Tíminn - 11.08.1973, Blaðsíða 8
8
TÍMINN
Laugardagur 11. ágúst 1973.
29 hestar
kepptu
á Vindheima-
melum
hæstur af alhliða góðhestum og i
efsta sæti varð Vinur, Markúsar
Sigurjónssonar Reykjarhóli, i
öðru sæti, Safír Halldórs Sigurðs-
sonar, Stokkhólma, og þriðji
Hrannar, Guðmundar Ó. Guð-
mundssonar, Sauðárkróki.
Af klárhestum með tölti varð i
efsta sæti Demant, Halldórs
Sigurðssonar, Stokkhólma, i öðru
sæti Faxi, Jónasar Sigurjónsson-
ar, Sauðárkróki, i þriðja sæti
Gammur, Magnúsar Jóhanns-
sonar, Hólum.
1 hlaupunum voru sett 2 ný
landsmet 350 m hljóp Hrimnir frá
Reykjavik á 25,1 sek. og 800 m
hljóp Blakkur frá Borgarnesi á
61,4 sek sem er hvortveggja ný
landsmet. 1 umsögn dómnefndar
kappreiðanna segir að 3 klukkur
hafi verið notaðar og þeim öllum
borið saman um timann, þá hafi
litiJsháttar hliðarvindur verið, en
enginn meðvindur. Annars voru
úrslit kappreiðanna þessi:
A 250 m skeiði sigraði hinn aldni
garpur Hrollur, 20 v., Sigurðar
Ólafssonar, Reykjavik 24,1 sek.,
Onnur verðlaun Hörður 26,7 sek.
þriðju verðlaun Glámur,
Ingimars Pálssonar, Sauðár-
króki, 27,7 sek. Folahlaup 250 m
óðinn, Harðar Albertssonar,
Reykjavik 18,5 sek. Muggur,
Sigurbjarnar Bárðarsonar,
Reykjavik, á 18,6 sek. Fluga,
Kristinar ólafsdóttur, Keldudal,
á 19,9 sek.
350 m Fyrstur Hrimnir,
Matthildar Harðardóttur,
Reykjavik, 25,1 sek. landsmet,
annar örn, Jóns Gislasonar,
Skejlabrekku 25,9 sek. Morgun-
roði, Sigfúsar Steindórssonar,
Steintúni, 26,9 sek. Landsmet i 350
m hlaupi átti áður Kolbakur
Jóhanns Guðmundssonar frá
árinu 1945.
800 m Fyrstur Blakkur, Hólm-
steins Arasonar, Borgarnesi, á
61,4 sek. landsmet, annar
Skörungur, Gunnars Árnasonar,
Reykjavik á 63,6 sek. Glæsir
Harðar Albertssonar, Reykjavik,
á 64,2 sek.
Kappreiðavöllurinn á Vind-
heimamelum, sem var fyrst tek-
inn i notkun 1970, er mjög harður
og góður á græddum melum. 1
viðtali við tvo þekkta knapa,
Sigurbjörn Bárðarson og Einar
Karelsson, kom fram það álit
þeirra, að Vindheimavöllurinn
væri án efa einn bezti kappreiða-
völlur á landinu og kváðust þeir
báðir hugsa gott til að mæta með
hlaupahesta á landsmóti hesta-
manna sem ákveðið hefur verið
að halda á Vindheimamelum
næsta sumar.
(Timamynd Róbert)
Gó—Sauðárkróki. — Hið árlega
hestamót hestamannafélaganna
Stiganda og Léttfeta i Skagafirði
var háð á Vindheimamelum um
s.l. helgi. Mótið hófst á laugardag
kl. 5 með firmakeppni Hesta-
mannafélagsins Stiganda. Voru
29 hestar skráðir til þeirrar
keppni. Áhorfendur kusu sjálfir
bezta hestinn og hlutskarpastur
varð Vinur, rauðskjóttur 10 v.,
Markúsar Sigurjónssonar,
Reykjarhóli. Þá fóru einnig fram
undanrásir kappreiða. A sunnu-
daginn var mótinu haldið áfram
og hófst þá með hópreið félaga úr
hestamannafélögunum báðum
inn á mótsvæðið. Þegar knapar
höfðu stigið af baki var stutt
helgistund, þar sem séra Gisli
Kolbeins flutti mjög eftirtektar-
verða ræðu.
