Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 7

Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 19. april 1973. TÍMINN 7 SUMARDAGURINN FYRSTI ER í DAG G J, Reykjavik — Sumar- daginn fyrsta ber upp á skirdag i ár og kemur það til með að setja svip sinn á hátiðarhöld dagsins. Sumargjöf mun ekki gangast fyrir neinum útihátiðarhöldum eins og venjulega, heldur verður eingöngu farið i skriíðgöngur um hin ýmsu hverfi borgarinnar, en siðan verða haldnarsamkomur á vegum Sumargjafar og Æsku- lýðsnefndar þjóðkirkjunnar i nokkrum kirkjum og skólum hér i borg. Skrúðgöngurnar verða nú 7 talsins og mun það meiri fjöldi en nokkru sinni fyrr. bað er mjög sjaldan sem sumardaginn fyrsta ber upp á skirdag. Slikt gerist að jafnaði ekki nema sextánda hvert ár, eða nákvæmar sagt sex sinnum á niutiu og fimm árum. Siðast gerðist þetta 1962, og féllu þá öll hátiðarhöld á vegum Sumar- gjafar niður. Nokkurrar óánægju þótti gæta meðal fólks með þá ráðstöfun og var þvi ákveðið að þessu sinni að halda skrúð- göngunum, þótt útihátiðarhöldin féllu alveg niður. Venjulega notar Sumargjöf sumardaginn fyrsta sem fjáröflunardag með sölu merkja, bóka og annars, en að þessu sinni verður ekki um neina fjáröflunarstarfsemi að ræða. Sumargjöf rekur nú leikskóla og dagvistunarheimili fyrir börn á Reykjavikursvæðinu. A þessum stofnunum eru nú um 2000 börn, þar 600 á dagheimilunum. Tölu- verðir umrótstimar eru nú hjá félaginu, vegna hinna nýju laga sem samþykkt hafa verið á Alþingi fyrir skömmu, en það eru lögin um Fósturskóla Islands og lög um hlutdeild rikisins i bygg- ingu og rekstri dagvistunar- heimila. Með þessum lögum hefur rikið tekið að sér nokkurn þátt þeirrar starfsemi sem Sumargjöf hefur haft meö höndum og kann þetta að leiða til verulegra breytinga á starfs- fyrirkomulagi félagsins i fram- tiðinni. Er allt eins liklegt að Sumargjöf beini nú kröftum sinum að einhverjum öðrum verkefnum, sem hið opinbera hefur ekki ennþá tekið á sinar herðar. Skíðavika á ísa- firði um páskana Aðstoðarverkstjóra vantar að vöruafgreiðslu vorri i Reykjavik. Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi, nú 15. fl., eftir fulla starfsþjálfun. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist Samgönguráðuneytinu fyr- ir 27 þ.m. SKIPAUTGCRB RÍKISINS Kaupfélagsstjóri Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Langnesinga, Þórshöfn, er laust til umsóknar. Skriflegar umsóknir, ásamt nauðsynlegum upplýsingum, sendist fyrir 10. mai n.k. til Gunnars Grimssonar starfs- mannastjóra Sambandsins, eða formanns félagsins, Sigurðar Jónssonar, Efra-Lóni. Stjórn Kaupfélags Langnesinga. — góður afli hjd Vestfjarðabótum GJ, REYKJAVIK — „Fjöldi fólks verður hér á isafirði um páskana", sagði Guðmundur Sveins- son, þegar Timinn hafði samband við hann á þriðju- daginn". Hingað komu tvær vélar fullar af fólki í gær, en þrjár munu koma í dag. Auk þess verður Gull- foss hér yfir hátíðarnar og með honum rúmlega 200 manns. Alls gizka ég þvi á aðnálægt400 aðkomumenn verði á isafirði yfir páskana". Skiðavikan á Isafirði hefst á skirdag. Þann dag byrjar einnig skiðalandsmót unglinga, en það verður haldið á Isafirði að þessu •Sj* SKIPAUTf.Eke RlKISINS M/S HEKLA fer frá Reykjavík fimmtu- daginn 26. þ.m. austur um land i hringferð. Vöru- móttaka á þriðjudag tii Austfjarðahafna, Þórs- hafnar, Raufarhafnar, Húsavikur, Akureyrar, Ólafsfjarðar, Siglufjarðar