Tíminn - 30.08.1972, Page 11
Miðvikudagur 30. ágúst 1972
TÍMINN
11
jUmsjon.Alfteð Þorsteinsscn
tírslit í
flokka-
íþróttum
Einstök úrslit i flokkaiþrótt-
um, sem borizt hafa:
Knattspyrna,
1 gær misritaðist, aö Danir
og Brasiliumenn væru i 1.
riðli, en þeir eru i 3. riðli.Úrslit
i gær:
Kiðill 1:
V.Þýzkal.-Marokkó (V.-Þjóð-
verjar sigruðu og var staðan i
hálfleik 2:0.)
Bandarikin — Malaysia 0:3
Riðill 3:
Danmörk — Iran 4 : 0
Ungv. — Brasilfa 2:2
Gullið hleðst á Mark Spitz
vann sín 3ju verðlaun í gær
- og setti enn nýtt heimsmet - I öðrum greinum féllu
Undramaðurinn Mark
Spitz hreppti sin þriðju
gullverðlaun á Olympíu-
leikunum í Miínchen, þegar
hann sigraði með miklum
glæsibrag í 200 metra skrið-
sundinu á nýju heimsmeti,
1:52, 78 minútum, en þetta
er jafnframt þriðja heims-
met hans á leikunum í
Munchen. Virðist fátt geta
hindrað, að þessi 21 árs
gamli Bandaríkjamaður
hreppi fleiri gullverðlaun,
en hann hefur möguleika á
7 gullverðlaunum.
Yfirburðir Spitz i 200 metra
skriðsundinu voru miklir. Landi
hans, Steven Genter, fylgdi hon-
um fast eftir fyrri hluta sundsins,
en eftir 100 metra tók Spitz
örugga forustu og kom i markið á
nýju heimsmeti. Timi Genters
var 1:53, 73 og timi þriðja manns,
Vestur-Þjóðverjans Werner
Lampe var 1:53, 99 min.
Vegna hinna tiðu meta, sem
sett eru i sundkeppninni i Miin-
chen er ljóst að sundiþróttin mun
setja sérstakan svip á þessa
Olympiuleika. Hvert heimsmetið
á fætur öðru var sett i 100 metra
bringus. og Olympiumet fuku i
öðrum greinum. Keppnin I 100
metra skriðsundi kvenna er til að
mynda mjög spennandi, og hin
unga ástralska sundkona, Shane
Gould, sigurvegarinn i 200 m fjór-
sundi, varð að láta sér lynda að
horfa á eftir tveimur bandarisk-
um stallsystrum sinum á undan
sér i mark, en Gould hafði verið
spáð sigri i 100 m skriðsundinu.
Sigurvegari varð Sandra Neilson
á 58,59 sem er nýtt Olympiumet
og i 2. sæti varð Shirley Babas-
hoff á 59,02, en timi Gould var
59,06. Sandra Neilson er aðeins 16
ára gömul, en Gould er 15 ára
gömul.
Olympíumet - Gould varð að láta sér nægja brons
Undramaðurinn Mark Spitz sést hér setja heimsmet i 200 metra flugsundi ikeppninni í Miinchen.
1 200 metra bringusundi kvenna
bar áströlsk stúlka, Beverley
Whitfield sigur úr býtum á nýju
Olympiumeti, 2:41, 71, en i öðru
sæti varð Dana Schoenfield,
Bandarikjunum, á 2:42, 05 — og i
þriðja sæti kom Galina Stepanova
á 2:42, 36.
t 100 metra baksundi karla var
sett enn nýtt Olympiumet. Roland
Matthes synti á 56,58. Mike
Stamm varð annar á 57,70 og i
þriðja sæti varð John Murphy á
58,35.
