Tíminn - 02.02.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 02.02.1973, Blaðsíða 8
TÍMINN Föstudagur 2. febrúar 1973 ALÞINGI Ums jón: Elias Snæland Jónsson Deilt um innheimtu veg- gjalds á hraðbrautunum Þingsályktunartillaga þar um frá sjö þingmönnum til umræðu í gær Fyrsta umræða um tillögu Vilhjálms Hjálmars- sonar (F) og sex annarra þingmanna úr stjórnar- flokkunum um innheimtu veggjalds af hrað- brautum hófst i sameinuðu alþingi i gær, og voru skoðanir um réttmæti þess að taka veggjald upp að nýju mjög skiptar, en sem kunnugt er var veg- gjaldið fellt niður á siðasta alþingi, og tók sú niður- felling gildi um siðastliðin áramót. Vilhjálmur Hjálmarsson rakti efni tillög- unnar, sem hann flytur á- samt Karvel Pálmasyni (SFV), Helga F. Seljan (AB) Steingrimi Her- mannssyni (F), Ragnari Arn- alds (AB), Benóný Arnórssyni (SFV) og Stefáni Valgeirssyni (F). 1 tillögunni segir, að Alþingi álykti ,,að fela samgöngumála- ráðherra að innheimta, i sam- ræmi við 95. grein vegalaga nr. 23/1970, sérstakt umferðargjald af bifreiðum, sem fara um Reykjanesbraut og Suöurlands- veg svo og aðrar þær hrað- brautir, sem lagðar verða með varanlegu slitlagi, þegar þær teljast gjaldbærar.” Vilhjálmur sagði, að tvær meginástæður væru fyrir þvi, að þessi tillaga væri flutt. Annars vegar væri ótviræð og óumdeilan- leg fjárþörf Vegasjóðs, en hins vegar, að flutningsmenn teldu innheimtu veggjalds eðlilegan gjaldstofn Vegasjóðs. Um fjárþörfina þyrfti ekki að fara mörgum orðum. Samkvæmt vegaáætlun ætti áfram að vinna að lagningu hraðbrauta, að fram- kvæmd Austurlandsáætlunar og Norðurlandsáætlunar, og að hringvegi um landið. Nauðsyn- legt væri að tengja hinar ýmsu byggðir nánar saman með bættum samgöngum, og eins þyrfti mjög að bæta sveitavegi. F'járþörfin væri þvi óumdeilan- leg, og nýta yrði flesta tiltæka tekjustofna. Vilhjálmur benti á, að hér væri ekki um nýjan tekjustofn að ræða. Heimild væri i vegalögum allt frá þvi i desember 1963, og veggjald hefði verið innheimt á einum vegi i nokkur ár. Einnig væri viða er- lendis tiðkað að innheimta slik gjöld. Vilhjálmur taldi, að innheimtu Sjómenn í Alaska vilja hagnýta sína fiskistofna sjálfir „Við hrópum þrefalt húrra fyrir William A. Egan, rikis- stjóra Alaska, en hann hefur hótað að láta fiskimenn frá Alaska veiða upp allan lax- stofninn i Bristolflóa og öðrum veiðisvæðum við Alaska i mót- mælaskyni við ótakmarkaðar veiðar Japana á þessum slóðum. Alþjóðleg nefnd, sem fjallar um fiskveiðar á Norður-Kyrrahafi, tekur engar skýlausar ákvarðanir um vernd Kyrrahafslaxins, og á sama tima og fiskimenn i Alaska og örðum rikjum á vesturströnd Norður-Ameriku reyna að koma i veg fyrir rán- yrkju, veiða Japanir ótak- markað af laxastofninum og eru á góðri leið með að gjör- eyða honum, en enginn hefst neitt að til verndar stofninum.” Þetta segir i leiðara The Fischermens News, sem gefið er út af samtökum sjómanna og utgerðarmanna á vestur- strönd Norður-Ameriku. Hótun rikisstjórans er al- gjört reyðarúrræði, en hvað á að gera, segir i greininni. Allt