Tíminn - 18.05.1973, Blaðsíða 11
Föstudagur 18. mal 1973
TÍMINN
11
Malberg að mér, þar sem ég stóð
og var að reykja pipu mina, en ég
reykti pipu á þessum árum, og
það gerði Malberg reyndar lika.
Þegar hann nú sá þetta, tók hann i
öxlina á mér, vék mér frá og
sagði: bú lika, Björn. Meira varð
það ekki. Þegar ég fór frá Hamri,
kom Malberg til min með litinn
vinkil og kjörnara og sagði, að ég
skyldi eiga þetta til minningar
um sig. Þessa gripi á ég enn.
— Tók svo Landssmiðjan strax
við, þegar Hamri sleppti?
— Nei, ekki var það nú alveg.
Áður hafði ég unnið við pipu-
lagningar hér i Reykjavik i rúmt
ár. Landssmiðjan gar stofnuð i
janúar 1930, og i byrjun febr. það
sama ár, byrjaði ég að vinna þar.
— Hvers konar verkefni voru
það, sem Landssmiðjan fékkst
einkum við á fyrstu árum sinum?
— Þau voru nú talsvert marg-
visleg, en sérstaklega var það þó
að sjá um rikisskipin. Enn fremur
tók Landssmiðjan að sér viðgerð-
irá vélunum iskipum Færeyinga,
sem þá voru mikið hér við land.
Það kom i minn hlut að vera aðal-
maðurinn i þessum viðgerðum
fyrir Færeyingana.
— Hvernig likaði þér við frænd-
ur vora, Færeyinga?
— Þeir eru sérlega elskulegir
menn i umgengni. Ég kynntist
miklum fjölda þeirra hér. Þar
voru margir ágætir menn, en
engir slæmir.
Erfiði, óþrifnaður,
jafnvel lífshætta
— burftuð þið ekki oft að vinna
við ærið erfiðar aðstæður niðri
i skipunum?
Mér er það i minni einu sinni,
þegar ég var að gera við skip, þar
sem þurfti að fara alveg niður i
botn. Ég klæddi mig þá úr öllum
ytri fötum og fór sjálfur á nær-
klæðunum einum niður til þess að
ná i sundur röri. Þetta var i Súð-
inni okkar gömlu. Þegar búið var
að gera við rörið, varð auðvitað
að fara niður aftur og tengja á ný.
Ég man enn, hversu mér bauð við
þvi að þurfa aftur að fara niður i
óþverrann, en um annað var ekki
að ræða. Þetta þurfti að vinna —
og það var gert. En þetta er liðin
tið og kemur aldrei aftur. bað
væri ekki hægt nú að fá nokkurn
einasta mann til þess að vinna
slikt verk. Ég er búinn að vera
verkstjóri i meira en þrjátiu ár,
og ég get alveg fullyrt, að hvorki
myndi mér detta i hug að fara
fram á það við neinn starfsmanna
minna né myndu þeir heldur láta
bjóða sér það að vinna verk sitt
við slikar aðstæður. Þar yrði að
beita öðrum starfsaðferðum.
— Gat ekki þessi vinnuaðstaða
beinlinis verið hættuleg starfs-
mönnunum?
— Slikt var ekki með öllu útilok-
að, og nú er bezt að ég segi frá
einum slikum atburði, þótt hann
sé að visu dálitið broslegur i aðra
röndina.
