Tíminn - 19.07.1972, Síða 1
1L
kæli-
skápar
X>/rn A/
raftækjadeild
Hafnarstræti 23
Símar 18395 & 86500
Einar Agústsson, yzt til hægri.situr fyrir svörum á blaðatnannafundi i gærmorgun. Með honum á mynd
inni eru Helgi Agústsson fulltrúi og Hannes Jónsson blaðafulltrúi rikisstjórnarinnar.
ÚTLENDIR FRÉTTAMENN
í FRÆÐSLUFERÐUM HÉR
Rikisstjórnin hefur gripið tæki-
færið, er hér er óvenjulega margt
útlendra fréttamanna, að kynna
þeim land og þjóð og þá ekki sizt
málstað okkar i landhelgisdeil-
unni. Hafa hinir útlendu frétta-
menn farið ferðir i boði rikis-
stjórnarinnar — á mánudaginn til
Vestmannaeyja og i gær á Þing-
völl.
Báðar þessar ferðir hafa hafizt
með blaðamannafundi i salar-
kynnum Hótel Loftleiða, þar sem
ráðherrar hafa svarað spurning-
um — Lúðvik Jósefsson sjávarút-
vegsráöherra fyrri morguninn,
en Einar Agústsson utanrikisráð-
herra i gærmorgun.
Skattskráin í dag:
Sá hæsti með
nær 4 milljónir
Klp-lteykjavik.
i dag kemur skattskráin fyrir
augu borgarbúa. Sumir hafa þcg-
ar fcngið að vita, hvaö þeir eigu
að borga i opinbcr gjöld á þessu
ári, en i gær var farið að bera út
álagningaseðlana. Þeir, sem ekki
liafa taugar lil að biða eftir þeim,
geta eins og undanfarin ár, fengið
að vita hvað þeir eiga að greiða i
lðnaðarmannahúsinu við Vonar-
stræti og á skattstofunni i Tollhús
inu við Tryggvagötu, vesturenda
Vcrða báðir þessir staðir opnaöir
árdegis i dag.
t allt eru skattgreiðendur i
Reykjavik i ár 42156, 802 færri en i
fyrra. Samtals greiða þeir
3048.345.332 kr. i þá 14 gjaldliði
sem þeim ber að greiða i.
Hæstu skattgreiðendur i
Reykjavik eru þessir:
Þorvaldur Guðmundsson,
verzlm. 3.819.647 kr.
Rolf Johansen, heildsali, 2.974.180
kr.
Friðrik A. Jónsson, útvarps-
virkjam., 2.718.758 kr.
Arni Gislason, bifreiðasmiður,
2.163.124 kr.
Daniel Þórarinsson, verzlm.
2.004.158 kr.
Björgvin Schram, heildsaii,
2.002.423 kr.
Snorri G. Guðmundsson, heild-
sali, 1.999.820 kr.
Páll H. Pálsson, forstjóri,
1.979.098 kr.
Arni Jóhannsson, trésmiðjam.
1.869.073 kr.
Sigurður Ólafsson, lyfsaii,
1.822.300 kr.
Þetta eru 10 hæstu skattgreið-
endur borgarinnar i ár, en þeir
einstaklingar, sem greiða 800
þúsund krónur eða meir i heildar-
gjöld, eru 94.
Bíll steyptist í Fjallsá:
Maður fórst - 2 kom-
ust naumlega af
GERVIHNETTI STÝRT
FRÁ GUFUNESI
SJ-Reykjavfk
Þýzkir og islenzkir verkfræö-
ingar hafa að undanförnu unnið
að endurbótum og stækkun á mót-
tökustöð f Gufunesi fyrir þýzka
gervihnetti, sem eru á braut um
jörðu. Þýzka geimvisindastofn-
unin hefur fengið að hafa stöð
þessa i fjarskiptastöðinni f Gufu-
nesi, og breytingarnar nú eru
vegna nýs gervihnattar, sem
skotið veröur á braut i kringum
jörðu i nóvember i haust.
Hann ferðast i 200-1000 km fjar-
lægð frá jörðu og verður notaöur
til rannsókna á ytra borði veður-
hjúpsins.
Samið við
rafvirkja
Sættir tókust i rafvirkjadeilunni
i gær. Sáttafundur hófst kl. 8,30 á
inánudagskvöld og stóð yfir til kl.
7 i gærkvöldi. Fulltrúar deiluaðila
voru þá loks búnir að komast að
samkomulagi, sem báðir aðilar
geta sætt sig við. Boðaöir hafa
verið fundir i Félagi fsl. rafvirkja
og Meistarafélagi löggiltra raf-
virkjameistara i Reykjavik i dag,
þar sem samkomulagið verður
kynnt og borið undir atkvæði
félagsmanna.
Verkfallið hefur staðiö í rúman
mánuð og á mánudag fóru raf-
virkjar hjá sex stórfyrirtækjum i
samúðarverkfall.
Hingað til hefur aðeins verið
tekið á móti merkjum frá gervi-
hnöttum í Gufunesi, en með þeim
nýju tækjum, sem nú hafa verið
sett upp þar, verður einnig hægt
að senda merki héðan og stýra
hnöttum frá stöðinni.
