Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 3

Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 19. april 1973. TÍMINN 3 Aðalfundur Mjólkursamsölunnar: Tvelr þriðju seljast sem neyzlumjólk AAjólkurútflutningur til Færeyja AÐALFUNDUR Mjólkursam- sölunnar var haldinn fimmtu- daginn 12. apríl 1973. Fulltruar voru mættir af öllu félags- svæðinu, en það nær frá Skeiðarársandi að Giisfirði. A þessu svæði eru starfrækt 5 mjólkursamlög og er Mjólkur- samsalan sameiginlegt sölufyrir- tæki þeirra. I skýrslum Stefáns Björns- sonar, forstjóra og Agústs Þor- valdssonar, stjórnaformanns, kom m.a. fram, að árferði á sl. ári, hefði verið eitt hið bezta til ú- skapar um langt skeið og afkoma bænda hefði verið með bezta móti. Aukning mjólkurfram- leiðslu á landinu öllu varð 4,26%, en á félagssvæði Mjólkursam- sölunnar varð aukningin 4,55%. Af þeirri mjólk, sem kom til mjólkurbúanna á félagssvæðinu, voru 67,5% seld sem neyzlumjólk eða 34,481,811 litrar. Þar af fóru rúmlega 54 þús. lítrar til Færeyja. Nokkur aukning var á sölu neyzlumjólkur og mikil sala varð i jógúrt, sem hafin var fram- leiðsla á, á árinu. Meðalútborgunarverð til bænda á öllu Mjólkursamsölusvæðinu eru 1920,56 aurar á litra. A svæðinu öllu eru nú 1563 kúabú, sem selja mjólk i mjólkursamlag og fækkaði þetnv um 47 frá fyrra ári. Hlutfallsleg framleiðsluaukning varð mest hjá Mjólkurbúinu i Borgarnesi, en minnst i Búðardal. Á aðdráttarsvæði Mjólkursam- sölunnar eru nú 169 útsölustaðir Þjónusta um póskana Strætisvagnar Reykjavíkur Skirdagur: Akstur er eins og á venjulegum helgidegi. Föstudagurinn langi: Ekið er á öllum leiðum samkvæmt tima- áætlun helgidaga i Leiðabók. S.V.R. að þvi undanskildu, að allir vagnar hefja akstur um kl. 13. Laugardagur: Akstur er eins og á venjulegum laugardegi. Páskadagur: Ekið er á öllum leiðum samkvæmt timaáætlun helgidaga i Leiðabók S.V.R. að þvi undanskildu, að allir vagnar hefja akstur um kl. 13. Annar páskadagur: Akstur er eins og á venjulegum helgidegi. Strætisvagnar Hafnarf jarðar Skirdag og annan páskadag: Ekið einsogá sunnudegi. Fyrstu ferðir úr Reykjavik og Hafnarfirði kl. 10 til 12.30. Föstudagurinn langi og páska- dagur: Ferðir hefjast kl. 14, en siðan reglubundnar ferðir til kl. 12. 30. A laugardag er ekið eins og venjulega. Strætisvagnar Kópavogs Skirdagur: Vagnarnir aka eins og á sunnudegi, það er að segja frá kl. 10-24. Föstudagurinn langi: Ferðir hefjast kl. 2., ekið til kl. 24. Laugardagur: Ekið eins og venjulega. Fáskadagur: Ekið frá kl. 2 til 0.30. Annar páskadagur: Ekið frá kl. 10 til 24. Benzínafgreiðslur A skirdag og annan i páskum verður opið frá kl. 9.30 til 11.30 og 1-6. Laugardagur: opið allan daginn eins og venjulega, eða frá 7.30 til 21.15. Lokað föstudaginn langa og páskadag. Mjólkurbúðir Föstudagurinn langi og páskadagur: LOKAÐ. Laugardagur: OPIÐ eins og venjulega. Skirdagur: OPIÐ til kl. 12. Annar páskadagur: OPIÐ frá kl. - 12. Söluturnar eru lokaðir: Föstu- daginn langa og páskadag. OPIÐ laugardag eins og venjulega. Póstafgreiðslur