Tíminn - 31.08.1973, Blaðsíða 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFTORG SÍMI: 26660
RAFIOJAN SÍMI: 19294
J
Hálfnað
erverk
þá hafið er
v
I
j
sparnaður
skapar
verðmæti
Samvinnubankinn
Dauðsfall um borð í Ægi:
Var það alda frá Statesman,
sem grandaði manninum?
Nú hefur fyrsti maðurinn látið lifið vegna land-'
helgisbaráttu okkar íslendinga. Halldór Hallfreðs-
son, 2. vélstjóri á varðskipinu Ægi, lézti fyrradag
um borð i skipi sinu af völdum raflosts, sem hann
fékk, þegar hann var að gera við skemmdir, sem
brezka freigátan Appollo olli á Ægi, þegar hún sigldi
á hann fyrr um daginn. Halldór heitinn var að vinna
við að rafsjóða i göt, sem höfðu myndazt við
ásiglinguna, þegar alda reið yfir Ægi. Halldór var
með rafsuðutækin i höndunum og fékk raflost og
missti þegar meðvitund. Ekki er ljóst, hvort aldan
stafaði frá dráttarbátnum Statesman, en hann
fylgdi Ægi eftir meðan á viðgerðinni stóð, en þetta
atriði verður leitt i ljós i sjóprófum, sem hófust i
morgun klukkan hálfniu vegna atburðarins.
Sjóprófin fara fram á Akureyri.
Strax eftir að Halldór missti
meövitund voru hafnar á honum
lifgunartilraunir og samband var
haft viö lækni á Akureyri og hann
beðinn aö koma á móts viö Ægi.
Ægir tók stefnuna á Grimsey, en
læknirirnn fór fugleiðis þangað á
móti varðskipinu. Varðskipið
Óðinn var einnig statt á svipuð-
um slóðum og hélt strax til
Grimseyjar. Kom óðinn þangað á
undan Ægi og tók Óðinn þvi
lækninn um borð og sigldi
með hann til móts viö Ægi. Varö
skipin tvö mættust siða- skammt
frá Grimsey.
Þegar læknirinn kom um borö i
Ægi, var Halldór þegar látinn.
Flogið var með lik hans til Akur-
eyrar.
Eins og áður hefur komið fram i
Timanum, kom leki að ljósavéla-
rúmi varðskipsins Ægis, eftir
ásiglingu Appollo. Akveðið var að
framkvæma bráðabirgðaviðgerð
á skipinu og rafsjóða i göt, sem
ollulekanum. Ægir var um 12 sjó-
milur frá Kolbeinsey og brezka
freigátan Appollo var skammt
undan og var sýnilega veriö að
kanna skemmdir um borð.
Freigátan hafði samband við
dráttarbátinn Statesman sem
var skammt unda, og bað hann
um aðstoð. Dráttarbáturinn kom
á staðinn, en byrjaði á að sigla
ögrandi I áttina að Ægi. Var þá
ákveðið að fara inn fyrir 12 sjó-
milna mörkin, en þar töldu varð-
skipsmenn sig óhulta fyrir ágangi
brezku skipanna. .
Þegar Statesman virti ekki 12
milna mörkin, heldur hélt á fullri
Framhald á bls. 6
Tveir laganna vcröir, ábúöarmiklir á svip, gefa öllu nánar gætur viö brezka scndiráöiö i gær.
Timamynd Gunnar.
Aukin löggæzla við
brezka sendiráðið
VEGNA atburöanna á miðunum i
fyrradag, þegar Halldór
Hallfreösson skipverji á Ægi iét
iifiö við skyldustörf sin, óttuöust
lögregluyfirvöld, aö til tiöinda
myndi draga viö brezka sendi-
ráðiö og sendiherrabústaöinn viö
Laufásveg. Var þvi gripiö tii þess
ráös i gærmorgun að efla alla lög-
gæzlu við byggingarnar aö mun.
en sem kunnugt er hefur sérstak-
lega veriö fylgzt meö þessum
stööum siöan óeiröirnar uröu þar
senmma i sumar.
Sex lögreglumenn voru sendir á
hvorn staðinn, og höfðu þeir
nánar gætur á öllu, sem þar fór
fram I gær. Auk þessarar tólf
lögregluþjóna, voru tvær lög-
reglub ifreiðar við hvora
bygginguna. Yfirmenn Reykja-
vikurlögreglunnar sáust einnig
koma að brezka sendiráðinu til
þess að líta eftir þvf, að allt væri
þar i lagi. Mátti m.a. sjá
lögreglustjórann koma á staðinn
og kynna sér allar aöstæður.
Ekki dró til neinna tiðinda á
Laufásveginum i gærdag.
-gj-
HÖRMULEGT
— segir forsætisráðherra
ÞETTA var hörmulegt slys,
sem átti óbeint rætur sinar að
rekja til aðgerða freigátunnar
Appollo og dráttarbátsins
Statesman i landhelginni i
gær, og ég vil votta aðstand-
endum hins látna mina dýpstu
samúð, sagði Ólafur
Jóhannesson, forsætisráð-
herra i viðtali við Timann
laust eftir hádegið i gær.
Sendiherra Breta á tslandi,
John McKenzie, var afhent
mótmælaskjal Islenzku ríkis-
stjórnarinnar i fyrradag
vegna ásiglingar Appollos, og
siðdegis I gær gekk Pétur
Thorsteinsson ráðuneytis-
stjóri enn á ný á fund brezka
sendiherrans og afhenti hon-
um annað mótmælaskjal.
I siöara skjalinu er mótmælt
dvöl herskipa og dráttarbáta i
SLYS
Islenzkri fiskveiðilögsögu og
ólöglegu framferði þeirra
innan landhelginnar. Sérstak-
lega er bent á, að nú hafi hlot-
izt dauðsfall af þessum sök-
um. Loks er itrekuð krafan
um, að brezka rikisstjórnin
dragi tafarlaust til baka her-
skipin og dráttarbátana, sem
hún hefur sent á lslandsmiö.
— gj-
Halldór Hallfreösson.