Tíminn - 11.08.1973, Blaðsíða 4
WVIJMJT
TÍMINN
n líj^íib'ifc^uöJ
4
Laugardagur 11. ágúst 1973.
Enn í giftingar
hugleiðingum
Knn einu sinni er sagt, að Frank
Sinatra sé að hugsa um að gifta
sig. bessar fréttir koma frá
Kaliforniu. Sú útvalda i þetta
sinn er Barbara Marx, sem
nýlega skildi við Zeppo Marx,
yngsta Marx-bróðurinn. Bar-
bara og Frank eiga eitt stórt
sameiginlegt áhugamál, golf.
Frankie hefur lagt til dáindis
fagran vagn, sem þau trimma
svo i um golfvöllinn, eins og við
sjáum hér.
¥
¥
¥•
Þrifnaðurinn
Súputarínur sem stöðutdkn
bjargaði
mannslifi
Vegna náttúruverndarhug-
sjónar litillar stúlku i Kanada
er fiskimaðurinn Ray Tanner
enn á lifi og við góða heilsu.
Hann hafði einu sinni sem oftar
farið á báti sinum út á bræla-
vatn til fiskjar.en fór heldur
langt og var orðinn bensin-
laus.áður en hann vissi af.
Bátinn rak stjórnlaust og Ray
tók það til bragðs að stinga
hjálparbeiðni i flösku og kasta
út. Honum datt svo sem ekki i
hug, að þetta myndi duga, en
það skaðaði heldur ekki. Eftir
11 daga fann niu ára gömui
stúlka, Marý Ann Madsen frá
Yellowknife samt flöskuna og
gerði þegar aðvart Flugvél fann
bátinn á reki og sendi niður
bensinbirgöar. Mary Ann sagði
eftir á, að það hefði ekki verið
miðinn i flöskunni, sem vakið
hefði athygii hennar, heldur
hefði hún fyrir vana, að tfna
upp allt drasl, sem hún fyndi á
göngu sinni. Ég tók flöskuna,
svo hún brotnaði ekki á stein-
unum i vatnsborðinu, sagði hún.
begar einhver félagsfræðingur
eða þess háttar maður ein-
hverntima i framtiðinni fer að
skrifa sögu stöðutákna, verður
hann að staðnæmast góða stund
við suputarinur. Já, þ;:o er rétt.
Af öllum þeim hlutum, sem fók
hefur tekið upp að vilja eiga
fallegra og betra en ná-
granninn, eru súputarinur einna
merkilegastar. bað þykir nefni-
lega afskaplega fint að bera
fram súpu sina i sem furðu-
legastri tarinu. Nústendur yfir
i Victoriusafninu i Lundúnum
sýning á súputarinum, sem eru
i eigu súpuframleiðandans
¥
Campbell. barna getur aö lita
tarinur i laginu eins og kjúkl-
ingar, kaninur, kálhöfuð með
frosk á lokinu, bjarnarhöfuð
með miklar vigtennur. barna
eru silfurtarinur eftir mestu
silfursmiöi álfunnar og ein ur
leir frá Portúgal, að lögun eins
og tunna full af fiski. Campbell-
fyrirtækið hefur látið sé annt
um söfnun þessara gripa, enda
er þvi málið skylt. Tarinurnar
eru alls staðar að úr heiminum
og úr næstum öllu efni, sem
hugsast getur að hægt sé að nota
til að bera fram súpu i.
¥■
¥■
Kominn aftur heim
Peter Sellers hefur nú snúið aft-
ur til eiginkonu sinnar, frú Mir-
öndu. Hanr) var reyndar ekki
skilinn við hana endanlega, þeg-
ar hann lenti i neti Lizu Minelli.
En sælan milli þeirra Peters og
Lizu stóð ekki lengi, og Peter
var þá fljótur að hverfa aftur til
eiginkonunnar, sem beið hans
með útbreiddan faðminn. Hér
eru þau tvö saman á nýjan
leik.
%
Kóngafólk í
kröggum
bað er haft eftir áreiðanlegum
heimildum, að Konstantin kon-
ungur eigi nú i miklum fjár-
hagsörðugleikum. Segja menn
til sönnunar þessu, að Ingrid
Danadrottning hafi komið til
Rómar fyrir skömmu i heim-
sókn til dóttur sinnar, og i fylgd
með drottningunni hafi verið
fjármálaráðgjafi hennar. Ingrid
drottning mun fara með völdin i
Danmörku á meðan Margrét
dóttir hennar bregður sér til
Frakklands að heimsækja
tengdaforeldra sina, og er þetta
þá i fyrsta skipti, sem ekkju-
drottning ræður rikjum i Dan-
mörku. bessi mynd var tekin af
Ingrid, er hún kom til Rómar að
tala við dóttur sina um fjármál-
in.
„Bjartar nætur
í Leningrad"
Um það bil 12.000 erlendir gestir
komu á hátiðina „Bjartar næt-
ur”, sem árlega er haldin i Len-
ingrad. A ballett- og tónlistar-
skránni eru mörg af markverð-
ustu rússnesku verkunum, t.d.
ballettinn „byrnirós” eftir
Tsjaikovsky og verk eftir sov-
ézk tónskáld eins og Aram Kat-
sjatúrian og Tikhon Khrenni-
kov. Meðal þeirra, sem koma
fram eru nokkrir verðlaunahaf-
ar i nýlega afstaðinni alþjóða-
.keppni ballettdansara, sem
haldin var i Bolsjoi-leikhúsinu i
Moskvu.
VI
DENNI
DÆMALAUSI
Mamma, viltu nú ekki gefa mér
sultubrauð áður en þú byrjar að
tala.