Tíminn - 30.08.1972, Blaðsíða 12

Tíminn - 30.08.1972, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Miftvikudagur :iO. ágúst 1972 Hann brosti hæönislega. „Væri það svo fráleitt? Þér eruð úr konungsfjölskyldunni hér i Blairsborg”. ,,Og þér eruð orðinn læknir „konungsfjölskyldunnar”. ,,Ég bálreiddist. Ég fann, að blóðið hljóp fram i kinnarnar á mér og eyrun urðu brennheit. En þegar hann stakk nálinni i hörundið, náði ég aftur fullu valdi yfir skapsmunum minum. Hann brosti ekki lengur. Augu hans voru hvöss og rannsakandi, eins og þegar ég veitti honum fyrst at- hygli i brautarstöðinni. Hann endurtók orð min. ,,Og þaðer illa til falliö”, bætti hann við. ATJANDI KAFITUU Nú er langt um liðið siðan verkfallið i Friðarpipuverksmiðjunum átti sér stað. Ég hygg að það muni aldrei talið til merkra atburða i þjóðar- sögunni, þvi að það var hvorki umfangsmikið né áhrifarikt, samanbor- ið viö ýms önnur verkföll, og til þess stofnað á hinum óhentugasta tima. En það markaði timamót fyrir okkur og Blairsborg. Ég var að róta i skriíborösskúffunum minum áðan og rakst þá á margar rækilega merktar blaðaúrklippur frá þessum tima. Þær eru farnar að gulna og letrið að blikna, þvi að margt lætur á sjá á skömmum tima. Ég leit á dagsetningarnar og ártölin: Desember 1931, janúar, febrúar og marz 1932. Það var sjaidan getið um verkfallið i Blairsborg i fyrirsögnunum á íorsiðum stórblaðanna i Boston og New York. Þaö voru blööin i ná- grenninu, sem lutu svo lágt aö segja daglega frá gangi þess. Ég hef veriðað lesa þessar frásagnir blaðanna, en það, sem ég hef lesið, hefur jafnóðum þokað um set fyrir þeim minningum, sem ég á sjálf frá þess- um dögum. ,,Þú verður aldrei til þess aðsemja sættir, Emilia”, sagöi Harry óþolinmóölega, þegar ég spurði hann um úrslit einhverra samningatil- rauna. „Getur þú ómögulega fylgt þeim, sem þér ber að fylgja að mál- um?” Ég skildi aldrei til hlitar alla þessa málaflækju, allar þessar skefja- lausu deilur, öll þau gagntilboð, sem gerð voru og hinn aðilinn hafnaði ævinlega, unz henni lyktaði — þesari löngu baráttu, sem engum færði siguren vigði blómlega iðnaðarmiðstöð afturför og hruni. Sumir segja, að Blairsborg hal'i þegar verið dæmd til að hljóta þau örlög, og verk- fallið hafi aöeins flýtt þeim. Aðrir trúa þvi, að öllu hafi af ásettu ráði verið steypt i glötun. Enginn getur úr þvi skorið með vissu, og sizt er ég, sem á þessum lima velkist á vegamótum gamalla fjölskyldu- sjónarmiða og nýrra, gerólikra hugmynda, bær að dæma það. 1 sál minni átti sér slað barátta, sem ég gat ekki gerl mér ljósa grein fyrir og einstæðingsskapur minn og umkomuleysi átti drjúgan þátt i. Þessi sálarbarátta var eins og ofurlitil spegilmynd af vinnudeilunum, og á sama hátl var ég sjálf eins konar lifandi persónugervingur brúarinnar, er tengdi saman borgarhlutana tvo, en megnaði þó ekki að sameina þá. „Ég skil ekki, hvernig þetta gat komið fyrir i Blairsborg”, sagði ég við Harry l'yrsla verkfallsdaginn, er mér varð litið yfir ána á reykháf- ana.sem engan reyk lagði upp úr. „Ég hélt, að þetta yrðu aldrei annað en hótanir einar. Ég héll, að þeir létu sitja við ræðurnar, ritlingana og dreifibréfin. Mér datl aldrei i hug, að það væri hægt að hverfa hjólum verksmiðjuvélanna með orðum einum". „Nei. En þeir gálu stöðvað þau með þeim”, svaraði hann stuttara- lega. Harrý Collins