Verið er að starfhæfa stöðina
fyrir þennan nýja hnött og koma
fyrir viðbótartækjum, sem verða
prófuð á næstu mánuðum. 1 dag
verða tækin reynd i fyrsta sinn.
En i desember verður byrjað af
fullum krafti að vinna með nýja
gérvihnettinum og tækjunum i
Gufunesi. Stöð þessi er i beinu
sambandi við aðalstjórnstöð
gervihnattarins i Suður-Þýzka-
landi.
Helzti útbúnaður þýzku geim-
visindastofnunarinnar i Gufu-
nesi eru stórt, stýranlegt loftnet,
skýli úti við með öðru loftneti á
þaki og inni í fjarskiptastöðvar-
húsinu er tækjasamstæöa, m.a.
litil tölva. Starfsmenn fjarskipta-
stöðvarinnar i Gufunesi munu i
framtiðinni annast tæki þessi, en
merki frá hnettinum munu koma
þrisvar sinnum á sólarhring.
Telextæki skrifa út um ástandið
um borð i gervihnettinum og
koma boðum ef eitthvaö fer af-
laga.
Menn frá fyrirtækjunum, þar
sem nýju tækin voru smiðuð hafa
unnið að uppsetningu þeirra
ásamt Islendingum.
Móttökustöðin i Gufunesi hefur
áður verið liður i rannsóknum
þýzku geimvisindastofnunarinn-
ar á geimgeislum, norðurljósum
og segulsviði jarðar. Gervi-
hnettirnir, sem þá sendu skilaboð
til stöðvarinnar hér, hafa verið
óvirkir siðan um 1970. Siðan hafa
tækin verið notuð til að taka við
merkjum frá bandariskum gervi-
hnetti, en nú veröur Gufunes á ný
liður i rannsóknum þýzku geim-
visindastofnunarinnar.
rtó-Reykjavík
Jeppi, sem í voru þrir menn, fór
út af brúnni yfir Fjallsá á Breiða-
merkursandi s.l. laugardag. Einn
mannanna fórst en tveir komust
naumlega lifs af. Maðurinn sem
lézt, var sextugur pólskur jarð-
fræðingur, Stefan Jewtuchowicz,
sem unnið hefur að rannsóknum
hér i sumar. Annar hinna
mannanna er einnig pólskur jarö-
fræðingur, 43 ára gamall” og
Sigurður Björnsson, bóndi á Kvi-,
skerjum sem ók jeppanum.
Brúin yfir Fjallsá er með tré-
slitlag, sem lagt er i tveim
ræmum eftir brúnni endilangri.
Er þetta stórhættulegur út-
búnaður, sérlega þegar tréð er
blautt, eins og s.l. laugardag.
Eiias Jónsson, lögregluþjónn
•Höfn sagði að tvær aörar brýr
fyrir austan væru með sams
konar trégólf, en þær eru á
Jökulsá i Lóni og Hólmsá. Hafa
bilar margoft runnið til og fara þá
þversum á brúnum, og hefur iðu-
lega legið við slysum af þessum
sökum. Handriðið yfir Fjallsá er
meira til að sýnast.en að i þvi sé
nokkurt öryggi. Tók billinn nær 13
metra af handriðinu með sér i
ána.
Nokkuð hátt er niður á vatns-
boröið og stakkst jeppinn fram af
brúnni, endastakkst heilan hring i
loftinu og lenti á hjólunum i ánni,
og snéri framendinn upp i
strauminn. Stóð þakið up úr.
Pólverjinn, sem komst lifs af,
segist ekki hafa séð hreyfingu
nema á einum manni eftir aö
billinn lenti i ánni, en það var
Siguröur. Ekki var hægt að opna
huröir til aö komast út fyrst i
stað. Reyndu mennirnir að brjóta
rúðurnar, en þeim tókst ekki að
komast úr bilnum fyrr en Sigurði
tókst að spyrna hliðarrúðu úr.
Fór hann siöan upp á þak bilsins
og aðstoðaði manninn við að
komast út og upp á þakið. Ekki er
fullljóst um afdrif hins Pólverj-
ans, en hann fannst rekinn neöar
með ánni um kvöldið.
Sigurður tók olíubrúsa með sér
úr bflnum, tæmdi hann og batt við
sig. Billinn stóð úti i miðri ánni og
var ekki um annað að ræða en aö
komast til lands.
Steypti Sigurður sér til sunds i
ána, sem var i miklum vexti og
jakaruðningur i henni. Hann náði
ekki landi á þeim stað, sem hann
ætlaði sér fyrst, þvi straumkastið
hrakti hann frá. Barst hann með
straumnum innan um jakana
niður meö ánni, en náði landi á
öðrum af tveim stöðum, sem
mögulegt var að komast upp úr
ánni, en rétt neðar þrengist hún
Framhald á bls. 4
Þýzkur verkfræöingur og Haraldur Sigurösson verkfræðingur Land-
simans við nýju geimvísindasendi- og stjórnstöðina i Gufunesi. Fyrir
ofan þá má greina útbúnað þýzku geimvísindastofnunarinnar og
áletrunina Satellite Station á ensku. TímamyndGE