Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 5

Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 19. april 1973. TÍMINN 5 A.A.-fundur í safnaðar- heimili í Langholti A föstudagiun langa, 20. april, minnast A.A.-samtökin á islandi 19 ára afmælis sins með opnum lundi í safnaðarheimili Lang- holtssóknar, klukkan 9 e.h. Stofnfundur þeirra var haldinn þann dag. 16. april, 1954. Æ siðan hafa þau minnzt afmælis sins á föstudaginn langa. Það er von okkar, að sem flestir A.A.-félagar og annað áhugafólk um starfsemi A.A. sitji þenna fund með okkur. Ljósmyndasýning ÞÓ. Reykjavik — Astþór Magnússon, ljósmyndari, opnar ljósmyndasýningu i kjallara Æskulýðsheimilisins að Fri- kirkjuvegi 11 klukkan 16 i dag og stendur sýningin til 24. april. A sýningunni getur að sjá 45 lit- myndir og er þetta i fyrsta skipti, sem sýndar eru litmyndir á ljós- myndasýningu hérlendis. Alls sýnir Astþór 120 myndir, flestar mjög nýlegar og eru mjög margarfrá náttúruhamförunum i Vestmannaeyjum, en þangað fór Astþór tvisvar. Undanfarin tvö ár hefur Ástþór verið við nám i ljósmyndun i London og á hann eftir eitt ár i námiþar.Hann hefur unnið allar myndirnar i skóla þeim, er hann stundar nám við i London. Myndirnar eru allar til sölu og kosta litmyndirnar kr. 3500 en svart-hvitu myndirnar eru miklum mun ódýrari. Astþór kemur upp einni mynda sinna . Timamynd Róbert. Hluti félaga í Myndlistarklúbbi Seltjarnarness, sem halda sýningu á verkum sinum yfir páskana. Sitjandi talið frá vinstri: Anna Karlsdóttir, Unnur Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Anna Bjarnadóttir, Björg isaksdóttir, Jensey Stefánsdóttir. Standandi: Maria Guðnadóttir, Garðar Ólafsson, Jóhannes Ólafsson, Magnús Valdimarsson, Auður Sigurðardóttir, Asgeir Valdimarsson, Sigurður K. Arnason leiðbeinandi og Sigriður Gyða Sigurðardóttir. (Timamynd Róbert) Flytja úr anddyrinu í salinn KLP-REYKJAVIK. — A skirdag verður opnuð sýning á 130 málverkum félaga úr Mynd- listarklúbbi Seltjarnarness i tþróttahúsinu á Seltjarnarnesi. Mun þessi sýning verða opin yfir páskana til þriðjudagsins 24. april frá kl. 14.00 til 22.00. Myndlistarklúbbur Seltjarnar- ness var stofnaður árið 1971, af áhugafólki búsettu á Seltjarnar- nesi. 1 byrjun voru klúbbfélagar tiu að tölu, en nú eru þeir orðnir tuttugu og áhugi þeirra mikill. Hópurinn kemur saman einu sinni i viku yfir vetrarmánuðina i teiknistofu Mýrarhúsaskóla. Þar hefur Sigurður K. Arnason list- málari leiðbeint félögum frá upphafi. Til þessa hefur nær eingöngu verið unnið með oliu- litum, en fyrirhugað er að fá tilsögn i fleiri greinum mynd- listar næsta vetur. Hópurinn hefur farið nokkrar ferðir út fyrir bæinn og tekið upp „mótif” i þeim ferðum, sem siðan hafa verið fullunnar i kennslu- stundum. Það er m.a. árangur þeirra svo og fleira, sem félagar klúbbsins ætla nú að sýna öðrum Seltirningum og gestum, sem áhuga hafa á að koma i iþrótta- húsið um páksana. Timmn er 40 siður alla laugardaga og sunnudaga. — Áskriftarsíminn er 1-23-23 Þetta er önnur sýningin, sem klúbburinn stendur fyrir. Sú fyrri var haldin i anddyri iþrótta- hússins, og þá sýnd um 30 verk. En nú dugar ekkert minna en allur salurinn. KOLA- OFNAR