Tíminn - 30.08.1972, Blaðsíða 5

Tíminn - 30.08.1972, Blaðsíða 5
Miftvikudagur 30. ágúst 1972 TÍMINN 5 i3BH Fjársjóöur Azikhhellis Leiðangur inn i 250 m djúpan helli i Azerbæzdjan leiddi til þessaðminjar fundust um fólk sem uppi var fyrir 250 þús ár- um. Azikhhellir skiptist i nokkra neðanjarðarsali, og er hinn stærsti þeirra um 3000 fermetr- ar. Þar tóku fornleifafræðingar sinn fyrsta borkjarna, og voru i honum frumstæð steinaldar- vopn og dýrabein. Að svo búnu voru hafnar umfangsmiklar rannsóknir undir stjórn Mame- dali Gúseinofs. 1 hellinum fund- ust um 20 þúsund dyrabein og 6000 steináhöld. Gúseinof telur að hér sé um mikinn fjársjóð að ræða. Ekki sizt vegna þess, að eitt beinið er kjálkabein úr Ne- ander talsmanni. Neandertals- maðurinn var frægur áfangi i þróun mannsins. Hingað til hef- ur tekizt að finna á ýmsum stöð- um heims leifar af 100 Neander- talsmönnum — þar af aðeins fjórum sem uppi voru á elzta skeiði þeirra, sem kallað er Acheul-menningin. En beinið sem fannst i Azerbædsjan er einmitt af Acheul-manni. og hefur annað slikt ekki fundizt i öllum Sovétrikjunum. Aldur þessa beins er um 250 þúsund ár. Fræðimenn telja að i Azikh- helli hafi búið 100—150 manna fjölskylda Neandertalsmanna. Þegar Acheul-timanum lauk var hellirinn óbyggður i nokkur þúsund ár og byggðist ekki aftur fyrr en á Mustiere-timanum óhamingja Sorayu Þegar fréttist, að Soraya prins- essa hefði misst manninn, sem hafði gert hana svo hamingju- sama undanfarin ár, Franco Indovina, sem fórst nýlega i flugslysi, fannst mörgum, sem nóg hefði gerzt i lifi þessarar konu, og gert hana óhamingju- sama. Nú hefur meira að segja frétzt. að Soraya hafi reynt að fremja sjálfsmorð. Astæðan var ekki einungis sú. að hún missti manninn heldur lika það, að hún hefur eiginlega misst barn lika. Komizt hefur upp, að þau Franco og Soraya höfðu ætlað sér að ættleiða þriggja ára gamlan dreng, sem alizt hefur upp á barnaheimili i Rómaborg. Þau höfðu heimsótt þennan litla dreng i eitt ár á heimilið, og sótt um að fá að ættleiða hann. Þau höfðu meira að segja fengiö að taka hann heim með sér um helgar og innréttað barna- herbergi fyrir hann á heimili sinu.Núsegir i itöiskum lögum að einstæð kona megi ekki taka að sér barn, og þvi getur Soraya ekki ættleitt litla drenginn. Þegar svona var komið gerði Soraya tilraun til þess að svifta sig lifinu, en þó tókst að bjarga henni. Móðir hennar, Eva Estandfiari, er nú flutt til dóttur sinnar og gætir hennar dag og nótt, og ætlar sér að reyna að koma i veg fyrir aðra slika tilraun. * Orðinn magamikill Frank Sinatra er orðinn heldur magamikill, og vill gjarnan megra sig. Ástæðan er sú, að vinkona hans hin unga Feggy Lipton, sem er 26ára gömul, vill ekki. að vinur hennar sé svona feitur og gamallegur. En þrátt fyrir það. að Frank reyni annað slagið að halda i við sig(læðast ofan i hann samlokur og annað sælgæti, þar sem hann liggur og sólar sig á sólarströndum Rivierunnar, og enginn hefur séð hann megrast nokkurn hlut. Nú hefur Nixon Bandaríkja- forseti látið i það skina, að hann vilji gjarnan gera Frankie að ambassador, svo kannski verður Peggy ambassadorsfrú á næstunni. W Hvaö varö um jógann? Eitt sinn eignuðust Bitlarnir. frægu, vin, sem nefndist Maharishi Mahesh og var jogi. Þessi sami maður hafði meira að segja komið til islands i eina tið. Margir hafa velt þvi fyrir sér. hvað orðið hefur um mann þennan, þvi