Tíminn - 27.03.1973, Síða 20
MERKIÐ, SEM GLEÐUR
HMMsmstíhmepfélagmu
-
Gistid á góóum kjörum
H’HDTEL#
lal
i—tolSilu Inl
^GOÐI
kÁfyrir ffóúan maM
$ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBAHDSIVS
Austankonur á þingpöllunum —
háværir mótmælendur úti fyrir
Sveitakonurnar mótmæla herferð gegn
íslenzku bændafólki og skora á menn að
hætta að kaupa brezkarog v-þýzkar vörur
Erl-Reykjavik. — Þær hvorki börðu bumbur né
blésu i herlúðra, húsmæðurnar, sem i gærmorgun
lögðu af stað austan yfir fjall til að heiðra alþingi
með nærveru sinni á pöllum. Nei, — þær komu i bæ-
inn upp úr hádegi — og tylltu sér inn á pallana, þeg-
ar þeir loks voru opnaðir, yfirlætislausar en
ákveðnar að vekja ekki siður athygli á sinum mál-
stað en þeim, sem konur úr Húsmæðrafélagi
Reykjavikur höfðu fram að færa, en þær höfðu hvatt
allar konur til að safnast saman á Austurvelli og
fjölmenna siðan á þingpalla til að mótmæla verð-
hækkunum á landbúnaðarvörum og leggja áherzlu
á það verkfall, sem þær hafa hvatt til að undanförnu
i kaupum á landbúnaðarvörum.
llrafnhildur Magnúsdóttir Framhald á bls. 13
Sjöfn Halldórsdóttir
Valgerður Auðunsdóttir.
Það er ekki grunlaust um, að
vopnin hafi snúizt i höndum verk-
fallskvenna, er þær gengu á palla,
en hittu þá fyrir stallsystur sinar
úr Arnessýslu, 25 að tölu, sem þar
voru mættar sem fulltrúar ann-
arra húsmæðra i Arnesþingi og
væntanlega flestra húsmæðra til
sveita.
Konurnar úr Arnessýslu
dreiföu á staðnum svohljóðandi
dreifibréfi:
„Viö undirritaðar konur úr Ar-
nessýslu viljum með nærveru
okkar hér kynna sjónarmið okk-
ar.
Það er staðreynd, aö land-
búnaðarvörur hafa ekki hækkað
meira en aðrar vörur. t mörgum
tilfellum hafa þær hækkað minna
en erlendar vörur. Fiskur hefur
hækkað örar en kjöt og heildar-
hækkun hans er meiri en á kjöti.
Mjólk er ennþá ódýr neyzluvara,
ef miðað er við næringargildi og
verð hennar og annarra drykkja.
Vegna mikilla niðurgreiðslna á
mjólk hafa mjólkurframleiðend-
ur fengiö hærra verð fyrir mjólk
sina en söluverð hennar út úr búð.
Neyzlumjólk þeirra er þvf dýrari
en annarra landsmanna. Þetta
Tæpastmerkjan
leg nein áhrif
TtMINN hringdi f nokkrar
mjólkurbúðir i Reykjavik
skömmu fyrir lokun f gær til
þess að spyrjast fyrir
um.hvort merkjanlegur
■nunur hefði verið á mjólkur-
sölunni frá þvi, sem venjulega
er á mánudögum, vegna til-
rauna nokkurra kvenna i
Keykjavik til þess að draga úr
sölu á landbúnaðarvöru.
Viðbárum fyrst niðurá Háa-
leitisbraut 68. ,,Ég held, að
það hafi bara enginn munur
verið,” sagði Nanna Tryggva-
dóttir, sem þar er verzlunar-
stjóri. Næst hringdum við til
Jennýjar Magnúsdóttur i Sól-
heimum 35. „Það er mjög litill
munur,” sagði hún — „svo
litill, að það verður varla haft
orð á þvi.” Svava Arsælsdóttir
á Hagamel 39 sagði: „Við
höfum ekki orðið varar viö
neinn samdrátt, en þess er þó
að gæta, að dagurinn er ekki
alveg að kvöldi kominn. Nú, af
rjóma höfum við selt fyllilega
sama skammt og venjulega.”
I einnimjólkurbúð,að Mela-
braut 57, færðist starfsfólkið
undan þvi að svara
spurningum okkar. -JH.
Mótmælakonurnar fyrir utan Alþingishúsið, en þar talaði Jónfna Guðmundsdóttir formaður Húsmæðra-
félagsins.
Áreíbanlega
BEZTA HVEITID
Kobin Hood
öruggt
drjúgt
vítamínbætt
ALL PURPOSE
HITTUMST í KAUPFÉLAGINU