Tíminn - 01.08.1972, Síða 16

Tíminn - 01.08.1972, Síða 16
16 TÍMINN Þriðjudagur 1. ágúst 1972 landsliðsþjAlfar- INN í KNATTSPYRNU EFTIR HEIMA - fór ekki með landsliðinu til Noregs tþróttasiða Timans hefur frétt að landsþjálfarinn i knattspyrnu Donkan Mc- Dovell, hafi ekki farið út til Noregs, með landsliðinu, sem fór i morgun. Ástæðan fyrir þvi, er agabrot, en McDovell mætti ekki á landsliðsæfingu s.l. sunnudag. Verður þvi landsliðshópurinn þjálfara- laus út i Noregi. Landsleikurinn gegn Norð- mönnum er liður i undan- keppni ffM-keppninnar og er leikurinn fyrri leikur land- anna. Siðari leikurinn fer fram hér heima 1973. Atli Þór Héðinsson, hinn ungi miðherji úr KR, sem var valinn i landsliðshópinn, sem hélt utan i morgun, fór ekki með landsliðinu. Hann gaf ekki kost á sér, er það nokkuð einkennilegt, þvi að Atli var valinn i fyrsta skipti i lands- liðshópinn. SOS. Um 200 keppendur íslandsmóti í golfi Mótið hefst í dag á Grafarholtsvelli en því lýkur n.k. laugardag Klp-Reykjavik íslandsmeistaramótið i golfi hefst i dag á velli Golfklúbbs Reykjavikur i Grafarholti. 1 sjálft mótið; eru skráðir um 180 keppendur en með þeim sem taka þátt i öldungakeppninni og svéitakeppninni, en á milli Golf- klúbbanna, má lauslega áætla að þeir verði um 200 talsins. Þetta er enn eitt dæmið um hinar auknu vinsældir þessarar iþróttar hér á landi. En þetta mun vera eitt stærsta Islandsmót i ein- staklingsíþróttagrein, sem hér er haldið og það stærsta sem haldiö hefur verið i golfi frá þvi fyrst var farið að keppa i þeirri iþrótt hér á landi. Þar sem svona margir keppendur eru skráðir að hefja keppnina á hverjum degi, kl. 8 aö morgni, má búast við að viða verði töf á brautum, og er þá eins gott að veðurguðirnir verði keppendum hliðhollir. Sú regla hefur verið sett upp i sambandi við mótið að ekki má færa lausagrjót utan brautar frá kúlunni og eru margir keppendur heldur óhressir yfir þvi — enda mikið um grjót i Grafarholti og illt að þurfa að taka á sig vitis- högg fyrir steinvölu, sem er viö boltann. Eins og fyrr segir hefst mótiö i dag og verður þá keppt i öldunga- flokki og þá fer einnig fram sveitakeppni, sem er á milli allra Golfklúbbanna. Sjálf flokka- keppnin hefst svo á morgun, en flokkarnir eru 10 talsins. Meðal keppenda er allir beztu golf- leikarar landsins, þó ekki þeir beztu úr Vestmannaeyjum, þvi þeir komast ekki frá vegna Þjóð- hátiðarinnar. Veröur áreiðanlega hörð keppni i öllum flokkum, þó hvað hörðust i meistaraflokki karla en i hinum flokkunum verður hún sjálfsagt engu minni. Metaregnið dugði ekki Guðjón Guðmundsson, setti ts- landsmet i 200 m. bringusundi. Metaregn islenzka sundfólksins dugði ekki til að koma i veg fyrir siðasta sætið i átta landakeppn- inni i Edinborg um helgina. Alls setti islenzka sundfólkið niu Is- landsmet. Bezt var met Guðjóns Guðmundssonar i 200 m. bringu- sundi, en hann synti á 2:32,9 min, 2,2 sek. betra en gamla metið. Friðrik Guðmundsson bætti met sitt i 1500 m. skriðsundi verulega, synti á 17:38,0 min. en gamla metið var 17:56,4 min. OL-lág- markið er 17:55,0 min. Millitimi Friöriks á 800 m. var einnig undir gamla metinu, 9:18,6 min Sigurð- ur ölafsson setti met i 400 m. skriðsundi 4:27,8 min. Guðmund- ur Gislason setti met i 400 m. fjór- sundi 5:02,1 min. Gamla metiö var 5:03,0 min Metin fuku og i boð sundunum. Timi karlasveitarinn- ar i 4x100 m. fjórsundi var 5:17,4 min. og i 4x200 m 8:36,7 min. 1 4x100 m fjorsundi kvenna synti isl. sveitin á 5:03,9 min. 1 4x100 m skriðsundi á 4:27,6 min. Finnur Finnur Garðarsson synti 100 m. Garðarsson synti 100 m skriðsund á 56,3 sek og varö fjórði. Úrslit i stigakeppni þjóðanna varð þessi: Spánn 143 stig, Skot- land 137, Noregur 120, Sviss 117, Wales 106, Belgia 67, Israel 53 og Island 43. Töpuðu stórt í V-Þýzkalandi Islenzka landsliðið i handknatt- leik, lék tvo landsleiki við V-Þjóð- verja um helgina. Leikirnir fóru fram i V-þ>ýzkalandi og voru leiknir á laugardaginn og sunnu- dag. Fyrri leikurinn endaði með yfirburðasigri V-Þjóðverja, sem skoruðu 20 mörk gegn 10. Munur- inn var minni i siðari landsleikn- um, sem Þjóðverjarnir unnu 18:16. Nánar verður sagt frá leikjunum og keppnisferð islenzka landsliðsins siðar. Eru afreksmenn í íþróttum ekki lengur gjaldgengir til að keppa fyrir hönd Islands? Nú hefur sú spurning vaknað,og gengur á milli, hvort afreksmenn