Tíminn - 01.08.1972, Síða 19
Þriðjudagur 1. ágúst 1972
TÍMINN
19
BYRJUNARFRAMKVÆMDIR
HAFNAR VIÐ NÝJA
MJÓLKARVIRKJUN
SB-Reykjavík
Byrjunarframkvæmdir við
nýja virkjun i Mjólká fyrir botni
Arnarfjarðar hófust á fimmtu-
daginn, sagði Valgarö Thorodd-
sen viö Timann í gær. Virkjun
þessi veröur 5700 kw og er þaö
meira en tvöföldun á þeim vatns-
orkuvirkjunum, sem nú eru fyrir
hendi á Vestfjörðum. Vatnið er
tekið úr Langavatni, sem er tengt
Hólmavatni meö skurði, en
stöðvarhúsið verður niðri viö sjó,
sambyggt núverandi stöðvarhúsi
Mjólkárvirkjunar. Búizt er við,
að hin nýja virkjun geti tekiö til
starfa laust eftir áramót 1974-
1975.
Tillaga Magnúsar Kjartgnsson-
ar, iðnaðaráðherra, um að hefja
byrjunarframkvæmdir við þessa
virkjun, var samþykkt á rikis-
stjórnarfundi á þriðjudaginn,
samningar Rafmagnsveitna
rikisins við Vesturverk s.f. um
framkvæmdina, undirritaðir' á
miðvikudag og verkiö hafiö dag-
inn eftir. Þó að þessi atriði hafi
gengiö rösklega.á málið langan
aödraganda og margir valkostir
hafa verið kannaöir af mörgum
aöilum.
A Vestfjöröum (utan Stranda)
hafa Rafmagnsveitur ríkisins nú
tvær vatnsaflstöðvar meö alls
2800 kw og Rafveita Isafjaröar
eina 1200 kw stöð. Alls eru þá 4000
kw virkjuð á þessu svæöi, en
verður eftir tilkomu nýju
virkjunarinnar 9700' kw.
Miðað viö núverandi verölag er
áætlaöur stofnkostnaöur nýju
virkjunarinnar um 208 millj.
króna. Fallhæö við virkjunina er
sú mesta, sem nýtt hefur verið
hér á landi, 409 metrar.
I sumar aðeins unnið að mann-
virkjagerö undir væntanlegan ef-
sta hluta þrýstivatnspipu.
Núverandi Mjólkárvirkjun get-
ur framleitt um 11 millj. kwst á
ári, en við miðlunarmannvirkin,
sem unnið hefur verið að við
Langavatn i fyrrasumar og i
sumar, eykst vinnslugeta hennar
um 1,2-1,3 millj. kwst á ári. Nýja
virkjunin á að geta framleitt um
36 millj. kwst árlega. Með til-
komu hennar aukast mjög mögu-
leikar til aukins iðnaðar og auk-
innar húshitunar með rafmagni.
Vegna langs afgreiöslufrests á
vélum, er ekki hægt aö búast viö
að nýja virkjunin geti tekið til
starfa fyrr en laust eftir áramótin
1973-1974, þó svo að öll önnur at-
riði gangi að óskum.
Aætlanagerðir um bygginga-
mannvirki eru i höndum Almennu
verkfræöistofunnar h.f. en hönn-
un vélbúnaöar annast áætlana
deild rafmagnsveitna ríkisins.
VÍÐTÆKAR REGLUR GEGN
MENGUN TAKA GILDI
Uppdráttur af Mjólkárvirkjun. Stöðvarhúsið sést niðri við sjóinn,
feita strikið upp frá þvi til vinstri er núverandi aöfærsluæð, en hægra
megin upp að Langavatni er nýja æöin fyrirhuguö.
Skíðamót í
Kerlingafjöllum
- Erlendir keppendur
ÞB-Reykjavik
Allviötækar ráöstafanir gegn
mengun eru nú á döfinni. Má i þvi
sambandi benda á viöleitni
margra sveitarfélaga til að koma
viðunandi horfi á sorpeyðingu og
frárennsli skólps frá mannabú-
stöðum og atvinnufyrirtækjum.
