Tíminn - 18.05.1973, Page 9
Föstudagur 18. mai 1973
TÍMINN
9
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Heigason, Tómas Karlsson,
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsbiaðs Timans).
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gíslason. Ritstjórnarskrif-
stofur I Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif-
stofur I Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusfmi 12323 — aug-
lýsingasfmi 19523. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands,
i lausasölu 18 kr. eintakið.
Blaðaprent h.f
- . ■ -
Undanhalds-
skrif AAbl.
Ef farið væri eftir þeim skrifum, sem nær
daglega gefur að lesa i Morgunblaðinu, ættu fs-
lendingar tafarlaust að beygja sig fyrir yfir-
gangi Breta og fallast á þau tilboð, sem Bretar
hafa gert okkur. Þá ættum við að falla frá
höfuðkröfu okkar um tölu og stærð þeirra
togara, sem séu heimilaðar veiðar, en hingað
til hafa Bretar ekki gengið til móts við hana,
nema að litlu leyti. A sama hátt ættum við að
falla frá kröfu okkar um eftirlit, en á það hafa
Bretar ekki viljað fallast. Við ættum á sama
hátt að láta Breta ráða þvi, á hvaða tima hin
einstöku hólf skuli vera lokuð eða ekki. Við
ættum bar að hneigja okkur fyrir farman lafði
Tweedsmuir og segja: Verði þinn vilji.
Á annan veg verða vart skilin þau skrif Mbl.,
að Islendingar séu að tapa i landhelgisdeilunni.
Landhelgisgæzlan hafi ekki náð settu marki.
Stjórnmálamennirnir séu búnir að missa trú á
frekari árangur af viðræðunum. Ekkert annað
sé þvi framundan, en að Bretar haldi áfram að
veiða dnnan landhelginnar eins og þeim
sýnist.
Þessi mynd, sem Mbl. dregur þannig upp, er
fjarri öllu lagi. Allar aðrar þjóðir en Bretar og
Vestur-Þjóðverjar hafa virt útfærsluna, en
veiðar þeirra eru liklegar til að hafa aukizt að
öðrum kosti. Landhelgisgæzlan hefur náð
miklum árangri i þvi að trufla veiðar brezku og
þýzku togaranna og afli þeirra þvi orðið tvi
mælalaust miklu minni en ella. Brezk blöð bera
þess óræk merki, að landhelgisgæzlan hefur
náð miklum árangri og verða störf hennar þvi
seint fullmetin. Horfur eru á, að þessi árangur
eigi þó eftir að aukast. Þá benda skrif brezkra
blaða til þess,að i Bretlandi sé sivaxandi skiln-
ingur á hinum islenzka málstað. Siðast en ekki
sizt er það svo, að útfærsla islenzku fiskveiði-
landhelginnar hefur ýtt mjög undir útfærslu-
stefnuna um allan heim. Siðan ísland tilkynnti
útfærsluna við valdatöku núverandi rikis-
stjórnar hafa ein 7-8 riki fært út fiskveiðilög-
söguna. önnur eru likleg til að gera það á
næstunni. Það er þessi þróun, sem er að brjóta
niður 12 milna regluna og verður sennilega
búin að þvi áður en niðurstöður fást á haf-
réttarráðstefnunni, en það getur dregizt i mörg
ár. íslendingar fara hér með sama forustuhlut-
verkið um myndun nýrra alþjóðlegra laga og
þeir höfðu um útfærslu fiskveiðilögsögu i 12
milur á sinum tima.
Sá árangur, sem hefur náðst af útfærslunni
er þvi þegar orðinn mjög mikill. Undansláttar-
skrif Morgunblaðsins hafa þvi ekki við nein
rök að styðjast. Við erum að sigra i deilunni,
þótt Bretar og Vestur-Þjóðverjar þráist enn i
nokkra mánuði. Þvi er engin ástæða til þess að
láta nú undan siga og ganga að tilboðum Breta.
Brezka stjórnin verður að ganga stórum lengra
til móts við sjónarmið Islendinga. Frá kröfum
eins og þeim, sem íslendingar hafa sett fram
um tölu og stærð skipa og eftirlit, væri
hreinasta uppgjöf að hvika.
Meðan Bretar fallast ekki á þær, er
þýðingarlaust að reyna nýjar viðræður. Brezka
stjórnin er óhyggin, ef hún dæmir afstöðu ís-
lendinga af undanhaldsskrifum Mbl. -Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Ervin er ekkert
lamb að leika við
Nixon óttast mest yfirheyrslur hans
í Watergate-mólinu
t GÆR hófust i þinghúsinu i
Washington yfirheyrslur þing-
nefndarinnar, sem öldunga-
deildin hefur kjörið til að
rannsaka Watergate-málið.
