Tíminn - 02.02.1973, Qupperneq 15
Föstudagur 2. febrúar 1973
TÍMINN
15
svölunum. Fanney var ekki ein.
Þessi Rob Quillet gekk við hlið
hennar gegnum blómagöngin.
„Uss! Biddu!" hvislaði Hugh.
„Biddu!”. Peysan, pokinn og
trefillinn duttu úr hendi
Fanneyjar. Hún faðmaði Caddie
að sér og grét einnig.
„En..hvernig?” sagði Fanney.
Orðin komu slitrótt þvi að hún hló
og grét á vixl. „Hvernig?” Siðan
losaði hún aðra höndina og teygði
hana til Hughs, sem stóð enn i
sömu sporum hjá steinborðinu.
„Hugh Hugh?” Þegar Rob heyrði
hvað rödd Fanneyjar var
biðjandi, beygði hann sig snöggt
niður, tók upp fötin, sem hún
hafði misst og lagði þau á borðið,
gekk siðan að handriðinu og
kveikti sér i sigarettu. Það var
ekki hægt að sjá á öðru en þvi,
hvernig Rob dustaði sifellt
öskuna af sigarettunni, að þetta
kæmi honum á nokkurn hátt við.
„Elsku Hugh”. Hann horfði á
Fanneyju meðan hún gekk að
borðinu með handlegginn utan
um Caddie.
En áður en hún var komin til
Hughs, var eins og sprengju hefði
verið varpað bak við húsið. Hvell
hróp og köll kváðu við á bjagaðri
itölsku og fyrir hornið kom stór-
vaxin kona, með rósótta svuntu.
Hún var brjóstmikil og armdigur,
en augun litil og hvöss. t kjölfar
hennar fylgdi lagleg stúlka,
einnig stór, rjóð i kinnum og með
mikið hár, sem var svart og liðaö.
Hún var i svörtum kjól með
stutta, hvita svuntu og hélt á
pokunum og regnkápunum. Þær
hljóta að hafa fundið þetta á flöt-
inni, hugsaði Hugh með sér — og
pokadrusluna þina, hvislaði hann
að Caddie. Eldri konan lét dæluna
ganga: „Signore! Signore!
Schurten!. Schurten! Dei turisti.
Dei gitanti sono entrati. Þau
komust inn. Malgratto tuttu ljigli
avvisi! Svona margar til-
kynningar. Ecco quanto
Giacomino ha cura di voi.” Á eftir
þeim kom maðurinn, sem Caddie
og Hugh höfðu séð sofandi undir
oliutrénu. Hann var enn letilegur,
en var þó búinn að færa húfuna
aftur á hnakkann. Konan snéri
sér að honum. „Fanullone, buano
a nulla! Þú ert aldrei til neins
gagns!” Þegar hún sá Fanneyju,
sem hélt enn utan um Caddie og
Hugh hjá boröinu, þagnaði hún i
miðri skammaræðunni „Þetta er
Celestina og Giulietta og
Gigacomino, eiginmaöur
Celestinu”, og hún hvislaði:
„Réttið þeim höndina”, en
Caddie var ekki enn hætt að
gráta, og Hugh hneigði sig örlitið
„Mio figlo mia figlia”' sagði
Fanney, og Rob sem stóð hjá
handriðinu, sagðieitthvað i flýti á
itölsku. Þegar Celestina skildi,
hvernig i öllu lá, hrópaði hún upp
yfir sig af aðdáun. „Frá Eng-
landi! Englandi!" flún túlkaði
fyrir Giuliettu og manninn sinn.
„Frá Englandi”! En allt i einu
tók hún eftir. hvað börnin voru
rykug og þreytt. ,.Poveri
bambini! Veslings börnin!
Devono aver viaggiato tutta la
notte”.
Fanney sleppti Caddie og gekk
til Hugs Hún snéri honum að
Rob. „Rob þetta er Hugh”.
Hugh gretti sig, þegar hann
heyrði stoltið, sem leyndi sér ekki
i röddinni.
Rob var fullorðinn maður,
Hugh aðeins drengur. Rob rétti
honum höndina vingjarnlega, en
Hugh tók höndina ekki upp úr
vasanum. „Komdu sæll”, sagði
Hugh og Fanney þóttist vita, að
hnefarnir væru krepptir. Þó að
Hugh væri fölur af þreytu og
hugaræsingi, horfði hann á Rob
með allri þeirri ósvifni, sem i
honum bjó.
Hugh var fjórtán ára, en ekki
stór eftir aldri, en hann sýndist
hár, nema þegar hann stóð við
hliðina á fullorðnum karlmanni.
Það gerði höfuðburðurinn,
grannar mjaðmirnar, mittið og
axlirnar. „Hann er of herðamjór'
hafði Darrel sagt nýlega. ' „Það
er kominn timi til, að haiin^pFékn-
ist”. En það var eins og Hugh
vildi ekki þreknast. Vegna hár-
lubbans virtist hann höfuðstór.
