Tíminn - 24.08.1972, Page 5
Fimmtudagur 24. ágúst 1972
TÍMINN
5
Aö lokum
Svo fór að lokum, að elzta tré i
Isfahan i Iran rifnaði upp með
rótum, og féll ofan á leigubil,
sem stóð og beið eftir farþega
fyrir framan skólabyggingu
nokkra i borginni. Tréð mun
hafa verið 270 ára gamalt, og
ekkert smáræði eins og sjá má.
Ekki fer neinum sögum af þvi,
hvort bilstjórinn hefur verið i
bilnum, en þá hefur trúlega ekki
orðið mikið eftir af honum, þeg-
ar tréð var búið að klessa bilinn
gjörsamlega.
★
Jackie
eignast aðdáanda
Jackie Onassis hefur eignazt
enn einn aðdáandann, sem
sendir henni á hverjum degi
blóm, rauöar rósir, og þær ófá-
ar. Aðdáandinn er prins, og hef-
ur ráð á að senda allar þessar
rósir. Hann er nefnilega enginn
annar en bróðir Hassans kon-
ungs, prins Moulay Abdullah af
Marokko. Prinsinn kynntist
Jackie fyrir einu ári, þegar
hann bauð henni og manni henn-
ar eina helgi til hallar sinnar I
-¥■
Marakech. Onassis komst ekki i
heimsóknina, en Jackie fór
þrátt fyrir það. bá varð prinsinn
ástfanginn af Jackie og hefur
ekki náð sér enn. Hann sendir
henni rósir hvern einasta dag.
En það eru fleiri en prinsinn,
sem gefa blóm. bað hefur komið
upp úr kafinu, að Jackie gefur
sjálf blóm á Capri. bað er gitar-
leikari og söngvari, sem heitir
Giuseppe Savarese, sem þiggur
blómin á Capri. Á meðan Onass-
is var eitt sinn i viðskiptaerind-
um i Paris, brá Jackie sér til
Capri, og þar hitti hún söngvar-
iann, og gaf honum blóm. Hún
skilur sem sagt lika, að það get-
ur verið gaman að gefa blóm
jafnt sem að þiggja þau.
★
óvenjulegur
hugsunarháffúr eðá
hvað?
Konan hér á myndinni heitir
Birthe Danielsen og er 29 ára
gömul. Hún starfar sem ljós-
móðir i Odense i Danmörku, en
leggur auk þess stund á læknis-
fræði i fristundum sinu. Hún á
þessi þrjú börn, sem eru hér
| með henni á myndinni, en það
★
óvenjulega er, að hún á þau sitt
með hvorum manninum.
bannig vildi hún að það væri, og
þannig varð það. Fyrst kynntist
hún föður Carstens, sem er niu
ára. Faðirinn er blaðamaður við
danskt vikublað, en Birthe seg-
ist ekki hafa haft áhuga á að
hafa meira samneyti við hann.
Næst eignaðist hún Eben, sem
er fjögurra ára, og faðir hennar
er mikill músikant. Hann hvarf
einnig á braut, og þriðji faðirinn
kom, og með honum eignaðist
hún hina þriggja ára gömlu
Evu. Faðir hennar er læknir. —
Ég get ekki hugsað mér að
binda mig við einn mann, en
börn hef ég alltaf viljað eiga.
bau hef ég fengið. Ég er rauð-
sokka og trúi á sjálfstæði kon-
unnar. Feðurnir hafa ekkert
samband við börn sin, þvi ekki
gæti ég hugsað mér að eitt barn-
anna fengi að fara i Tivoli með
föður sinum, en hin yrðu að vera
heima, þar til faðir þeirra
kæmi. Feðurnir borga aðeins
meðlögin, og ég sé um uppeldið
sjálf. Hún ætlar sér ekki að eiga
fleiri börn, hún Birthe, og ekki
telur hún, að nokkur einn faðir
hefði getað fengið henni jafngáf-
uð og skemmtileg börn, og þessi
þrjú eru.
— Hvernig ég fæ peninga hjá
manninum minum? Jú, ég segist
bara þurfa að skreppa til
mömmu, og hún býr i Astraliu.
— Af hverju heldurðu um
magann? Er eitthvað að þér?
— Já, ég held ég sé með botn-
langabólgu.
— Botnlanginn er hægra
megin, en þú heldur vinstra
megin.
— Já, en ég er lika örvhentur.
*
Fjölskyldan fór á ströndina á
heitum sumardegi, en þegar átti
að fara að baða sig, kom i ljós, að
höfuð f jölskyldunnar hafði
gleymt sundskýíunni heima.
Frúin dó ekki ráða laus, heldur
tók upp smekk barnsins og batt
hann um mitti eiginmannsins.
Smekkurinn þjónaði vel tilgang-
inum sem fikjublað, en mann-
tetrið gat alls ekki skilið, hvers
vegna allir hinir brostu svo breitt
að honum. bað kom i ljós á eftir,
að þvert yfir smekkinn var letrað
stórum stöfum: — Eftirlæti
mömmu sinnar!
uppboð.
— Ef þú hefur ekkert i bak-
höndinni, Maria min, þá ætla ég
að skreppa út og hitta strákana.
DENNI
DÆMALAUSI
betta er bara tilraun. Við skul-
um rúlla pappirnum upp aftur á
eftir.