Tíminn - 01.08.1972, Síða 7
Þriftjudagur 1. ágúst 1972
7
K r a b b i o g
geðsjúkdómar
Eftir 15 ára rannsóknir hafa
visindamenn komizt að þeirri
niðurstöðu, að illkynjuð æxli séu
tiltölulega fátið meðal fólks, er
þjáist af geðsjúkdómum. Að
dómi griskra visindamanna er
krabbamein sjaldgæfast meðal
þeirra, sem þjást af geðklofa.
Talið er, að þetta standi á ein-
hvern hátt i sambandi við það,
að i geðklofasjúklingum er litið
af sérotonini, en í illkynjuðum
æxlum er að jafnaði mikið magn
af þessu efni.
☆
Stærsta barnið í 20 ár
Nýlega var skrifað um.hálfgert
risabarn, sem fæddist norður i
landi. bað var einar 27 merkur,
og 65 cm. Hér er mynd af
stærsta barni, sem fæðzt hefur i
Danmörku siðustu 20 árin. Það
er stúlkubarn, sem reyndist
vera 6100 grömm við fæðingu og
65 cm. Stúlkan sú arna hefur þvi
aðeins verið 24 merkur og 100
grömm, ef við höfum marg-
faldað rétt, svo langt hefur hún
átt i land með að ná stöllu sinni
á islandi Venjulegt barn er um
3000 grömm og 50 cm. segja
þeir i Danmörku, — Og svoleiðis
barni bjuggumst við við, sagði
Bodil Sörensen, móðir telp- -
unnar, — en svo fengum við
þennan bangsa. Aðeins er vitað
um eitt barn, sem hefur fæðzt
stærra á Rikisspitalanum i
Kaupmannahöfn, og var það
einungis 150 gr. þyngra eða 25
merkur.
Seldi húsið og
keypti það aftur
Frú Dorothy Pierson, 70 ára
gömui, seldi húsið sitt á uppboði
nýlega og fékk fyrir það 80 þús-
und dollara. Næstu viku á eftir
keypti hún húsið aftur, og varð
þá að borga fyrir það 86 þúsund
dollara. Þannig hafði hún tapað
540.000 krónum á einni viku. —
Mér varð ljóst, strax eftir að ég
hafði selt húsið, að mér höfðu
orðið á mistök. Þegar ég frétti,
að garðyrkjumennirnir minir
sex yrðu ef til vill að hætta að
vinna, og þeim yrði sagt upp, þá
ákvað ég að kaupa húsið aftur.
Garðyrkjumennirnir hafa unnið
geysilegt verk fyrir mig og lagt
hart að sér við að hafa garðana
fallega, og ég vil ekki að þeir
verði atvinnulausir, vegna þess
sem ég geri. Nú veltir frú
Pierson þvi fyrir sér, hvort hún
geti ekki selt húsið aftur, en
fengið að byggja sér hús á lóð-
inni, og garðyrkjumennirnir fái
þá að halda áfram að hugsa um
garðana.
☆
Oddaflug
Trönur, storkar og fleiri
farfuglategundir fljúga, sem
kunnugt er, i oddafylkingu.
Fræðimenn hafa gengið úr
skugga um, að i sli’ku fiug'i
„hjálpa” fluglarnir hver
öðrum . Eykur þetta flugþolið
um 71%. Visindamenn hafa
reiknað út, að við vængbrodda
hvers fugls myndast sterkt
„uppstreymi” Næsti fugl á eftir
reynir að notfæra sér til hins
ýtrasta þennan loftstraum og
☆
►
Amor á næstu grösum
Leikkonan Barbra Streisand og
kvikmyndastjórinn Peter
Bogdanovich hafa haft mikið að
gera að undanförnu, en þau hafa
verið önnum kafin við gerð
nýrrar kvikmyndar, sem á
islenzku mætti kalla — Hvað er
að, læknir? Hér eru þau að hvila
sig i San Francisco eftir töku
siðustu atriðanna úr myndinni.
Sumir hafa spurt, eftir að hafa
séð þessa mynd, hvort Amor sé
einhvers staðar á næstu grösum
við þau Barbru og Peter.
☆
eykur þannig á flugþol sitt að
miklum mun. Fari einhver fugl
fram úr hinum, finnur hann
strax, hve álagið eykst, og snýr
aftur á sinn fyrri stað i fylking-
unni.
Fuglarnir hagnýta sér upp-
streymi loftsins á svipaðan hátt
og svifflugumenn færa sér i nyt
lóðrétta loftstrauma.
☆
Ánægð á
gullbrúðkaupinu
Hin þekktu hjón, leikararnir
Alfred Lunt og Lynn Fontanne,
höfðu ekki mikið fyrir gullbrúð-
kaupinu sinu, sem þau héldu há-
tiðlegt á heimili sinu, Ten
Chimneys i Genesee Depot i
Wisconsine i Bandarikjunum.
Þau fengu enga gesti, og gæddu
sér tvö ein á mat, sem þau höfðu
eldað i sameiningu. Þau hafa oft
gefið fólki góð ráð um
hamingjusamt hjónaband. Þau
☆
segja, að það geti haft góð áhrif
á hjónabandið að stunda leiklist.
Þá er fólkið það sjálft heima
fyrir á daginn, en fer svo i burtu
og breytist i aðra persónu að
kvöldinu, og við það getur það
losnað við mikla streitu — Hún
fær kaup, ég fæ kaup, sagði
Lunt. — Hún borgar sitt, ég
borga mitt. Sumt borgum við
sameiginlega. Þá þarf ekki að
vera að deila um smámuni.
Bæði segjast þau hlakka til þess
að halda upp á 75 ára brúð-
kaupsaímæli sitt, og voru von-
góð um að lifa þann dag.
☆
Kcnnsta og rannsóknir
lylgjast að
Þriðjungur kennaraliðsins við
alla sovézka háskóla fæst nú við
sérstök rannsóknarviðfangs-
eíni. Var frá þessu skýrt ný-
verið á ráðstefnu háskóla-
rektora frá ölium rikjum Sovét-
rikjanna. Háskólarannsókna-
stofur fást nú við umfangs-
miklar rannsóknir á sviði
stjarneðlisfræði, liffræði, kjarn-
orkuvisinda og kjarneðlis-
fræði. Við nokkra háskóla hafa
verið settar á fót sérstakar
deildir til að mennta kennslu-
krafta á sérsviðum. 1 Moskvu-
háskóla eru slikar deildir i loft-
afllræði og stærðfræði, og við
háskólann i Kasan eru siikar
deildir i efnafræði og stærð-
fræði. Flestir háskólar i stærri
borgum eru nú i tengslum við
rannsóknamiðstöð Visindaaka-
demiunnar. 1 Sovétrikjunum
eru nú 52 háskólar og fimm nýir
taka til starfa innan árs.
☆
Skærari en sólin
Einn ótrúlegasti eiginleiki
lasergeisla er hið gifurlega ljós-
magn, sem unnt er að framleiða
með þeim; það getur orðið
milljarð sinnum sterkara en á
yfirborði Sólar. Hið
samþjappaða ljós lasergeislans
brýzt viðstöðulaust gegnum
hvaða efnj sem er. Laser má
beita i stórum stil við málm-
skurð, suðu o.þ.h. með honum
má bora demanta, auk þess sem
hann getur komið i margháttað-
ar þarfir i sambandi við raf-
eindatækni.
— Leyfist mér að biðja um
framfót dóttur yðar?
S-/-7
DENNI
DÆMALAUSI
Hcr cr reikningur frá herra
Wilson. Hann fer fram á 2000
krónur fyrir barnapössun.