Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 18

Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 18
18 TÍMINN Fimmtudagur 19. april 1973. jUmsfón: Alfreð Þorsteinssón TELJA GEIR EINN AF BEZTU LEIKMÖNNUM EVRÓPU I DANSKA biaðinu Berlingske Tidende er viðtal við forráðamenn Stadion í tilefni af því, að Geir Hallsteinsson er væntanlegur til félagsins. I blaðinu er Geir talinn einn af beztu handknattleiks- mönnum Norðurlanda og jafnframt Evrópu. bað kemur fram i viðtalinu að forráöam. St'adion telja mikinn feng að fá Geir i sinar raðir, sér- staklega vegna þess, að búizt er við forföllum i liðið Stadion m.a. hyggur einn af þekktustu leikmönnum liðsins, Agger, á dýralækninganám á tslandi. t viðtalinu kemur fram, að forráðamenn Stadion töldu sig ekki geta veitt Geir neina sérstaka fyrirgreiðslu, umfram aðra leikmenn. Hins vegar leiðbeina þeir honum um ibúðar- húsnæði og útvega honum atvinnu. Danir styðja IBV myndarlega GEIR HALLSTEINSSON... er talinn einn bezti handknattleiksmaður Evrópu og þar með i heimi. OF SEIN A FERÐINNI Mótaskipulag knattspyrnunnar er I miklu fastari skorðum nú en áður. bað hefur bæði kosti og galia. Ýmsir aðilar, sérstaklega úti á lands- byggðinni, hafa vaknað við vondan draum. beim láðist að senda þátt- tökutilkynningar á tilsettum tlma, og naga sig nú i handarbökin, þvl aö mótanefnd telur sig ekki geta breytt neinu. Er vitað um a.m.k. fjögur liö úti á landi, sem áhuga hafa á þvl aö taka þátt I 3. deildar keppninni, en fá ekki að vera meö. SL. mánudag afhenti Einar Mathiesen, formaður Handknattleikssambands islands, Stefáni Runólfs- syni, formanni Iþrótta- bandalags Vestmannaeyja, peningaávisanir frá Danmörku að upphæð kr. 325 þús. ísl,m en það er ágóði af tveimur fjár- öflunarleikjum, sem fram fóru í Danmörku i vetur til ágóða fyrir Iþróttabanda- lag Vestmannaeyja. Fyrri fjáröflunarleikurinn var leikur, sem háður var i Arósum milli islenzka landsliðsins og Arhus KFUM. Hagnaður af þeim leik nam kr. 122 þús. Hinn leikurinn var milli Stadion og Frederica i 1. deildar keppninni og skilaði hann rúmum 200 þús. krónum. Einar Mathiesen gat þess, að leikmenn hefðu keypt sig inn á leikinn og starfsmenn gefið eftir vinnu sina. Stefán Runólfsson þakkaði þessar gjafir og bað forráöamenn HSl að skila þakklæti til danskra handknattleiksmanna. bá gat hann þess, að frá Holbæk i Danmörku hefðu komið rúml. hálf millj. króna, sem var ágóði af innanhúss knattspyrnumóti. íþrótta- hótíð á Selfossi MIKIÐ veröur um iþróttir um páskana á Selfossi. Ungmenna- félag Selfoss efnir tii íþróttahátlð- ar I tiiefni að Arvökunni. Veröur inargt á boðstólum og keppt i hin- um ýmsu iþróttum. tþróttamenn frá Reykjavik og Akranesi heim- sækja Selfyssinga og keppa við þá i sundi, badminton og knatt- spyrnu, þá koma fimieikamenn og glimukappar frá Reykjavik og sýna listir sinar. tþróttakeppnin hefst i dag (skírdag) kl. 16.00. bá keppa Sigurður Haraldsson og Haraldur Korneliusson i einliðaleik i bad- minton og siðan leika þeir gegn Selfyssingunum Kjartani Jóns- soni og David Wokes i tviliðaleik. Strax á eftir sýna glimumenn og fimleikaflokkur úr Reykjavik listir sinar. Sunnudagurinn 22. april (páska- dagur). Kl. 15. Viðavangshlaup Selfoss, þar sem keppt verður i þremur flokkum. 16 ára og yngri, kvenna- flokk og flokk karla. Kl. 16.00. Skákkeppni. Kl. 17.00. Bæjarkeppni i sundi á milli Selfoss og Akraness. Mánudagurinn 23. aprll (annar I páskum). Kl. 14.00. Knattspyrnuleikur, þar sem Selfoss mætir 1. deildar- liöi KR. Kl. 17.00. Páskamót i lyftingum. tþróttafólk frá Selfossi hefur lagt mikla vinnu i þetta íþrótta- mót, sem verður örugglega spennandi. ÍSLANDSAAOTIÐ í INNANHÚSS- KNATTSPYRNU ÍSLANDSMÓTIÐ i innanhúss- knattspyrnu fer fram um pásk- ana i Laugardalshöllinni. Mikil þátttaka er i mótinu aö sinni, sú mesta.sem hcfur veriö hingað til. Sýnir það, hvað vinsældir innan- hússknattspyrnunnar er orðin hér á landi. 