Tíminn - 11.08.1973, Side 24

Tíminn - 11.08.1973, Side 24
111 I MERKIÐ, SEM GLEÐUR HHtumst i kaupfélaginu Q--------- SÐI fyrir gódan tnai $ KJÖTIDNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS G Mestu fjöldamorð í sögu Bandaríkjanna ? kynóðir menn myrtu 20-30 unglinga NTB-Washington — Lögreglan í Houston í Tex- as hefur eftir ábendingum 17 ára gamals pilts fundið lík af 21 árs unglingi, grafið á bakka stöðuvatns nokkurs utan við borgina. Pilturinn, sem vísaði á líkin hefur játað, að hann, 18 ára piltur og 33 ára gamall kynferðislega brenglaður, maður, beri ábyrgð á morðunum Þau hafi verið framin á undanförnum þremur árum. Eftir játninguna fór lögreglan meö piltinn út f smáeyju á Mexi- kóflóa, utan viö bæinn Galveston, en þar segir hann, aö fleiri lik séu grafin. Fari svo aö þar finnist fleiri lik, mun þetta veröa mesta fjöldamoröamál, i sögu Banda- rikjanna. Mexikani einn situr nú i lifstiöarfangelsi fyrir morö á 25 piltum, sem hann gróf niöur I jurtagarö sinn i Kalifórniu fyrir fáum árum. Samkvæmt frásögn áöurnefnds pilts, munu þeir þremenningar hafa myrt fleiri en 25 unga menn, eftir aö hafa misþyrmt þeim kynferöislega. STORBRUNI I, BOLUNGARVIK — tvær kýr og allmörg hænsni brunnu inni AÐFARANÓTT ÞRIÐJUDAGSINS brunnu öll útihús á býlinu Hanhóli við Bolungarvik tii kaldra kola og fórust i eldinum tvær kýr og allmörg hænsni. Auk þess komst eldur i þakskegg og þekju ibúðarhússins að Hanhóli og sprungu allar rúður hússins, sem að eldinum sneru. Miklar skemmdir urðu einnig á húsinu af völdum vatns og reyks. Eldurinn kviknaöi mjög skyndilega og uröu útihúsin fljótt alelda. Slökkviliö og fólk úr nær- liggjandi húsum kom fljótt á staö- inn, en ekki varö viö neitt ráöiö. Bóndinn á Hanhóli heitir Hannibal Guömundsson, og stundar hann auk bústarfanna vinnu I kauptúninu. Hann var bú- inn aö hiröa um þaö bil helming Mikið byggt og endurbætt í Borgarnesi SB, Reykjavik — Miklar fram- kvæmdir standa nú yfir 1 Borgar- nesi, bæöi á vegum hins opinbera, einstaklinga og fyrirtækja. Stærstu verkin, sem unniÖ er aö hjá hreppnum eru gatnagerð og bygging iþróttahúss. Tfl nýfram- kvæmda i gatnagerð voru á árinu veittar 9,3 milljónir króna. Stcyptur verður 300 metra kafli af Borgarbraut og er þaö verk langt komið. Þá verður lögð olíu- möl á 400 — 500 metra kafla og auk þess verða undirbyggðar nýjar götur. Gerö hefur verið áætlun um kostnaö við aö leggja götur i Borgarnesi varanlegu slitlagi, svo og að ljúka viö gangstéttir og ganga frá gróðurblettum. Er sú áætlun upp á 37 milljónir króna. Samanlagt gatnakerfi bæjarins var i vor tæpir fimm kilómetrar að lengd, og þar af var slitlag á 1400metrum. Mikill áhugi er á að ljúka þessu verki á næstu fimm árum. Til byggingar iþróttahúss og yfirbyggingar sundlaugar, var á árinu veitt 14 milljónum króna. Stærð salar iþróttahússins er 18x33 metrar með búningsher- bergjum og áhorfendasvæði. Vinna við grunninn hófst sl. vor en vinna við uppslátt og steypu- vinna hefst nú i mánuðinum. Arkitekt hússins er Jes Einar Þorsteinsson, Reykjavik, verk- fræðiþjónustu annas't útibú Verkfærðistofu Sigurðar Thoroddsen sf. Borgarnesi, en Ólafur Gislason, raftækni- fræöingur Rvik., teiknaöi raf- lagnir. Þorsteinn Theódórsson, húsásmiöameistari, Borgarnesi er aöalverktaki viö bygginguna. Af öörum byggingafram- kvæmdum i Borgarnesi