Tíminn - 18.05.1973, Blaðsíða 3
Föstudagur 18. mai 1973
TÍMINN
3
Tlmamynd Gunnar
Frá þingi Landssambands siökkvilibsmanna
Slökkviliðsmenn mynda landssamtök
Dagana 12-13. mai var haldiö
stofnþing Landssambands
Slökkviliösmanna aö Hótel Esju.
Slökkviliösmenn víös vegar af
landinu voru mættir til þessa
þings og rikti mikill einhugur um
stofnun þessa sambands. Mættir
voru um 70 slökkviliösmenn.
Tilgangur sambandsins er:
a) Aö sameina i eitt samband
alla slökkviliösmenn, með þaö
sem höfuðmarkmið aö vinna aö
hagsmunamálum þeirra.
b) Aö gangast fyrir stofnun aö-
ildarfélaga á öllu landinu. Þau fé-
lög, er fyrir eru, halda sér
óbreytt.
c) Veita félögum alla þá aöstoð,
sem Sambandið getur i té látið, og
halda uppi sem nánustum tengsl-
um viö þau, og gefi út fréttablaö
minnst einu sinni á ári.
d) Sambandið mun koma fram
af hálfu aðildarfélaganna, i sam-
skiptum viö önnur heildarsamtök
og opinber yfirvöld. Aö vinna aö
aukinni starfsmenntun slökkvi-
liösmanna, svo og annarri starfs-
þjálfun meöal annars með þvi aö
gangast fyrir hvers konar
fræðslustarfsemi, i samráöi viö
opinbera aðila, svo sem Bruna-
málastofnun rikisins, Almanna-
varnir, Flugmálastjórn, Bæjar-
og sveitarfélög o.fl.
e) Aö beita sér fyrir aukinni
fræöslu almennings i eldvörnum,
meö þvi meðal annars, aö gefa út
eða stuðla aö útgáfu blaða, bóka
og ritlinga og láta flytja i frétta-
miðlum skýrslur, fréttir, ritgerö-
ir og greinar er samtökin varöa.
1 stjórn sambandsins voru kosn-
ir eftirtaldir menn. Guðmundur
Haraldsson form., Sigurjón
Kristjánsson varaform., Böðvar
Amundason gjaldk., Armann
Pétursson ritari, Guðmundur
Jörundsson fjármálaritari,
Hreggviöur Guögeirsson meö
stjórnandi, Bjarni Eyvindsson
meöstjórnandi, Þórhallur Dan
Kristjánsson varam., Magnús
Guömundsson varam.
Skákkeppni í Skagafirði
jó—Sauöárkróki. — Skáklif
hefur veriö meö mesta móti I
Skagafirði á liönum vetri. Fyrsta
meiriháttarkeppnin fór fram 27.
ies. I Héðinsminni milli Austan-
Dg Vestanvatnamannanna. Hér-
aösvötn hafa frá fornu fari veriö
5ú markallna, sem dregin hefur
veriö er héraösbúar hafa skipt sér
i flokka til keppni og hafa hesta-
menn ekki hvaö slzt veriö I farar-
broddi hvaö þaö snertir. Keppt
var á 17 boröum og sigruöu Vest-
anvatnamenn meö 11 vinningum
gegn 6.
Hin árlega sveitarkeppni Ung-
mennasambandsins fór fram I
aprllmánuði. Keppt var um mjög
veglegan farandgrip, riddara-
styttuna, sem A-sveit Ungmenna-
félagsins Tindastóls hlaut meö
nokkrumyfirburöum annaö árið i
röö 1 ööru sæti varö sveit frá Ung
mennafélaginu Glóðafeyki i
Slönduhliö. B-sveit Tindastóls
hlaut þriöja sætiö.