Húsvikingar eru aö koma á fót
sorpbrennslu, sem nærsveitar-
menn munu að öllum likindum
notfæra sér, og njóta til þess 1
milljón króna rikisstyrks. Vest-
mannaeyingar hafa og hlotiö
einnar milljón króna rikisstyrk til
að finna leiö, til þess að hleypa
skólpi eitthvað annað en i höfnina
hjá sér. Athuganir Vestmannaey-
inga eiga ugglaust eftir að koma
til góða annars staðar, þvi vanda-
málið er til staðar i höfnum viðar.
Enn eitt dæmi um islenzka við-
leitni gegn mengun er framtak
Jóns Þórðarsonar til smiða á
hreinsitækjum fyrir úrgang frá
verksmiðjum og mun nú vera i bi-
gerð að koma upp tækjum eftir
hans fyrirsögn viö sementsverk-
smiðjuna.
Allt eru þetta góð tiðindi, en þó
vantar mikið á varnir okkar gegn
mengun að dómi hinna visustu
manna. Þar er helzti ásteytingar-
steinninn sá, hve lagafyrirmæli
þ.a.l. eru öll brotakennd og
kraftarnir dreiföir, þvi eftirlit
þessara mála er i höndum 8 ráðu-
neyta á sama tima og Danir, svo
dæmi sé tekið, hafa sett á laggirn-
ar eitt ráöuneyti um þau.
Nú eru uppi áform um að stefna
að þvi að koma á heildarlöggjöf
um þessi mál og brýn nauðsyn er
talin á að þau heyri öll undir eina
stofnun. Reglugerðin, sem fjallað
er um hér á eftir, leysir aðeins
hluta vandans, en fylgi fleiri slik-
ar á eftir standa vonir til að lög-
gjöfin og stofnunin, sem minnst
er á hér aö framan, liti dagsins
ljós, þegar fram liða stundir.
Magnús Kjartansson, heil-
brigðis- og tryggingarmálaráð-
herra, hélt blaðamannafund hinn
31. júli sl. Tilefnið var útgáfa
reglugerðar um varnir gegn
mengun af völdum eiturefna og
hættulegra efna nr. 164 1972.
Hinn 17. ágúst skipaði heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra, Magnús Kjartansson,
nefnd sem fengið var það hlut-
verk að semja drög aö reglugerð
sem sett yrði i samræmi við 13.
grein laga um eiturefni og hættu-
leg efni nr. 85 1968.
Reglugeröin skildi einkum
fjalla um leiöir til að koma i veg
fyrir mengun af völdum iðnrekst-
urs eöa annars atvinnureksturs.
1 nefndinni áttu sæti Benedikt
Sigurjónsson, hæstaréttardómari
formaður, Alfreð Gislason, lækn-
ir, Vilhjálmur Lúðviksson, verk-
fræðingur, og Páll Sigurðsson
ráðuneytisstjóri. Nefndin aflaði
gagna um mengunarmál frá ná
grannaþjóðum okkar. Formaður
hennar kannaöi gildandi laga-
fyrirmæli varöandi varnir gegn
og hvernig mengun,stjórnun og
eftirliti slikræ-mála er háttað hér
á landi.
Nefndin samdi drög að reglu-
gerð, sem send voru landlækni og
eiturefnanefnd til umsagnar. Að
fengnum þeim umsögnum samdi
nefndin þá reglugerö, sem út var
gefin og hér er nú kynnt.
Reglugeröin er i 18 greinum og
byggist eins og fyrr segir á
ákvæöum 13. gr.laga um eiturefni
og hættuleg efni. Meginatriöi
hinnar nýju reglugerðar eru
þessi:
1. 1 1. grein er fjallað um, að ef
ætla má að eiturefni eða hættuleg
efni komi fram eða séu notuð viö
starfrækslu verksmiðja eða iðju-
vera, er starfrækslan bundin leyfi
heilbrigðisráðherra.
