Tíminn - 30.08.1972, Blaðsíða 15

Tíminn - 30.08.1972, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 30. ágúst 1972 TÍMINN 15 1« YFIRLÝSING Þar sem fram hefir komið, að menn eru ekki á eitt sáttir um það, hvort Jónasi Jónssyni verði bezt minnst með þvi að reisa honum myndastyttu eöa á einhvern annan hátt, hefir ákvörðun i þvi máli verið frestað i bili. Hugmyndum um þetta yrði hins vegar vel tekið og óskast þær sendar til undirritaðra. Hjálmtýr Pétursson Jón tvarsson Þórir Baldvinsson HalldórSigurðsson. I Orlof og skatta- frádráttur sjómanna A fundi i Skipstjóra- og stýri- mannafélaginu KARA i Hafnar- firði hinn 26. júli s.l. var tekinn fyrir og ræddur úrskurður félags- dóms þar, sem fjallað var um, hvort útgerðarmönnum væri skylt að greiða orlof á öll laun sjó- manna, eða hvort þær upphæðir, sem sjómenn fá i skattfrádrátt, skyldu fyrst dregnar frá launum og orlof greitt á afganginn. Eins og kunnugt er, gerðu flest allir útgerðarmenn þannig upp eftir vetrarvertið, að þeir greiddu Yfir 20 stig heitasta daginn SB-Reykjavik t Svarfaðardal eru margir bændur búnir að hirða allt sitt hcy, og hinir eru með það siðasta. Háarspretta er góð, en háin verð- ur sennilcga ekki nýtt, nema til beitar, þar sem hey eru þegar orðin meiri cn nokkru sinni áður i dalnurn. Ekki er gert ráð fyrir, að svarfdælskir bændur fjölgi skepn- um sinum i haust ,enda eru öll hús full fyrir. Þrjú stór f jós eru i byggingu að Dæli, Þverá og á Steindyrum, og er gert ráð fyrir, að þeim verði lokið i haust. Það eru menn frá Dalvik, sem sjá um fjós- byggingarnar, en mikill skortur er nú á vinnuafli á þessum slóð- um. Hlýjasti dagur sumarsins i Svarfaðardal var á mánudaginn, og fór hiti yfir 20 stig að sögn fréttaritara Timans, Friðbjarnar Zóphóniassonar á Hóli, hafa al- gjörlega úrkomulausir sólar- hringar i sumar ekki verið nema tveir eða þrir alls. Eftir helgina verður farið að aka nautgripum úr Svarfaðardal til slátrunar inn á Akureyri og munu það vera hátt á annað hundrað gripir, þvi mikiö er um kálfauppeldi i dalnum. Komast ekki í Háskólann Allmargir kennarar hafa leitað eftir inngöngu i háskólann, og hefur að undanförnu nokkuð verið á huldu, hvernig beiðni þeirra yrði afgreidd. I gær kvað há- skólaráð upp úr með, að það myndi visa á bug ósk þrjátiu og eins kennara, sem farið höfðu þessa á leit. I I | 1 Vilja láta Fox á Kvikmyndafélagið Viðsjá hefur farið þess á leit, að Chester Fox, bandariski kvik- myndatökumaðurinn, verði kyrrsettur á Islandi þar til hann hefur greitt skuldir sinar við Viðsjá, en þær skuldir orlof aðeins á laun að frádregnum skattafrádrætti sjómanna. Þessu vildi F.F.S.I. ekki una, og var málið lagt fyrir félagsdóm þar, sem þessi framkvæmd or- lofslaga var staðfest. Eins og fyrr segir, var mál þetta tekið fyrir á fundi i Skipstjóra- og stýrimanna- félaginu KÁRA i Hafnarfirði hinn 26. júli s.l. Urðu nokkrar umræð- ur um málið, og voru menn sam- mála um að mótmæla þeirri að- för, sem með þessu er gerð að sjó- mönnum og samningafrelsi þeirra. Telur fundurinn, að með þessu séu stórlega skertir þeir samningar, sem undirskrifaðir voru af F.F.S.I. og L.l.tJ. hinn 31. des. s.l. Einnig telur fundurinn, að úrskurður félagsdóms i máli þessu sé i fyllsta máta vafasam- ur, þar sem hann byggist aðal- lega á þvi, að i gildandi orlofslög- um sé talað um að orlof skuli greitt af tekjuskattsskyldum tekjum. Vill fundurinn benda á i þessu sambandi, að þar, sem hingað til hefur verið talaö um skattskyldar tekjur, sé undan- tekningarlaust átt við framtals- skyldar tekjur, en hingað til hefur hver króna, sem sjómenn fá i laun verið framtalsskyld. Einnig segir i 2. gr. orlofslaga: Lög þessi rýra