Hraðskákkeppni
Aö lokinni sveitarkeppninni fór
fram keppni um hraöskákmeist
aratitil Ungmennasambands
Skagafjaröar. Um alllangan tlma
hefur veriö í umferö farandgrip-
ur, sem engum hefur ennþá tekizt
aö vinna til eignar. Aö þessu sinni
sigraði Jóhann Pétursson Glæsi-
bæ með 10 vinningum og hlaut
Útvarpsskdk Noregs
og íslands hefst með
Najdorfafbrigði
af Sikileyjarvörn
A FÖSTUDAGSKVÖLD hefst
flutningur útvarpsskákar, sem
norska og islenzka rikisútvarpið
gangast fyrir. Fyrir tslands hönd
teflir Gunnar Gunnarsson starfs-
maður I Útvegsbanka tslands, en
af hálfu Norðmanna Terje Vibe.
Nokkrir fyrstu leikirnir hafa
þegar verið tefldir. Gunnar fór út
til Noregs i þvi skyni og tefldi við
Terje Vibe i útvarpssal, en skák-
inni verður ekki útvarpað í
Noregi fvrr en á föstudag, eins og
hér. Að sögn Gunnars er byrjun
þessi skemmtileg og einmitt i
tizku um þessar mundir, Najdorf
afbrigöi af Sikileyjarvörn og eins
og ein skákanna, sem Fischer og
Spasski tefldu hér i fyrrasumar i
heimsmeistaraeinviginu, og lauk
með jafntefli. Gunnar dró svart,
og leikur þvihlutvcrkFischers ef
svo má aö orði komast.
Terje Vibe er Noregsmeistari i
skák frá 1971 og aðeins 25 ára
gamall. Hann starfar á rafreikni-
stofu i Osló.
Þeir Gunnar hafa áður teflt
hvor við annan. Það var i Havaná
1966 og sigraði Terje Vibe i þeirri
viðureign.
.Gunnar Gunnarsson varð
Islandsmeistari i skák 1966 og
hefur tvivegis verið i Olympiuliði
okkar i skák, en hann er einnig
gamall landliðsmaöur i knatt-
spyrnu og félagi i Val.
Þetta er i annað sinn, sem
islenzka „útvarpiö er aðili að
skákkeppni við erlenda útvarps-
stöð. 1 fyrsta skiptið 1962 var út-
varpsskákin einnig milli
Noröm.og tslendings og tefldi
Ingi R. Jóhannsson þá við Svein
Jóhannessen. Vann Ingi taflið.
Norðmenn hafa hins vegar oft
efnt til útvarpsskáka við önnur
lönd, eða 12 sinnum. Flest norsku
blöðin munu birta leiki þessarar
útvarpsskákar jafnóðum og
væntanlega islenzku blöðin
einnig.
I kvöldfréttum á föstudag verða
birtir fimm fyrstu leikir þeirra
Gunnars og Terje Vibe og þeim
lýst, en siðan einn leikur á dag til
skiptis. Ef leikirnir berast nógu
snemma verða þeir birtir i
hádegisútvarpi og endurteknir i
sjöfréttum.
,,Ég hef orðið að fá me'r
aðstoðarmann, bækur og afla mér
nýjasta fróðleiks vegna þessarar
keppni”, sagði Gunnar Gunnars-
son i gær, „það þýðir ekki annað
en að reyna að gera sitt bezta. En
við vorum sammála um það við
Terje Vibe, að óskandi væri að
skákin yrði ekki alltof löng, eins
og skák þeirra Spasskis og
Fischers. Terje Vibe er raunar
kunnur að þvi að fara ótroðnar
slóðir og er dálitið brellinn, svo
þetta verður vonandi spennandi
-viðurureign”.
— SJ
farandgripinn I fyrsta sinn. 1 ööru
til þriðja sæti urðu Gunnlaugur
Sigurbjörnsson og Höröur Ingi-
marsson, báðir með níu vinninga.
Skagfirðingar
sigruðu
1. mai mætti 20 manna sveit frá
Ungmennasambandi
Austur-Húnavatnssýslu, Ung-
mennasambandi Skagafjarðar til
leiks i Miðgarði við Varmahlíö.
