Tíminn - 18.07.1972, Page 1
IGNIS
UPPPVOTTAVÉLAR
SIMI: 19294 SÍMI.: 26660
-
159. tölublað — Þriðjudagur 18. júii 1972 — 56. árgangur.
kæli-
skápar
2?a« ««4yé£tt/t A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
Það lá viö, að Fischer væri brosandi, þegar hann kom æðandi út úr Laugardalshöllinni i gær, er hann
hafði frétt, að Spasski hefði gefið upp vörn í þriðju skákinni. Sjá bls. 5.
Tfmamynd: Gunnar.
Tveir menn í 40
daga gæzlu vegna
kynmaka við barn
OÓ-Reykjavik.
Tveir menn i Hafnarfirði voru
úrskurðaðir i 40 daga gæzluvarð-
hald hvor, s.l. föstudag. Leikur
grunur á, að þeir hafi haft kyn-
mök við 7 ára gamalt stúlkubarn.
Hefur annar maðurinn játað
verknaðinn, en játning liggur
ekki fyn hjá hinum.en verknaður-
inn för fram á heimili hans. Hefur
sá grunur legið á að ekki væri allt
með felldu með heimilisbraginn
og fór barnaverndarnefnd i
Hafnarfirði l'ram á við fógeta-
embættið, að rannsaka málið.
Stúlkan bar að mennirnir hefðu
haft kynferðislega tilburði i
l'rammi við sig.
Á heimilinu fundust mikið af
erlendum kynningarritum og alls
kyns klámi. Kynningarrit þessi
munu gefin út i Bretlandi þar sem
fólk auglýsir eftir skyndikynnum
við annað l'ólk og fylgir með hvers
konar náttúru eða ónáttúru við-
komandi þarf að vera haldinn til
að kynni megi takast. Hafa þessi
„sambönd” verið auglýst i is-
lenzku dagblaði og áttu þeir sem
áhuga höfðu, að senda eftir kynn-
ingarritunum i tiltekið pósthólf og
láta peningaupphæð fylgja með. 1
einhverju af þessum ritum aug-
lýsir þessi maður að hann hafi á
sinum snærum þúsundir af kyn-
svallsþyrstum körlum og konum,
sem hann geti komið þurfandi
fólki i samband við. Bara að
skrifa i pósthólfið og borga.
Frúin á heimilinu mun hafa
starfað nokkuð að þvi að koma á
kynnum milli fólks með þvi að
dreifa kynningarbæklingunum,
en mun hins vegar hafa verið
grunlaus um að fram hafi farið
kynmök við barn þar. En i ná-
grenni við heimilið hefur verið al-
talað að þar færu fram atburðir
sem þessir og undanfarið hefur
fólk vart þorað að láta dætur sin-
ar vera gæzlulausar úti við.
Rannsókn málsins er á byrjunar-
stigi, en þeir sem til þekkja segja,
að ekki komi á óvart þótt fleira
eigi enn eftir að koma i ljós.
40 daga gæzluvarðhaldsúr-
skurður er óvenju langur, sem
bendir til að um alvarleg brot séu
að ræða og að rannsóknin kunni
að verða timal'rek. Sjálfsagt
verða mennirnir báðir látnir sæta
geðrannsókn.
Tvö
banaslys
um sömu
helgina
Tvö dauðaslys urðu af völdum
umferðar um helgina. Aðfaranótt
laugardags fórst 35 ára gamall
maöur á Keflavikurflugvelli er
hann lenti i árekstri, og á sunnu-
dag dó fimm ára gamall drengur i
Neskaupstað, er biíl, sem hann
var i valt.
Slysið á Keflavikurflugvelli
varð kl. 3,35. Þá lenti
Moskovitsbill á oliubil á mótum
Flugvallarvegar og Vesturbraul-
ar. Oliubillinn dró stóran bensin-
tank, sem valt yfir litla bilinn við
áreksturinn. Billinn lagðist sam-
an og lézt ökumaðurinn sam-
stundis. Hann hét Eirikur Hall-
dórsson og var lrá Húsavik, en
siðast búsettur að Ásbraut 11 i
Kópavogi.
Klukkan eitt á sunnudaginn
valt fólksbill utanvert i Neskaup-
stað. t bilnum voru þrir bræður.
Hinn yngsti þeirra, 5 ára gamall,
lézt samstundis, en hina eldri
sakaöi ekki.