ALVARAN BYRJ-
AR í KVÖLD
- handknattleiksmennirnir leika gegn
A-Þjóðverjum í sínum fyrsta Olympíuleik
Bandaríkjamenn með
flest gull-verðlaun
Margir munu eflaust leggja við
hlustirnar i kvöld, þegar Jón As-
geirsson, iþróttafréttamaður út-
varpsins, lýsir leik tslands og
Austur-Þýzkalands i handknatt-
leikskeppni Olympiuleikanna, en
leikurinn verður háður I Augs-
borg og hefst kl. 18 að islenzkum
tima, en lýsing Jóns hefst kl.
21.30.
Eins og kunnugt er, þá eru
Austur-Þjóöverjar meðal sterk-
ustu handknattleiksþjóöa verald-
ar, hlutu silfurverðlaun i siðustu
heimsmeistarakeppni, og er mjög
óliklegt, að islenzka liðinu takist
að sigra þá i leiknum i kvöld.
Eina von íslands er að sigra
Tékka — fyrir utan Túnismenn —
en tékkneska landsl. hefur verið
i öldudal undanfarið. Leikurinn
við Tékka verður á föstudag.
Islenzka landsliðið hefur leikið
nokkra landsleiki að undanförnu.
1 gær lék það æfingaleik við Ung-
verja og tapaði með fjögurra
marka mun, 21:25.
Auk handknattleiksmannanna
tekur Guðmundur Gislason,
sundmaður þátt i keppni i dag.
Keppir hann i 400 m fjórsundi.
Riölakeppnin hefst kl. 9 f.h.
Eftir 19 greinar á
Oly mpiuleikunum i
MUnchen hafa .Banda-
rikjamenn hlotið flest
gullverðlaun, eða 5 tals-
ins. Næstir koma Aust-
ur-Þjóðverjar með 3
gullverðlaun, þá Sovét-
rikin og Ástralia með
tvenn gullverðlaun, en
Ungverjar, Pólverjar,
Sviar, ítalir, Búlgarir,
Japanir og Norður-
Kóreumenn hafa hlotið
ein gullverðlaun.
Rúmenar, Vestur-Þjóðverjar,
Austurrikismenn, Frakkar og
Iranir hafa hlotið ein silfurverð-
laun, en langefst á blaði meö
silfurverðlaun eru Bandarikja-
menn, sem hlotið hafa 6 silfur-
verðlaun, en alls hafa Banda-
rikjamenn hlotið 15 verðlaun á
leikunum til þessa, þar sem þeir
hafa hlotið 4 brons verðlaun.
Eftir keppnina i gær standa
stigin þannig, að Bandarikja-
menn hafa hlotiö 99 stig, Austur-
Þjóðverjar 62, Sovétmenn 39,
Ungverjar 26,5, Vestur-Þjóðverj-
ar 25.5, Pólverjar og Astraliu-
menn 21, Sviar 16, Italir 14,
Japanir 13, Austurrikismenn 12,"
Rúmenar 10 og aðrar þjóðir hafa
hlotiö færri stig.