i iþróttum séu ekki lengur gjald- gengir, til keppni á erlendri grund, fyrir hönd Islands? Hvert sérsamband innan t.S.l. setti i vetur s.l. sérstök Ólympiu- lágmörk, til handa iþróttafólki, ætlaöi það sér að verða hlutgengt til keppni á Ölympiuleikunum i Miinchen. Ein iþróttagrein varð þó útund- an i þessum málum, en það voru lyftingar. Lyftinganefnd l.S.l. hélt að sér höndunum, og varð árangurinn sá, að lyftingamenn þurfa einir allra iþróttamanna, að rembast við Olympiulágmörk þau, er Alþjóöa-ólympiunefndin setur. Það vill segja.að þeir hefðu þurft að hafna i minnst 10. sæti á siðustu Ólympiuleikum. En þau undur gerast, að Alþ.lágmörkin eru bundin við, að iþróttamaður- inn nái þeim einu sinni, en islenzku iþróttaforystumennirnir heimta að okkarlyftingamennnái þeim tvivegis. Það virðist ekki vera sama hvaða iþróttagrein á i hlut. fþróttamenn sem náðu lO.og 14. sæti i keppni við beztu iþrótta- menn heims, samanber Evrópu- meistaramótið i lyftingum i • Constansa s.l. vetur, verða að sanna ágæti sitt allrækilega. Og það sem verra er, að upplýsingar þar að lútandi, um að ná lág- markinu tvivegis, berast þeim til eyrna eftir krókaleiðum á siðustu stundu. Þrátt fyrir að upiræddir iþróttamenn væru að byggja upp þrek og kraftform, létu þeir sig hafa það að geðjast islenzku Ólympiunefndinni, og náðuaðfyfta Alþjóðalágmörkunum i annað sinn og annar þeirra gerði gott bet ur, en um það er fjallað á öðrum stað i blaðinu. Við skulum vona að iþróttafor- ystan gái nú að sér, og hugsi sin mál, en fari ekki út i hefndarað- gerðir, eins og áður hefur skeð með lyftingamenn.. Þetta eru jú einustu islenzku iþróttamennir- nir, sem náð hafa Alþjóðalág- mörkunum en eru ekki að dunda við mun lélegri afrek, sett af islenzkum aðilum. f.k. Klp-Reykjavik. Um miðjan þennan mánuð er væntanlegt hingað til lands tékk- neska landsliöiö (Old boys) I golfi. Kcmur iiðið hingað þann 13. ágúst og mun leika hér tvo leiki á veUi Golfklúbbs Ness á Seltjarn- Liðið er anna, þar sem leið til Bandarikj- það tekur þátt i heimsmeistarakeppni öldunga 55 ára og eldri, en sú keppni fer fram árlega og hafa íslendingar verið með i henni s.l. tvö ár. Fyrstmun tékkneska liðið leika hér við islenzka liðið, sem tekur þátt i þessari heimsmeistara- keppni, og verður þá leikið þann 14. ágúst. Daginn eftir mun svo verða haldin keppni með þátttöku Strákar og stelpur PEYSUR merktar ARSENAL— LEEDS LIVERPOOL MANCHESTER UNITED Póstsendum Sportvöruverzlun Ingólfs óskansonar Klapparstlg 44 — Slml 11783 — Reykjavfk Guðmundur Sigurösson. Tékkneska „Old boys” lands- liðið í golfi til Islands Verður fyrsta erlenda landsliðið í golfi, sem leikur hér á landi fleiri öldunga, en það eru þeir nefndir, sem náð hafa 50 ára aldri. Tékkneska liðið er skipað 4. mönnum, og er þetta fyrsta landsliðið i golfi, sem heimsækir tsland frá þvi að fyrst var farið að iðka golf hér á landi fyrir um 40 árum. Frjálsíþrótta- námskeið KR Frjálsiþróttadeild KR gengst fyrir námskeiði 11 og 12 ára barna á Melavelli i sambandi við Andrésar Andarleikina, sem fara fram 8. og 9. ágúst. Námskeiöið hefst kl. 5 á daginn og stendur yfir þessa viku. Leiðbeinendur verða gamlir af- reksmenn félagsins í frjálsum iþróttum. Happdrætti Ólympíunefndar Dregið hefur verið i happdrætti Olympiunefndar, en þar sem margir eiga eftir að gera skil, verður ekki hægt að birta vinn- ingsnúmerið fyrr en i vikulokin. Jafnframt beinir Ólympiunefndin þeim eindregnu tilmælum til þeirra, sem fengið hafa senda miða og ekki enn gert skil, að gera það nú þegar. Skila má miðum til skrifstofu 1S1 í Laugardal eða i minjagripa- verzlun ólympiunefndarinnar i Austurstræti 18. Alþjóða-Olympíu- lágmarki náð A lyftingamóti um s.l. helgi náðu þeir óskar Sigurpálsson og Guðmundur Sigurðsson, báðir i Armanni, frábærum árangri. Er ekkert vafamál aö þessir tveir menn eru aö tryggja sinn sess, hvor i sinum þyngdarflokki, meðal 10 beztu lyftingamanna heims. Verður þvi fróðlegt að fylgjast með þeim á ólympiuleikunum, og sjá hvaða bógur er i þeim I ..alvöru keppni.” Lyftingaseria þeirra var þannig. Óskar i þungavigt og Guömundur i milliþungavigt. Óskar Sigurpálsson óskar Pressa. 177,5kg. isl.m. Guðmundur 155 kg. Snörun. 122,5 kg. Jafnhöttun. 182,5 kg. ísl.m. Samaniagt. 482,5 kg. isl.m. 130 kg. 170 kg. 455 kg. f.k.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.