ekki viðtækari eða hagkvæmari orlofsrétt samkvæmt öðrum lög- um, samningum eða venjum. En þvi hefur ekki verið mótmælt, að venja hefur verið að greiða orlof á allt kaup og/eða aflahlut sjó- manna. Einnig má geta þess i þessu sambandi, að til þess aö geta mannað fiskiflota okkar Is- lendinga og fært okkur þannig i nyt hina nýju 50 milna landhelgi, er nauðsynlegt að bæta mikið kjör sjómanna frá þvi, sem nú er, og það er ekki siður nauðsynlegt að staðið sé við gerða samninga, en ekki ráðizt aftan að mönnum með likum hætti og hér hefur verið gert i skjóli ,,laga og réttar”. Er illt til þess að vita, að sjómenn, bæði yfirmenn og undirmenn, skuli ganga i land i stórum hópum vegna þess, að þeir geta fengið mun betur borgaða vinnu og miklu betri lifsafkomu i landi en þeir hafa til sjós, en það er stað- reynd, að þannig hefur þetta ver- ið undanfarin ár. Það er skilyröislaus krafa allra islenzkra sjómanna og allra þeirra er sjómennsku unna, að þessu verði breytt á þann veg, að sjómennska veröi eftirsótt at- vinnugrein. Nauðsynlegar breytingar á or- lofslögum er aöeins einn liöur af mörgum, sem breyta þarf, en þær breytingar þola enga bið, og hefur bráðabirgðalögum oft verið beitt af minna tilefni. kyrrsetia fslandi! munu vera vinnulaun. Viðsjá mun upphaflega hafa ætlað að láta kyrrsetja eigur Fox hér á landi, en þær reynd- ust engar, og þvi fór félagið fram á að hann yrði sjálfur kyrrsettur! I Á Hólahátíð: Umræður um stöðu Hóla, sem biskups-og skólaseturs í framtíðinni Hólahátiðin fór fram á Hólum i Hjaltadal, sunnudaginn 13. ágúst s.l. Dagskráin hófst kl. 14 með samhringingu, er prestar gengu hempuklæddir til dómkirkjunnar. Margt manna var saman komið heim á staðnum, enda sólskin og bliða þennan dag. Kirkjan var þéttsetin hátiðargestum. Guðþjónustan hófst með þvi, að blásarar nú nýstofnaðri kirkju- tónlistarsveit á Akureyri fluttu „Preludium” undir stjórn Róar Kvam, hljómsveitarstjóra. Predikun flutti séra Sigurður Pálsson, vigslubiskup, en séra Pétur Sigurgeirsson, vigslu- biskup og séra Gunnar Gislason, alþingismaður i Glaumbæ þjón- uðu fyrir altari. Kirkjukór Sauð- árkróks annaðist söng undir stjórn Frank Herlufsen, söng- stjóra. 1 lok guðþjónustunnar var altarisganga. Að lokinni messu var hlé til kl. 16.30 en þá hófst samkoma i kirkj- unni. Séra Arni Sigurðsson, for- maður Hólafélagsins flutti ávarp og stjórnaði samkomunni. Flutt var kirkjulegt tónverk af fjórum blásurum frá Akureyri með að- stoð frú Gigju Kjartansdóttur. Gisli Jónsson, menntaskóla- kennari á Akureyri flutti erindi um „Jón helga Ogmundsson og skóla hans.” Kirkjukór Sauðár- króks söng undir stjórn Frank Herlufsen. 1 lof samkomunnar flutti séra Pétur Sigurgeirsson, vigslubiskup ritningarorö og bæn. Einnig var almennur söngur. 1 sambandi við hátiöina var aðalfundur Hólafélagsins, hald- inn fyrir hádegi sama dag i setu- stofu bændaskólans á Hólum og hófst fundurinn kl. 10.30,— En Einstakt sumar á Raufarhöfn Aflabrögð ágæt ÞÓ-Reykjavik. Veöráttan hefur leikið við okk- ur að undanförnu, sagði Hreinn Helgason, fréttaritari Timans á Raufarhöfn i viðtali við blaðið. Tiðin hefur verið mjög góð i allt sumar, aðeins tveir stuttir kulda- kaflar hafa komið, um sjómanna- daginn og verzlunarmannahelg- ina. Siðustu daga hefur mátt likja veðrinu við það, sem er i hitabelt- inu, hitinn veriö þetta .18-20 stig siðla dags. Atvinnulif hefur verið með bezta móti á Raufarhöfn i sumar, er það að þakka ágætis aflabrögð- um bátanna, aðallega færabát- anna. I haust má búast við, að mjög dofni yfir atvinnulifinu, og er það mikið vegna þess, aö búið er að selja stærsta bátinn i eigu Raufarhafnarbúa, togskipið Jök- ul, en i vetur