Fréttablaðið - 07.07.2004, Blaðsíða 23
Okkar ástkæra
JÓRUNN PÁLMADÓTTIR
Suðurgötu 49, Keflavík,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 3. júlí.
Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 9. júlí kl. 14.
Halla Tómasdóttir Pálmi B. Einarsson
Linda Björk Pálmadóttir Þórdís Halla Gunnarsdóttir
Finna Pálmadóttir Guðjón Á Antoníusson
Tómas Pálmason Jón N. Hafsteinsson
Halldís Bergþórsdóttir Tómas Tómasson
Finna Pálmadóttir og aðrir aðstandendur
RINGO STARR
Einn frægasti trommari heims, fyrrum
trommari Bítlanna, er 64 ára í dag.
8. JÚLÍ
■ ÞETTA GERÐIST
„Þetta byrjaði þannig að Landsam-
band hestamanna hafði samband og
óskaði eftir að upplýsingum um reið-
leiðir yrði safnað og komið og fram-
færi og það var ákveðið að vefurinn
væri besta tólið til þess,“ segir
Magnús Guðmundsson, forstjóri
Landmælinga Íslands. „Síðar var
Vegagerðin fengin inn í samstarfið.“
Nú er búið að safna upplýsingum
hjá hestafélögum víða um land fyrir
fyrsta áfanga og birta á vefsvæði
Landmælinga, lmi.is, þar sem um
5.800 km af reiðleiðum hafa verið
merktar inn á landakort og segir
Magnús að það sé líklega um helming-
ur af því teljast vera reiðleiðir á Ís-
landi í dag.
„Þetta eru bæði stuttar ferðir og
langar. Allt frá ferðum þvert yfir há-
lendið og ferðir í kringum einhverja
bæi. Næsta skref er að halda áfram og
safna sem mestu upplýsingum. Síðar
munum við hugsanlega bæta við upp-
lýsingum, til dæmis um það hvar er
hægt að fá hey, kannski merkja inn
hindranir og vöð. Þetta er bara spurn-
ing um að hafa hugmyndarflug um
hvað hægt er að gera. Þetta kort hef-
ur verið unnið í miklu samstarfi við
hestamenn og vegna mikils áhuga
þeirra. Það kemur frá grasrótinni og
er byggt á þeirra óskum og þörfum.“
Þetta er ekki eina kortið sem Land-
mælingar hafa verið að vinna að á
þessum grunni, því þegar er búið að
merkja nokkur hundruð gönguleiðir
inn á kort á vefsvæðinu ganga.is, sem
Landmælingar hafa unnið að, ásamt
Ungmennafélagi Íslands og Ferða-
mannaráði. „Þessi tvö verkefni eru
svipuð og munu hjálpa hvort öðru.“ ■
Reiðleiðir merktar á kort
REIÐLEIÐIR VIÐ REYKJAVÍK
Fjölmargar reiðleiðir er að finna í nágrenni Reykjavíkur eins og sjá má.
Kort fyrir allt landið má finna á lmi.is/reidleidir.
15
■ AFMÆLI
■ JARÐARFARIR
■ ANDLÁT
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikkona er
54 ára.
Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur er
49 ára.
Patrekur Jóhannesson handboltakappi
er 32 ára.
Guðmundur Stefán Karlsson, Baldurs-
götu 26, Reykjavík, lést laugardaginn 3.
júlí.
Guðrún Eyþórsdóttir, Hrafnistu, Hafnar-
firði, lést þriðjudaginn 29. júlí. Útför
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Sigríður Guðrún Sveinsdóttir, Torfholti
2, Laugarvatni, lést sunnudaginn 4. júlí.
Steinunn Guðrún Björnsdóttir, Selja-
vegi 8, Selfossi, lést laugardaginn 3. júlí.
1898 Havaí er innlimað í Bandaríkin.
1930 Vinna hefst við byggingu Hoover-
stíflunnar í Nevada.
1937 Japanir ráðast inn í Kína.
1941 Bandaríski herinn tekur við vörn-
um breska hersins á Íslandi.
1954 Dewey Phillips, plötusnúður á
WHBQ í Memphis, verður fyrsti
plötusnúðurinn til að spila plötu
með Elvis Presley.
1967 Tónleikaferðalag The Monkees
um Bandaríkin hefst, með The
Jimi Hendrix Experience sem
upphitunarhljómsveit.
1971 Björn Ulvaeus og Agnetha Fält-
skog í Abba gifta sig.
1984 Lagið Relax með Frankie Goes to
Hollywood slær öll sölumet smá-
skífna í Bretlandi.
1985 Boris Becker verður yngsti tennis-
leikarinn til að sigra í einliðaleik
karla á Wimbledon, aðeins 17
ára.
1998 Michael Jackson og félagi hans
Don Barden tilkynna að þeir ætli
að byggja nýjan Neverland-
skemmtigarð undir heitinu
Majestic Kingdom í Detroit.
INTERNETIÐ
REIÐLEIÐAVEFUR
■ Samstarfsverkefni Landsambands
hestamanna og Landmælinga.