hal'ði oft gagnrýnt stjórn og framleiðsluhætti i verk- smiðjunum, iöngu áður en þessa bliku tók að draga á loft. Hann hafði i upphafi deilnanna lagt til, að samtök verkamannanna yrðu viðurkennd til þess að vinnulriðnum yrði ekki stefnt i hættu, en þegar til lokaátak- anna kom, hafði hann hallazt að skoðunum framkvæmdastjórnarinnar. „Það í'ór þó svo að Harrý brást okkur ekki, þegar á reyndi”, sagði Wallaee við Emmu frænku. „Ég var satt að segja orðinn hugsandi vegna linkunnar i honum um tima. Hann talaði eins og hann væri alveg snúinn á sveif með upplausnarmönnunum. En hann er gæddur allt of heilbrigðri dómgreind til þess að láta ánetjast af þess háttar fólki”. „Ég sagði alltaf, að við gætum treyst Harrý”, svaraði Emma. „Það sannaðist lika. Þegar þau Emma eru gift, er óhætt að fara að fela hon- um stjórn einhverrar deildarinnar. Framtiðarstarf hans verður hér i Friðarpipuverksmiðjunum, og það gerir hann sér lika ljóst” „Ef til vill væri rétt af okkur að fara að einhverju leyti að ráðum hans og reyna að framleiða ódýrari vefnaðarvöru”, hélt Wallace áfram. „Við Parker höfum alltaf staðið gegn þvi, en það kann nú samt að vera, að hann hafi talsvert til sins máls. Mér hefur dottið i hug að fela honum slika tilraun, þegar við erum búin að leiða þessa togstreitu við verka- fólkið til lykta. — Hvernig lýst þér á það, ^milia?” Ég kinkaði kolli og lét i ljós ánægju mina. En ég forðaðist að láta þau renna grun i, að hann hefði litið gert af þvi að skýra mér frá hugmynd- um sinum, hvort heldur var þær, er lutu að kaupsýslu eða öðru. Ég lét þvert á móti i veðri vaka, að engan skugga bæri á samlif okkar, þvi að sjálf varð ég að trúa þvi, að svo væri. Samt sem áður gátum við aldrei talað saman i trúnaði, og þótt mig tæki það sárt, hafði ég jafnan á hrað- bergi hvers konar afsakanir fyrir hans hönd, jafnskjótt og hann var kominn úr augsýn minni. Ég varð að telja sjálfri mér trú um, aö hann ynni mér og þráði mig og þarfnaðist min, eins og ég unni honum og þarfnaðist hans. Karlmenn eru öðruvisi skapi farnir en kvenfólk, hugsaði ég. Þeir geta ekki látið allt sitt lif snúast um eina manneskju. Verið gat, að ég hefði ekki fyrr en um seinan komizt að raun um hve vill vegar ég fór, ef verkfallið hefði ekki dunið yfir um þetta leyti. Gegn vilja minum varð ég leiksoppur þess. Það grúfði yfir borginni eins og ferlegt ský, þungbúnara og myrkara en reykjarmökkurinn , sem ávallt hafði lagt úr reykháfum verksmiðjanna.Ég varö fyrir áhrifum þess, þótt ég heyrði ekki það, sem fram fór, og gæti ekki á eðlilegan hátt íundið ugginn, sem leyndist i tali fólks. Ég sá varir manna og kvenna herpast saman af gremju og kviöa og hatri, og ég sá óttann skina úr augum fólks og skortinn læsa það greipum sinum. Jafnvel börnin voru ófrjálsleg við leiki sina, eins og þau væru einnig sömu beiskjunni háð og hinir fullorðnu og þyrðu ekki annað en vera sifellt á verði. Ég blaða i úrklippunum á skrifborði minu, og renni augunum yfir hinar minnisstæðu fyrirsagnir: „Sáttaumleitanir i Friðarpipuverk- smiðjunum fara út um þúfur” — „Verkfall vofir yfir”. — „Engin von um sættir i Blairsborg”. — „Verksmiðjustjórnin og fulltrúar verk- smiðjufólksins og Landssambands vefara slita öllum samningatilraun- um”. — „Engin ný sáttaboð hafa komið fram”. — „Verkamenn setja úrslitakosti”. — „Verkfall eftir 24 klukkustundir, ef ekki verður látið að kröfum verksmiöjufólksins”. — „Boðað til verkfalls i fyrramálið”. — „Elztu vefnaðarvöruverksmiöjunum i Nýja-Englandi lokað. Verk- 1193 Lárétt Lóörétt 1) Missýning.