Tíminn - 19.04.1973, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Fimmtudagur 19. april 1973.
— Ekki veit ég, hvernig við
ættum að fara að, ef við hefðum
hann ekki við höndina, sagði
Jana. — Hann hefur aldrei boðið
mér út fyrr, og ég ætla að fara
með honum hvað sem hver segir.
En þrátt fyrir allt fór hún ekki á
dansleikinn.
9.
A laugardagsmorgun var Lea
orðin svo hress, aðhún heimtaði
að sér yrði ekiö út á Höfðann til
þess að fá friskt loft. Það hafði
rignt ofurlitið um nóttina, svo þaö
glitraði á gras og runna i morgun-
sólinni. Frá Höfðanum sást langt
á haf út, en að neöan lá þoka yfir
haffletinum. Allt var svo kyrrt og
hljótt, að Sheridu fannst sem hún
heföi fyrir framan sig málverk á
þili.
— Mallory og Jana óku hjóla-
tólnum út á Höföann.
— Akiö mér alla leið útá
brúnina, sagði Lea. Lungu min
eru hlaðin innilokuðu svefn-
herbergislofti.
— Ég kem i hádegismatinn,
sagði Mallory. — Það verður
áreiðanlega ágætis veður, i
allan dag, svo þú hefur ekki nema
gott af þvi að vera sem mest úti.
Bless á meðan.
Ég vildi bara óska aö ekki yrði
þoka, ef þú kemur seint heim,
Jana, sagði Lea fremur þreyti-
lega.
— Það skiptir ekki máli, Simon
þekkir hvern einasta stig.
— Auðvitað, en ég vil samt ekki
treysta þvi fullkomlega. Röddin
var eitthvað svo undarleg, að
Jana hvessti á hana augun.
— Er nokkuð að, Lea? Vonandi
hefurðu ekkert á móti þvi að ég
fari út með Simoni i kvöld?
— Ég er alheilbrigð, að minnsta
kosti likamlega, en aðrar
tilfinningar minar talar maður
ekki um.
— Hvað meinarðu með „aðrar
tilfinningar”?
Lea bandaði hendinni eirðar-
leysislega. — Mitt vitleysislega
imyndarafl, en það er ekkert
atriði. Þaö var það sem ég sagði.
Það er þögnin, sem gerir mig
órólega.ég hata fjöllin og hafið i
þessari dauðaþögn, Ég vildi bara
óska að morgundagurinn væri
kominn og að þú værir komin heil
heim aftur.
— En hvers vegna? Hvað
meinarðu meö „heil heim”? Jana
horfði vansæl á hana.
— Kæra Jana, ég meina ekki
það sem þú heldur. Ég treysti
Simoni fullkomlega undir öllum
kringumstæðum, og það sem ég
sagði snertir hann þvi alls
ekki.Jana, manstu eftir óheilla-
deginum? Manstu þegar við
sátum að morgunveröinum? Þú
varst ekki gömul þá, en samt held
ég að þú munir það, sem ég sagði
þegar við stóðum upp frá borðinu.
— Já, þvi gleymi ég aldrei,
sagði Jana lágt. — Þú sagðir:
„Þetta er yndislegur dagur, en ég
vildi óska þess að hann væri lið-
inn”. Hefurðu virkilega eitthvað
svipað á tilfinningunni núna?
— Ég reyni eins og ég get að
hugsa ekki eins og kjáni. En mér
varð talsvert hverft við, þegar
þessar sömu hugsanir komu yfir
mig i dag. Það er auðvitað aðeins
veörið sem veldur þessu. Biddu
Simon aö aka gætilega, og
hringdu til min þegar þið komið á
hótelið, og eins þegar þið leggið af
stað heim. Ég er aöeins þreytandi
og nöldursöm stjúpmóðir — jú, ég
veit það vel. Það eina, sem ég bið
þig um er aö hringja til min. En
nú held ég að við verðum aö hafa
okkur inn.
Sherida stóð i skálanum þegar
Jana kom út frá Leu. — A ég að
hjálpa þér við kjólinn? spurði
hún.
