Tíminn - 27.03.1973, Qupperneq 1
WOTEL mimiR
„Hótel Loftlelðir býður gestum
slnum að velja á milli 217 herbergja
með 434 rúmun — en gestum
standa Itka ibúðlr tll boða.
Allur búnaður miðast við strangar
kröfur vandlátra.
LOFTLEIÐAGESTUM LIDUR VEL.
V— . s
Flugvélar með fimm
mönnum saknað
Ekkert hefur spurzt til „Vorsins", síðan um þrjú leytið í gær
Þegar flugvélin TF Vor, sem
var á leiðinni frá Akureyri til
Reykjavikur i gærdag, kom ekki
fram á tiisettum tfma var hafin
umfangsmikil leit að vélinni, en
veðurskilyrði voru slæm á leitar-
svæðinu og örðugt til leitar úr
iofti. Með flugvélinni voru fimm
menn, flugmennirnir Björn Páis-
son og Knútur óskarsson, Haukur
Claessen, settur flugmálastjóri,
Ólafur Júliusson, arkitekt og
Hallgrimur Magnússon, tré-
srniður flugmálastjórnarinnar.
Var vélin i leiguflugi fyrir flug-
málastjórnina, en flugvél hennar
var biluð i gærmorgun.
TF Vor er tveggja hreyfla vél af
gerðinni Beecchraft Twin-Bon-
anza, I eigu Flugþjónustunnar h.f.
og Slysavarnarfélags íslands.
Var flugvélin sérstaklega búin til
sjúkraflugs og i henni voru full-
komin blindflugstæki og tvær tal-
stöðvar. Flugvélin fór frá Akur-
Björn Pálsson flugmaður og Beechcraft-flugvélin Vorið, sem týndist f gær.
eyri kl. 14,06. Aætlaður komutlmi
til Reykjavikur var 15.37.
Klukkan 14.38 gaf flugvélin
siðast upp staðarákvörðun. Var
hún þá þvert suður af Löngumýri,
en þar er flugstefnuviti, en er nú
bilaður. Kl. 14.51 kallar flugum-
ferðarstjóri i vélina og spyr um
isingu, en er svarað neitandi. Rétt
áður tilkynnti Flugfélagsvél um
Isingu yfir Mýrum. Var hún i 12
þúsund feta hæð, en TF Vor var i
11 þúsund feta hæð.
Þegar siðast var talað við flug-
stjórnarmann á TF Vor var vélin
yfir öldunum sunnan Auðkúlu-
heiðar. Siðan hefur ekkert til
vélarinnar spurzt. Klukkan 15.40
kom flugumferðarstjórinn, sem
var á vakt og sá um innanlands-
flug, að máli við varðstjóra og til-
kynnti að TF Vor svaraði ekki,
þegar flugvélin var kölluð uppi.
Tóku þá varðstjóri og Arnór
Hjálmarsson, yfirflugumferöar-
stjóri við að hafa samband við
týndu vélina. öllum flugvélum i
lofti, nærri svæðinu var tilkynnt
um, aö flugvélarinnar væri sakn-
að og flugmennirnir beðnir aö
svipast um eftir henni, ef kostur
væri vegna veðurs og skyggnis,
sem var mjög slæmt.
Haldið var áfram að kalla
vélina uppi. Radarinn á Kefla-
vikurflugvelli var tekinn i notkun
HRAUNSTRAUMURINN
viö að leita vélina uppi og vélar
frá Varnarliðinu, sem voru aö
æfingarflugi, hófu leit með radar-
tækjum. Kl. 15.50 var haft sam-
band við allar landsimastöövar
og stöövarstjórarnir beðnir að
hafa samband við alla bæi, sem
eru nærri fluglinu TF Vors. Flug-
björgunarsveitin var kölluð út og
margar flugvélar frá Reykja-
vikurflugvelli hófu leit og eins
Tryggvi Helgason frá Akureyri.
Veður var enn slæmt til flugs og
leitar. Þoka og slydda var á svæð-
inu og 40 til 50 hnúta mótvindur
miðað við flugstefnu TF Vors.
Svolitið hægði og skyggni skán-
aöi upp úr kl. 17.00
Flugbjörgunarsveitin og
björgunarsveitir Slysavarnar-
félagsins hófu leit þegar i gær
meðan birtu naut við. Björgunar-
sveitin Ok i Reykholti fór þegar af
stað, eins björgunarsveitin á
Akranesi, sveitirnar á Blönduósi
og Sauðárkróki logðu upp slðdeg-
is. Margár aðrar björgunar- og
leitarsveitir biðu tilbúnar ef flug-
vélin skyldi finnast úr lofti.
I gærkvöldi voru tilbúnir 16
snjósleðar og bflar til að fara upp
á Arnarvatnsheiði og upp á öræf-
in, bæði sunnan og norðan aö.
Var öll áherzla lögö á að koma
tækjum og mannskap á vettvang,
þannig að hægt væri að leggja upp
til leitar þegar i birtingu.
I dag, þriðjudag er spáð batn-
andi veðri og bjartara. 1 birtingu i
morgun hófu margar flugvélar
leit úr lofti og ef TF Vor finnst
munu leitarflokkum á landi þegar
visað á staðinn.
OÓ.
STEFNIR I HOFNINA
K J-Reyk javík. Eftir
hádegið i gær, náði hraunið
i Vestmannaeyjum, að raf-
stöðinni, og skömmu síðar
stóð hún i Ijósum logum.
Fór þar með ein aðallif-
æðin í bænum, en áður var
rafstrengurinn úr landi
orðinn óvirkur. Þá fór
önnur vatnsleiðslan úr
landi í sundur á Skansinum
i gær, þegar hraunið náði
þangað. Símasambands-
laust var meira og minna í
allan gærdag við Vest-
mannaeyjar. Frá þvi í
fyrrakvöld hefur hraunið
stöðugt skriðið fram, og
fært tugi húsa í kaf, jafn-
framt þvisem þaðógnar nú
höfninni.
Hraunið fór aftur að hreyfast
fyrir alvöru um miðnætti aðfara-
nótt mánudagsins, en það hafði
þá litiö hreyfzt frá þvi snemma á
föstudagsmorguninn. Skreið
hraunjaðarinn fram i norð-
vestur, fór yfir Heimagötu á
kafla og var komið að rafstöðinni
eftir hádegið. Glóandi hraunið
kveikti i rafstöðinni og logaði i
henni fram eftir degi. Vararaf-
stöðvar eru a.m.k. tvær i Eyjum.
önnur er i Vinnslustöðinni, en hin
i gagnfræðaskólanum. Verður
Vinnslustöðvarstöðin tengd við
nokkra mikilvæga staði i bænum,
en gagnfræðaskólastööin mun
þjóna þeirri starfsemi, sem fram
fer i gagnfræðaskólanum. Þar
hafa almannavarnir nú aðsetur
Framhald á bls. 13
Hraunið ryðst þarna
fram við hornið hjá raf-
stöðinni, sem brann í
gær. Til hægri sér i
Helgafell.
(Timamynd Gunnar)