Tíminn - 11.08.1973, Side 17

Tíminn - 11.08.1973, Side 17
Laugardagur 11. ágúst 1973. TÍMINN 17 UNNIÐ DAG OG NOTT VIÐ LAG- FÆRINGARÁ LAUGARDALSVELLI lagfæringunum yrði lokið á til- settum tima, þ.e. fyrir kl. 10 árdegis i dag, en þá á keppnin að hefjast. Hins vegar tefði rigning fyrir verkinu. Unnið var langt fram á kvöld á fimmtudag og bjóst Baldur við þvi, að unnið yrði alla föstu- dagsnóttina. Baldur sagði, að dómar- arnir hefðu gert athugasemdir við atrennubrautirnar i lang- stökki, þristökki og spjótkasti, sem eru úr Rub-Kor. Þessar brautir eru mikið i notkun, þar sem bæði er æft og keppt á þeim. Hafa þær slitnað, og óskuðu dómararnir eftir þvi, að þær yrðu jafnaðar. Enn fremur verður að skapa möguleika til stangarstökks á tveimurstöðum samtimis, þar sem keppendur eru það marg- ir, að aðstaða á einum stað nægir ekki. Baldur sagði það vera sina skoðun, að ótimabaért væri að halda mót af þessu tagi á Laugardalsvellinum, m.a. vegna ólokinna framkvæmda umhverfis völlinn. Þá sagði hann, að augljóst væri, að ekki væri hægt að halda atrennu- brautunum góðum, ef þær væru notaðar undir keppni og æfingar, en æft er þrisvar sinnum i viku á brautunum. — að kröfu yfirdómara Evrópukeppninnar í fjölþrautum Alf—Reykjavik. — Mikill handagangur i öskjunni hefur verið á Laugardalsvellinum 2 siðustu sólarhringa vegna ýmissa lagfær- inga á vellinum fyrir Evrópukeppnina í fjölþrautum, sem háð verður um helgina. Yfirdómarar keppn- innar, sem eru frá Sviss og Aust- ur-Þýzkalandi, kröfð- ust þess, að atrennu- brautir fyrir þristökk, langstökk og spjót- kast yrðu lagfærðar, og sömuleiðis , að sköpuð yrði aðstaða fyrir stangarstökk á tveimur stöðum á vellinum, en eins og kunnugt er, hefur stangarstökkskeppnin ávallt farið fram austan megin á vellin- um, en nú hefur einnig verið gerð atrennu- braut fyrir framan stúkuna. Þegar iþróttasiðan náði tali af Baldri Jónssyni, vallar- stjóra, siðdegis i gær, var hann bjartsýnn um það, að Þessi mynd var tekin á Laugardalsvellinum í gær þegar unnið var að lagfæringu á vellinum. Baldur Jónsson vallarstjóri, sem sést á myndinni, var bjartsýnn um að lagfæringunni yrði lokið áður en keppnin byrjar i dag. (Tímamynd Róbert) Stöðva Akureyring ar Keflvíkinga? Eða verða það Keflvfkingar sem stöðva Akureyringa? Fjórir leikir í 1. deild HVAÐ skeður á Akur- eyri i dag, þegar Akur- eyringar fá Keflvíkinga i heimsókn? Þetta er spurning, sem margir velta nú fyrir sér. Akur- eyringar, sem hafa stað- ið sig mjög vel i siðustu leikjum sinum i 1. deild- inni, eru ákveðnir i að stöðva sigurgöngu Kefl- vikinga, sem hafa ekki tapað leik i deildinni. Þeir muna þvi berjast eins og ljóh gegn drengj- unum hans Jóa á Hóli, um helgina. Falla Bl þegar þeir koma i heim- sókn. Keflvikingar eru einnig ákveðnir i að stöðva sigurgöngu Akureyringa, sem hafa ekki tapað fjórum síð- ustu leikjum sinum i deildinni. Þess vegna er gaman að vita — hver stöðvar hvern? Leikurinn á Akureyri hefst kl. 16.00. Á sama tima fer einn leikur fram á Akranesi, þar sem heima- menn fá Eyjamenn i heimsókn. Skagamenn hafa ekki staðið sig vel i siðustu leikjum sinum, þeir hafa verið daufir og nær óþekkj- anlegir. Þeir verða að taka á hon- karnir í dag? um stóra sinum, ef þeir ætla sér að vinna Eyjamenn, sem hafa leikið vel upp á siðkastið. Einn leikur