2. 1 2. grein eru taldar upp helztu
tegundir verksmiðja, sem hér
getur veriö um að ræða.
3. 1 3. grein er rætt um að verk-
smiðjur og iöjuver, sem hér um
ræðir og reistar hafa verið megi
ekki hefja starfrækslu fyrr en
leyfi er fengiö og i 4. grein er rætt
um, aö ef reisa eigi verksmiðju
eða iðjuver, þá megi ekki ákveða
henni stað eða gerð hennar og
búnað, fyrr en fengið er leyfið til
rekstursins.
4. 1 5. grein er gert ráð fyrir að
Heilbrigðiseftirlit rikisins sé sá
eftirlitsaöili, sem fjalli um um-
sóknir um starfsleyfi og i grein-
inni er tekið fram hvaða upp-
lýsingar skulu fylgja umsókninni,
bæði hvað snertir framleiðslu-
hætti, eiturefni sem myndast,
tækjabúnað til hreinsunar og ann
að það, sem ætla má að Heil-
brigðiseftirlitinu komi að gagni til
þess að geta tekið afstöðu til
málsins.
5. í 6. grein er gert ráð fyrir aö
þær verksmiðjur og þau iðjuver,
sem starfa við gildistöku reglu-
gerðar og falla undir ákvæði
hennar, skuli innan þriggja mán-
aða frá gildistöku, senda heil-
brigðiseftirliti þau gögn, sem
reglugerð mælir fyrir um og óska
starfsleyfis. í 7. grein er gert ráð
fyrir að sömu ákvæði gildi um
stækkanir og breytingar á verk-
smiðjum og iðjuverum og um
frumrekstur.
6.18., 9. og 10. grein er fjallað um
meðferð Heilbrigðiseftirlits rikis-
ins á umsóknum og lögð áherzla
á, aö umsóknir skuli þegar i stað
taka til afgreiöslu og vanti tilskil-
in gögn, skuli krefja um þau.
Heilbrigðiseftirlitið getur, ef
ástæöa er til, sent eiturefnanefnd,
náttúruverndarráði, siglinga-
málastofnun rikisins og öryggis-
eftirliti rikisins, umsóknir um
starfsleyfi til umsagnar og Heil-
brigðiseftirlit rikisins getur einn-
ig sjálft kannað eða látið aðra
aðila kanna hver þau atriði, sem
það telur að frekari athugunar
þurfi við og afla þeirra upplýs-
inga, sem það telur nauðsynlegt
og ekki berast. Gert er ráð fyrir
að Heilbrigðiseftirlitið sendi rök-
studdar tillögur til heilbrigðis-
málaráðherra, sem endanlega
úrskuröar málið.
7. í 11. grein er gert ráð fyrir að
heilbrigðisnefnd fylgist með þvf i
hverju sveitarfélagi, að ákvæðum
reglugerðarinnar sé hlýtt og er
þaö I samræmi við 197. grein heil-
brigðisreglugeröar frá 8. febrúar
1972.
8. 112. grein er sérstaklega tekiö
fram, að Heilbrigðiseftirlit rikis-
ins hafi yfirumsjón með þvi aö
ákvæðum reglugerðarinnar sé
hlýtt og að starfsmenn þess hafi
heimild til að skoða og rannsaka
framleiðsluhætti og mengunar-
varnir eftir þvi sem þurfa þykir. 1
13. grein er rætt um starfshætti
Heilbrigðiseftirlitsins ef fyrir-
mælum er ekki hlýtt og sömuleið-
is hvað gera skuli ef Heilbrigðis-
eftirlitið kemur auga á hættu,
sem áður var ekki augljós.
9. 1 14. grein er rætt um skyldu
Heilbrigðiseftirlitsins og rétt til
að stöðva til bráðabirgða ákveð-
inn rekstur, ef frá honum stafar
svo alvarlegri mengunarhættu,
að aðgerðir þoli ekki bið. 1 slikum
tilvikum verður Heilbrigðiseftir-
litiö aö senda heilbrigðisráöherra
tafarlaust greinargerð um aö-
gerðir sinar og tekur hann þá
endanlega ákvöröun i málinu að
fenginni greinargerð þess, er hlut
á að máli.
