Tíminn - 11.11.1972, Síða 4
4
TÍMINN
Laugardagur 11. nóvember 1972
Þeir cru fimm félagar. Ilolberg
Másson og Ilalldór Axelsson, báft-
ir Vcstmannaeyingar, Kyjólfur
Jóhannsson frá Sauóárkróki og
Garftar Gislason og Þorsteinn
Þorgeirsson, Keykvikingar aó
uppruna.allir um tvitugt, nemend
ur innan svonefnds áfangakerfis i
mcnntaskólanum i Hamrahlíó.
Þctta eru sem sagt mennirnir,
sem hafa tciknaft og búift til fyrsta
islen/.ka loftfarió. Ahöl'n loftfars-
ins munu skipa þcir þrir, sem
fyrst voru nefndir, Garftar cr
gjaldkeri fyrirtækisins og Þor-
steinn áhugamaftur, sem lagt hef-
ur hinum lift vift undirbúninginn.
Eins og þeir vita, er litið hafa á
forsiðu Timans i dag, er það ætltin
þeirra að fara á loft i loftfari sinu
i næstu viku, ef verður nokkur
kostur, og við getum ekki sagt,
hvert ferðinni er heitið, þvi að þar
ráða vindar og loftstraumar
mestu.
Upprifjun frá
fyrri dögum
bessi fyrirætlun piltanna Ur
Hamrahliðarskólanum leiðir
hugann aftur i timann, þegar
einnig uppi voru á tslandi menn,
sem létu sig dreyma um að fljúga
— löngu fyrir daga allra flugvéla
— áður en Ottó Lilienthal skrifaði
hið fræga rit sitt, Der Vogelflug
als Grundlage der F'liegekunst,
eða Wright-bræður voru komnir
til sögunnar. Manni dettur i hug
pilturinn, sem ætlaði að fljúga yf-
ir Hvitá af Skálholtshamri, og
Hrútfirðingurinn Gunnlaugur
Magnússon, faðir Björns Gunn-
laugssonar stjörnufræðings, sem
fjöldi sagna hermir, að hafi, með-
al margs annars nýstárlegs, er
hann fékkst við, smiðað sér ein-
hvers konar svifflugu, sem fullyrt
er, að honum hafi tekizt að lyfta
sér á frá jörðu, en að lokum lask-
að eða brotið i fjallshlið við eina
slika tilraun. Það hafa sem sagt
fyrr verið til hugvitssamir
menn með ævintýraþrá i blóð-
inu — menn, sem leitað hafa sér
hugðarefna, sem voru af öðrum
toga en þau, sem þorri fólks að-
hyllist, og jafnvel ekki hikað við
að stofna sér i hættu til þess að
prófa, hvað takast mætti. Rétt
eins og þeir félagar i
Hamrahliðarskólanum nú gera.
Löng saga og einn
tilraunabelgur.
Hugmynd þeirra menntaskóla-
piltanna er ekki bóla, sem þotið
hefur upp i skyndi. Hún á sér
langan aðdraganda, og fleira
hafa þeir félagar brallaö en þetta,
þvi að einn þeirra Holberg Más-
son, er sá hinn sami og teiknaði
eldflaugina, sem nemendur úr
Hamrahliðarskóla ætluðu að
skjóta á loft i fyrra — en tókst
raunar ekki.
— betta á sér alllanga sögu,
sagði Holberg, þegar þeir félagar
höfðu samið við Timann um
einkarétt blaðsins til frásagna af
þessari fyrirætlun. Það eru tvö ár
liðin siðan við byrjuðum tveir,
Eyjólfur og ég, hvor i sinu lagi, að
glima við þetta viðfangsefni.
Þannig grúskuðum við lengi,
hvor i sinu horni, lásum og teikn-
uðum og veitum vöngum, áður en
við slógum okkur saman. Siðan
myndaðist um þetta þessi hópur,
sem nú stendur á bak við áform
okkar. Við bjuggum fyrst til litinn
loftbelg, sem við fengum leyfi til
þess að sleppa á loft upp i til-
raunaskyni. Það gerðum við upp
á Sandskeiði núna fyrir þrem vik-
um, og hann fór auðvitað sina leið
eitthvað út i bláinn.