Yfirheyrslur þessar fara ekki
aðeins fram fyrir opnum tjöld-
um, heldur verður þeim sjón-
varpað samtimis um öll
Bandarikin. Það eru þessar
yfirheyrslur, sem Nixon hefur
óttazt mest, og reyndi upphaf-
lega að koma i veg fyrir með
þvi að birta tilkynningu um,
að hann myndi banna starfs-
mönnum Hvita hússins að
mæta hjá nefndinni, en hins
vegar gæti hún fengið skrif-
legar upplýsingar um allt,
sem hún vildi vita. Hinn aldni
formaður nefndarinnar, Sam
Ervin, lét hins vegar ekki
bjóða sér þetta. Hann til-
kynnti, að hann myndi fá
dómsúrskurð um, að tilkvadd-
ir starfsmenn Hvita hússins
yrðu að mæta, og yrðu þeir
sóttir með lögregluvaldi, ef
nauðsyn krefðist. Nixon sá þá
það ráð vænst, að snúa við
blaðinu. Eftir þessa skeleggu
yfirlýsingu Ervins komst mik-
ill skriður á málið. Nýir og ný-
ir menn, sem höfðu þagað
hingað til, komu nú úr skúma-
skotum og veittu bæði dóm-
stólunum og blöðunum nýjar
upplýsingar. Svo fór, að
margir nánustu samstarfs-
menn Nixons neyddust til að
segja af sér, en öðrum vék
Nixon úr starfi og þar á meðal
aðallögfræðiráðunaut sinum,
John Dean. Búizt er við, að
hann munijeysa myndarlega
frá skjóðunni, þegar hann
kemur til yfirheyrslu hjá
nefndinni, en honum hefur
verið heitið þvi, að ekki verði
höfðað mál gegn honum vegna
þeirra upplýsinga, sem hann
veitir nefndinni. Dean er ung-
ur kappsfullur maður, sem
hefur lýst yfir þvi, að hann ætli
ekki að láta gera sig að
fórnarlambi vegna Water-
gate-málsins, en ýmislegt hef-
ur bent til að sú hafi verið
fyrirætlun Nixons um skeiö.
NOKKRUM sinnum áöur
hefur yfirheyrslum þing-
nefnda verið sjónvarpað i
Bandarikjunum og það oftast
vakið fádæma eftirtekt. Þann-
ig gerði sjónvarpið Joseph R.
McCarthy frægan, þegar hann
var að yfirheyra menn vegna
óameriskrar starfsemi og
greip um sig hrein
kommúnistahræðsla i Banda-
rikjunum I framhaldi af þvi.
En McCarthy ofmetnaðist og
gekk svo langt, aö öldunga-
deildin ákvað að láta rann-
saka framferði hans og kaus
til þess sérstaka nefnd. Yfir-
heyrslur hennar vöktu fá-
dæma athygli og leiddu til
þess, að hann var siðar vittur
af öldungadeildinni. Þetta
braut McCarthy niður og lézt
hann nokkru siðar vinafár og
hálfgleymdur, en um skeiö
var hann næstum þvi þjóð-
hetja I augum margra Banda-
rikjamanna.
I nefndinni, sem yfirheyrði
McCarthy, áttu þrir demó-
kratar sæti. Einn þeirra sat i
deildinni til bráðabrigða, þar
sem öldungadeildarþingmað-
ur -hafði látizt og bar rikis-
stjóra viðkomandi rikis þá að
tilnefna mann I stað hans fram
að næstu kosningum. Þessi
maður átti þá sæti i hæstarétti
heimarlkis sins og hafði hugs-
Sam Ervin
að sér að hverfa þangaö aftur,
þegar kjörtimabilinu lyki. En
hann vakti á sér slika athygli
við yfirheyrslurnar I Mc-
Carthy-málinu, að hann fékk
almennar áskoranir um að
halda áfram i öldungadeild-
inni. Þar á hann sæti enn, þótt
hann sé oröinn 76 ára gamall.
Hann hefur átt sæti i öldunga-
deildinni siðan 1. júni 1954 og
þvi verið oft endurkosinn.
Þessi maður var Sam Ervin
frá North Carolina. Hann
reyndist McCarthy einna
þyngstur i skauti. Framkoma
hans þótti bera jafnt vitni um
mikla lögfræðiþekkingu og
glöggskyggni. Það spillti svo
ekki fyrir honum, að hann
hafði tamið sér gott og sér-
stætt málfar, kryddað með
ýmsum smásögum og tilvitn-
unum og þá oftast i bibliuna
eða leikrit Shakespeares.