Það liðu nokkur augnablik áður
en Jana svaraði kuldalega og
ákveöið: — Þakka, en þess gerist
ekki þörf. Ég fer ekki meö Si-
moni.
— Hvað ertu að segja? Er Lea
orðin veik aftur? spurði Sherida
agndofa.
— Nei, hún er vel frisk. Ég verð
að hringja til Simonar og segja
honum frá þessu.
— En hvaö er það þá, sem er til
fyrirstöðu?
— Það væri ekki rétt af mér að
fara. Það er Lea, sem ég verð að
taka tillit til. Hún er búin að fá yf-
ir sig sömu tilfinninguna og
óheilladaginn forðum, — að eitt
hvað voðalegt vofi yfir mér.ef ég
fer þetta. Ég get ekki farið út með
Simoni og látið hana sitja uppi
vakandi og biða þess að eitthvað
voðalegt komi fyrir.
— En Jana, þá.....
Fortölur dugðu engar. Jana var
komin i simann og var að biðja
ráöskonu Simonar fyrir þau
skilaboð aö hún gæti þvi miður
ekki fariö á ballið með honum, þvi
að hún hefði óþolandi tannpinu.
Lea varð mjög vansæl þegar
Sherida sagði henni að Jana væri
hætt við að fara með Simoni. Hún
notaði hin hörðustu orð um það,
sem hún kallaði „kjánalega
taugaveiklun og óheilla-hug-
myndaflug”. Þegar Simon leit inn
litlu seinna, sagði hún honum svo
alla söguna.
Simon sagði ekkert, en niður-
dreginn var hann þegar hann fór.
Lea hefði ekki átt að segja honum
frá þessu, hugsaði Sherida, nú má
hann halda að Jana sé móður-
sjúkur stelpukjáni.
10.
Sherida gat ekki sofnað. Þegar
á kvöldið leið var kominn storm-
ur, sem stöðugt virtist færast i
aukana. Húsið var alveg á ber-
svæði, og Sherida fann að það
nötraði i mestu stormhviðunum.
Við og við kom máninn áfleygiferð
undan æðandi skýjum og kastaði
ömurlegri birtu yfir land og sjó.
Ot um gluggann sinn gat Sherida
séð kirkjuturninn gnæfa yfir trjá-
toppana baðaða i blágulu tungls-
ljósi. Það fór hrollur um hana.
Hún náði sér i bók, þvi að hún
fann, að henni mundi ekki koma
dúr á auga á meðan stormurinn
léti svona. Allt i einu heyrði hún
fótatak i stiganum og flýtti sér út
á ganginn. Þar stóð Mallory og
var að leita i klæðaskáp. — Er
eitthvað að? Er Lea veik? spurði
hún með öndina i hálsinum.
Nei, nei, það er bara Judy, upp-
áhaldshundur Leu, sem er komin
að þvi að eiga hvolpa. Ég ætla
mér niður til hennar, ef ég gæti
hjálpað henni eitthvað, hvislaði
hann brosandi.
— Aumingja Judy! Get ég
nokkuð hjálpað. Ég get hvort sem
er ekki sofnað i þessu veðri.
— Þakka þér fyrir, en það er
ekkert vit i þvi að þú sért að fara
út i þennan bandviflausa storm.
— Það skiptir engu máli. Ég fer
i gamla regnkápu, og ekki er
■ langt út i bilskúrinn.
— Gott, ágætt, geturðu komið
með volgt vatn með þér, sagði
hann, og laumaði sér út.
Sherida gekk framm i eldhúsið
og fann eina tvo hitabrúsa, sem
hún fyllti af vel volgu vatni,
slökkti ljósin og læddist út.
Það var myrkur i svefnher-
bergi Leu. Hún lá i sinu, háa, sér-
staklega gerða rúmi, og andaði
rólega. Hér heyrðist ekki eins
mikið á eins og uppi á loftinu, en
hún hafði samt ekki getað sofnað,
og tók nú á öllum sinum vilja-
mætti til þess að taka ekki eina
svefntöfluna til.
