Tíminn - 27.03.1973, Qupperneq 17

Tíminn - 27.03.1973, Qupperneq 17
Þriðjudagur 27. marz. 1973 TÍMINN 17 Enska knattspyrnan: DRAUMUR ARSENAL UM TVÖFALDAN SIGUR ER ENN ÞÁ FYRIR HENDI Leikmenn Arsenal sættu sig ekki við jafntefli gegn AAanchester City. McLintock maðurinn d bak við sigur Arsenal. Sigurmarkið var skorað 8 mínútum fyrir leikslok. MCLINTOCK, fyrirliði Arsenal, hélt draumnum um „tvöfaldan sigur” (bæði að sigra deild og bikar) á lifi, þegar Arsenal heim- sótti Manchester City á Maine Koad. Hann sýndi frábæran leik og lék stórkostlega. City sótti mikið i fyrri hálfleik, cn skilyrðin til að leika knattspyrnu voru lé- leg, rok, rigning og völlurinn blautur. t fyrri hálfleik var dæmt óréttlátt viti á Arsenal, Summer- bee komst fram hjá McNab og MoLintock fyrirliði Arsenal sýndi frábæran leik gegn City. hljóp samhliða Peter Storey — þá lét hann sig detta og lék það eins og snilldar leikari. Dómarinn dæmdi vitaspyrnu. I>að þorði enginn leikmaður City að taka vitaspyrnuna og boltinn lá óhreyfður — en þá hleypur Doyle að knettinum og stillir honum á vitapunktinn og flýtir sér að spyrna — og knötturinn fór himinhátt yfir. Það var á 55. min. að mark mánaðarins kom. Rice spyrnti góðum bolta fram völlinn, þar sem Kennedy náði að skalla til George. Hann lét knöttinn hoppa einu sinni og spyrnti siðan þrumuskoti meö hægri fæti — og knötturinn söng i netinu. Jöfnunarmark City kom svo á 82. min. Það var Booth, sem skor- aði — og leikmenn City voru búnir að sætta sig við jafntefli. Aftur á móti sættu leikmenn Arsenal sig alls ekki við jafntefli. Nú sýndu þeir hversvegna þeir eru á toppinum i enskri knattspyrnu. Með grimmd og geysilegu bar- áttuskapi tókst þeim að skora á 85. min. Það var Kennedy sem skoraði. Þrir leikmenn voru bókaðir i leiknum, þeir Summer- bee hjá City og Rice og George hjá Arsenal, en þetta var i fjórða skiptið, sem þeir eru bókaðir á keppnistimabilinu. Þótt Brian Clough, fram- kvæmdastjóri Derby, hefði hótað leikmönnum sinúm öllu illu, ef þeir slökuðu á i deildarkeppninni, þá sýndu þeir aldrei þá knatt- spyrnu, sem er vitað að þeir geta leikið. Leikmenn Sheff. Utd. sýndu góðan leik, en enginn lék samt betur en Tony Currie. Hann var allstaðar á vellinum og landsliðsmiðvörðurinn hjá Derby McFarland stóð með sveittan skallann og vissi ekki hvernig hann ætti að stöðva Currie. Dearden (2) og Bone skoruðu mörk Sheff. Utd. en Davies skor- aði fyrir Derby. Shilton, markvörður Leicester, sannaði enn einu sinni að hann er bezti markvörður Bretlandseyja. Það gerði hann á laugardaginn i leik gegn Stoke. Hann varði frá- bærlega og leikmönnum Stoke, sem sóttu nær stanzlaust, tókst ekki að koma knettinum i netið hjá honum. Hurst, hinn kunni leikmaður Stoke, var niðurbrot- inn maður, þegar hann brenndi af vitaspyrnu. Það var ótrúlegt, hyernig Shilton varði hvað eftir annað. Varamaðurinn Tomlin skoraði fyrsta mark Leicester með skalla á 52. min, og svo skor- aði Birchenall annað markið 6 min. fyrir leikslok úr einu sókn Leicester i siðari hálfleik. Birmingham sýndi það á laugardaginn, að þeir leika að öll- um likindum I 1. deild á næsta keppnistimabili. Liðið fékk Coventry i heimsókn. Heima- menn áttu allan leikinn. — Coven- try-liöið, sem er ekki búið að ná sér eftir tapið gegn Úlfunumi bikarkeppninni, var aldrei liklegt tilað sigra Birmingham á heimavelli. t siöustu 52 leikjum Birminghajn á heimavelli I deild- unum hafa þeir ekki tapað nema þrem leikjum. Hatton lék vel og hann átti heiðurinn af öllum mörkunum. Hann skoraði fyrsta markið á 29. min. og siðan komu mörk frá þeim Latchford og Taylor. Bak- vörðurinn Martin var bókaður, fyrirað bregða Hutchison, hinum snjalla framlinuspilara Coventry, gróflega. Þá fékk fyrirliði Coven- try Roy Barry bókun, og verður hann að öllum likindum settur i leikbann. örvæntingafullir leikmenn Manchester United áunnu sér fleiri óvini á laugardaginn, heldur en nokkurn tima áður. Þeir léku varnarleik á White Hart Lane i Lundúnum, þegar þeir léku gegn Tottenham. Eftir að Graham skoraði sitt fyrsta mark fyrir United siðan hann var keyptur frá Arsenal, þá lögöust leikmenn United í vörn. En markið kom strax eftir sex minútur. 