i fallbaráttunni verður leikinn i dag. Breiðablik mætir Fram á Melavellinum kl. 14.00 og verða Blikarnir að vinna leikinn, ef þeir ætla sér að halda sæti sinu i 1. deild. Breiðablik hefur hlotið aðeins tvö stig i íslandsmótinu, en Fram er i næstneðsta sæti með sex stig. Það verður þvi hörð barátta háð á Melavellinum i dag. Á mánudagskvöldið verður leikinn einn leikur, Valsmenn mæta KR-ingum á Laugardals- vellinum. Sá leikur hefst kl. 20.00. Hann er nokkuð þýðingarmikill fyrir Valsmenn — þeir stefna að þvi að hljóta annað sætið i 1. deild og tryggja sér þar með rétt til að leika i UEFA-bikarkeppni Evrópu á næsta ári. — SOS ÞORBERGUR ATLASON...........sést hér verja i leik Breiðabliks og Fram i fyrra. A iþróttaslðunni á morgun verður Þorbergur kynntur. Meistaramótum golfklúbbanna lýkur í dag MEISTARAMÓT golfklúbbanna hér á Suðurlandi stendur nú yfir. t þessum mótum eru leiknar 72 holur i nær öllum flokkum, helzt cr það i kvenna og unglinga- flokkum, sem leiknar eru 36 eða 54 holur. 1 öllum klúbbunum hófst keppnins.l. miðvikudagskvöld og eru leiknar 18holur i einu. Keppn- inni mun þvi IjUka i dag — laugardag — en þá verða siðustu 18 holurnar leiknar, og þá einnig aukaholur — ef með þarf. Heldur hefur verið illa spilað, það sem af er mótunum hjá „stjörnunum”... þ.e.a.s. þeim, sem skipa meistaraflokk. Aftur á móti er betur spilað i mörgum öörum flokkum, eins og t.d. i sumum unglingaflokkunum. Staðan i meistaraflokkunum hjá hinum ýmsu kúbbum að loknum 36 holum, en það var i fyrrakvöld og þá voru mótin hálfnuð, var þessi: Hjá GL á Akranesi var Hannes Þorsteinsson beztur með 159 högg og annar var Gunnar Júliusson á 164. Hjá GK i Hafnarfirði var bróðir Gunnars á Akranesi, JUIius R. Júliusson beztur með 159 högg og annar var Ingvar Isebarn með 170 högg. Einn i ungl.fi. og tveir menn i 1. fl. voru þá með betra skor en Július Hjá GS i Keflavik var Þórhallur Hólmgeirsson beztur eftir 36 holur með 157, högg, en siðan komu a.m.k. þrir menn á 159 höggum. Þorbjörn Kjærbo er ekki með i þetta sinn. Hjá GR i Grafarholti er Einar Guðnason beztur með 157 högg. Næstur kemur Hans tsebarn á 160 höggum. Vestmannaeyingarnir halda sitt mót á Grafarholtsvellinum. Beztur þeirra eftir 36 holur var Atli Aðalsteinsson, sem var á 161 höggi. Eitthvað mun vera fáskipað I flokka Eyjaskeggja i þessu móti og mun vanta eitthvað af þeirra beztu kylfingum. 1 meistaramóti GN á Sel- tjarnarnesi er staðan eftir 36 holur i meistaraflokki sú, að Tomas Holton er i fyrsta sæti með 162högg. Næstu menn koma þar 5 höggum á eftir, en það eru þeir Pétur Björnsson og Gunnar Pétursson. Loftur Ólafsson tekur ekki þátt i mótinu að þessu sinni. Eftir helgi munum við segja nánar frá úrslitum i öllum flokkum hjá öllum klúbbunun: ÞRÓTTAAIKILL LEIKUR Á MELA- VELLI Á MORGUf Þrír leikir í 2. deild um helgina ÞRÍR leikir verða leiknir i ?. deildinni um helgina. Selfyssingar fá ,,ós k a b ör n i n ” úr Hafnarfirði i heimsókn. Leikur Selfoss og FH hefst kl. 16.00. Ármenningar fara norður á Húsavik leika þar gegn Völs um i dag kl. 16.00. Á morgun verður mikið Þróttara i Reykjavik. Þá ko Þróttarar frá Neskaupsstn heimsókn til Þróttara Reykjavik. Það verður þvi öru lega þróttmikill leikur háðui Melavellinum kl. 16.00 á morgur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.