Hann haföi sem dómari lagt
mikla áherzlu á aö hafa úr-
skurði og forsendur fyrir þeim
á glöggu og góðu máli og hefur
sú þjálfun komið honum að
góöu gagni sem þingmanni.
SAM ERVIN nýtur þess
álits, að hann sé fróðastur
allra þingmanna um öll lög-
fræðileg og söguleg atriði, sem
snerta stjórnarskrána. Hann
hefur taliö það höfuðskyldu
sina sem þingmanns, að
standa vörð um stjórnar-
skrána og þó öðru fremur um
þau persónuréttindi, sem hún
veitir. Ég tel þaö höfuðskyldu
mina, segir hann, að barna-
börn min taki við stjórnar-
skránni i sömu metum og hún
var, þegar ég ólst upp. Þá mun
Bandarikjunum vegna vel.
Af þessum ástæðum hefur
Ervin látið allmikið bera á sér
siðustu misserin, þvi að hann
hefur talið, að Nixon stefndi að
þvi, að efla forsetavaldið
meira en stjórnarskráin gerði
ráð fyrir og með þvi væri ekki
aðeins gengið á vald þingsins,
heldur alls almennings i land-
inu. Persónufrelsið gæti verið
i margvislegri hættu, ef for-
setavaldið yrði óeðlilega mik-
ið. Ný tækni skapaði jafnframt
alls konar möguleika til að
skerða rétt manna til einka-
lifs, sem væri einn meginþátt-
ur persónufrelsins. Hann hef-
ur oft gerzt talsmaöur ýmissa
sérhópa, sem hafa verið
áfelldir fyrir uppþot, þvi að i
málaferlum gegn þeim hafi
verið brotið gegn mannrétt-
indum, sem ákveðin séu i
stjórnarskránni. Ervin er þó
siður en svo talsmaður óeirða-
manna, heldur eindreginn
talsmaður þess, að haldið sé
uppi röð og reglu. En uppþots-
menn skulu eigi að siður njóta
réttinda stjórnarskrárinnar
jafnt og aðrir. Simahleranir
og allar njósnir um einstak-
linga eru andstæðar stjórnar-
skránni að dómi hans.
SAM ERVIN fæddist i smá-
bæ I North Carolina, þar sem ■
faðir hans var lögfræðingur.
Hann er skozkur i báðar ættir.
A uppvaxtarárum sinum var
hann þekktur fyrir ljóða-
kunnáttu sina, en hann hefur
haldið henni við siðan. Hann
var kvaddur i herinn 1917 og
særðist tvivegis i bardögum i
Frakklandi. Eftir heimkom-
una stundaöi hann laganám,
m.a. við Harvard, og gerðist
siðan málflutningsmaður i
heimariki sinu. Alit hans má
nokkuð ráða af þvi, að hann
var kjörinn á fylkisþingið i
North Carolina i meðan hann
stundaði laganám við Har-
vard. Hann sat þar þó aðeins i
eitt kjörtimabil, þvi að mál-
færsla féll honum betur.
Nokkrum árum siðar gerðist
hann dómari eftir miklar
áeggjanir stjórnv. en hann
vildi ógjarnan hætta sem mál-
flutningsmaður. Bróöir hans,
sem átti sæti i fulltrúadeild
Bandarikjaþings, lézt skyndi-
lega 1946 og var Sam þá feng-
inn til að bjóða sig fram i staö
hans. Hann geröi það með þvi
skilyrði, að hann sæti aöeins
eitt kjörtimabil i fulltrúadeild-
inni. Við það stóð hann lika,
þvi að 1948 var hann skipaður
hæstaréttardómari i North
Carolina. Þvl starfi gegndi
hann til 1954, er hann tók sæti i
öldungadeildinni til bráða-
brigða, eins og áður segir.
Hann var valinn i nefndina,
sem fjallaði um mál Mc-
Carthys, vegna þeirrar
reynslu, sem hann hafði öölazt
sem dómari.
Sam Ervin er sagður I hópi
þeirra öldungadeildarmanna,
sem eru i einna mestum met-
um meðal þingbræðra sinna.
Ráða hans er þvi oft leitað.
Hann er vel ern og hefur enn
ekki ákveðið, hvort hann gefur
kost á sér til framboös i næstu
kosningum. Vafalaust yrði
hann endurkosinn, ef hann
gæfi kost á sér.
Þ.Þ.