borgarinnar, verða lokaðar frá 19. til 24 april, nema bréfapóststofan, Pósthús- stræti 5, — afgreiðslan verður opin á skirdag, laugardaginn fyrir páska, annan i páskum kl. 9-10 fyrir hádegi, en þá fer eingöngu fram i frimerkjasala og móttaka og afhending bréfa. Læknaþjónusta og annað um póskana — sjó DAGBÓK bls. 14 Þóf í París: S-Víetnamstjórn og Nixon í lögregluleik segja Þjóðfrelsishreyfingamenn Paris 18/4 — NTB Fulltrúar þjóð- frelsishreyfingar S-Vietnam og Saigonstjórnarinnar komu saman á miðvikudag til sjöunda samningafundar sins i Paris, en þar er rætt um stjórnmálalega framtið landsins. Ekkert bendir til þess að lausn sé i nánd. Fulltrúi Þjóðfrelsishreyfingar- innar hélt þvi fram, að S-Viet- namar sendu hermenn inn i Kambódiu, og að þeir reyndu að koma fram eins og lögregla i Indókina og Nixon héldi áfram að leika lögreglu fyrir allan heiminn. Aðgerðir S-Vietnama i Kambódiu og sprengjuárásir Bandarikjamanna i Laos væru al- varleg ógnun friði i Indókina. Formaður sendinefndar S- Vietnama hélt þvi fram, að varanlegur friður gæti ekki orðið i Vietnam fyrr en friður rikti einnig i Laos og Kambódiu. mjólkur og fjölgaði þeim um 10 á árinu. Mjólkursamsalan rekur sjálf 75 mjólkurbúðir og fjölgaði þeim um eina. Starfsmenn fyrir- tækisins eru samtals 425 i árslok 1972. Formaður Mjólkursam- sölunnar er Agúst Þorvaldsson, bóndi á Brúnastöðum Með honum i stjórn eru Einar Ólafs- son, Oddur Andrésson, Eggert Ólafsson og Gunnar Guðbjarts- son, sem kom i stað Sigurðar Snorrasonar, sem baðst undan endurkosningu . Forstjóri Mjólkursamsölunnar er Stefán Björnsson. Sögusýning á verkalýðs- daginn I TILEFNI af þvi að 1. maf n.k. verða 50 ár frá þvi fyrsta kröfu- ganga verkalýðsins var farin hér i Reykjavik, mun 1. mái nefndin i Reykjavik i sam vinnu við Menningar- og fræðslusamtök alþýðu beita sér fyrir sýningu á sögulegum minjum úr baráttú- og félagsstarfi verkalýðshreyfingar- innar. Sýning bessi verður haldin fyrstu viku mai mánaðar og hefur henni verið fundinn staður i MFA- salnum að Laugavegi 18. Vegna þessarar sýningar snúa fulltrúaráð verkalýðsfélaganna i Reykjavik og MFA sér til almennings með beiöni, um, að fólk sem kann að eiga einhverjar minjar- og gamlar Ijósmyndir, flugrit, vinnubækur, fánaslitur o.þ.h. tengdar baráttu og félags- starfsemi verkafólks- láni það vinsamlegast á sýninguna. Allar upplýsingar eru veittar i skrifstofu Fulltrúaráðsins, Skóla- vörðustig 16, simi 16438 og i skrifstofu MFA Laugavegi 18, simar 26425 og 26562 (fréttatilkynning) o Skuttogari kælingin i lestinni að verða mun meiri . Gert er ráð fyrir, að togarinn, sem er smiðaður hér verið meiri en við smiði fiski- togarinn verði sjósettur i byrjun mái mánaðar eða i lok sama mánaðar (fer eftir stórstraumsflóöi) og áætlað er að fjórum vikum seinna verði hægt að afhenda skipið Siglf irðingum, en þessar fjórar vikur þarf til að taka út vélar skipsins og einnig þurfa tryggingafélögin að taka það út. Það kom fram hjá þeim Jóni og Friðriki, að þeir binda miklar vonir