En nú óskaði hún sér engrar
svefntöflu, nú vildi hún ekki
sofna. Hún hlustaði af hinum
mesta ákafa á fótatak, sem hún
heyrði i húsinu. Mallory hafði
gengið um húsið og svo út, komið
inn aftur og gengið upp stigann.
Þá hefðu opnast dyr mjög hljóð-
lega, og gengið var niöur stigann
léttum skrefum, siðan inn i eld-
húsið, og svo i einni vindhviðunni
opnuðust dyrnar út i garðinn og
lokuðust jafnharðan aftur.
Sherida hafði farið út um miðja
nótt á eftir Mallory. Lea settist
upp i rúminu og teygði sig eftir
epli, en epli lá ævinlega á nátt-
borðinu hennar. En i þetta sinn
rak hún höndina þannig i það, að
það valt niður á gólfiö.
Hún skalf af reiöi, sem hún lá
þarna lömuð og alveg hjálpar-
laus. Hvert sinn, sem hún missti
eitthvað á gólfið, var hún minnt á
eymd sina, og varð þá ævinlega
ofsalega reið við þessa dauðu
hluti, sem pindu hana með þögl-
um fjandskap.
Dyrnar inn til hennar opnuðust
og hún kveikti á náttlampanum.
Kristin stóð i dyrunum i þunnum
náttkjól og með klút um hálsinn.
— Kæra Kristin min, hvað ertu
að gera hér?
— Ég vona að ég hafi ekki vakið
þig? Ég fann á mér að þú lást
vakandi og þurftir hjálpar við.
Svo heyrði ég að eitthvað datt á
gólfið, hvislaði Kristin.
— Það var nú bara epli, viltu
taka það upp fyrir mig?
1389
1389 Krossgáta
Lárétt
1) Arar.-6) Svik,-8) Uss.- 10)
Sannfæring,- 12) Fæði.- 13)
Bar,- 14) Nögl,- 16) Svif.- 17)
Andi,- 19) Fjandi,-
Lóðrétt
2) Utanhúss.- 3) Stafur.- 4)
Rödd,- 5) Ódæl.- 7) Trantar,-
9) Stafur,- 11) Kaffibætir,- 15)
Reykja,- 16) Fiska.- 18) Borð-
hald.
Ráðning á gátu no. 1388
Lárétt
1) Aldin,- 6) Jól.- 8) Ská,- 10)
Löt,- 12) Ká,- 13) ÖO,- 14)
Ata,- 16) Lön,- 17) Kró,- 19)
Vitur,-
Lóðrétt
2) Ljá,- 3) Dó.- 4) 111.- 5)
Askar,- 7) Stöng,- 9) Kát.- 11)
OOO.- 15) Aki,- 16) Lóu,- 18)
RT,-
Þá eru þeir Ekki hérna
afgreiddir i bili, '4 'Skúrky.
Kozy. Eigum við að;
gera út af viö þá.
IIII lanSHI I
|| FIMMTUDAGUR
|| 19. apríl. Skírdagur.
|| Sumardagurinn fyrsti.
Sjijí:; 8.00 Heilsað sumri. a. Avarp
jjjjjjjjj útvarpsstjóra, Andrésar
jjijjjjj: Björnssonar. b. Sumar-
jijjijij; komuljóð eftir Matthias
jjjijijij Jochumson, lesið af Herdisi
ííii? Þorvaldsdóttur leikkonu. c.
ijjjijjji Vor- og sumarlög.
jiiijiiij 9.00 Fréttir. Útdráttur úr for-
jijijiji; ustugreinum dagblaðanna.
ijijijiji 11.00 Skátaguðþjónusta I
Íj?í Háskólabíói. Prestur: Séra
jijiji.íj Jónas Gislason. Organ-
m leikari: Jón Stefánsson.
jijijiji Skátakór syngur.
m 12 00 Dagskráin. Tónleikar.
ijijijijj Tilkynningar.
jijijiji; 12.25 Fréttir og veðurfregnir.
jijjijijj Tilkynningar.
jjijijjj: 12.50 A frivaktinni. Margrét
jijijijij Guðmundsdóttir kynnir
jijijijij óskalög sjómanna.
14.00 Kjarninn úr verkum
jjjjjjjj; Gunnars Gunnarssonar.