má nefna læknamiöstöö, sem vonazt er til aö veröi lokið snemma á næsta ári. Unniö er viö viöbyggingu viö dvalarheimili aldraöra og stækkun áhaldahúss Vega- gerðarinnar. Verið er að flytja i 6 ibúða verkamannabústað, sem byrjað var á i september sl. • Mun meira af ibúðum er i bygg- ingu en undanfarin ár og eru það bæði einbýlishús raðhús og fjöl- býlishús. heys sins, eitthvaö fimm kýrfóö- ur. Heyiö brann ekki allt, enda var þvi þétt staflaö, en meginr hluti þess er talinn ónýtur. Taliö er aö eldurinn hafi stafaö frá dieselknúnum heyblás- ara. —gj. Afturhjól losnaði og bíllinn fór útaf ANNAÐ afturhjól bifreiöar- innar losnaöi af og viö það missti ökukonan stjórn á bilnum, þannig aö hann stakkst út af vcginum sjávarmegin fór siöan hálfa veltu fram fyrir sig og kom niöur á toppinn. 1 bilnum voru tvær konur og tvö börn, drengur og stúlka, og slösuöust þau öll eitthvað, þannig aö flytja varö þau öli á slysadeildina, litla stúlkan þó mest. Atburður þessi átti sér stað i Hvalfirði rétt við Fossá i Kjós siðdegis i gær. Bifreið- inni, sem var aö koma úr Reykjavik, var ekiö inn Hvalfjörðinn þegar annaö afturhjóliö losnaöi meö fyrr- greindum afleiðingum. Má telja það nokkra mildi að at- burðurinn átti sér þó stað þarna, þvi aö viöa á Hval- fjarðarleiðinni er snarbratt niður i sjó frá veginum og þeir staðir vart fýsilegir til útafkeyrslu. Bifreiöin, sem er úr Kefla- vik, er mikiö skemmd. —GJ Landsvirkjun úr vinnuveitenda- sambandinu SB-Rcykjavik — A fundi stjórnar Landsvirkjunar i gærmorgun, var ákveðið meö fjórum at- kvæðum gegn þremur, að Lands- virkjun segði sig úr Vinnu- veitendasambandi Islands, i samræmi við það ákvæöi i stjórnarsáttmálanum, að rikis- fyrirtæki skuli ekki vera i sam- bandinu. Auk Landsvirkjunar hafa Rikisskip, Kisiliðjan og Sements- verksmiðjurnar gengið úr vinnu- veitendasambandinu og Aburðar- verksmiðjan mun væntanlega fara að dæmi þeirra um áramótin. Þeir sem atkvæði greiddu gegn úrsögn Landsvirkjunar voru Geir Hallgrimsson, Arni Grétar Finns- son og Birgir 'ísleifur Gunnarsson. Hvað komast margir í bíl? NTB-Kairó — A fimmtudags- kvöldiö hrapaöi fólks- flutningabifreiö ofan i gljúfur I Nil. Fréttum um, hve margir létu litiö, ber illa saman og eru sifellt að breytast. Fyrst var sagt, aö 120 heföu farizt, en samgöngumálaráöherra Egyptalands fullyrti i gær, aö þeir væru aöeins 23. Hins vegar segja björgunarmenn, að aöeins hafi fundizt 12 manns á lifi og séu þeir allir slasaðir- og á sjúkrahúsi. óljóst þykir jafnvel, hversu margir voru i bilnum, en vitað er, að hann var troðfullur af verkamönnum og stúdentum, e.t.v. allt að 120 manns. Hundahald leyft í Garðahreppi — með ströngum skilyrðum þó SB, Reykjavik — Hreppsnefnd Garöahrepps hefur samþykkt aö leyfa hundahald i hreppnum meö ákveönum skilyröum. t sam- þykktinni segir, aö hundahald sé bannað, en þó sé heimilt aö veita undanþágur til hundahalds. Heil- brigöisráöuneytiö á eftir aö sam- þykkja þetta, en fastlega er búizt viö þvi samþykki og kemur þá hundahald i Garöahreppi tii framkvæmda í haust. Garðar Sigurgeirsson, sveitar- stjóri Garðahrepps, sagði i við- tali viö blaðið i gær, að sumum kynni ef til vill að þykja skilyröin ströng, en þaö yröi þá til þess að einungis þeir, sem heföu raun- verulegan áhuga á aö eiga hund og hugsa um hann, geröu þaö. Meðan fariö færi eftir