við raðsmiði skuttogara sem þessa. Nokkrar fyrirspurnir hefðu þegar borizt um smiði á fleiri skuttogurum til Stálvikur. tslendingar sigruðu vonandi bráðlega i landhelgisdeilunni, og er erlendu skipin væru farin af miðunum, ætti islenzk útgerð að fá traustari rekstrargrundvöll, með meiri aflabrögðum. Einnig hefði iðnaðarráðherra sagt i útvarpi, að vonir stæðu til aö Stálvik yrði gert kleift að smiða skuttogara i raðsmiði. Það yrði mikill fengur fyrir þróun þessarar smiði innanlands enda mætti segja að raðsmiði skipa nú til dags teldist forsenda fyrir skipasmiði. Þess má geta, að skut- togarinn fyrirÞormóð ramma er tuttugasta skipið, sem Stál- vik lýkur við smiði á, en smiðanúmer skipsins er nr. 17, þar eð nokkrir fiskibátar hafa veriðsmiðaöiri Stálvik, frá þvi að samið var um smiði togarans. Getur guð verið í verki með stjórn- málamönnum? BRÆÐRÁFflLAG dóinkirkjunn- ar efnir til dálitið óvenjulegrar samkomu á skirdagskvöld. Hefur það fengið fjóra stjórnmálamenn til þess að svara þeirri spurningu, hvort slikt fólk getur haft guð i verki ineö sér. Þeir, sem tekið hafa að sér að svara, þessu eru Gylfi Þ. Gisla- son, Halldór E. Sigurðsson, Ingólfur Jónsson og Magnús Torfi Ólafsson. Kvöldsamkomunni lýkur með hugvekju og bæn Sigurbjarnar Einarsonar biskups. 0 íþróttir einnig tekinn með Lreikninginn. Urslit i norrænu tvfkeppninni urðu þessi: Steingrimur Garðarsson, Sigluf. Björn Þ. ólafsson, ólafsf. Birgir Guðlaugsson, Sigluf. 17 — 19 ára. Ilögnvaldur Gottskálksson, Sigluf. Hörður Geirsson, Sigluf. Baldvin Stefánsson, Akureyri örn Jónsson, Ólafsf. 1 dag . fimmtudag , fer fram keppni i stórsvigi karla og kvenna. Þá verður einnig keppt i boðgöngu 3x10 km. AAjólk af mjólk, og var það 4,69% meira en árið áður. Meðalfita reyndist 3.887%, og fór meira en tveir þriðju mjólkurinnar i fyrsta gæðaflokk. 20,8 milljón litrar seldust sem neyzlumjólk, og rjómasala jókst um 9,6%. 79 smá- lestir voru unnar af osti, þar af ellefu smálestir af Cammer- bert-osti, auk ýmissa tegunda af bræddum osti. 913 menn lögðu inn mjólk á ár- inu, og nam greiðsla til bænda, að kostnaði frádregnum, 17,81 eyri á litra, 92,6% af heildarútborgun- um og 83,2% af heildartekjum mjókurbúsins. Niðurstöðutölur rekstrarreiknings voru 871,8 milljónir króna. Mest mjólk barst úr Hruna- mannahreppi, 3,127,966 litrar, úr Skeiðahreppi 2,244,865 litrar og Hraungerðishreppi 1,832,104 litr- ar. Úr Árnessýslu voru að jafnaði 44,539 litrar á bónda, Rangár- vallasýslu 43,737 litrar og Skafta- fellssýslu vestan Mýrdalssands 33,817 litrar, en austan sanda 15,845 litrar. Mjólkurbússtjóri er Grétar Simonarson, en formaður mjólk- urbússtjórnar Eggert Ólafsson á Þorvaldseyri. Þessar tölur hafa verið dregnar út: 46 — 61 — 25 — 31 — 1 53 — 75 — 16 — 69 — 52 32 — 26 — 4 — 62 — 41 48 — 44 — 54 — 14 — 38 72 — 47 — 19 — 43 ENNÞÁ HAFA ALLIR SÖMU MÖGULEIKA TIL VINNINGS. Siðustu BINGO-spjöldin verða seld i anddyri vörumarkaðsins, Ár- múla frá kl. 10-12 og 1-4 i dag. Lionsklúbburinn ÆGIR Samskipti fjölmiðla og opin- berra