og Norðurfjarðar. M/S BALDUR fer frá Reykjavík fimmtu- daginn 26. þ.m. til Snæfells- ness-og Breiðafjarðarhafna. Vörumóttaka miðvikudag og til hádegis á fimmtudag. sinni. Kvöldvökur verða haldnar á Isafirði á fimmtudag og laugar- dag og mun Sunnukórinn koma fram á báðum þessum skemmt- unum. Mjög mikill snjór er nú á Isafirði og allar heiðar lokaðar, enaðstæður til skiðaiðkana prýði- legar. Ekki hefur veðrið þó verið nógu gott, en menn vona að úr rætist um páskana. Bátar frá Isafirði hafa aflað vel það sem af er þessum mánuði og hefur verið inikil vinna i ishúsunum. Hefur verið unnið við móttöku aflans langt fram á kvöld og einnig um helgar. Mikinn fjölda fólks hefur vantað til vinnu, þvi þrátt fyrir þetta mikla álag hefur vart tekizt að koma aflanum undan. Hefur verið farið með eitthvað af aflanum til Flateyjar, til að létta undir með Isfirðingum. Bátarnir hafa fengið 10-15 lestir i róðri og er megin uppistaðan i aflanum steinbitur. Þó er farið að bera meira á þorski i aflanum, nú upp á skiðkastiö. Skuttogarar Is- firðinga, þeir Guðbjartur, Július Geirmundsson og Páll Pálsson komu allir inn um helgina meö um 130 lestir hver, eftir viku túr. Þeir munu liklega ekki fara út aftur fyrr en eftir hátiðar. Frá Patreksfirði er sömu sögu að segja. Afli hefur verið góður að undanförnu. Þeir átta bátar,sem róa frá Patreksfirði hafa fengið þetta 10-15 lestir i róðri og hefur langmestur hluti aflans verið steinbitur. Engin leið hefur verið að taka á móti öllum þessum afla á Patreksfirði og er þó unnið eins og mögulegt er. Hefur orðið að gripa til þess ráðs að sigla með aflann til annar'ra hafna, en sakir mikilla anna alls staðar á Vest- fjörðum hefur reynzt erfitt að fá löndunaraðstöðu þar og hafa þvi sumir bátarnir orðið að fara með aflann alla leið til Siglufjarðar. AUGLÝSING UAA SVEINSPRÓF Sveinspróf i löggiltum iðngreinum fara fram um allt land i mai og júni n.k. Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að sækja um próftöku fyrir þá nemendur sina, sem lokið hafa námstima og burt- faraprófi frá iðnskóla. Umsóknir um próftöku sendist viðkom- andi prófnefnd fyrir 8. mai n.k., ásamt venjulegum gögnum og prófgjaldi. Meistarar og iðnfyrirtæki i Reykjavik fá umsóknareyðublöð afhent á skrifstofu Iðnfræðsluráðs, sem einnig veitir upp- lýsingar um formenn prófnefnda. Reykjavik 17. april 1973 IÐNFRÆÐSLURÁÐ Saab99 ÁRGERÐ 1973 Rýmri en aðrir bílar? Setjist inn í SAAB 99, takið með yður 4 farþega og sannfaerist um það sjálfir að SAAB er rýmri, það fer betur um fólkið. Allur frágangur er af fágaðri smekkvísi og vandaður. Sérbólsfruð sæti með völdu áklæði, öryggisbeltum og hnakkapúðum, og rafmagnshituðu bilstjórasæti. Mælaborðið er hannað með fyllsta akstursöryggi í huga, atlir mælar í sjónmáli ökumanns og fóðrað efni sem varnar endurskyni. „ÖRYGGI FRAMAR ÖLLU” SAAB 99 er öruggur bíll. Stálbitastyrkf yfirbygging verndar ökumann og farþegc. Fjaðrandi höggvari varnar skemmdum — SAAB þolir ákeyrslu á 8 km. hraða án þess að verða fyrir tjóni. Ljósaþurrkur tryggja fullt Ijósmagn ökuljósa við erfiðustu skyggnis- aðsfæður. SAAB 99 liggur einstaklega vel á vegi, er gangviss og viðbragðsfljótur. SAAB er traustur bíll, léttur í viðhaldi og í háu endursöluverði. “BJORNSSONA^ SKEIFAN 11 SÍMI 81530

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.