Hefi til sölu nokkra vel útlitandi, gamla kolaofna, hentuga i sumarbústaði — eða til augnayndis i stofum. Simi 3-57-43. Sumardagurinn fyrsti 1973 HÁTIÐAHÖLD f f Kl. 1.15: Skrúðganga barna i Breiðholtshverfi. Safnazt verður saman á gatnamótum Norðurbergs, Þórufells og Breiðholtsbrautar. Gengið niður Breiðholtsbraut um Stöng, vestur Arnarbakka að dyrum samkomusal- ar Breiðholtsskóla. Barna- og unglingasveit Arbæjar og Breiðholtshverfis ásamt fé- lögum úr Lúðrasveit verkalýðsins leika fyrir Skrúðgöngunni. Ölafur L. Kristjánsson stjórnar. Kl. 2: Breiðholtsskóli. Séra Lárus Halldórsson talar við börnin. Tveir stuttir leikþættir. Almennur söngur: Fóstrunemar stjórna söngnum. Tóti trúður kemur i heimsókn. Aðgöngumiðar seldir i skólanum kl. 1-3 miðvikudag og við innganginn sumardaginn fyrsta. Kvenfélag Breiðholts og skátafélagið Urðarkettir sjá um skemmtunina. Kl. 2.15: Skrúðganga frá Árbæjarsafni. Gengið verður upp Rofabæ að barnaskólanum við Rofabæ. Barna- og unglingalúðra- sveit Arbæjar og Breiðholtshverfis ásamt félögum úr Lúðrasveit verkalýðsins leika fyrir göngunni. Ólafur L. Kristjánsson stjórnar. Kl. 3: Arbæjarskóli. Barnasamkoma. Kór Arbæjarskóla: Jón Stefánsson stjórnar. Séra Guðmundur Þorsteinsson Kl. 1.15: Skrúðganga barna i Bústaðahverfi. Gengið verður frá gatanamótum Hæðargarðs og Réttarholtsvegar um Langagerði, Tunguveg að Bústaðakirkju. Lúðrasveit unglinga undir stjórn Páls Pampichler leik- ur fyrir skrúðgöngunni. Kl. 2: Bústaðarkirkja. Barnasamkoma. Kór og hljómsveit Breiðagerðisskóla: Hannes Flosason stjórnar. Séra Ólafur Skúlason. Allar barnasamkomurnar eru haldnar fyrir milligöngu æskulýðsstarfs þjóðkirkjunnar SUMARGJAFAR" Kl. 2.15: Skrúðganga barna frá Vesturbæjarbarnaskólanum við öldu- götu. Gengið verður Hofsvallagötu, Nesveg að Neskirkju. Lúðrasveit unglinga undir stjórn Páls Pampichler leikur fyrir skrúðgöngunni. Kl. 3 Neskirkja. Barnasamkoma. Séra Frank M. Halldórsson og frú HefnaTynes sjá um samkomuna. Kl. 1.30: Skrúðganga barna frá Hrafnistu að Laugarnesskóla. Safnazt verður saman við Hrafnistu. Gengið eftir Brúnavegi, Sundlaugavegi, Reykjavegi, að Laugarnesskóla. Lúðrasveitin Svanur undir stjórn Lárusar Sveinssonar leikur fyrir skrúðgöngunni. kl. 2.: Laugarnesskóli. Barnasamkoma. Séra Ingólfur Guðmundsson Kl. 1.15: Skrúðganga barna i Háaleitishverfi. Safnazt verður saman á leikvellinum við Álftaborg. Gengið upp i Safamýri niður Háaleitisbraut að Alftamýrarbarnaskólanum. Lúðrasveit drengja undir stjórn Stefáns Þ. Stephensen leikur fyrir skrúðgöngunni. Kl. 2.15: Skrúðganga barna frá Miklatúni að Hallgrimskirkju. Safnazt verður saman við Kjarvalsstaði á Miklatúni. Gengið eftir Flókagötu, Snorrabraut, Þorfinnsgötu, Eirfksgötu að Hallgrimskirkju. Lúðrasveit drengja undir stjórn Stefáns Þ. Stephensen leikur fyrir göngunni. Kl. 3: Hallgrlmskirkja. Barnasamkoma. Séra Ragnar Fjalar Lárusson. Barnatimi í útvarpinu: Avarp. Sallý og Guðrún: Rúnuvisur, Matthildur (leikþáttur). Skátarnir ogblómin. Helgistund. Söng annast börn frá Skóladagheimilinu Skipasundi 80. Frú Hrefna Tynes undirbjó þáttinn og stjórnar honum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.