Körfubolti:
A-riðilI:
USA —Ástralia 81 : 55
Brasilia — Egyptal. 110 : 84
B-riðill:
Sovét. — V-Þýzkal. 87 : 63
[ Italia — Senegal 92 : 56
Puerto Rico — Filippse. .92 : 72
C-riðiIl:
Kúba —Spánn 74 : 53
Sundknattleikur:
A-riðill:
Mexikó —-Kanada 7 : 3
Júgóslavia — Rúmenia 8 : 7
B-riðill:
V-Þýzkal. — Ungverjal. 3 : 3
C-riðill:
Italia — Búlgaria 8 : 5
Sovétr. —Japan 11 : 1
Blak karla
B-riðill:
Japan — Rúmenia 3 : 0
(15 : 4, 15 : 5, 15 : 6)
A-Þýzkal. — Kúba 3:0
(15 : 7,15 : 13,15 : 7)
AAicki King gerði
vonir Ulriku að
engu
Hina ungu 17 ára sænsku
stúlku, Uirika Knape, vantaði að-
eins keppnisreynsluna til að
krækja sér I gullverðlaun i dýf-
ingum kvenna. Hún hafði forustu
lengi vel i keppninni, en banda-
riska stúlkan Micki King (28 ára)
gerði vonir hennar að engu, þegar
hún náði frábærum árangri i einni
æfingunni og hlaut fyrir hana
56.25 stig, sem nægði til að sigra
Ulriku. Ulrika Knape varð þvi að
láta sér nægja silfurverðlaunin,
og má hún vera ánægð með þau,
þvi að hún kom mjög á óvart i
keppninni. Annars uröu úrslit
þessi:
1. Micki King, USA 450.03
2. Ulrika Knape, Sviþ. 434.19
3. M.Janicke, A-Þýzka. 430.92
4. JanetEly, USA 420.99
5. Beverly Boys, Kan 418.89
Langt frá
sínu bezta
Islenzku sundmennirnir, sem
þátt tóku i sundkeppninni f gær,
stóðu sig ekki eins vel og vonazt
var til. Guðjón Guðmundsson
varð siðastur i sinum riðli i 100
metra bringusundi, synti á
1:11, 11 min., en Islandsm hans i
greininni er 1:10,9 min. Sömu
sögu var að segja um Finn Garö-
arsson, hann varð siðastur i sin-
um riðli i 200 metra skriösundi,
synti á 2:08, 88 min.
Hörð keppni
Sovézka sveitin i hjólreiðum
varð OL-meistari i 100 km hjól-
reiðakeppninni eftir harða keppni
við pólsku sveitina, sem kom tæp-
lega 30 sek. eftir sovézku sveitinni
i mark og hlaut þar með silfur-
verölaunin.
Úrslit i 100 km hjólreiðakeppn-
inni uröu þessi:
Sovétríkin 2.11.17,8
Pólland 2.11.47,5
Holland 2.12.27,1
Fór Gísli meiddur til Munchen?
Gisli Blöndal varö fyrir þvi
óhappi i æfingaleik gegn Spáni,
að gömul meiðsli tóku sig upp
og varð að flytja hann á
spitala. Það mun nær öruggt,
að hann leiki ekki með
islenzka landsliðinu á OL-leik-
unum. tslenzka liðið sigraði
spánska liðið með 19:18 og má
segja, að það sé litil ánægja að
sigra i æfingaleik, sem þarf að
fórna einum leikmanni í.
Þeir, sem hafa fylgzt með
islenska landsliðinu i
handknattleik, áöur en það fór
til Miínchen, velta þvi nú fyrir
sér, hvort Gisli Blöndal og
fleiri leikmenn, hafi farið
meiddir á OL-leikana. Eins og
menn muna meiddist GIsli I
keppnisferö islenzka liösins til
Noregs og V-Þýzkalands —
Gisli meiddist strax i fyrsta
leik keppnisferðarinnar gegn
Noregi.
Eftir að hann kom heim úr
ferðinni, byrjaði hann að æfa
eins og ekkert hefði i skorizt —
en þá skeður það. Meiðslin hjá
Gisla taka sig upp á einni
æfingunni og var hann þá
fluttur á slysavarðstofuna.
Siðan gekk hann til rannsókn-
ar hjá lækni. Héldu þá flestir
að Gisli myndi ekki komast á
OL-leikana, þvi að smáóhapp i
Miinchen myndi setja Gisla úr
leik, eins og nú hefur komið
fram. En það er nú talið hæp-
ið, að hann geti leikið hand-
knattleik um tima. Er það
ekki gott fyrir islenzka lands-
liðiö, sem leikur á OL-leikun-
um, þvi að nú situr liðið uppi
með „aðeins” einn miðherja,
Sigurberg Sigsteinsson. Þó
að Sigurbergur, sé frábær,
varnarmaður, er ekki hægt að
búast við að hann geti leikið
alla leikina á fullujþvi að mið-
herjastaðan er sú erfiðasta i
vörninni og nú er enginn leik-
maöur I Miinchen sem getur
leyst hann af i miðherjastöð-
unni.