I góðhestakeppninni var nýr
háttur hafður á um dómana, þar
sem viðhafðir voru nú hinir svo-
kölluðu spjaldadómar, en þeir
hafa ekki áður þekkzt hér. Stiga-
Norrænt geðlæknaþing í Reykjavík:
Megináherzla verði lögð á með-
ferð geðsjúklinga utan sjúkrahúsa
Rrjóstmynd af dr. Victor Urbancic var afhjúpuð i Þjóðleikhúsinu á fimmtudag, á 70 ára afmæli hans.
l)r. Victor lc/.t á föstudaginn langa 1958. A myndinni er það dóttir Victors, Erika, sem afhjúpar brjóst-
myndina. —Timamynd: Gunnar.
Meðferð bráðra sjúkdóma fari fram í Reykjavík og á Akureyri, sagði heilbrigðis-
málaráðherra í setningarræðu. Bygging geðdeildar Landsspítalans hefst 1974
SJ—Reykjavik — Norrænt geð-
læknaþing hófst i Rcykjavik á
fiinmtudag. Á þinginu verða flutt
76 erindi, þar af II af tslending-
um, en i mörgum erindanna er
greint frá rannsóknum, sem fleiri
en einn aðili hafa staðið að. Aðal-
uinræðuefni á þinginu eru annars
vcgar skipulagning geðheilbrigð-
ismála og áætlanagerð á þvi
sviði, scm nú eru mjög i mótum,
ekki sizt hér á landi, og hins vegar
fjölskyIdumeðferð, en mikill og
vaxandi áliugi er á þeirri lækn-
ingaaðferð um þessar mundir.
Á fimmtud. voru fl. erindi um
fjölskyldumeðf., m.a. reynslu af
henni hér á landi og mörg fleiri
efni, svo sem ný lyf. A föstu-
dag, verður rætt um skipulagn-
ingu geðheilbrigðismála og áætl-
anagerð á þvi sviði. Þingið er
haldið i Menntaskölanum við
Hamrahlið og að Hótel Loft-
leiðum. Þátttakendur eru 330, en
auk þeirra eru hér i fylgd með
þeim um 220 makar og börn. Er
þetta mesti fjöldi, sem sótt hefur
geðlæknaþing á Norðurlöndum,
en þau eru haldin þriðja hvert ár.
Tómas Helgason læknir bauð
fulltrúa velkomna til þingsins i
gærmorgun. 1 máli sinu kvaðst
hann vona að umræður þingsins
yrðu til að hjálpa islenzkum geð-
læknum til að finna fleiri not-
hæfar lausnir á vandamálum
sjúklinga sinna og fjölskyldna
þeirra, og að samhæfa
geðlækningar heilbrigðisþjónust-
unni og félagsmálaaðstoð. Denis
Leigh flutti kveðju frá alþjóða-
sambandi geðlækna.
Magnús Kjartansson heil-
brigðismálaráðherra flutti
setningarræðu, þar sem hann
sagði m.a. að ófremdarástandi
sjúkrahúsmálum geðveikra hér
hefði leitt til þess að núverandi
rikisstjórn hefði gert það að sér-
stöku atriði i málefnasamningi
sinum, að bæta úr brýnasta
vanda geðsjúkra og drykkju-
sjúkra. Fyrsta lokaða hælið fyrir
drykkjusjúklinga hér á landi
verður fullbyggt á næsta ári,
sagði ráðherra, og fyrir nokkrum
árum skilaði hönnunarnefnd geð-
deildar, sem ákveðið er að byggja
við Landspitalann i Reykjavik,
fullmótuðum tillögum, en ætlunin
er að framkvæmdir hefjist á
þessu ári.
