Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 24
*
Gistió á góóum kjörum
# HIO' rrllL’H’
(3 lllall Jltnll
\
gGOÐI
^Á fyrir yóöun nmi
$ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS
Hótel Holt stækkar við sig
i anddyri hinnar nýju álmu Ilótel Holts hefur veriö komiö fyrir
mörgum listaverkum auk annarra fágætra muna.
(Timamynd: Robert)
Klp-Reykjavik. — Nú um
páskana veröur tekin i notkun ný
álma, sem byggð hefur veriö viö
Hótel Holt á Bergstaöastræti. t
þessari álmu eru m.a.17 hótelher-
bergi og einhver glæsilegasti
fundarsalur og vinstúka, sem hér
hefur veriö sett upp á
undanförnum árum, og er þó viöa
glæsileikinn mikill.
Með þessari stækkun á Hótel
Holti, verða hótelherbergin 53
talsins með um 100 gistirúmum
auk fullkomins matsalar og nú
með funda- og veizlusal, sem taka
mun um 50 manns i sæti.
Þessi salur hefur hlotið nafnið
Þingholt. Hann er i eins konar
klassiskum enskum stil og hinn
glæsilegasti á allan hátt. Hann
mun verða leigður út til funda og
veizluhalda og með honum mun
fylgja mjög glæsileg vinstúka svo
og setustofa i anddyri.
I anddyrinu hefur verið komið
fyrir mörgum listaverkum. Má
þar t.d. sjá höggmyndir og mál-
verk auk annarra fágætra hluta,
svo sem bóka, borða og skápa.
Gunnar Magnússon húsgagna-
arkitekt sá um innréttingar og
teikningar. Hótelstjóri Hótels
Holts er Skúli Þorvaldsson ■
GÓÐ GJÖF
BÓKASAFNINU að Litla-Hrauni
barst höföingleg gjöf frá Rotary-
klúbbi Hafnarfjaröar, nýlega.
Færöu klúbbfélagar safninu 67
bækur, en þaö mun stærsta bóka-
gjöf sem safninu hefur borizt.
Segir i bréfi frá Litla-Hrauni, að
gjöf þessi sé vel þegin, enda lestr-
arþörf mikil á staðnum, en bóka-
kostur litill.
Suður-Víetnamar
róða við Mekongó
Saigon 18/4 NTB. — Eftir að allt
hafði verið með tiltölulega
kyrrum kjörum i Suður Vietnam i
tvo sólarhringa brutust bardagar
út á úý i dag i landinu. Yfirher-
stjórnin i Saigon greindi frá þvi
aö barizt hefði verið á öllum
fjórum hernaðarsvæðunum, sem
landinu er skipt i.
Leiðtogar Indónesiumanna i al-
þjóðlegu eftirlitsnefndinni hótuðu
i dag að kalla alla Indónesisku
eftirlitsmennina af vigvellinum
til Saigon, ef ekki yrði hafizt
handa um rannsókn á atburðinum
þegar þyrla var skotin niður og
niu manns drepnir yfir landsvæöi,
sem Þjóðfrelsishreyfingin hafði á
valdi sinu, 7. april.
Bandariskar flugvélar héldu
áfram að kasta sprengjum á
skotmörk i Laos á miðvikudag,
annan daginn i röð. Noröur
Vietnamar og Pathet Lao skæru-
liðar halda þvi fram, að ásásirnar
hafi kostað fjölda manns lifið.
Yfirherstjórnin i Saigon tilkynnti
á miðvikudag að 21.899 Viet-
namar hefðu verið vegnir i bar-
dögum eftir að vopnahlé gekk i
gildi. 17.227 voru N-Vietnamskir
hermenn og hermenn Þjóðfrelsis-
hreyfingar, 4.048 s-vietnamskir
hermenn og 624 óbreyttir borg-
arar.
Suðurvietnamskar hersveitir
hafa nú meirihluta lands-
svæðanna meðfram Mekongá á
sinu valdi, frá landamæium S-
Vietnam og Kambódiu norður að
Phnom Penh.
Harðir bardagar hafa geisað
við ána siðustu daga, og að sögn
æðsta manns Suður Vietnams-
hers á svæðinu hafa skæruliðar
nú aðeins um 800 m svæði á valdi
sinu.
Framhalds-
aðalfundur Bl
Blaðamannafélag ís-
lands heldur framhalds-
aðalfund i Norræna hús-
inu, miðvikudaginn 25.
april, kl. 20:30. Félags-
menn eru eindregið
hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Mennirnir
sem fórust
Þó-Reykjavík. — Mennirnir
tveir, sem fórust um borð i
Páli Rósinkranz,syni KE42,
er togrúlla slitnaði um borð i
bátnum i fyrradag hétu,
Ingvar Kristinsson,
Asvallagötu 37, hann var 34
ára, ókvæntur og barnlaus.
Hinn hét Björn Alfreðsson,
Digranesvegi 67. Björn var
26ára, kvæntur en barnlaus.
Maðurinn, sem slasaðist i
þessu slysi, er ekki' talinn
lifshættulega meiddur, en
hann er m.a. handleggs- og
kjálkabrotinn og skrámaður
viða.
Sumarkveðja
Samvinnufélögin árna öllum
landsmönnum heilla meö nýju
sumri og alveg sérstaklega þvi
ágæta fólki, sem nýlega hefur
sætt þungum búsifjum. Siöast-
liöinn vetur geröust þau stór-
tiðindi, að blómlegt byggðarlag,
þar sem vaxtarmagn þjóð-
félagsins var hvað sterkast,
lagðist i auðn, a. m. k. um
stundarsakir. Af þeim atburðum
leggur skugga fram i tímann.
Nú reynir á þolrif þess vel-
ferðarþjóöfélags, sem vér búum
í, á félagshyggju, bróðurlund og
samtakavilja landsmanna.
Með hliðsjón af þeirri miklu
hlutdeild, sem samvinnu-
félögin hafa átt í uppbyggingu
nútíma þjóöfélags á íslandi, þá
gera samvinnumenn sér Ijósa
ábyrgð sina á hverjum tima.
Samvinnuhreyfingin er almanna-
hreyfing með almenningsheill
að leiðarljósi, og samvinnu-
menn vita, aö á örum breytinga-
tímum eins og nú, skapast
stöðugt ný viðhorf og ný við-
fangsefni á sviði framleiðslu,
verslunar og þjónustu, þó að
ekki komi náttúruhamfarir til.
Mikil og flókin verkefni biða
einmitt nú, sem aldrei veröa
leyst í litlu þjóðfélagi, nema
með almennri samstöðu.
i trausti þess almenna félags-
lega skilnings, sem gerir sam-
vinnuhreyfinguna skapandi afl
í þjóðfélaginu og birtist í sí-
vaxandi þátttöku ungs fólks,
þá leyfa samvinnumenn sér að
lita með bjartsýni fram í tímann.
I
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
GLEÐILEGT SUMAR