öllum reglum, mættu hundar i hreppn- um veröa eins margir og vildi og er raunar þegar talsvert af hundum þar, einkum vegna bú- reksturs. A skilyrðunum fyrir hundahaldi má nefna, aö hver hundur skal skráður á skrifstofu hreppsins og fær hann þar plötu sem hann skal bera i bandi um hálsinn. Greiða skal leyfisgjald af leyfi fyrir hvern hund og rennur þaö til kostnaöar viö eftirlit meö hundum. Þá skal hver hundur ábyrgðartryggur, hann skal aldrei ganga laus, heldur i ól og með manneskju, sem hefur full- komið vald á honum. Bannað er aö fara með hunda inn i matvöru- verzlanir og aöra staöi, þar sem matvæli eru um hönd höfð. Þá skulu hundar ekki raska ró fólks eöa vera til óþæginda á nokkurn hátt. Við fyrsta afbrot skulu hundar settir i hundageymslu um ákveðinn tima og sé þessum reglum ekki hlýtt hefur sveitar- stjórn heimild tií aö afturkalla hundaleyfi einstakra hunda eða öll leyfi, ef henni sýnist svo. Garðarhreppur er eini staöurinn á höfuðborgarsvæöinu, þar sem fólk má hafa hunda og geta nú hundavinir i Reykjavik fariö aö ihuga aö flytja suöur eftir. A Akureyri mun hundahald leyft meö svipuöum skilyröum. AAikil umferð til Mars NTB-Moskvu — Sovétmenn skutu i fyrrakvöld upp geim- fari, sem fara á til reikistjðrn- unnar Mars. Siöán 21. júli hafa Sovétmenn þá sent fjögur geimför þangað. Samkvæmt upplýsingum vestrænna sér- fræöinga munu tvö þessara fara lenda nær samtimis á stjörnunni I marz á næsta ári. Ekki er taliö liklegt, aö fleiri Marz-för veröi send upp i bráö. Taliö er að tvö faranna eigi aö mjúklenda á Marz, en hin tvö aðeins aö mynda yfir- boröiö. Nýtt varðskip: Mun verða látið heita goðanafni Klp-Reykjavík. Búiö er að ákveöa, að smíðað verði nýtt varðskip fyrir islend- inga í Danmörku. Fram- kvæmdir við smíði skipsins munu hefjast einhvern næstu daga og er áætlað að það verði væntanlegt til landsins um miðjan desember á næsta ári. Pétur Sigurösson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar sagði i viðtali við blaöiö i gær, aö fyrr á þessu ári hefði rikisstjórnin skipað nefnd til aö kanna mögu- leika á smiði nýs varöskips. Sú nefnd hefði skilað áliti og þar mælt meö, aö smiöað yrði skip, , sem yrði af svipaðri stærð og gerð ’og varðskipið Ægir. „Það hefur verið góð reynsla af Ægi og við munum reyna að byggja á þeirri feynslu svo og annarri, sem við höfum fengiö af varðskipunum, sem hér þurfa að sinna skyldustörfum viö erfiöar og misjafnar aðstæöur sagöi Pétur Sigurðsson. — Það er gert ráö fyrir að skipið veröi smiöaö i skipasmiöastöð, sem er rétt viö Alaborg, en stööin i Álaborg mun sjá um teikningar og annaö. Samningar hafa ekki verið geröir, en þeir munu veröa undir- ritaöir einhvern næstu daga, og þá um leiö verða hafnar fram- kvæmdir viö smiöina. Stööin hefur þegar tryggt sér allar vélar og nauösynlegasta útbúnað. Viö munum leggja áhezlu á, aö I skipinu veröi öll hin fullkomnustu tæki til aðstoðar og björgunar- starfa, eins og t.d. aðstaða fyrir þyrlur og annan útbúnað, sem nú er orðin sjálfsagður á öllum skipum sem þessum. Við spurðum Pétur áð þvi i lokin, hvort nokkuð væri farið að hugsa um nafn á þessu skipi. Ekki þvertók hann fyrir það, en það væri ekki gefið upp. Eitt væri þó vist, að eitthvert goða nafn færi á það, það væri þegar orðin hefð i varðskipaflotanum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.