HELGA THORBERG
Blómálfurinn er farinn að æfa sig í frönsku til að flækjast um stræti og garða Parísar
í lok ágúst með hópi íslenskra ferðamanna.
13.30 Hallgrímur Scheving Hallgríms-
son, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Grafarvogskirkju.
13.30 Ólafur Guðmundsson, Langa-
gerði 9, áður Holtsgötu 9, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá
Bústaðakirkju.
14.00 Vilhjálmur Þorsteinsson, fyrr-
verandi bóndi frá Kambshóli,
Skagabraut 33, Akranesi, verður
jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í
Saurbæ, Hvalfjarðarströnd.
15.00 Lára Inga Lárusdóttir, Bergstaða-
stræti 28, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Það vill þannig til að samkvæmt
sögum Arthur Conan Doyle um
Sherlock Holmes á félagi Sher-
locks, dr. Watson, afmæli í dag og
hefði fæðst árið 1852, sjö árum
fyrir fæðingu höfundarins. Á
þessum sama degi árið 1930 lést
Arthur Conan Doyle.
Doyle fæddist í Skotlandi árið
1859 og lærði læknisfræði við há-
skólann í Edinborg. Við nám í há-
skólanum, kynntist hann dr.
Joseph Bell og sagt er að gífurleg
ályktunarhæfni hans hafi verið
hvatinn að tilurð aðalsöguhetju
Doyles, Sherlock Holmes. Eftir
læknanámið flutti Doyle til
London, starfaði sem læknir og
skrifaði.
Fyrsta saga hans um Sherlock
Holmes, A Study in Scarlet, var
birt í árlegri jólaúgáfu Beetons
árið 1887. Á árinu 1891 birtust
sögur um rannsóknarmanninn
reglulega í tímaritinu The Strand.
Vinsældir sagnanna gerðu
Doyle kleift að hætta lækna-
störfum árið 1891 og snúa sér
alfarið að skrifum. ■
SHERLOCK HOLMES OG DR. WATSON
Hér eru það Roger Moore í hlutverki
Sherlock Holmes og Patrick MacNee sem
dr. Watson í vinsælli sjónvarpsútgáfu.
Skáldalæknir deyr
7. JÚLÍ 1852
DR. WATSON Á AFMÆLI
■ Arthur Conan Doyle deyr.
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir
BERGÞÓR MAGNÚSSON
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi,
þriðjudaginn 29. júní.
Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 9. júlí kl. 11.
Anna Kristín Runólfsdóttir, Brad Zeuge,
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
Gestir komi í dragi
„Það verður heldur betur gert eitt-
hvað á afmælisdaginn. Ég ætla að
blása til veislu því ég get ekki
stoppað,“ segir Helga Thorberg,
sem er 54 ára í dag. Ekki er langt
síðan Helga hélt heljarinnar garð-
veislu í tilefni þess að hún var að út-
skrifast sem garðyrkjufræðingur
og blómaverslunin hennar Blóm-
álfurinn átti afmæli. „Vinir mínir
eru farnir að biðja um tíu daga á
milli veislna. En eftir tvö ár í fjar-
námi hef ég allt í einu svo mikinn
tíma og er ekki alveg lent.“
Helga segir veisluna í dag
verða skrautlega, eins og hún vilji
hafa hana. „Ég vil litagleði, og
verð æ verri með árunum. Það er
svona þegar maður yngist alltaf,“
segir hún og hlær. „Ég er búin að
kaupa dragsjó, sem er bara fyndn-
asta skemmtun í bænum. Ég bara
fór á Jón forseta, talaði við strák-
ana og spurði þá hvort þeir væru
ekki tilbúnir að taka eitt sjó fyrir
mig og gesti mína. Ég er búin að
sjá þá tvisvar og gráta af hlátri.
Það verður alveg fullt sjó, fimm
eða sex dragdrottingar. Þeir
skarta örugglega sínu flottasta
landsliði þegar ég er annars veg-
ar, því ég er vön að fá það besta.
Síðan hvet ég alla gesti mína til að
fara í drag og tek til alla kjólana
mína fyrir þá sem koma ekki
þannig klæddir.“
Helga er blómasölustúlka í fullu
starfi þessa dagana, þar sem starfs-
maður hennar er í sumarfríi og
þegar spjallað var við hana sat hún
í sólinni í góðu veðri umkringd
marglitum brúðaraugum. „Stundum
er Helga leikkona að gægjast fram.
Hún er ekki týnd og stundum ræð
ég ekkert við hana.“
Nýjasta verkefnið hennar er að
verða fararstjóri fyrir hóp Íslend-
inga um stræti og garða Parísar-
borgar í ferð í lok ágúst. „Þannig að
nú er ég að æfa frönskuna mína og
níðist á frönskumælandi túristum
sem koma inn í búðina mína,“ segir
hún hæjandi og segir svo eitthvað á
frönsku sem blaðamaður skilur ekki
enda franskan ekki hans „fort“. ■
AFMÆLI
HELGA THORBERG
■ er 54 ára. Pantaði dragsjó í garðveisluna.