
en ó Hveravöllum
flytur Einar
Águstsson,
utanríkisróðherra
dvarp.
SUF-ráðstefna um iðnþróun
og orkumál
verður haldin í Hótel Mælifelli
á Sauðárkróki á sunnudaginn 16. júlí
Samband ungra framsóknarmanna hefur ákveðið að gangast
fyrir ráðstefnu um iðnþróun og orkumál á Norðurlandi.Dagskrá:
1. Ráðstefnan sett — Már Pétursson, form. SUF.
2. Avarp — ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra.
3. Framsöguerindi um virkjunarmál á Norðurlandi — Valgarö
Thoroddsen, rafmagnsveitustjóri.
4. Framsöguerindi um iðnþróun á Noröurlandi — Sveinn Björns-
son, framkvæmdastjóri.
5. Framsöguerindi um Framkvæmdastofnun rikisins og starf-
semi hennar — Steingrimur Hermannsson, alþingismaður.
6. Umræður og ályktanir.
Sveitarstjórnarmönnum
i Norðurlandskjördæmi
vestra verður sérstak
lega boðið áð sitja ráð
stefnuna og taka þátt i
störfum Ihennar.
úlafur
Valgarð
Steingrímur
Sveinn
Már
Héraðsmót í Dalasýslu 21. júlí
Héraðsmót framsóknarfélaganna I Dalasýslu verður
haldið að Tjarnarlundi, Saurbæ, föstudaginn 21. júli n.k.
og hefst þaö kl. 20.30.
Ræöur flytja Agúst Þorvaldsson, alþingismaður, og dr.
ólafur R. Grimsson, lektor. Jón B. Gunnlaugsson fer með
skemmtiþætti. Hljómsveit Þorsteins Guðmundssonar
leikur fyrir dansi.
V
Agúst
ólafur
Jón.
J