Tíminn - 01.08.1972, Page 6

Tíminn - 01.08.1972, Page 6
6 TÍMINN Þriöjudagur 1. ágúst 1972 TARUM CENUS CtRTAMINIS ÖRDÖ ; ftECTÖRMUJfCAÍ rnhrsn nmmu* l>c‘ssi iiiyncl al kornuin var tc‘kin |>c*#ar lilkynnt haföi verið, að liann liel'ði hlotið önnur verölaun i þjciðla^akeppninni. í fyrsta skipti, sem kór hlýtur verðlaun í fyrstu atrennu þyngdust einfaldlega skattar mannfólksins i byggðarlaginu. 1 fyrra mun til dæmis hafa orðið 2000 sterlingspunda tap á hátið- inni og var hallinn greiddur á áöur.greindan hátt. — Við héldum utan 4. júli, sagði Einar Geir. — Á flugvellinum i London biðu okkar tveir lang- ferðabilar frá hátiðinni, sem óku okkur til Llangollen. Þegar við komum þangað um kvöldið var okkur skipt niður á einkaheimili og vorum við frá tveimur og upp i sex á hverju. Allir vorum við með konur okkar með, þannig að allt i allt taldi hópurinn 64 manns. Fólkið þarna er einstaklega gest- risið og elskulegt og fór mjög vel um okkur. Alla fyrirgreiðslu i Wales feng- um við endurgjaldslausa, uppi- hald og þessháttar. Allt virtist mjög vel skipulagt og var fram- kvæmdin til fyrirmyndar. Einnig langar mig að koma þvi að, að umgengnin var einstök, á öllu svæðinu sást eiginlega aldrei rusl, en þó voru þarna allt i allt um 15.000 manns, þegar mest var. Sölumennsku var allri mjög i hóf stillt, ekki var sifellt verið aö reyna að selja fólki og græöa á þvi, öðru nær. Daginn eftir, eða 5. júli, hófst fyrri keppnin hjá okkur. Eins og áður hefur komið fram, var keppnin tviþætt. t fyrsta lagi var það þjóðlagakeppni, þar sem þátttakendur máttu vera flestir 25 i hverjum kór og eins tókum við þátt i karlakórakeppni, en þar var hámarksfjöldi meðlima 60. t fyrri keppninni tóku þátt 25 kórar. í þeirri keppni vorum við númer 6, og vorum við ósköp ánægðir með það. Við vorum eini karlakórinn sem tók þátt i þeirri keppni, allt hitt voru blandaðir kórar. Seinni keppnin fór svo fram laugardaginn 8. júli. Þar voru skráðir til þátttöku 25 karlakórar, en af einhverjum orsökum mættu ekki nema 23. Þar sungu allir kórarnir sömu tvö lögin og siðan eitt hver frá sinu heimalandi. Við sungum ,,As var alda” og urðum númer tvö, eftir að hafa verið nú- mer eitt lengi framan af. Eins og geta má nærri var spenningurinn geysilegur og voru margir orðnir heldur skjálfhentir. Þegar sú keppni fór fram, var hvert ein- asta sæti skipað i tjaldinu en það tók 10.000 manns. Fyrir utan, viðsvegar um svæðið, haföi svo verið komið fýrir hátölurum, og þar sem nokkuð margt fólk var á svæðinu sjálfu, hafa sennilega heyrt það „prógramm” um það bil 15.000 manns. Það sama kvöld bauðst okkur að syngja hluta úr konsert i tjald- inu og þá voru þar einnig 10.000 manns. Fyrir utan okkur tóku svo þátt i þeirri skemmtun aðrir kór- ar, sólóistar og fleiri. Alls tóku þátt i keppninni og mótinu kórar frá 31 þjóðlandi og fór mjög vel á með öllum. Andinn var einstaklega góður og kvödd- ust allir með margföldum kossum og handaböndum; sjálfur kunni ég ekki almennilega við að kyssa húsmóðurina sem