14 lands- liðsmenn léku i leiknum, sem var hneyksli fyrir enska knattspyrnu, sem cr nú greinilega i öldudal. Chivers kom i veg fyrir að United færi með bæði stigin, með þvi að jafna 1:1 sex min. fyrir leikslok. Leeds og Wolves léku frábær- lega i leik, sem fór fram á Elland Road. Þótt það vantaði fimm leikmenn hjá úlfunum, sýndu þeir stórgóða knattspyrnu, en i liðið vantaði þá Baiiey, Hegan, McCalliog, Jefferson og Hibbitt. Tveir leikmenn léku ekki með Leeds, þeir Clarke og Cherry. Ef liðin leika eins góða knattspyrnu og þau sýndu á laugardaginn, þurfa áhorfendur ekki að kviða leik þeirra i undanúrslitum bikar- ins. Vörnin hjá úlfunum var mjög róleg og Parkes markvörður lék vel fyrir aftan hana. Liverpool hafði mikiö fyrir þvi að sigra Norwich á heimavelli sinum Anfield Road. Norwich-lið- ið lék vel, en Suggett fór illa að ráði sinu I byrjun leiksins. — Hann komst einn inn fyrir vörn Liverpool og átti ekki annaö eftir en að renna knettinum i autt markið, — en hann skaut hátt yf- ir. Fyrsta markið kom á 52. min. Iiughes lék upp miðjuna og gaf á Lawler, sem skoraði. Á 55. min. fékk Keelan, markvörður Nor- wich, sem lék vel i fyrri hálfleik, annað mark á sig, sem liann gat komiö i veg fyrir. Langskot frá Hughes fór á milli fóta hans og i netið. Mellor, sem lék áður með Man. City, skoraði mark Norwich á 77. min. með þvi að leika á vörn Liverpool og siðan á Clcmence markvörð og rcnna knettinum I netið. Hall skoraði svo siðasta mark leiksins aðeins tvcim min. fyrir leikslok. Leikmenn Norwich gerðu mikla skyssu i leiknum, þeir fóru að leika varnarleik, þeg- ar staöan var 2:0. Það áttu þeir aldrei að gera, þvi að þeir höfðu leikið vel fram að þvi. Markið, sem Mellor gerði, var fyrsta mark Norwich á útivelli frá 16. desember s.l. Leikmenn West Ham börðust ofsalega, þegar þeir léku gegn Crystal Palace á Selhurst Park i Lundúnum. Það var greinilegt að þeir ætluðu sér ekki að tapa fyrir Palace og þar með yrði West Ham fyrsta Lundúnaliðið sem það gerði. Þótt leikmenn Palace hafi leikið vel, þá tókst þeim ekki að sigra West Ham. ,,Pop” Rob- son náði forustu fyrir „Hamm- ers” og Brooking bætti marki við i siðari hálfleik. Þegár 15 min. voru til leiksloka skoraði Possee fyrir Palace og sóttu þeir stift siðustu minúturnar, ákveðnir að ná stigi. En þegar þeir sóttu sem mest fékk Bobby Moore knöttinn og sendi hann fram til MacDou- Ilay Kennedy, markaskorarinn mikli hjá Arsenal, skoraði úrslita- markið gegn City, og hann lagði upp mark mánaðarins, sem George skoraði. gall, sem átti ekki i erfiðleikum með að skora. Þótt útlitið i 1. deild hjá Palace sé ekki gott, þá eru leikmenn liðsins bjartsýnir. Þeir eru ákveðnir að ná niu stigum út úr siðustu niu leikjum liðsins i deildinni. Það verður erfiður róö- ur, þvi að liðin, sem Palace á eftir að leika gegn, eru sterk (sjá ann- ars staðar á siðunni). Leikmenn Newcastle voru ekki beint heppnir gegn Chelsea. Þeir náðu forustunni i leiknum með marki Barrowclougt I fyrri hálf- leik. En i siðari hálfleik varð Howard fyrir þvi óhappi á 55. min. að stýra skoti frá Garner i sitt eigið mark. Joe Harper, sem Everton keypti frá Aberdeen á 180 þús. pund var hetja liðsins i leiknum gegn Ipswich. Hann skoraði eina mark leiksins 15 min. fyrir leiks- lok. SOS. Þessi mynd var tekin f leik Tottenham og Manchester United á laugardaginn. Hún sýndi þá Tony Young (2) , Manchester Utd. og Cyril Knowles, Tottenham.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.