Tíminn - 02.02.1973, Blaðsíða 20
f—....."'
Föstudagur 2. febrúar 1973
-
Auglýsingasímar
Tímans eru
1-95-23 & 18-300
^GOÐI
L fyriryóöan muí
$ KJÖTIDNADARSTÖD SAHBANDSINS
Tíminn er 40 síður
aila laugardaga og
sunnudaga.—
Áskriftarsíminn er
1-23-23
Friðargæzlumennirnir
sendir af stað í
NTB-Saigon
Hershöföinginn, sem stjórna á
deild Þjóófrelsishreyfingarinnar
innan hinnar sameiginlegu
vopnahlésnefndar styrjaldaraöil-
anna I Vietnam, kom tii Saigon i
gær. TaliO er, að hér sé u~i að
ræða Tran Van Tra hers-
höfðingja, sem stjórnaði Tet-
sókninni árið 1968. 29 aðrir her-
menn úr Þjóðfrelsishreyfingunni
komu einnig til Saigon í gær með
bandariskum þyrlum frá bænum
Loc Ninh 110 km norðan Saigon.
Vopnahlésnefndin gaf siöar i
gær út tilkynningu um að ákveöiö
hefði verið að senda fyrstu eftir-
litsmennina frá Saigon út á land 1
dag. Þetta verða 24 menn úr
friöargæzlusveit Kanada, Ung-
verjalands, Póllands og Indó-
nesiu.
I fyrradag hafði dregið úr bar-
dögum skæruliða og hermanna
Suður-Vietnamstjórnar. 3.100
manns hafa falliö i bardögum I
Vietnam fyrstu fjóra dagana eftir
að vopnahléð gekk i gildi um
helgina.
Spiro Agnew varaforseti
Bandarikjanna fiaug frá Saigon I
gær áleiðis til Kambodiu og Thai-
lands til áframhalds viöræðna
sinna við þjóðaleiðtoga i Suðaust-
ur Asiu um hiutverk Bandarikj-
anna þar aö loknu Vietnamstriði.
Shianouk, fyrrum konungur i
Kambodiu, hefur gefiö skipun um
aö allar herdeildir i landinu, sem
eru honum hollar, skuli leggja
niður vopn. Skipun þessi er dag-
dag
sett 26. janúar, en var birt eftir að
tilkynnt haföi veriö um heimsókn
Kissingers til Hanoi 10.-13. febrú-
ar. Shianouk lýsti þvi yfir, að
samstarf milli hans og núverandi
stjórnar Lon Nols forsætisráö-
herra I Phnom Peng væri óhugs-
andi.
Shianouk hefur verið i útlegð i
Peking I tvö ár.
Nauðsynlegt að
PRODINTORG
KAUPIR FISKFLÖK
FRÁ EYJUAA
I Reykjavik standa yfir viö-
ræöur milli islenzku fyrirtækj-
anna, Sölumiöstöö hraðfrysti-
húsanna og Sambands isl.
samvinnufélaga annars vegar
og fulltrúa sovézku utanrikis-
verziunarsamtakanna
Prodintorg hins vegar um sölu
á frystum fiski og flökum til
Sovétrikjanna árið 1973. Hinn
26. janúar s.l., þegar Prodin-
torg frétti um náttúruham-
farirnar, sem þá áttu sér stað
á Heimaey, voru samþykkt
kaup á fiskflökum frá Vest-
mannaeyjum, og þar með lát-
in i ljós skilningur á þeim
erfiöleikum, sem komið hafa
uppá fslandi. Flökin, sem eru
um borö i Hofsjökli, verða
send beint til Sovétrikjanna og
verður ekki skipað upp á fs-
landi.
(Fréttfrá APN)
FIMAA AAETRAR
samræma
krabbameins
rannsóknir
NTB-Genf
Krabbamein er ásamt hjarta-
sjúkdómum og umferðarslysum
aigengasta dánarorsökin i iðn-
væddum löndum. Bandarisk
könnun sýnir, aö finnist ekki lyf
við krabbameini deyja 3.500.000
Bandarikjamenn úr þessum sjúk-
dómi á næstu tiu árum, en það
svarar til þess aö dánartala fs-
lendinga vegna krabba á þessum
sama tima verði 3.500 manns,
miöaö við að dánartiðni af völd-
um krabbameins hér sé svipuð og
i Bandarikjunum.
Aætlanagerö um alþjóölega
samvinnu I krabbameinsrann-
sóknum veröur meginverkefni
aðalfundar Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar, WHO, sem
hefst 7. mai n.k. Fulltrúi Sovét-
rikjanna i stjórn WHO hefur bent
á, að nauðsynlegt sé að samræma
starf hinna mörgu krabbameins-
rannsóknastööva I heiminum.
Ein þekktasta rannsóknastöðin
CICR, er i Lyon i Frakklandi. Hún
var stofnuð 1965 að frumkvæöi
Who og eiga 10 lönd aðild aö
henni.