- 5) Hvílast.- 7) 11 Taumar.- 2) Náð.- 3) DL,- 4) Hátið - 9) Drif,- 11) Korn - 12) ^ll 6) Skarta,- 8) Rás,- 10) Tónn - 13) Bein - 15) Óskert - 16) Æfa,- 14) Kul - ’5) Man,- 17) Na,- llulduveru - 1») Róa,- Lóðrétt 1) fíá sem er öðrum meiri,- 2) Glöð,- 3) Joð,- 4) Blöskrar,- 6) Ilárleysi - 8) Gruni - 10) Stafur - 14) Fum,- 15) Máttarvöld.- 17) 51.- Ráðning á gátu No. 1192 Lárétt 1) Týndur,- 5) All - 7) Urð,- 9) Læk - 11) Má,- 12) Fa,- 13) Ask,- 15) Mar - 16) Una.- 18) Slanga - 1 i H liliii y MIÐVIKUDAGUR 30. ágúst. 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar, 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Siðdegissagan: „Þrútið loft” eftir P. G. Wodehouse. Jón Aðils leikari les (13). 15.00 Fréttir. Tilkynningar. 15.15 islenzk tónlist. 16.15 Veðurfregnir. Ræktun- artilraunir Magnúsar Ket- ilssonar sýslumanns. Ingi- mar Óskarsson flytur er- indi. 16.40 I.ög leikin á gitar. 17.00 Fréttir. Tónleikar. 17.30 Nýþýtt efni: „Æskuár mín" eftir Christy Brown. 18. Fréttir á ensku 18.10 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.30 Frá Olympiuleikunum i MUnchen. Jón Asgeirsson talar. 19.40 Ilaglegt mál. Páll Bjarnason menntaskóla- kennari flytur þáttinn. 19.45 Alitamál. Stefán Jóns- son stjórnar umræðuþætti. 20.10 Úr „Norðurlandstró- met” lagaflokki op. 13 eftir David Monrad Johansen við texta eftir Peter Dass i þýð- ingu dr,-Kristjáns Eldjárns. Guðrún Tómasdóttir syng- ur. Ólafur Vignir Albertsson leikur á pianó. 20.30 Sumarvaka. 21.30 Ilandknattleikslýsing frá Olvmpiuleikunum. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag- an: „Maðurinn sem breytti um andlit” eftir Marcel Ay- nié.Kristinn Reyr les (16). 22.35 Nútimatónlist: Tónlist eftir Vagn Holmboe. 23.20 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. MIÐVIKUDAGUR 30. ágúst 1972. 18.00 Frá Olympíuleikunum. Hlé 20.00 Fréttir. 20.25 Veður og auglýsingar. 20.30 The Living Sea.Ný kvik- mynd, gerð að tilhlutan rik- isstjórnarinnar i tilefni af útfærslu landhelginnar, og sýnd i ýmsum sjónvarps- stöðvum viða um heim um þessar mundir. Kvikmynd- un Sigurður Sverrir Páls- son. Hljóðsetning Marinó Ó- lafsson. Þulur Magnús Magnússon. Umsjónarmað- ur Eiður Guðnason. 20.40 Carl Wolfram. Þýzki söngvarinn Carl Wolfram kynnir gamla söngva og gömul hljóðfæri i sjónvarps- sal. Hljóðfærin sem hann leikur á eru bassalúta og meir en 500 ára gömul lira. Þýðandi Óskar Ingimars- son. 21.05 Valdatafl. Brezkur framhaldsmyndaflokkur. 10. þáttur. Eftirköst. Þýð- andi Heba Júliusdóttir. I siðasta þætti greindi frá þvi, að Kenneth Bligh hafði milligöngu um viðamikla framkvæmdasamninga. Wilder og Straker, sem einnig er við þessar fram- kvæmdir riðinn, eru á nál- um um að samningarnir hafi stórfellt fjárhagstjón i för með sér. En að lokum kemur i ljós að Kenneth hef- ur snúiö á þá báða. 21.50 Afreksmenn á öld hraða. Bandarisk mynd um hrað- akstur og tilraunir manna, til að setja hraðamet i akstri bifreiða. Greint er frá þróun hraðaksturs og tilraunum, sem gerðar hafa verið um árabil á saitsléttum Utah- rikis. Þýðandi og þulur Ell- ert Sigurbjörnsson. 22.40 Dagskrárlok.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.