siðan 1966, þegar Alþjóða Norður-Kyrrahafsfiskveiði- nefndin opnaði Beringshaf fyrir japönskum fiskiskipum, og setti ákveðin skilyrði um takmörkun veiðanna til verndar fiskistofnunum, hefur ekkert verið gert til að stemma stigu við rányrkjunni og takmarka veiðar japanska laxveiðiflotans. Alríkisyfirvöld hafa i engu sinnt kvörtunum sjómanna i Alaska, og verða þeir að horfa upp á Japanina moka upp laxinum i Bristolflóa i ótak- mörkuðum mæli og stofninn minnkar ár frá ári. Verði ekki gripið i taumana án tafar, er ekki annað að sjá en fótunum verði kippt undan allri lax- veiði i Alaska og við strendurnar, sem eru mikil- vægur þáttur i efnahagsaf- komu rikisins. Mikils biturleika gætir i greininni um afstöðu stjórn- valda til Japana. Erbentá, að Bandarikin séu stærsti og mikilvægasti markaður fyrir japanskar vörur, og innlend fyrirtæki fari á mörgum sviðum halloka i sam- keppninni við hin japönsku. En þá taki fyrst i hnúkana þegar Japanir sæki verð- mætan lax upp undir strendur amerisks lands og eyðileggi lifsafkomu mikilvægs at- vinnuvegar i Alaska og fleiri rikjum og selji siðan fullunnar afurðirnar til Bandarikjanna. Sjómenn i Alaska segjast vera orðnir leiðir á sifelldum visindalegum umræðum um verndun fiskistofna á Norður- Kyrrahafi og allskyns sam- þykktum, sem gerðar eru þar að lútandi, en Japanir einir þjóða hafi þær að engu og haldi áfram rányrkjunni eins og ekkert hafi i skorizt og hið eina, sem þeir hafi nokkru sinni til málanna að leggja, er aö taka kurteislega og bros- andi þátt i samdrykkjum fisk- veiðinefndarinnar og hafa siðan allar samþykktir hennar að engu. Hið eina, sem getur orðið til bjargar, er að Alaskabúar taki sjálfir upp forystu i sinum fiskiveiðimálum og er það vel ^ að rikisstjórinn skuli ganga fram fyrir skjöldu. 0.0 veggjalds á hraðbrautum, eins og Reykjanesbraut og Suðurlands- vegi, væri alls ekki verið að mis- muna landsmönnum. Aðeins væri um að ræða, að bifreiðaeigendur legðu til vegasjóðs brot af þeim fjárhagslega ávinningi, sem þeir hafa af þvi að aka hraðbrautir, en ekki malarvegi. Aðstöðumunur þeirra bifreiðaeigenda, sem aka hraðbrautir, og hinna, sem aka marlarvegina, væri gifurlegur og veggjald þvi einungis litill hluti af þeim sparnaði, sem hrað- brautirnar hafa i för með sér fyrir bifreiðaeigendur. Vilhjálmur benti á, að miðað við það veggj. sem ákveðið var 1965, væru tekjur af þvi áætlaðar um 30 milljónir á ári. Eðlilegt væri, að þetta gjald yrði nokkuð hærra nú, og væri þvi vissulega um að ræða fjárhæðir, sem máli skiptu fyrir Vegasjóðinn. Vissu- lega væru vissir agnúar á fram- kvæmd innheimtunnar á sumum brautum, en ekki það alvarlegir, að þeir ættu að hindra þessa tekjuöflun. Ingólfur Jónsson (S) mælti gegn til- lögunni, og kvaðst vona að hún kæmi ekki aftur til um- ræðu, eftir að henni yrði visað til nefndar. Hann taldi, að rök flutnings- manns væru ekki haldgóð, ef þau væru skoðuð i réttu sljósi. Taldi hann, að með sliku veggjaldi væri fyrst og fremst verið að skatt- leggja þá, sem búa utan Stór- Reykjavikursvæðisins. Þetta væri