við vorum hjá, þar sem það var prestsfrúin á staðnum! Eftir að sjálfri keppninni lauk héldu Fóstbræöur til Birmingham og héldu söngkemmtun i borg þar i nágrenninu, Cannock, á sunnu dagskvöldinu. — A miðvikudeginum 12. júli fórum við svo til Essex, hélt Ein- ar Geir áfram. — Þar tók á móti okkur borgarstjórinn með kurt og pi og sýndi okkur meðal annars nýtt ráðhús. Eins vorum við keyrð um og sýnt það markverö- asta og um kvöldið var móttaka hjá borgarstjóranum. Aður sung- um við,við mjög góðar undirtekt- ir. Daginn eftir héldu flestir heim eftir ánægjulega för. Söngstjóri Fóstbræðra i þessari för var Garðar Cortes en farar- stjóri séra Hjalti Guðmundsson i Stykkishólmi, sem sjálfur er gamall kórfélagi og söng auk þess með kórnum i förinni. Einar Geir Þorsteinsson sagði að lokum, að i Llangollen hefðu margir minnzt á Hamrahliðar- kórinn við þá „bræður” og hefðu viða verið af honum stórar mynd- ir uppstilltar. Hefði kórinn greini- iega vakið mikla athygli þar i fyrrasumar, bæði fyrir fágaðan söng og framkomu og eins þjóð- búningana, sem allir voru i. En hvað sem öðru liður, þá stóðu Fóstbræður sig með ein- dæmum vel og leyfum við okkur hér með að óska þeim innilega til hamingju með frammistöðuna og verðlaunin. ó. vald. Á víðavangi aFfrabSh3 félaga er nijög varhuga- veröur, enda kallar hann fram þess háttar vitahring mis- skiptingar, að hætt er við, að staðir i erfiðleikum sökkvi stöðugt dýpra i fenið og munurinn fari vaxandi. Það er að sjálfsögðu engin tilviijun, að einmitt forráöa- menn þeirra sveitarfélaga sem haft hafa yfirgnæfandi mestar tekjúr á ibúa eins og Keykjavik og Vestmanna- cyjar, skuli nú kvarta sárast og telja sér þröngan stakk skorinn i tekjuöflun. Aftur á móti er nú mestur fögnuður hjá þeim sem verst hafa veriö settir og nú hafa bætt hag - Rætt við Einar Geir Þorsteinsson um vel heppnaða för karlakórsins Fóstbræðra til Llangollen í Wales Eins og komið hefur fram i fréttum tók karlakórinn Fóst- bræður nýlega þátt i alþjóðlegri karlakórakeppni í Llangollen i Wales á Krctlandi og stóð sig með cindæinum vel. Varð kórinn núm- cr 2 i þjóðlagakcppni og nr. 6 i karlakórakcppni og var það i fyrsta skipti. sem kór hefur náð svo góðum árangri i fyrstu at- rcnnu á inótinu þar — og varla þarf að taka fram, að þctta er bczti árangur, sem islenzkur kór liefur náð ytra.Aður höfðu tveir islen/.kir kórar, Fólýfonkórinn og kór Menntaskólans v/llainrahli» tekið þátl i keppninni í Llangoll- en, en hvorugur náð jafn góðum árangri. Blaðamaður Timans ræddi fyr- ir helgina við Einar Geir Þor- steinsson, formann Fóstbræðra, og ræddi stuttlega við hann um förina til Wales og keppnina sjálfa. Einar Geir sagði, að þessi keppni hafi verið haldin árlega allt siðan 1858 en það var ekki fyrr en 1947 að keppnin varð al- þjóðleg. Væri hún haldin af við- komandi sveitarfélagi og ef svo illa færi, að tap yrði á hátiöinni, Verðlaunaskjaliö, sem vitaskuld verður hengt upp á vegg I hinu nýja félagsheimili karlakórsins Kóstbræðra. LLANGOLLEN EISTEDDFOD