Tilkostnaöurinn reyttur
saman af sumarkaupinu
Þeir voru þrir, sem komu á
fund Timans — Holberg, Halldór
og Garðar — allir logandi af
áhuga og með glampa i ungum
augum. Þó að gjaldkerans, Garð-
ars biði ekki nein háskaför eins og
hinna tveggja, þá hefur hann
einnig haft við sitt að glima. Þeir
félagar eru ekki fjáðir menn,
frekar en gengur og gerist um
venjulega menntaskólanema, og
enginn þeirra haföi neina upp-
gripaatvinnu i sumar: Einn
fékkst við verzlunarstörf, annar
vann i vörugeymslu og þar fram
eftir götunum. En af sumarkaupi
sinu hafa þeir reytt það, sem
þurft hefur til að kosta, og þaö
mun þegar komið á annað hundr-
að þúsund króna.
— En við ætlum að fá eitthvað
upp i kostnaðinn með þvi að láta
fyrirtækjum i té auglýsingar, sem
málaðar verða á belginn og körf-
una, sagði hann. Og svo verðum
við að öngla saman i aukinn til-
kostnað, þvi að við ætlum að feta
okkur áfram, ef skaplega tekst til
i þetta sinn.
Raunvísindastofnunin
mjög hjálpleg
— Það hefur auðvitað farið
óskaplegur timi i þetta allt, sögðu
þeir Halldór og Holberg, og það
reynum við ekki að meta til fjár.
Það hafa flestir einhver áhuga-
mál, sem þeir sinna, og þau eru
menn ekki að verðleggja. Aðrir
fara i kvikmyndahús eöa sam-
komuhús, eða sinna einhverju af
öðru tagi en þessu sem hefur tekið
okkur hugfangna, svo að það get-
ur verið kaup kaups.
Aftur á móti, er þvi ekki að
leyna, að opinberar skrifstofur,
sem við höfum orðið að snúa okk-
ur til þeirra erinda að fá þar ým-
iss konar leyfi, hafa verið dálitið
seinar til afgreiðslu. Það hefur
verið óskaplega vafningasamt og
timafrekt að sannfæra embættis-
mennina, og eftir þeim tima sjá-
um við, auk þess sem það er
bagalegt, að við erum nú orðnir
viku á eftir áætlun, en fram
undan eru próf, sem við megum
ekki vanrækja.
En svo eru lika til stofnanir,
sem hafa verið okkur hin mesta
hjálparhella, og þar viljum við
einkum nefna raunvisindastofnun
háskólans. Fólkið þar hefur verið
boðið og búið til þess að greiða
fyrir okkur, útvegað okkur gagn-
legar bækur, miðlað okkur þekk-
ingu sinni, þar sem okkur brast,
og lagt á ráð með okkur um
öryggisbúnað. Raunvisindastofn-
unin hefur verið okkur ágætur
fræðilegur bakhjarl.
Notast viö vetni
vegna féleysis.
Loftbelgurinn er ekki nein
smásmiði, 1500 rúmmetrar. Hann
önnur mynd úr Tónabæ: Pakkar meft limbönd, sem samtals eru einn kilómetri aft lengd. Minna dug-
ar ekki.
■
j i'tJO )»,
I
fyllir salinn i Tónabæ, þar sem
þeir félagar hafa haft bækistöð
sina, að undanförnu.
— 1 belginn fengum við dúk úr
sérstakri tegund plastefnis, og
þessi dúkur er aðeins 15/100 úr
millimetra á þykkt. Við höfum
sniðið hann sjálfir og sett hann
saman með efnafræðilegum að-
ferðum. Samskeytin eru styrkt á
eftir með sérstakri gerð limbanda
og limböndin, sem við notum, eru
einn kilómetri á lengd. Körfuna,
sem mennirnir verða i, teiknuð-
um við sjálfir eins og belginn, en
hún er úr áli, sem er tiltölulega
létt, og soðið saman.
t loftbelginn verðum við að nota
vetni, blandað köfnunarefni, og
helium, héldu þeir félagar áfram.
Það er þó ekki heppilegt að nota
vetni, þvi að komist það i sam-
Þetta er loftfarið. t þvi eru um hundrað stykki, og það er tæpir þrjátiu
metrar frá körfubotni upp á topp, meft öðrum orftum: Jafnhátt Landa-
kotskirkju.
2- rv\ (co. .)
I.IO
l,Zc
Sagan um loftfar
menntaskólanem-
anna íHamrahlíð og
fyrirætlanir þeirra