stofnana Jón Kjartansson, forstjóri Áfengis- og tóbaksverzlunar rikisins, hefur tekið upp þann sið að hafa árlega sérstakan blaðamannafund, þar sem öll gögn um rekstur þessarar rikisstofnunar liggja frammi og blaðamenn fá aö spyrja um þau atriði I starfssemi stofnunarinnar, er þá lystir. Margoft hafa blöö og samtök blaðamanna kvartað undan þvi á undanförnum ár- um, að erfitt reynist að afla upplýsinga og frétta um starfssemi ýmissa opinberra stofnana, sem almenningur á kröfu til að fá vitneskju um, þar sem þessar stofnair eru i eign almannasjóða og eiga aö starfa i þágu almennings. Hafa ýmsir embættismenn af gamla skólanum stundxim virzt lita á sig sem eigendur þessara stofnana, sem al- menningi komi nánast ekkert við hvernig starfi. Eru dæmi um það, að þessur tninaðar- inenn i þjónustu almennings liafi reynzt svo illir viðskiptis við fjölmiðla að stappar nærri embættisglöpum af verstu tegund. Þess vegna hefur það verið barátta blaðamanna um inörg ár, að aðgangur þeirra aö upplýsingum, sem almenning varða og almenningur á kröfu á frá opinberum stofnunum i lýðræðisþjóðfélagi, yrði gerð- ur greiðari. M.a. hafa þeir bent á reglulega blaðamanna- fundi helztu stofnana hins opinbera til að greiða þessi samskipti. örfáir forstööumenn opin- berra stofnana liafa orðið við þessum eðlilegu óskum með myndarlegum liætti. I þeirra liópi er Jón Kjartansson. Nú er Alþingi hefur sam- þvkkt vil jay f irlýsingu um upplýsingaskyldu opinberra aðila og fram liefur verið lagt frumvarp um aö lögbjóöa slika skyldu varöandi upplýs- ingar, sem almenning varðar cg til hans á erindi, ættu fleiri opinberir aðilar að fara að for- dæmi Jóns. Úttekt á ríkisstofnunum Úttektin á Tryggingastofn- un ríkisins hefur verið mjög til umræðu manna á meöal aö undanförnu og það að vonum. Virðist þar hafa verið pottur brotinn I rekstrinum. Þær til- lögur, sem fram hafa verið færðar og stefna aö bættum rekstri þessarar mikilvægu stofnunar verða nú teknar til nákvæmrar athugunar og framkvæmdar og þvi kippt i lið, sem mest hefur aflögu far- ið. Nú hefur fjármálaráðherra, Ilalldór E. Sigurðsson, ákveð- iðaðfram fari nákvæm athug- un á fleiri stórum rikisstofn- unum mcð það að markmiöi, að stefna aö aukinni hagræð- ingu og sparsemi I rekstri, án þess að dregið verði úr þjón- ustu. Hefur fjármálaráðherra nú komiö á fót tveimur sam- starfshópum, sem eiga að taka tvær stórar rikisstofnanir til slikrar meðferöar. önnur nefndin á að gera allsherj- ar-athugun á skipulagningu og rekstri pósts og sima, og hin til að annast hliðstæða athug- un á málefnum Ríkisútvarps- ins, hljóðvarpi og sjónvarpi. Þessar nefndir eiga að skipa fyrstu niöurstöðum og tillög- um innan 6 mánaða. Þá hefur fjármálaráðherra fengið hingað sænska sérfræð- inga til aö kynna sér rekstur og skipulag mötuneyta á veg- um hins opinbera með þaö fyr- ir augum að gera reksturinn hagkvæmari, en stefnt veröur að fækkun eldhúsa og dreif- ingu matar frá færri en stærri eldhúsum. — TK.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.