INTERNATIONES Bindindis- mótið í Galta- lækjarskógi Bindindismótið í Galtalækjar- skógi verður um verzlunar- mannahelgina eins og undanfarin fimm ár, en þetta verður í 13. skipti sem templarar efna til þessa fjölbreytta móts fyrir al- menning. Eins og kunnugt er eru það Umdæmisstúkan nr. 1 og ts- lenzkir ungtemplarar sem efna tii mótsins, en þessir aðilar hafa komið upp mjög góðri aðstöðu til mótshalds i Galtalækjarskógi. Bindindismótið verður sett á laugardag kl. 16.00 af Erlendi Björnssyni fulltrúa lUT, en siðan verður góðaksturskeppni á vegum Bindindisfélags öku- manna. — Á föstudagskvöld mun hljómsveitin SVANFRÍÐUR LEIKA FYRIR DANSI, en reynsla undanfarinraára sýnir, að mjög margir eru þegar komnir i skóginn á föstudag. — Klukkan 20.00 á laugardag hefst dansinn og verður dansað á tveimur stöðum. Fyrrnefnd hljómsveit mun leika nýju dansana i stóru samkomutjaldi, en hljómsveitin STORMAR gömlu dansana á palli. Um miðnætti á laugardag verður varðeldur og tlugelda- sýning. Kvöldvaka og dans. A sunnudag hefst dagskráin með guðsþjónustu kl. 13.30. Séra Björn Jónsson, Keflavík, predikar. Kl. 15.00 hefst fjölbreytt BARNASKEMMTUN undir stjórn Eddu Þórarinsdóttur, leik- konu. Þar koma fram m.a. ÞRJÍJ A PALLI. Kvöldvaka hefst kl. 20.00 um kvöldið. Þar mun Hafsteinn Þor- valdsson formaður Ungmenna- félags tslands flytja hátiðarræðu, en að henni lokinni verða ýmis skemmtiatriði, Ómar Ragnars son skemmtir, Einar & Jónas syngja og Medina, Munoz og Marseco, frægir skemmtikraftar leika listir sinar. Að kvöld- vökunni lokinni verður dansað og leika fyrrnefndar hljómsveitir. — Mótinu verður slitið á mánudag. Vitað er um skipulagðar ferðir á bindindismótiö. Frá Reykjavik verða ferðir frá Umferöamiðstöð- inni. Vegalengdin frá Reykjavik að Galtalæk er 124 km. — Móts- gjaldið er kr. 500. En að gangseyrir fer lækk- andi eftir þvi sem liöur á mótið. Börn yngri en 12 ára fá ókeypis aðgang, enda i fylgd með fullorðnum. Fjölmenn mótsnefnd úr bindindissamtökunum hefur unnið að undirbúningi og sér hún um framkvæmd mótsins. 011 gæzla verður eins og áður i höndum þessara aðila. Aldrei hefur þurft lögreglu, enda framkoma mótsgesta með ágætum. Er vonað, að svo verði einnig nú en skilyrði til þess að svo verði einkar hagstæð, þar sem hér er um sannkallað Bindindismot aö ræða. Þetta hefur fjölskyldufólk gert sér ljóst á undanförnum árum og fjöl- mennt til mótsins, enda mótið byggt upp með það i huga, að þar geti orðið skemmtun fyrir alla fjölskylduna. (Frétt frá Bindindismótinu. EH) Auglýsinga- verð hækkar Frá og með 1. ágúst kosta auglýsingar í Tímanum 180 krónur á dálksenitmetra. sveitarfelags sins um 20-40% enda hafa sumar þessara sveitarstjórna, eins og bæjar- stjórnin á Siglufirði, sem þó er undir forystu Sjálfstæðis- manna sent hlýleg þáttar- ávörp til rikisstjórnarinnar, þar sem Geir Hallgrimsson fullyrðir aftur á móti að hann ætli sér að kyrkja og kæfa framkvæmdagetu sveitar- félaganna." -T.K.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.