t.d. beinn skattur á bændur á Suðurlandi, sem þyrftu að flytja mjólk og aðrar vörur til höfuð- borgarinnar og reyndar fyrir menn úr öðrum landshlutum, eftir að veggjald væri komið á Vesturlandsveginn. Hann taldi að þessi skattur væri alls ekki nauðsynlegur vegna Vegasjóðs og auk þess óréttlátur, þvi hann kæmi helzt niður á þeim, sem mest nota vondu vegina út um landið. Jón Skaftason (F) fagnaði þvi i upphafi, að Ingolfur Jóns- son væri nú kominn i hóp þe i r r a , s e m væri andvigur veggjaldi. Ekki hefði hann þó tekið undir rök þeirra þingmanna, sem gegn þessu gjaldi börðust er Ingólfur var i sæti samgönguráðherra, en batnandi mönnum væri bezt að lifa. Jón minnti á það, að þeir sem stæðu undir kostnaði við vega- framkvæmdir, væru bifreiða- eigendur i landinu, — þeir sem kaupa og reka bifreiðar. Siðan rakti hann ýmsa út- reikninga, sem Félag isl. bifreiðaeigenda hefði látið gera, en þar kom m.a. fram eftirfar- andi. Bifreiðaeign landsmanna i árs- byrjun 1972 var samtals 52.489 bifreiðar. Þar af voru i Reykja- vik, Reykjaneskjördæmi, Arnes- og Rangárvallasýslum 35.285 bifreiðar, eða 67,2% af bifreiða- eign landsmanna. Þetta sýndi að Jóns Pálmasonar við upphaf þings i upphafi fundar i Sameinuðu Aiþingi i gær minntist Eysteinn Jónsson, forseti sameinaös þings, Jóns Pálmasonar, fyrrverandi al- þingismanns, en hann andaðist i gærmorgun. Við þetta tækifæri sagði Ey- steinn: Jón Pálmason fyrrverandi al- þingismaður og alþingisforseti andaðist i morgun i héraðshælinu á Blönduósi, 84 ára að aldri. Hann var fæddur 28. nóv. 1888 á Ytri- Löngumýri i Svinavatnshreppi i Austur-Húnavatnssýslu. Foreldr- ar hans voru Pálmi bóndi þar Jónsson alþingismanns og bónda i Stóradal Pálmasonar og kona hans, Ingibjörg Eggertsdóttir bónda á Skefilsstöðum á Skaga Þorvaldssonar. Hann lauk prófi i bændaskólanum á Hólum vorið 1909. Bóndi á Ytri-Löngumýri var hann 1913-1915 og 1917-1923 á Mörk á Bólstaðarhliðarhreppi 1915-1917 og á Akri i Torfalækjar- hreppi 1923-1963. Hann var kjör- inn alþingismaður Austur-Hún- vetninga árið 1933 og átti siðan sæti á Alþingi samfleytt til vors 1959. Eftir það átti hann nokkrum sinnum sæti á Alþingi sem varaþingmaður á árunum 1960- 1963, sat á 36 þingum alls. Hann var forseti sameinaðs Alþingis 1945-1949 og aftur 1950-1953. Landbúnaðarráðherra var hann frá 6. desember 1949 til 14. marz 1950. Yfirskoðunarmaður rikis- reikninga var hann 1937-1964. 1 nýbýlastjórn átti hann sæti 1940 1970 og var lengi formaður henn- ar. Hann var i bankaráði Lands- Jón Pálmason. banka Islands 1953-1956 og i bankaráði Búnaðarbanka Islands 1956-1968 og var formaður þess frá 1961. Auk þeirra starfa, sem hér hafa verið talin, gegndi Jón Pálmason ýmsum trúnaðarstörf- um heima i héraði. Siðustu æviár- mikill meirihluti bifreiðaeigenda væri búsettur i nánd viö Reykja- nesbraut og Suðurlandsveg. Lengd þjóðvega árið 1971 var samtals 8.284 kffómetrar, en þar af voru hraðbrautir aðeins 206 kílómetrar og falla Reykjanes- braut og Suðurlandsvegur þar undir. Rannsóknir i Bretlandi, sýndu, aö rekstrarkostnaöur