Darrell hlýtur að hafa verið að
reyna að fá hann til að klippa sig,
og þess vegna hefur Hugh ekki
viljað það hugsaði Fanney.
Caddie hefði getað sagt henni, að
hún ætti kollgátuna.
..Che carnagione! Cosi chiara é
rosea” Og það var satt, að húðin á
Hugh var svo hvit og rjóð, að hún
minnti á eplablóm. „Það er
skammarlegt, að sonurinn skyldi
ekki fá freknurnar”, hafði Caddie
oft sagt. Augun i Hugh voru
dökkblárri en i Darrell og
Philippu, og i þeim fólst ekki bliða
eins og i augum Philippu. Phil-
ippa gat skrökvað, svo að allir
trúðu henni — nema hennar
nánustu. Hugh kom aldrei með
skreytni, nema þegar galsi hljóp i
hann eða óþekkt. Caddie sagði
aldrei ósatt. „Ég er ekki nógu
kæn til þess”, mundi hún hafa
sagt. Henni fannst það óþægi-
legur galli. Caddie vissi, að i
þessari togstreitu við Rob og
Fanneyju mátti hún sin litils, það
var Hugh, sem allt valt á. „Bello
proprio, bello il signorino,”
hvislaði Giulietta að Celestinu
„Fallegur.” Caddie var lág og
þybbin, þar sem hún stóð i sól-
skininu á þessari útlendu gras-
flöt, ensk i húð og hár. Hún er eins
og svolitill enskur bolakálfur,
hugsaði Rob með sér. Það var
aðeins hann, sem leit af Hugh á
hana, þangað til Fanney tók eftir
þvi, og fór lika að virða hana fyrir
sér. Hún horfði á krumpaðan
skólakjólinn, óhrein hnén,
sokkana, sem voru i hrukkum um
leggina, brúnu gönguskóna,
gráa af ryki, óstýrlátt háriö
skakkan stráhattinn og tár
stokkið andlitið. Ekki sér-
lega aðlaðandi fyrir
Rob, hugsaði Fanney kviðafull,
en þar skátlaðist henni. Rob
þekkti, hvað var raunveruleg
sorg, og þegar hann horfði á
Caddie, rann það upp fyrir honum
hvernig þetta ferðalag hafði
verið, og hvað hafði knúið börnin
áfram. Það var eins og Caddie
sæi hvorki hann, Giuliettu né
Celestinu, og i tilfinningum
hennar, sem brutust fram i gráti
fólst hvorki reiði né afbrýði,
einungis sorg. Og hann sá lika,
hvað Caddie liktist móður sinni.
Hún hafði brúnu augun hennar og
óstýrilátt hárið mundi fá sama
rauðgullna litinn og á Fanneyju,
og einmitt þannig hafði Fanney
oft grátið. Þetta fær ekki jafn-
mikið á drenginn ', hugsaði Rob.
„Hættu”, sagði Hugh við
Caddie án þess að hreyfa
varirnar. ..Geturðu ekki hætt?”
„Nei, ég get það ekki”, sagði
Caddie. —■ „Láttu hana hátta”,
sagði Hugh. „1 guðs bænum!
Þetta er bara af þvi, að við
vöktum i alla n(Rt”„Þið verðið að
hátta bæði”. Tár Fanneyjar voru
þornuð og hún var fjörleg. „Fyrst
i bað. Þið þurfið auðsjáanlega
heitt vatn. Hafið þið fengið
nokkuð að borða?”
„Við fengum svo — svolitið
smurt brauð og ka- kaffi, sem við
keyptum á Viktóriustöð i
morgun”, sagði Caddie með
ekka.
„Bara kaffi? Ekkert annað?”
„Við gá- gátum ekki keypt neitt á
ítaliu”, sagði Caddie.
„Við vorum með tiu þúsund lira
seðil”, sagði Hugh og beit i
sundur orðin. „Við gátum hvergi
fengið honum skipt. Loksins var
honum skipt í Desenzano, en þá
urðum við að biða eftir áætlunar-
bilnum til þess að missa ekki af
honum”. „Hvar i ósköpunum
fenguð þið þennan tiu þúsund lira
seðil?” „Hjá pabba” „Pa- pabba.
Það vissi ég ekki”, sagði Caddie.
„Þið hljótið að vera sársvöng”,
sagði Fanney „Rob viltu tala við
Celestinu. Heitt bað undireins.
Nei, ég hlusta ekki á meira, fyrr
en þið eruð búin að borða og sofa.
Hugh, augun i þér eru eldrauð”.
Rob hafði ekki séð Fanneyju i
þessum ham fyrr, svona ákveðna
og mynduga. „Rob, viltu segja
Giuliettu að fara upp með fötin
þeirra, og Celestina á að búa um
tvö rúm. Má Hugh sofa á legu-
bekknum i búningsherberginu
þinu? Eru lökin hrein”? spurði
Fanney og hrukkaði ennið.
