Tíminn - 18.07.1972, Síða 19
TÍMINN
19
Þriftjudagur. 1S. júli. I!»72
Hjá silkikaupmanninum — olíumálverk i Hallwylska safninu eftir A. Bloem
Stórgjöf til Norræna hússins
Hans Wachtmeister greifi
afhenti i gær Norræna húsinu að
gjöf mjög verömæta safnskrá
Hallwylska safnsins i Stokkhólmi,
er hann sjálfur veitir forstöðu.
Safnskráin er i 79 bindum,
bundin i skinn, og metin á sem
næst sjö hundruð þúsund krónur
islenzkar. Þetta verður eina ein-
takið, sem tii er á islandi. Kom
Hans Wachtmeister og kona hans
gagngert hingað til lands til þess
að afhenda gjöfina.
Laugardaginn 25. marz voru
gefin saman i Laugarneskirkju af
séra Jóni Arna Sigurðssyni,
ungfrú Maria Friðriksdóttir og
jón Friðrik Sigurösson. Heimili
verður að Tunguvegi 1, Rvk.
Laugardaginn 1. april voru gefin
saman i Laugarneskirkju af séra
Garðari Svavarssyni ungfrú
Maria Asmundsdóttir og Steindór
Ingimundarson. Heimili verður
að Kóngsbakka 9, Rvk.
Þann 3/6 voru gefin saman i
hjónaband i Frikirkjunni i
Hafnarfirði, af séra
Guðmundi ó. Ólafssyni, Aldis
Gústafsdóttir og Jónas
Guðmundsson Krosseyrarveg
3. Hafnarfiði
Ljósmyndastofa Kristjáns
Skerseyrarvegi, 7, Hafnarfi’rði
Simi 50443.
Laugardaginn 3. júni voru gefin
saman i Dómkirkju af séra
Óskari J. Þorlákssyni ungfrú
Margrét Hannesdóttir og Baldur
Birgisson. Heimili verður að
Jaðri, Stokkseyri,
Myndastofa Þóris
Laugardaginn 4. marz voru gefin
saman i Hallgrimskirkju af séra
Jakobi Jónss. ungfrú Inga
Fanney Jónasdóttir og Gisli R.
Marisson. Heimili verður að
Gnoðarvogi 70, Rvk.
Ljósmyndast. Þóris
Hinn 2. april voru gefin saman af
séra Tómasi Guðmundssyni þau
Kristin R. Guðmundsdóttir og
Snorri Baldursson. Athöfnin fór
fram i Kotstrandarkirkju.
Heimili ungu hjónanna er að
Heiðmörk 60, Hveragerði.
Myndastofa Þóris
„Líklega verðum
við að senda
■o
vinnuflokkíland’:
GJ-Grimsey.
Grimseyingum finnst, að
þeir ættu ekki siður en aðrir að
l'á að sjá þá Spasski og
Fischer, þegar sjónvarpið
kemur til sögunnar á ný eftir
sumarleylismánuð. Og þar
hefði Williard Fiske verið
þeim samdóma, ef hann væri
ol'ar moldu.
En eins og nú horfir eru
litlar likur til þess. Fyrir löngu
átti að vera risin endurvarps-
stöð á Húsavikurfjalli, ætluð
Grimseyingum og Tjör
nesingum. Búið er að gera veg
upp á fjallið. og þangað hefur
verið lagður simi og leitt raf-
magn. En ekki hafa verið
steyptar undirstöður, svo að
unnt sé að reisa stöðina.
— Liklega verðum við bara
að senda flokk úr eynni i land
til þess að hjálpa þeim, sagði
fréttaritarinn i simtali við
blaðið i gær.
Úrskurður í ágreiningsmáli
Við uppgjör viö sjómenn i lok
vetrarvertiðar reis ágreiningur
milli Landssambands islenzkra
útvegsmanna og Farmanna- og
fiskimannasambands tslands um
skilning á 7. gr. hinna nýju orlofs-
laga. Var ágreiningurinn i þvi
fólginn að L.l.Ú. taldi, að ekki
bæri að reikna orlof á tekjur, sem
ekki eru tekjuskattsky Idar
samkv. 14. gr. laga um tekju og
eignarskatt, en þær eru.
Kr. 800.- á mánuði vegna hlifðar-
fata.
Kr. 5.000 - á mánuði með sér-
stökum skilyrðum, þ.e. að hafa
verið lögskráður á skip lengur en
6 mánuði.
8% sérstakur frádráttur al'
launum.
Af þessu tilefni höfðaði F.F.S.Í.
mál l'yrir lelagsdómi, þar sem
gerð var sú krafa á hendur L.I.Ú.
f.h. úlvegsmannafélaganna, að ó-
heimilt væri að draga frá launum
sjómanna áðurgreinda skattfrá-
dráttarliði áður en 8 1/3 % orlol' er
reiknað á laun þeirra.
Félagsdómur kvað upp dóm i
málinu 13. júli s.l. og er þar viður-
kennd heimild útvegsmanna til
þess að draga frá fyrrgreinda
skattfrádráttarliði, áður en orlof
er reiknað á laun sjómanna.
Málið flutti fyrir L.l.Ú.
Hafsteinn Baldvinsson, hrl. og
fyrir F.F.S.f. Jón Þorsteinsson
hdl.
íþróttir
Framhald
af 15. siðu.
þjanun og nýtur siyrks góðs
markvarðar, þar sem Þorbergur
Atlason er. Vörnin er góð — og
miðjumenn Fram, Asgeir Elias-
son og Gunnar Guðmundsson,
mynda sterka heild. Veikustu
hlekkir liðsins i þessum leik voru
e.t.v. miðherjarnir, en báðir út-
herjarnir, Eggert og Elmar léku
vel og það sama má segja um
Snorra, sem kom inn á fyrir El-
mar. En kálið er ekki sopið, þó að
i ausuna sé komið. Mólið er ekki
nema hálfnað, og þótt slaða Fram
sé sterk i augnablikinu, getur
margt gerzt enn.
Hörkuna, sem einkenndi Kefla-
vikur-liðið, má einkum rekja til
landsliðsmiðvarðanna, Einars og
Guðna. Þegar menn láta hörkuna
ráða, er það oft visbending um, að
viðkomandi leikmenn séu að
komast úr æfingu. Grétar
Magnússon og Magnús Torfason
áttu báðir góðan leik, svo og
Steinar i framlinunni. Það er of
snemmt að aískrifa Keflavikur-
liðið, en það er alveg furðulegt,
hve heimavöllurinn hefur reynzt
liðinu illa.
Dómari leiksins var Óli Ólsen.
Sá, sem þetta ritar, var ekki fylli-
lega ánægður með það, hve vægt
hann tók á sumum brotum. Hitt
er svo annað mál, að Óli var allan
timann samkvæmur sjálfum sér.
alf.
25444
er nýtt simanúmer i BÚNAÐARBANK-
ANUM VID HLEMM. Samband frá skipti-
borði við eftirtaldar deildir og stofnanir:
Austurbæjarútibú
Háaleitisútibú, Hótel Esju
Endurskoðun bankans
Stofnlánadeild landbúnaðarins, innheimtu
Byggingastofnun landbúnaðarins
Landnám ríkisins
IBUNAÐARBANKI
ÍSLANDS