litið hefur heyrzt frá honum, siðan rætt var um hann i sambandi við Bitlana. Nýjustu fréttir herma, að hann sé önnum kafinn við að safna peningum, og hugsi eflaust ekki minna um það en þau andleg efni, sem hann eitt sinn hugsaði mest um, eða lét sem hann gerði. Nú ekur hann um á Mercedes limousine bil, hefur einkabilstjóra og auk þess er sagt. að hann hafi æ oftar sam- band við bankann i Sviss, sem geymir fjármuni hans, en fjár aflar hann með þvi að slarf- rækja skóla um allan heim, þar sem fólki er kennd einbeiting hugans og andlegheit. 0 # Hnífapörunum stolið fyrir brúökaupið Einn rikasti greifi Sviþjóðar varð fyrir töluverðu áfalli nú fyrir nokkru, þegar stolið var frá honum borðbúnaði fyrir eina milljón sænskra króna, eða hátt i 18 milljónir islenzkar. Greifinn heitir Carl Fiper og á hvorki meira né minna en fjórar hallir. Það versta við þennan þjófnað er, að Carl ætlaði aö fara að kvænast Evu Aleman, Burton lifir lifshættulega Fólk. sem þekkir þau Liz Taylor og Richard Burton veltir þvi stiiðugt l'yrir sér. hversu lengi þau ætla að endast til þess aö lil'a þvi lifi, sem þau lifa nú og hafa gerl lengi. Richard Burton er sagður drekka svo illa, að væri hann mannlegur. ætti hann að vera liingu dauður úr drykkjuskap, en kannski er hann eilthvert ofurmenni. Þau hjónin rifast dag og nótt. að minnsta kosti, þegar einhver heyrir til, og sagt er, að það sé mest gerl til þess að vekja á sér athygli. Hér á myndinni er verið að leiða þau Liz og Richard út af skemmtistað einum, og bak við þau má greina Claudiu Cardinale, sem hefur lengi beðið eftir þvi að fá að sjá stjörnu falla. V og þá átti að nota þennan dýrmæta borðbdinað. Þjófnaðurinn var framinn nótl eina, þegar Eva og Carl sváfu svefni hinna rétllátu,á efri hæð hallarinnar Högestad og urðu þau ekki þjófanna vör. í þeirri hiill eru 20 herbergi, en nú eftir brúðkaupið adla hjónin að flytjast til einhverrar af hinum hiillum Carls, sem allar eru heldur minni, en þær heita Christinehof, Baldringe og Torup. Carl gleður sig við tilhugsunina um það, að erfið- lega mun ganga fyrir þjófana að losna við silfrið, þvi það er allt með skjaldarmerki Fiper- ættarinnar. — A ég fiskinn? Það var i ölpunum, þar sem hópur verkfræðinga var að leggja veg. Gamall bóndi kom þar að og sagði við einn verkfræðinginn: — Vitið þið, hvernig við förum aö, þegar við leggjum vegi? Við látum asna fara af stað, og þar sem hann fer, er bezta vegar- stæðið. — En ef þið hafið engan asna? spurði hinn. — Þá sendum við eftir verk- fræðingum. Klara gamla frænka var i d/>: heimsókn, og Óli litli tók að sér að fara með henni i gönguferð og sýna henni nágrennið. Eftir nokkra stund varð Klara þreytt og settist á bekk. Óli litli prilaði upp i kjöltu henni og lét fara vel um sig. — Já, en Óli minn, sagði frænkan glöð. — Þetta ertu ekki að hjálpa þér með vanur að gera. — Nei, svaraöi stráksi, En bekkurinn er nýmálaður. — Almáttugur, hvað þú gerðir mér illt við. Ég var nærri dauður úr hræðslu. Sveinn heimsótti vin sinn á spital- ann og fannst hann lita illa út. Frammi á gangi hitti Sveinn hjúkrunarkonu og spurði hana, hvort þessi á stofu 6 hefði enga möguleika. Nei, svaraði hjúkrunarkonan. Hann er ekki min „týpa”. DENNI DÆMALAUSI Ég ræð við hann, en Billi ræður lika við mig ennþá. — Þér er vist bezt að lenda þá ekki i klónum á Billa, elskan.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.