Aratugur er nú slðan að slik
keppni hefur fariö fram. Keppnin
var mjög jöfn og spennandi, en að
lokum var ljóst oröið að Skag-
firðingar höfðu jafnari sveit á aö
skipa og sigruðu þeir með 11 1/2
vinningi en Húnvetningar hlutu 8
1/2 vinning.
Bridgekeppni
Um páskana fór fra hraðkeppni
ibridgeá vegum Ungmennasam-
bands Skagafjarðar. Slik keppni
er ný af nálinni i Skagafirði. Alls
tóku 11 sveitir þátt i keppninni,
sem fór fram i Miðgarði viö
Varmahlið. Þótti keppni þessi
takast hið bezta. Sveit Gunnars
Þórðarsonar, Sauðárkróki, sigr-
aði. Annað sætiö hlaut sveit
Baldurs Bjartmarssonar,
Varmahliö og þriðja sætið sveit
Hjálmars Guömundssonar,
Lýtingsstaöahreppi. Keppnistjóri
var Albert Sigurðsson, Akureyri.
Borgfirðingar sigruðu
i sveitakeppninni
Dagana 10. til 13. mai fóru fram
undanrásir á skákþingi
Ungmennafélags Islands i Fram-
sóknarhúsinu á Sauðárkróki.
Eftirtaldir aðilar sendu sveitir:
Borgfiröingar, Húnvetningar,
Skagfirðingar og Eyfirðingar.
Úrslit urðu þau að UMSB hlaut 7
1/2 vinning. UMSE 6 1/2 vinning.
USAH 5 1/2 vinning og UMSS 4 1/2
vinning. Árangur Borgfiröing-
anna var mjög góöur. Þeir unnu 4
skákir,gerðu 7 jafntefli og töpuðu
aðeins 1 skák. Sveitina skipa Jón
Þ. Björnsson,Askell örn Kárason,
Helgi Helgason og Eyjólfur
Geirsson. Tvær efstu sveitirnar
munu á næstunni mæta i úrslita-
keppni skákþings UMFt.
Nýr formaður UMSS
A siðasta þingi UMSS, sem
haldið var i marz sl. urðu þær
breytingar aö Guöjón
Ingimundarson, sem veriö hefur
formaður sambandsins I 29 ár,
baöst eindregið undan endur-
kosningu. Alls sat Guðjón 31 ár i
stjórn sambandsins. Voru honum
færðar þakkir fyrir einstak-
lega vandvirknisleg og alúðleg
unnin störf. Við formannsstarfinu
tók Stefán Pedersen, sem um
nokkurt árabil hefur setið i stjórn
sambandsins. Stefán var m.a.
framkvæmdastjóri landsmótsins,
sem fram fór á Sauðárkróki 1971,
sem þótti takast mjög vel.
Þykir það mikill styrkur er svo
reyndur félagsmálamaður tekur
við formannsstarfi i samtökum er
hafa áhrif inn á hvert einasta
heimili i sýslunni.
Kári sýnir í
Myndlistarhúsinu
KÁRI Eiriksson listmálari opnar
á morgun (laugardag) 19. mai
málverkasýningu i Myndlistar-
húsinu á Miklatúni. Sýnir hann
þar 79 oiiumálverk máluð á
siðastliðnum fjórum árum. Er
þetta þar með fyrsta einkasýning,
sem haldin er i hinu nýja húsi.
Sýningin verður opnuð almenn-
ingi kl. 4 og stendur i aðeins
rúma viku, eða til sunnudags-
kvölds 27. mai. Vegna fundar
þeirra Nixons og Pompidous á
sama stað verður sýningin ekki
framlengd.
Kári Eiriksson.
Tvískinnungur
Sjálfstæðisflokksins
ÞAÐ ERU FAIR, sem taka
mark á þvi, sem forystumenn
Sjálfstæöisflokksins segja og
skrifa þessa dagana. Sem
betur fer verður að segja,
vegna þjóðarhagsmuna, þvi
að gerðu menn það almennt
hefði Sjálfstæðisflokknum og
málgögnum hans fyrir löngu
tekizt að kljúfa og sundra þjóð
inni I mestu hagsmunamálum
hennar, þar sem sigur vinnst
aðeins að þjóðin standi saman,
enda er hún staðráðin I að
gera það, þrátt fyrir öll sund-
rungar- og æsiskrif Morgun-
blaðsins.