bif- reiða, sem aka á malbikuðum vegi, er um helmingi minni en hinna, sem aka á malarvegum. Það væri þvi augljóslega af þvi mikill þjóðhagslegur sparnaður, að gera sem flesta vegi i landinu sem bezt úr garði — það myndi spara þjóðarbúinu hundruð milljóna á ári. Jón benti á, að á árunum 1961-1973 hefði innan viö helmingur af þeim heildar- sköttum, sem bifreiðaeigendur heföu orðið að greiða vegna kaupa og reksturs bifreiða, farið til vegamálanna öll árin nema tvö — þ.e. 1968 og 1969, þegar rúmur helmingur fór i vegagerð. Jón sagði, að þegar tekið væri tillit til þessara þriggja meginat- riða, — að bifreiðaeigendur sjálfir standa undir kostnaði við vegagerðina, að 67,2% bifreiða- eigenda búa á því svæði, þar sem hraðbrautaruppbyggingin hefur verið undanfarið, og að yfirleitt hefur tæpur helmingur innheimtra skatta af umferðinni farið til vegamála, hlytu allir, sem lita vildu af sanngirni á þetta mál að sjá að bifreiðaeigendur á þessu svæði hefðu þegar greitt sinn hluta og fyllilega það af vegagerðarkostnaði i landinu. Þess bæri einnig að geta, að ekki væri hægt að leggja slikt veggjald á alla sambærilega vegi i landinu, vegna þess, að þegar væru til þeir vegaspottar, sem jafn vel væru úr garði gerðir og umræddar hraðbrautir, en þar sem umferð væri svo litil, að inn- heimta veggjalds væri ekki talin svara kostnaði. Með veggjaldi á sumum vegum, en ekki á öðrum sambærilegum, þ.e. að þeir, sem búa við sambærilegar aðstæður, beri sömu gjöld. Jón lagði að lokum áherzlu á, að engin sérstök rök væru fyrir þvi, að taka veggjaldið upp að nýju, og væri þvi réttast, að þessari tillögu yrði visað frá. Umræðunni var siðan frestað, og voru nokkrir á mælendaskrá. minnzt í gær in naut hann rólegrar elli ýmist hér i Reykjavik eða noröur á Akri, en átti við mikla vanheilsu að striða siðustu mánuðina. Jón Pálmason ólst upp við landbúnaðarstörf á heimili for- eldra sinna og var siðan bóndi lengst af. Hann var ötull ræktunarmaður lands og bústofns og framkvæmdamaður um bygg- ingar á jörð þeirri, sem hann sat lengst af. En hann var jafnframt áhugasamur um héraðsmál og landsmál, og á fimmtugsaldri var hann kjörinn til setu á Alþingi og átti lengi að fagna öruggu fylgi kjósenda. Hann var athafnasam- ur við þingstörf, lét sig mest skipta landbúnaðar-, samgöngu- og fjármál og átti frumkvæöi að ýmsum nýmælum i löggjöf um þau efni. Jón Pálmason var áhugamikill og sókndjarfur i baráttu fyrir framgangi áhugamála sinna. Hann ritaði fjölda blaðagreina um landsmál og var ritstjóri Isa- foldar og Varðar á árunum 1943- 1950. Hann var mælskumaður og vel hagorður, gleðimaður i sam- kvæmum og höfðingi heim að sækja. Forsetastörfum á Alþingi gegndi hann með reisn og skörungsskap, og öll þingstörf vann hann af alúð. Við fráfall hans er á bak að sjá athafnasöm- um bónda og stjórnmálamanni, sem um langt skeið hafði mikil áhrif bæði heima i héraði og i söl- um Alþingis. Ég vil biðja háttvirta alþingis- menn að minnast Jóns Pálmason- ar með þvi að risa úr sætum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.