24 lið taka þátt I karla- flokki og veröur keppt I átta riðlum. 12 lið taka þátt I kvenna- flokki og verður keppt I fjórum liöum. Raðað hefur verið niöur leikjun um og verða þeir sem hér segir: Fimmtudagur 19. april kl. 10.30 A riðill kvenna: Haukar —- UBK kl. 10.45 B riðill kvenna: bróttur — FH kl. 11.00 C riðill kvenna: IA —Vikingur kl. 11.15 D riðill kvenna: IBK — Armann kl. 11.30 A riðill karla: ÚBK — Armann kl. 13.30 B riðill karla: ÍS — Fram kl. 13.45 C riðiil karla: Víðir - IBK kl. 14.10 D riðill karla: Stjarnan — Njarðvik kl. 14.35 E riðill karla: Völsungur — Vikingur kl. 15.00 F riðill karla: Grótta — IA kl. 15.25 G riðill karla: bróttur N — Reynir kl. 15.40 H riðill karla: bróttur R — Fylkir kl. 16.05 A riðill kvenna: ÚBK — Grindavik kl. 16.20 B riðill kvenna: FH — Stjarnan kl. 16.35 C riðill kvenna: Fram — 1A kl. 16.40 D riðill kvenna: Víðir — IBK kl. 17.05 A riðill karla: Armann — IBV kl. 17.30 B riðill karla: Hrönn — IS kl. 17.55 C riðill karla: KR - Viðir kl. 20.00 D riðill karla: Njarðv. — Afturelding kl. 20.25 E riðill karla: Haukar — Völsungur kl. 20.40 F riðill karla: IA — Grindavik kl. 21.15 G riðill karla: Valur — bróttur N kl. 21.40 H riðill karla: Fylkir — FH Laugardagur 21. april kl. 13.00 A riðill konur: Grindavik — Haukar kl. 13.15 B riðill konur: Stjarnan — bróttur kl. 13.30 C riðill konur: Vikingur — Fram kl. 13.45 D riðill konur: Armann — Viðir kl. 14.10 A riöill karla: IBV — UBK kl. 14.35 Briöill karla: Fram — Hrönn kl. 15.00 C riðill karla: RBK —KR kl. 15.25 D riöill karla: Afturelding — St jarnan kl. 15.40 E riðill karla: Vikingur — Haukar kl. 16.05 F riðill karla: Grindavik — Grótta kl. 16,30 G riðill karla: Reynir — Valur kl. 16.55 H riðill karla: FH — bróttur R Úrslitin fara fram mánudaginn 23.april. (annan ipáskum) og hefjast þau kl. 13.30 og reiknaö er með að þeim ljúki kl. 17.00. Fyrsti leikurinn í 1. deild 19. maí Á blaðamannafundi, sem KSÍ hélt fyrr i vikunni, kynnti Jens Sumarliðason, for- maður mótanefndar KSI, niðurröðun knattspyrnuleikja 1973. Hefur móta- nefndin gefið út myndarlega mota- skrá, sem kemur út talsvert fyrr en áður. Er það til mikils hagræðis fyrir knatt- spyrnumenn. Fyrsti leikurinn i 1. deild i ár verður 19. mai, en þá leika Fram og Akureyri á Laugardalsvellinum. Skíðatrimm um páska Skiðafélag Reykjavikur og Iþróttafélag kvenna efna til trimm-göngu á skiðum um pásk- ana i Bláfjöllum og I Skálafelli. Lagðar verða göngubrautir hæfi- legar fyrir allan almenning, greinilega merktar og ekki of langar. I Bláfjöllum verður trimm- gangan á skirdag og páskadag og hefst báða dagana kl. 2. Göngu- stjórar verða hinir góðkunnu og gamalreyndu skíðamenn Jónas Asgeirsson og Skarphéðinn Guð- mundsson. I Skálafelli við skiðaskála Iþróttafélags kvenna verður gangan hins vegar daglega frá þvi á skirdag og fram á 2. páska- dag. bátttakendur i þessum skiða- göngum, sem eins og að framan segir geta verið á öllum aldri, fá að göngu lokinni afhent sérstök merki til að festa i blússur sinar eða peysur. Boersma skoraði tvö mörk Liverpool nólgast Englandsmeistara- titilinn LIVERPOOL náði mjög þýðingam iklum stigum á þriðjudagskvöldið, þegar liðið heimsótti Coventry. Phil Boersma, var maður leiksins, hann skoraði bæði mörk Liverpool-liðsins, sem er nú búið að taka örugga forustu I hinni hörðu baráttu um Englandsmeistara titilinn. Rétt fyrir leikslok tókst leik- mönnum Coventry að minnka muninn i 2:1. Mark liðsins skoraði Alderson. bá tókst Everton að sigra Chelsea 1:0 á þriðjudagskvöldið og er nú orðið langt siðan að Chelsea hefur unnið Ieik. Staðan er nú þessi í 1. deildinni. Liverp. 39 24 9 6 69:40 57 Everton 39 13 9 17 40:46 35 Coventry 39 13 9 17 39:47 35 Chelsea 39 10 14 15 44:50 34 PHIL BOERSMA skoraði tvö mörk gegn Coventry.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.