I ræðu sinni sagði heilbrigðis-
málaráðherra ennfremur:
,,Um þessa framkvæmd hefur
staðið allmikill styrr, eins og
raunar flestar opinberar fram-
kvæmdir i lýðfrjálsum löndum.
Fjölmörg sjónarmið hafa komið
fram i þeim deilum, og er það
álitamál ef til vill veigamest
hvernig hlutföll sjúkrarýmis á
svæðis-og kennsluspitala, eins og
Landspitalanum, eigi að vera.
Nýjustu rannsóknir á heil-
brigðismálum bera það með sér
að geðsjúkdómar eru meðal
mestu heilsufarsvandamála allra
þjóða um þessar mundir, ekki sizt
hinna iðnvæddu samfélaga.
Vissulega er nokkuð um það deilt
hversu margir veikist af geðsjúk-
dómum einhvern tima á ævinni,
en flestir virðast hallast að þvi, að
ekki færri en 20-25% veikist það
mikið, að þeir þurfi á einhverri
sérfræðiaðstoð að halda.
Einnig er nokkuð um það deilt
hversu margir séu sjúkir hverju
sinni, en að þvi er virðist er þar
um að ræða 1-2% af þjóðarheild-
inni.
Við athugun sem gerð var hér-
lendis fyrir nokkrum árum hjá
Tryggingastofnun rikisins kom i
ljós að langstærsti hópur öryrkja
var geðsjúklingar, eða 28-29 af
hundraði allra þeirra sem
örorkulifeyris nutu.
Áform okkar um þróun geðheil-
brigðismála á tslandi i framtið-
inni eru þau að lögð verði megin-
áherzla á meðferð geðsjúklinga
utan sjúkrahúsa. Eiga þá bæði að
koma til bein lækningasjónarmið
og félagslækningar, en hið sam-
eiginlega markmið er að lækna
sjúklinginn og tryggja honum
eðlilegt umhverfi og félagslegar
aðstæður. Hins vegar er það
viðurkennd staðreynd að
forsendur þeirrar meðferðar eru
geðsjúkrahús, sem hafa góða
aðstöðu til lækninga og kennslu
lækna og annarra heilbrigðis-
stétta.
Þess vegna hefur sú afstaða
verið tekin, að byggja allstóra
geðdeild við Landspitalann og
hafa hana jafnframt fyrir aðal-
kennslustofnun i geðlækningum i
landinu. Ætlunin er að meðferð
bráðra geðsjúkdóma verði ei
einskorðuð við tvo staði, þ.e.
Reykjavik og Akureyri, en geð-
hjúkrunardeildir verði hins vegar
viðar úti um landið i tengslum við
heilsugæzlustöðvar.
Ég þarf vafalaust ekki að
minna á það hér að allmiklar
deilur eru um þörfina á sjúkra-
rúmum fyrir bráða geðsjúkdóma,
og kannanir sem heilbrigðisráðu-
neytið hefur gert hafa leitt i ljós
að á Norðurlöndum eru áætlanir
um þessi efni nokkuð ólikar og i
verulegum atriðum nokkuð á
annan veg en til að mynda á Bret-
landi.
Aætlanir okkar hér á tslandi
miðast við það að þörfin fyrir
bráða geðsjúkdóma sé 2,1 sjúkra-
rúm fyrir 1000 ibúa, og okkur er
ljóst að þar er miðað við færri
rúm en hingað til hefur verið
talin nauðsyn annarsstaðar á
Norðuri. Sú áætlun sem gerð
hefur verið um byggingu geð-
deildar við Landspitalann i
Reykjavik er við það miðuð að
fjöldi geðsjúkrarúma verði
tæplega fimmti hluti allra rúma
sjúkrahússins, og um þetta hlut-
fall hefur aðallega verið deilt
milli geðlækna og lækna annarra
sérgreina".
Nokkrir norrænu geölæknanna á fundi með frettamonnum.