Svo var mál með vexti, að það
gerðist eitt sinn, að gamla Esjan
okkar kenndi grunns vestur á
Breiðafirði. Það kom gat á botn-
inn á henni, en hún var með tvö-
földum botn', og sökk þvi ekki. Þá
var ekki nei.i aðstaða til þess að
taka skip upp i slipp og vinna
þannig við þau á þurru landi, svo
að við urðum að reyna að vinna
þetta i fjörunni — og auðvitað á
)G YNDIf
íættsinni
— Jú. Við þurftum oft að fara
alveg niður i botninn á skipunum,
og það er alls ekki neitt hreinleg
vimna. Þar var jafnan fljótandi
sjórf; smurolia og hvers kyns
óhreinindi, allt i einum graut.
meðan fjara var, þvi að á flóðinu
flæddi undir okkur. En þá var lika
fjaran hér miklu stærri en hún er
núna, þvi að þar sem þá var köll-
uð Steinbryggja, er nú gata. Við
Framhald á bls. 19
lir sér ekki, að einhvern tima hefur vinstri hönd hans þurft að greiða
Þátttakendur I Laugarvatnsmótinu 1966 voru margir, eða um 140 taisins.
MÖT SKÓLASTJÓRA
OG YFIRKENNARA
VERÐUR HALDIÐ AÐ
EIÐUM 20. — 25. JÚNÍ
Þqtttakendur verða um 150
Fjórða fræðslu- og kynningar-
mót Skólastjórafélags tslands
verður haldið að Eiðum i S-Múla-
sýslu, dagana 20.-25. júni I sumar.
Dagskráin
Á landsþinginu verða fluttir
fyrirlestrar og erindi um mörg
helztu mál, sem efst eru á baugi
meðal islenzkra skólamanna i
dag. Inngangserindi mótsins flyt
ur dr. Bragi Jósepsson deildar-
stjóri i menntamálaráðuneytinu,
islenzk skólamál i dag. Norskur
skólamaður, SVEN EGIL
VESTRE, einn af riturum norsku
kennarasamtakanna, flytur tvö
erindi um HINN OPNA SKÓLA.
Andri tsaksson, deildarstjóri i
menntamálaráðuneytinu, flytur
erindi um GRUNNSKÓLANN.Ný
námsgrein verður kynnt, SAM-
FÉLAGSFRÆÐI, og það gera
þau Loftur Guttormsson lektor,
Sigurþór Þorgilsson og Kristin H.
Tryggvadóttir kennarar. Dr.
Stefán Edelstein flytur erindi um
TÓNMENNTARKENNSLU t
SKÓLUM og kynnt verður
nefndarálit um MYND- OG
HANDMENNT t SKÓLUM, til-
lögur um breytt fyrirkomulag
handa vinnukennslu.
Eins og áður er að vikið eru öll
þessi mál ofarlega á baugi hjá
skólamönnum og nýútkomin
nefndarálit um samfélagsfræöi,
tónmenntarkennslu og mynd- og
handmennt verða kynnt og rædd,
og eru þau tekin á dagskrá i sam-
ráði við forstöðumann skólarann-
sóknardeildar, Andra ísaksson,
svo og erindið um grunnskólann.
Hinn svonefndi opni skólier viða
um lönd á dagskrá, og hefur
Skólastjórafélag Islands fengið
hingað norskan skólafrömuð
gagngert til þess að kynna þetta
nýja skólaform.
Kynnisferðir — Guðs-
þjónusta — Kvöldvökur
Mótsgestir munu fara i kynnis-
ferð til Hallormsstaðar, og
sunnudáginn 24. júni mun hópur-
inn fara til Neskaupstaðar, litast
þar um og m.a. sitja hádegis-
verðarboð bæjarstjórnarinnar
þar. Þennan sama dag hlýða
þingfulltrúar á messu, en ákvörð-
un hefur ekki verið tekin um það
hvað það verður.