Drengurinn, sem lézt hét Stefán
Haraldsson. Foreldrar hans eru
Haraldur Bergvinsson og Unnur
Marteinsdóttir, Melagötu 4.
RAFVIRKJAR STOFNA SAM-
VINNUFÉLAG OG HAFNA
MEISTARAFYRIRKOMULAGI
OÓ-Reykjavík.
Verkfall rafvirkja hefur nú
staðið i réttan mánuð, en það
hófst 17. júni. Nokkrir samninga-
fundir liafa verið haldnir en
árangurslaust. Sáttasemjari boð-
aði nýjan samningafund i gær-
kvöldi og hófst hann kl. 9. t gær
hófu rafvirkjar hjá nokkrum af
stærstu fyrirtækjum landsins
samúðarverkfall. Eru það raf-
virkjar, sem starfa hjá Sements-
ver ksmiðjunni, Aburðarverk-
smiðjunni, Alverinu, Landsvirkj-
un, Kafveitur rikisins og Rafveitu
Reykjavikur. i gær samþykkti
fundur i Félagi islenzkra raf-
virkja, aö stofna Samvinnufélag
rafvirkja til að félagsmenn hafi
aðgang aö vinnumarkaði raf-
virkja, án tengsla við meistara.
Tillagan, sem samþykkt var er
svohljóðandi:
„Vegna einstakrar stifni samn-
inganefnda F.L.R.R. i yfirstand-
andi kjaradeilu, telur fundurinn
eðlileg viðbrögð að stofna Sam
vinnufélag rafvirkja. I þeim til-
gangi að opna félagsmönnum
F.l.R. leið inn á vinnumarkað
stéttarinnar, án tengsla við
F.L.R.R.
Fundurinn vekur athygli
félagsmanna F.l.R. á yfirburða
samkeppnisaðstöðu Samvinnu-
félags rafvirkjasveina gagnvart
núverandi meistarafyrirkomu-
lagi.”
Sjö manna nefnd hefur verið
falið framkvæmd og undirbúning
málsins.
Áhrifa verkfallsins gætir nú
mjög i byggingariðnaði og hefur
húsbyggingum i sumar seinkað
mjög. Ef verkfallið dregst enn á
langinn má búast við verulegri
röskun á starfsemi þeirra fyrir-
tækja og stofnana, sem rafvirkj-
arnir, sem hófu samúðarverkfall
i gær, starfa hjá. Áhrif samúðar-
verkfallsins verður sennilega
ekki mikil fyrstu dagana, en fljót-
lega kemur þó að þvi. Ef tæki eða
rafleiðslur bila i fyrrgreindum
verksmiðjum verður ekki gert við
þær, og telja rafvirkjar, að ekki
sé hægt að reka verksmiðjurnar
nema i takmarkaðan tima, leysist
verkfallið ekki bráðlega.
Deilan stendur einkum um
ákvæðisvinnuna, en rafvirkjar
vilja vinna eingöngu eftir slikum
taxta, en ekki á timakaupi, og
kaup nema, sem búið er að semja
um i flestum öðrum iðngreinum.
Litið hefur verið um verkfalls-
brot, en góðum vöktum er haldið
uppi.
Þeir meistarar, sem unnið hafa
að raflögnum fá að halda þvi
áfram, en aðrir ekki.
Biblíusafnarinn hlýðir
á guðspjallalestur á
ókennilegri mállýzku
Ragnar Þorsteinsson kennari,
bibliusafnarinn i Reykjaskóia i
Hrútafirði, hefur brugðið sér
heim úr vegavinnunni vestan
Laxárdalsheiðar til þess að ræða
við blaöamann frá Timanum, og
hér situr hann og hlýðir á bibliu-
lestur á grammófónplötunni, sem
honum var send frá Fairbanks i
vor.
Eins og lesendurnir sjá hlustar
hann vandlega, þótt hann skilji
tæpast meira en aðrir Islendingar
i eskimóskum mállýzkum, þvi að
annað veifið bregður fyrir kunn-
uglegum eiginnöfnum og staðar-
heitum úr guðspjöllunum, og þau
má þó greina, ef vel er fylgzt
með. Jafnvelkunna aðkoma fyrir
bibliugreinar, sem þeir geta getið
sér til um, er nógu eru bibliufróð-
ir.
Á morgun mun birtast i blaðinu
frásögn Sólveigar Jónsdóttur um
heimsókn hennar til Ragnars og
hið fágæta bibliusafn hans.
Myndina tók Guðjón Einarsson,
ljósmyndari Timans.