Tíminn - 02.02.1973, Síða 7
Föstudagur 2. febrúar 1973
TÍMINN
7
VIÐ GETUM TREYST
A SAMNORRÆNA HJALP
A Alþingi s.l. þriðjudag var les-
ið upp simskeyti frá fjórum nor-
rænum þingmönnum er sitja á
ráðstefnu i Helsingfors, þar sem
þeir segjast munu vinna að þvi á
þjóðþingum sinum og við rikis-
stjórnir sinar, að veitt verði nor-
ræn aðstoð til íslands vegna áfall-
anna i Vestmannaeyjum. Þetta
var að sjálfsögðu þakkað af okkar
hálfu, svo sem rétt og skylt var.
I tilefni þessa þykir mér rétt að
láta koma fram, að fleiri norræn-
ir þingmenn hafa unnið að sama
marki og voru fyrr á ferðinni.
Þetta eru þeir þingmenn, er skipa
forsætisnefnd Norðurlandaráðs,
sem eru miklir áhrifamenn i
stjórnmálum landa sinna. I stuttu
máli er sú saga þannig: Mánu-
daginn 22. janúar var haldinn
fundur i forsætisnefndinni i Kaup-
mannahöfn. Morguninn eftir
heyrði ég i danska útvarpinu frá-
sögn af gosinu i Vestmannaeyj-
um. Nokkru siðar hitti ég Emil
Vindsetmó, skrifstofustjóra i for-
sætisnefndinni, og skýrði honum
frá atburðunum i Vestmannaeyj-
um. Daginn eftir heimkomuna
barst mér skeyti frá Jóhannesi
Antonssyni, sænska fulltrúanum i
forsætisnefndinni, þar sem hann
lýsir hryggð sinni yfir atburðun-
um i Vestmannaeyjum og skýrir
frá þvi, að hann hafi i umboði
flokks sins, Miðflokksins, hvatt
sænsku rikisstjórnina til þess að
aðstoða íslendinga i þessum
mikla vanda. Hann sagðist enn-
fremur hafa sent samnefndar-
mönnum sinum i forsætisnefnd-
inni i Danmörku, Noregi, og
Finnlandi tilmæli um, að þeir
ynnu að þvi við rikisstjórnir sin-
ar, að þær veittu aðstoð til Islands
vegna þessa mikla áfalls. Ég
skýrði forsætisráðherra, Ólafi Jó-
hannessyni, þegar frá þessu og
aðrir ráðherrar, svo og ráðs-
meðlimir i íslandsdeild Norður-
landaráðs, fengu ljósrit af skeyti
þessu. Fimmtudaginn siðasta
hringdi ég svo i Jóhannes Antons-
son, bæði til þess að þakka frum-
kvæði hans og grennslast fyrir
um undirtektir. Kvað hann undir-
tektir hafa verið góðar og hefðu
þeir, Olof Palme og hann, einmitt
verið að ræða i hvaða formi að-
stoðin væri heppilegust og talaði
þá m.a. um tilbúin hús. Hann
hafði lika fréttir af góðum undir-
tektum i Noregi, Danmörku og
Finnlandi.
Ég tel rétt að þetta komi fram,
nú þegar öruggt má telja, að
samnorræn aðstoð berist hingað.
Þeir ágætu menn, er forsætis-
nefndin skipa eru: Jóhannes
Antonsson, varaform. sænska
Miðflokksins, Ib. Stétter, forystu-
maður i danska lhaldsflokknum,
V.J. Sukselainen, fyrrv. forsætis-
ráðherra og þingmaður finnska
Miðflokksins og Helge Seip for-
maður nýja Vinstriflokksins i
Noregi.
Alþingi 31. janúar 1973.
Jón Skaftason
Menntamálaráðuneytið,
30. janúar 1973.
Styrkir til námsdvalar á Ítalíu
ítölsk stjórnvöld bjóða fram nokkra
styrki handa Islendingum til námsdval-
ar á ítaliu á háskólaárinu 1973-74.
Styrkirnir eru öðru fremur ætlaðir til náms í italskri
tungu, en itölskunámskeið fyrir útlendinga eru árlega
haldin við ýmsa háskóla á Italiu. Kemur mismunandi
löng námsdvöl til greina til styrkveitingar, en nota
þarf styrkina á timabilinu 1. nóvember 1973 — 31. októ-
ber 1974. Styrkfjárhæðin nemur 110 þúsund lirum á
mánuði.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 25.
febrúar n.k. 1 umsókn skal m.a. greina fyrirhugaða
námsstofnun og áætlaða lengd námsdvalar. —
Umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
VÉLADEILD
SAAABANDSINS
LOKAR
á laugardögum
Hér með tilkynnist heiðruðum
viðskiptavinum vorum, að verzlanir
vorar að ÁRMULA 3 verða
lokaðar á LAUGARDÖGUAA
frá og með 1. febrúar
Einnig verður Vuxhall/Bedford
varahlutaverzlunin
að BÍLDHÖFÐA 8
lokuð á laugardögum.
$ Samband íslenzkra samvinnufélaga VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavik simi 38900
Nú er
Áður flaug bugurinn og farfuglarnir. Nú fljúgum við.
Suður — í sól og hvjld. Þangað sem hugurinn leitar í
skammdeglnurf leiri og fleiri átta stg-'áTh've einstök
tækifæri bjóðast nú til að njóta sumarblíðúrhressifigar
og skemmtunar meðan veturmn ríkir hér í norðri.
Éftir sex tíma þotuflug í hásuðúr erum við komin til
Kanaríeyja úti fyrir Afríkuströndum. —,.
Vi3 höfum þrjá íslenzká fararstjóra á Gran CanaTía
og sex mismunandt avararstaði tíhað velja um í 15
eða 22 daga.- Flogið-eMvisvar í mánuði tif loka aprll
mánaðár, verð frá 21.000 krónunvL
VETRI
FARBANTANIR HJÁ SKRIFSTOFUM~FLUGFÉLAGSINS
OG UMBOÐSMÖNNUM,