Hjörtur Pálsson les fyrri
:i;i;i;i; hluta erindis eftir Kristinn
jijijijj E. Andrésson magister.
ijiiijji (Siðari hlutinn fluttur á
jjijiiji annan páskadag).
iijiíi 15.00 Miðdegistónleikar, frá
jijijiji tónleikum Sinfóniuhljóm-
iíííí sveitar Islands 29. marz s.l.
16.00 Fréttir.
jijijijij 16.15 Veðurfregnir
ijijijij: „Godspell” rokkópera
ijijijjj: byggð á efni Mattheusar-
ijijiií guðspjalls. Höfundur tón-
jjijjji; listar og ljttðtexta: Stephan
m Schwartz. Enskir listamenn
jijiji;! flytja undir stjórn höfundar.
iiiiiji; Orn Petersen kynnir.
ijijijij 17.00 Barnatimi: Hrefna
Tynes stjórnar, i samvinnu
M við æskulýðsstarf þjóð-
ijijij; kirkjunnar og Barnavina-
jjji;;; félagið Sumargjöf. a.
Wji Vorkoman i tónum og tali.
!;!;!;;: M.a. syngja börn i skóla-
jjjijjj dagheimilinu við Skipa-
iijij!;; sund. b. Söngur og samtöl.
ijijijij c. Útvarpssaga barnanna:
jjiiiji „Lambið litla” eftir Jón
i;i|i Sveinsson. Freysteinn
jijiii; Gunnarsson isl. Hjalti
;!;!;!; Rögnvaldsson les.
ijjjjjj 18.00 Eyjapistill. Bænarorð.
i;!;ij! Tónleikar. Tilkynningar.
iiiiji; 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
ijijij! kvöldsins.
ijijiji 19.00 Fréttir. Tilkynningar.
ijiji; 19.20 Daglegt mál. Indriði
ijiji; Gislason lektor flytur þátt-
|;i;i; inn.
jijijii 19.25 Glugginn. Umsjónar-
iijijji menn: Gylfi Gislason,
Íjjijii Sigrún Björnsdóttir, og
Guðrún Helgadóttir.
ijiiij 20.05 Leikrit: „Kameliufrúin”
jijjjj eftir Alexandre Dumas.
jijiji Gunnar Róbertsson bjó til
jijiji leikflutnings. Þýðandi og
i;i;!; leikst jóri: Sveinn Einars-
jiiii; 22.00 Fréttir.
ijijij 22.15 Veðurfregnir.
ijijji 20.20 „Kristur á Oliufjaílinu”.
jijii; Óratoria op. 85 eftir Ludwig
i!;ij! van Beethoven. Flytjendur:
!;!;!; Agnes Giebel, Ernst Haflig-
ijiji; er, Jacob Stampfli, borgar-
:j;j;j kórinn og hljómsveit
ijjiji Beethovenhallarinnar i
ijijij Bonn. Stjórnandi: Volker
jjji; Wangenheim.
i;!;i 23.15 Fréttir i stuttu máli.
iijii Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR 20. apríl
Föstudagurinn langi
jjjiji 9.00 Morguntónieikar (10.10
jijijj 11.00 Messa i Bústaðakirkju
;:;!;: Prestur: Séra Guðmundur
ijijij Þorsteinsson. Organleikari:
!;!;!; G e i r 1 a u g u r Ar n a s o n .
jijij Kirkjukór Árbæjarpresta-
!;!;! kalls syngur.
;!;!; 12.00 Dagskráin. Tónleikar.
jijjj 12.15 Fréttir og Veðurfregnir.
i;!;i Tónleikar.
jjjjji 13.00 Að norðan — samsett
dagskrá frá AkureyriJón G.
Sólnes bankastjóri talar um
leiðsögn kirkjunnar og sam-
band kynslóðanna, Edda
Eiriksdóttir skólastjóri um
þátt bænarinnar i uppeldi
barns og Gauti Arnþórsson
yfirlæknir um trúnaðar-
traustið. Heiðdis Norðfjörð
les ljóð eftir Davið Stefáns-
son frá Fagraskógi. Einnig
verður flutt tónlist.