er aftur á móti vænt- anlegur nýr skuttogari til Raufar- hafnar frá Japan. — Milli 20 og 25 bátar hafa róið að staðaldri frá Raufarhöfn i sumar, og frá þvi i byrjun júni hefur verið stanzlaus vinna við fiskinn i frystihúsinu. Gæftir hafa verið góöar að öllu jöfnu, nema hvað sunnan áttin hefur aðeins truflaö sjósókn litlu bátanna. Engar byggingarframkvæmdir hafa átt sér stað á Raufarhöfn i sumar, en fyrir liggur að endur- bæta frystihúsið, eins og viðar. Ekki er vitaö, hvort núverandi hús verður betrumbætt eða ráöizt i byggingu nýs húss. Leiðrétting 1 þriðjudagsblaði Timans var rangt nafn mannsins, sem er að tefla viö Niels Hallgrimsson. Hann heitir Dagbjartur Björgvin Gislason, en ekki Gestur Jónsson. Hólafélagið er félag áhugafólks viðsvegar um land, um uppbygg- ingu Hólastaðar. — Formaður félagsins flutti skýrslu félags- stjórnar og kom þar m.a. fram að unnið er nú að heildarskipulagi á staðnum i samvinnu við bænda- skólann, með tilliti til væntan- legrar skólastofnunar á vegum þjóðkirkjunnar að frumkvæði Hólafélagsins. Nokkrar umræður urðu um stöðu Hóla, sem biskups- og skólaseturs i framtiðinni. Þá fór fram stjórnarkjör. Úr stórn- inni gengu Pálmi Jónsson, alþingismaður á Akri og Björn Egilsson, Sveinsstööum og var þeim þökkuð ágæt störf i þágu félagsins. 1 stað þeirra voru kostnir séra Gunnar Gislason i Glaumbæ og Gunnar Oddsson i Flatatungu. Aðrir i stjórn eru séra Arni Sigurðsson, Blönduósi, Gestur Þorsteinsson, bankagjald- keri Sauðárkróki, Margrét Arnason, skólastjórafrú Hólum, séra Bjartmar Kristjánsson, Laugalandi og séra Sigfús Arnason, Miklabæ. Meðal gesta fundarins var Asgeir Asgeirsson, fyrrv. forseti Islands. Hóladeginum barst kveðja frá biskup Islands. herra Sigurbirni Einarssyni. Unnið við smíði nýrrar bryggju á Djúpavogi ÞÓ-Reykjavik. Eins og kunnugt er af fréttum, sigldi danskt flutningaskip hafn- arbryggjuna á Djúpavogi niður snemma i vor. Nú er hafin bygg- ing á nýrri bryggju, og verður komið upp 40x50 viðlegukanti á Djúpavogi. Þórarinn Pálmason fréttaritari Timans á Djúpavogi sagði, aö viðlegukanturinn yrði fyrir aust- an gömlu bryggjuna meðfram svokölluðum Hjallskletti. Þessa dagana er unnið að þvi að aka i uppfyllingu, sem kemur innan við stálþil, sem verður rekið niöur. Stálþilið sjálft er ekki komið til landsins, en það tafðist i hafnar- verkfallinu i Bretlandi. Atvinnulif hefur verið ágætt á Djúpavogi i sumar, en þó ekki eins gott og i fyrrasumar. Þegar bryggjan eyðilagðist á Djúpavogi i vor, þurfti að skipa og afskipa öllu, sem viðkom Djúpavogi á öðrum höfnum. Fljótlega var gert við það, sem eftir var af bryggjunni, og hafa t.d. Hekla og Esja lagzt þar að bryggju i sumar. Þrátt fyrir komu Heklu og Esju, hefur þurft að skipa miklu út á öðrum stöð- um, og hefur þurft að aka miklu af sjávarútvegsvörum til Breið- dalsvikur og jafnvel Hafnar i Hornafirði. Litlar byggingaframkvæmdir hafa verið á Djúpavogi i sumar, en nú er i undirbúningi bygging félagsheimilis og skóla. Þessar byggingar eiga aö vera sameigin- legar að einhverju leyti. Kennara vantar við Þinghólsskóla í Kópavogi. Kennslu- greinar: íslenzka, enska og fleira. Væntanlegir umsækjendur hafi samband við skólastjórann hið bráðasta. Fræðslustjórinn Frá Barnaskóla Garðahrepps Skólinn tekur til starfa 1. september. Nemendur mæti, sem hér segir: 12 og II ára kl. 10 10 og 9 ára kl. 11 8 ára kl. 13. 7 ára kl. 14. 6 ára kl. 15. Nýir nemendurhafimeðsérskilrikifráþeim skólum, sem þeir koma frá. Fólk, sem flytur i Garðahrepp siðar á skólaárinu, þarf einnig að tilkynna skólaskyld börn. Kennsla hefst miðvikudaginn 6. september. Skólastjóri.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.