Heima á Eiðum munu móts-
gestir gera ýmislegt sér til
gamans og skemmtunar, eins og
á fyrri mótum. Skal þar fyrst
nefna AUSTFIRÐINGAVÖKU,
sem Austfirðingar annast að öllu
leyti sjálfir, en Sigurður Pálsson
skólastjóri á Eiðum stjórnar og
undirbýr. Vestfirðinga- og Þing-
eyingavökur fyrri móta munu
seint gleymast, og Austfirðingar
munu áreiðanlega ekki láta sitt
eftir liggja. Þá munu þátttakend-
ur sjálfir efna til óundirbúinnar
kvöldvöku, en þar kemur m.a.
fram gestur frá Færeyjum, sem
félagið hefur sérstaklega boðið til
þessa móts. Föstudaginn 22. júni
verður frumsýnd ný kvikmynd,
sem Rafn Eiriksson skólastjóri að
Nesjum, Hornafirði, tók á móti
Skólastjórafélags íslands á
TR ANBERGI og ferðalagi
félagsmanna um Noreg sumarið
1971. Loks má minna á loka-
fagnaðinn á Eiðum 25. júni, en þá
sitja þingfulltrúar veizlu mennta-
málaráðherra, Magnúsar Torfa
Olafssónar, sem flytur ávarp.
Margt verður þá til skemmtunar
og dans stiginn að lokum.
Þátttakendur
Eiðamótsins
Ollum félagsmönnum, skóla-
stjórum, yfirkennurum, starfs-
fólki fræðslumála og mökum er
heimil þátttaka i Eiðamótinu, svo
og öðrum skólastjórum, meðan
húsrúm leyfir. Þátttökueyðublöð
hafa verið send öllum félags-
mönnum. Aðrir geta fengið þau
hjá formanni.
Kennurum og öðru áhugafólki á
Héraði og kringum Eiða er að
sjálfsögðu heimilt að hlýða á ein-
stök erindi, sem flutt verða á
mótinu.
Stjórn S.I. vill sérstaklega færa
ráðamönnum á Eiðum og skóla-
stjórunum þar, Þorkeli Steinari
Ellertssyni og Sigurði Pálssyni,
fyrir lán á húsakynnum vegna
mótsins og fyrirgreiðslu alla.
Skólastjórafélag
íslands
er hagsmunamál skólastjóra og
yfirkennara, en félagar, sem
munu vera um 150 talsins viðs
vegar um land allt, eru aðallega
skólastjórar barna- og unglinga-
skóla, skyldunámsstigsins, en
samkvæmt lögum félagsins geta
skólastjórar annarra skóla einnig
verið félagar, og mót félagsins
eru öllum skólastjórum opin, eins
og áður er sagt.
Eiðamótið er fjórða fræðslu- og
kynningarmót S.l. Hið fyrsta var
haldið að Laugum i S-Þing. 1963,
annað að Laugarvatni 1966 og hið
þriðja aftur að Laugum 1970. I
samvinnu við akademiuna og lýð-
háskólann i Kungsalv i Sviþjóð,
efndi félagið til fyrsta námskeiðs-
ins fyrir isl. skólamenn þar i landi
vorið 1969, og i samvinnu við
norsku kennarasamtökin efndi
félagið til fyrsta námskeiðs isl.
skólastjora að TRANBERGI i
Noregi i júni 1971. A þessum mót-
um og námskeiðum hafa tugir
skólafrömuða og aðrir sér-
fræðingar flutt urmul erinda um
hin margvislegustu efni og þætti
skóla- og menningarmála. Skóla-
stjórafélag Islands á og rekur
sumarbúðir fyrir skólastjóra og
fjölskyldur þeirra yfir sumar-
mánuðina við Þingvallavatn.
Félagið gefur af og til út fjölritað
frétta-og tilkynningablað, en það
kemur nú út prentað i sambandi
við Eiðamótið.
Stjórn Skólastjórafélags Is-
lands skipa Hans Jörgenss. Rvík,
form., Gunnar Guðmundsson
Kópavogi, gjaldkeri, Vilbergur
Júliusson Garðahreppi, ritari, og
meðstjórnendur Böðvar Stefáns-
son Ljósafossi, Kári Arnórsson
Rvik, Óli Kr. Jónsson Kópavogi
og Rúnar Brynjólfsson Hafnar-
firði.
(Frétt frá Skólastjórafélagi Is-
lands)