Eins og kunnugt er hefur
Mbl. deilt harðiega á ríkis-
stjórnina fyrir að vera ekki
búin að semja viö Breta og
Vestur-Þjóðverja um land-
helgismálið — og hefur ekki
verið annað að skilja á þeim
oðrum, en þaö væri álit Mbl.
að semja ætti á grundvelli
þeirra tilboða, sem þessir
andstæðingar okkar i land-
helgisdeilunni hafa lagt fram
til bráðabirgðasamkomulags.
Má I þessu sambandi benda á
niöurlagsorö Reykjavikur-
bréfs Mbl. sl. sunnudag, þessu
til sönnunar, en þá fékk ríkis-
stjórnin heldur óbliðar
kveöjur og var taiin óalandi
og óferjandi fyrir að hafa ekki
þegar samið við Willy Brandt
um máliö.
En Sjálfstæöismönnum
þykir sér jafnan henta að tala
tungum tveim, og það má sjá
af ýmsu, þótt þeir heimti
samninga við Vestur-Þjóö-
verja og Breta, þá muni þeir
ætla scr að gagnrýna samn-
ingana ef af þeim veröur, og
telja rikisstjórnina hafa svikið
i landhelgismálinu. Smjör-
þefinn af þessunt undir-
búningi má finna I forystu-
grein Suðurlands, sem
væntanlega er rituð af rit-
stjóra og ábyrgðarmanni
blaðsins, Ingólfi Jónssyni,
fyrrverandi viöreisnarráð-
herra. Þar segir m.a.:
„Rikisstjórnin hefur bognað
og gefizt upp I mesta hags-
munamáii þjóðarinnar.
Brctar munu bráðlega ganga
að tiiboði islenzku rlkis-
stjórnarinnar. Bretar hafa að
vfsu ennþá talið vera lág-
mark, að þeir fái leyfi til þess
að veiða 145 þús. smálestir ár-
lega. En brezkir togaraút-
geröarmenn og togaraskips-
tjórar hafa nú þegar áttaö sig
á þvi, að lsiendingar hafa
enga möguleika á að fyigjast
meö þvi, hve mikið aflamagn
fæst innan 50 mílna linunnar.
Þegar togararnir koma heim
til brezkra eða vestur-þýzkra
hafna geta þeir gefið upp afla-
magn, eftir þvi, sem við á”.
Tungur tvær
Nokkru siðar I greininni
segir, að bezta stefnan sé að
komast hjá þvi að semja við
Breta og Vestur-Þjóðverja!!
Þannig hljómar tvisöngur
Sjálfstæðisflokksins f land-
helgismálinu.
Gott hefði veriö, að Mbl.
hefði skrifaö I þessum
Ingólfs-dúr þegar frá upphafi
ákvöröunar um landhelgis-
máliö. Þá hefði Mbl. ekki gefið
Bretum si og æ i skyn, cins og
raunin hefur oröið á, að þaö
væri rikur vilji hjá islenzku
þjóðinni að ganga langt til
samninga við Breta og
Vestur-Þjóöverja. Það væru
bara örfáir vondir menn I
rikisstjórninni, sem kæmu i
veg fyrir það, aö þjóðarviljinn
næði fram að ganga. En bezt
væri fyrir Breta aö sýna þolin-
ntæöi og bara blða þess, aö
þessi rfkisstjórn færi frá, þvl
að Mbl. hefur boöaö það svo til
daglega siðan rikisstjórnin
kom til valda, aö hún væri I
þann veginn að segja af sér.
Þvi miður virðast Bretar taka
of mikið mark á Mbl. Þaö
sýnir þrjózka þeirra I baráttu
fyrir töpuðum málstað. TK