„Siðan heit súpa handa
þeim ... .kannske eggjakaka
og....” „Fanney”, sagði Rob.
Það var eitthvað i röddinni,
sem stöðvaði Fanneyju. Hann
hafði ekki hreyft sig, heldur setið
á handriðinu og reykt.
„Fanney”.. — „Já, Rob?”
„Við vorum á leiðinni út til þess
að borða”, sagði hann rólega .
„Núna? þegar Caddie og
Hugh....” „Núna”, sagði Rob .
„Nettuno biður, Celestina getur
litið eftir þeim”. „Við getum séð
um okkur sjálf”, flýtti Hugh sér
að segja en Rob sagði eitthvað
við Celestinu á itölsku „Si”, sagði
Celestina„Si, si, senaltro”. Augu
hennar ljómuðu. Henni þótti
gaman, þegar eitthvað stóð til.
Rob fór i jakkann. „Hún sýnir
Lárétt
1) Dansar.- 5) Hulduveru.- 7)
Kusk,- 9) Hina og þessa,- 11)
Bera við.- 13) Svifs.- 14)
Kjána.-16) öslaði.-17) Ventu.-
19) Hraustur.-
Lóðrétt
1) Gröfturinn.- 2) Féll.- 3)
Vatnagróður,-4) Útþurrka.- 6)
Land,- 8) Keyrðu.- 10) Háu.-
12) Kona,- 15) Svar.- 18)
Keyri.-
Ráðning á gátu No. 1323.
T ár£tt
1) Perlon,- 5) Sór,- 7) AB,- 9)
Umla,- 11) Töf.- 13) Sel.- 14)
Illu,- 16) ID.- 17) Ómaði.- 19)
Piltur.-
Lóðrétt
1) Platir,- 2) RS,- 3) Lóu,- 4)
Orms,- 6) Kaldir.- 8) Böl - 10)
Leiðu,- 12) Flói,- 15) Uml.- 18)
At.-
O, þú gætir nú útveg^ Allsekki. |||
að eina „sandkerru . j Égerbúinn^
; að vera hér i eittj
J ár og geri það ekki
D
R
E
K
I
ilili
■
Föstudagur
2. febrúar
7.00 Morgunútvarp .Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl), 9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.15 Búnaðarþáttur.Pétur
Sigurðsson mjólkurfræðing-
ur talar um mjólkurmálin á
liðnu ári.
14.30 Siðdegissagan: „Jón
Gcrrcksson” eftir Jón
Björnsson^Sigriður Schiöth
les (14)
15.00 M iðdegistónleikar:
Sönglög Bernard Kruysen
syngur lög eftir Gabriel
Fauré. Evelyn Lear syngur
lög eftir Hugo Wolf.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
16.25 Popphornið
17.10 Þjóðlög frá ýmsum lönd-
um
17.40 Tóniistartími barnanna
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar.
19.00 Frcttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill
19.35 Þingsjá . Ingólfur
Kristjánsson sér um þátt-
inn.
20.00 Sinfóniskir tónleikar a.
Forleikur að „Benedicte et
Benedict” eftir Berlioz. Sin-
fóniuhljómsveitin i London
leikur; Douglas Gamley stj.
b. Pianókonsert i F-dúr
(K459) eftir Mozart.
Christoph Eschenbach og
Filharmóniusveitin i Ham-
borg leika; Wilhelm
Briickner-Riiggeberg stj. c.
Fiðlukonsert eftir William
Walton. Zino Francescatti
og hljómsveitin i Filadelfiu
flytja: Eugene Ormandy
stj. d. Sinfónia nr. 1 i C-dúr
op. 21 eftir Beethoven. Fil-
harmóniusveitin i Berlin
leikur: Herbert von Kara-
jan stj.
21.30 Ben Lindsay . Agústa
Björnsdóttir les siðari hluta
frásagnar eftir Magnús
Helgason skólastjóra úr
kvöldræðum hans í
Kennaraskólanum.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Útvarps-
sagan: „Haustferming”
cftir Stcfán JúiiussonStefán
Júliusson rithöfundur endar
lestur nýrrar sögu sinnar
(12)
22.45 Létt músik á siðkvöldia.
Frá þjóðlagahátið i Finn-
landi b. Leo Brouwer leikur
á gitar lög frá Kúbu. c.
Gisela May syngur lög viö
ljóð eftir Tucholsky.
23.35 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
lliB
II
Föstudagur
2. febrúar
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Karlar i krapinu
Bandariskur kúrekamynda-
flokkur i léttum tón.
Fjársjóöurinn. Þýðandi
Kristmann Eiðsson.
21.20 Sjónaukinn.Umræðu- og
fréttaskýringaþáttur um
innlend og erlend málefni.
22.05 Anne Murray I.Sænska
sjónvarpið hefur látið gera
tvo þætti, þar sem
kanadfska söngkonan Anne
Murray syngur létt lög af
ýmsu tagi og leikur sjálf
með á gitar. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið) Þýð-
andi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
22.25 Dagskrárlok