10.115. grein er rætt um að stööva
megi þegar i stað með lögreglu-
valdi rekstur verksmiöju eða
iðjuvers, sem eigi hefur aflaö sér
starfsleyfis og sama máli gegni
um þær verksmiðjur þar sem
fyrirmælum hefur ekki verið
hlýtt.
11. 1 16. og 17. grein er rætt um
hvernig fara skuli með mál, er
risa kunna af brotum á reglu-
gerðinni og hvaða viöurlög skuli
vera fyrir brot.
Um verzlunarmannahelgina
fer fram, að vanda skiöamót
Skiðaskólans i Kerlingafjöllum,
Mótið verður trúlega mjög
skemmtilegt og spennandi þar
sem komnir eru til landsins fimm
franskir skiðamenn, þrjár stúlkur
og tveir karlmenn, sem ætla að
taka þátt i mótinu. Tvær
stúlknanna Dominique Defaye og
Michele Minaire eru meðal beztu
skiðakvenna Frakklands. Sú
þriðja, Claire Desblanches er
einnig mjög góð og keppir i 2.
„grúppu” i heimalandi sinu.
Karlmennirnir Jean Hirigoyen og
Gilbert Reinisch keppa einnig
báðir i 2. „grúppu” og ættu þvi aö
vera álika góðir og beztu skiða-
menn okkar og má þvi vænta
mikillar keppni um fyrstu sætin.
Keppt verður í þrem aldurs-
flokkum: 16 ára og eldri, 12-16
ára, og yngri en 12 ára. Ennig
kemur til greina að skjóta inn i
„OldBoys keppni (40 ára og eldri)
ef áhugi verður fyrir hendi i þeim
aldursflokki.
Auk aðalkeppninnar, sem er
svigkeppni fer fram auka-
keppni, sem I fyrra hlaut nafnið
Fannborgarmót, en það er úts-
láttarkeppni i svigi, þar sem
keppt er á tveim brautum sam-
timis. Slík tilhögun er mjög
skemmtileg og geysispennandi
fyrir áhorfendur, þar sem tveir
og tveir eru ræstir af stað i einu.
Sá sem er á undan i mark heldur
áfram i keppninni, en hinn fellur
úr. Keppninni er haldiö áfram,
þar til einn stendur eftir
ósigraður og hlýtur hann til varð-
veizlu veglegan farandbikar, sem
gefinn var til þessarar keppni af
Ilikarði Páissyni tannlækni, sem
sjálfur er afbragðs skiðamaður —
nýkominn i „Old boys” flokkinn.
t aldursflokkakeppninni eru
veitt þrenn verðlaun i hverjum
flokki fyrir sig og i meistaraflokki
karla og kvenna eru sigurlaunin
(l.verðlaun) fagrar styttur sem
vinnast til eignar.
t tilefni þessa móts efnir Skiða-
skólinn i Kerlingafjöllum til sér-
stakrar helgarferöar. Farið er á
föstudagskvöldi 4. ágúst kl. 8 frá
Umferðarmiðstöðinni og komið
aftur á mánudagskvöldi 7. ágúst.
Farmiðar i þessa ferð eru seldir
eins og i aðrar ferðir skiðaskólans
hjá Ferðaskrifstofu Zoega,
Hafnarstræti 5.
Skiðakennsla og önnur
starfsemi skólans verður með
eðlilegum hætti meðan á mótinu
stendur.
HUSAFELL
72
Fjölbreytt og samfelld skemmtidagskrá í tvo daga!
Eitthvað fyrir alla, unga og gamla!
Dans á þremur pöllum þrjú kvöld i röð!
Sex hljómsveitir!
Sparið ykkur áfengiskaupin,
njótið öryggis og ánægju!
Sumarhátiðin Húsafelli.
v«*í