NIÐUR Á ÞAK
HÚSS, SEAA BÚSLÓÐ GLEYAADIST í
ÞÓ-Vestmannaeyjum
Meö hverjum deginum sem lið-
ur heldur bjartsýnin áfram að
vaxa hjá mönnum hér i Eyjum,
enda er gosið i Kirkjufelli nú með
minnsta móti. Oskufall var litið
sem ekkert i gær, og sú aska, sem
upp kom, féll öll i austurátt, enda
áttin suðvestan 7-8 vindstig.
I gærmorgun var dimmt yfir
bænum og hætt við að sjónvarps-
áhorfendur hafi ekki getaö séð
greinilega stillimyndina i sjón-
varpinu. Jaröfræðingar sögðu i
gær, aö hraunstraumurinn væri
mjög litill, en hraunið rennur nú
til vesturs ofan á gamla hrauninu,
og hefur það silast áfram um einn
metra á klukkustund, sem þykir
mjög litið. Hrauntanginn sem
stefnir i norð-vestur fyrir mynni
hafnarinnar, hefur litið sem ekk-
ert lengst siðustu dagana, og
kannski fer það svo, að Vest-
mannaeyingar fái einhverja
beztu höfn iandsins þegar gosinu
linnir, þar sem þessi tangi lokar
fyrir suð-austan ölduna, en ein-
mitt suð-austan áttin er einhver
versta átt fyrir höfnina hér i Eyj-
um. Menn mega samt ekki vera
of bjartsýnir, þvi að jarðfræðing-
ar hafa talaö um að gosið geti
varaö 50-90 daga, og nú hefur gos-
ið aðeins i niu sólarhringa.
En hvað um það. Menn halda
áfram að bjarga sleitulaust bú-
slóð og öðrum munum, sem verð-
mæti eru i og flytjanlegir eru. Er
svo komið að allri búslóð hefur
verið bjargað og nú er mest
áherzla lögð á að hreinsa gjall af
húsþökum. Fleiri menn vantar til
þessara hluta, og helzt þyrfti að
byrja á þvi að flytja gjall frá hús-
um i burtu, þvi gjalliö nær viða
upp að þakröndum, og erfitt verð-
ur að bjarga úr húsum, sem
svona er ástatt fyrir, ef önnur
gjallhrina skellur yfir bæinn á
næstunni. Búið er að hreinsa gjall
af flestum frystihúsunum og i gær
voru menn með háþrýstidælur að
hreinsa þau óhreinindi, sem sat
eftir á þökunum.
Starfsmenn i Fiskimjölsverk-
smiðjunni vinna af fullum krafti
við að undirbúa loðnumóttöku, en
búizt er við að byrgja þurfi
Framhald á bls. 19
Ýtur að störfum I Eyjum. Timamynd Þ.ó.
„Þorska-
stríð”
á Spáni?
NTB-Madrid
„Þorskastrið” er nú yfir-
vofandi milli Marokkó og
Spánar, en rikisstjórn
Marokkó hefur ákveöið að
stækka fiskveiöilandhelgi
sina úr 12 i 70 sjómilur.
Spænskir sjómenn hafa beöiö
rikisstjórn lands sins að
skerast I leikinn og segja, að
lifsviðurværi þúsunda fiski-
manna á Suður Spáni og
Kanarieyjum sé ógnað með
þessari ráöstöfun.
Eldgos
íJapan
NTB-Tókió
Eina virka eldfjalliö i Japan,
Asama, gaus miklu hraun- og
öskugosi i gær. Þetta er mesta
gos i Asamafjallinu, sem orðið
hefur siðan 1961. Gluggar i hóteli i
grennd við fjalliö brotnuðu þegar
fjallið gaus, en engir slösuðust.
Asamafjall er nálægt Karuizawa
þekktum vetrariþróttastað.
Stöðugt
bætist í
söfnunina
Erl-Reykjavik
1 gær höfðu borizt 21.850
þúsund I Vestmannaeyja-
söfnun Rauða krossins, og
stöðugt bættist við.
Þá hefur verið tilkynnt um
húsnæði á 730 stöðum, og aö
sögn Jóhannesar Long hjá
Rauða krossinum voru það
einkum tiikynningar viðs
vegar utan af landi, sem
berast þessa dagana oft i
þykkum bunkum, frá þeim
könnunum, sem fram fara i
hverju byggðarlagi, og t.d.
senda sýsluskrifstofur viöa
frá sér mörg tilboð. Þá sagði
Jóhannes og að gera mætti
ráð fyrir að töluvert af til-
boðum væri i pósti á leiðinni
til þeirra.
40 ára af-
mæli Félags
íslenzkra
iðnrekenda
Félag islenzkra iðnrekenda
verður fjörutiu ára á mánudaginn
kemur, og mun það meðal annars
halda upp á afmæli sitt með þvi
að heiðra þá starfsmenn fyrir-
tækja innan félagsskaparins, er
starfað hafa að iðnaði þessa fjóra
áratugi.
Heiðursskjöl, sem elztu starfs-
mönnunum munu látin i té, verða
afhent i samsæti, er haldið verður
á sjálfan afmælisdaginn.