Tíminn - 31.08.1973, Blaðsíða 2

Tíminn - 31.08.1973, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Föstudagur 31. ágúst 1973. Breyttur skrifstofutími Frá 3. september n.k. verður aðalskrif- stofa Loftleiða hf. á Reykjavikurflugvelli opin frá kl. 09:00 - 17:00 alla virka daga nema laugardaga. Þá er lokað. F'arskrárdeildin, beinn simi 25100 er opin milli kl. 08:00 - 22:00 alla daga. Farþegaafgreiðslan á Reykjavíkurflug- velli, simi 20200, er opin allan sólarhring- inn, alla daga vikunnar. Farþegaafgreiðslan á Keflavikurflugvelli, beinn simi 22333, er opin allan sólarhring- inn, alla daga vikunnar. Söluskrifstofa Loftleiða og Ferðaþjónusta Loftleiða, Vesturgötu 2, simi 20200. — Opin frá kl. 09:00 - 18:00 virka daga nema laugardaga. Þá opin kl. 09:00 - 12:00. WFTLEIDIR T —.—— — ; ■ - - ..Við velium funM það borgar n\q /, % , IWU OFNAR IVF, . < 7 Síðumúla 27 . Reykjavík Símar 3-55-55 og 3-42-00 VÓRUBILSTJORAR Nýtt mynstur Slitmikið mynstur Mynstrið sem gefur beztu endinguna,) ásamt mjög góðum spyrnueiginleikum , Sólum stærðir: i 1100 x 20 —1000 x 20 — 900 x 20 — 825 x 20 — 750x16 SÓLNING H.F. Reykjavik — Höfðatúni 8 — Simi 1-12-20 Kópavogi — Nýbýlavegi 4 — Simi 43988. 1111 1I1.Il Svik íhaldsins Mér þótti mjög miður nýlega, er ég sá, að Þjóðviljinn var að amast við verzlunareiganda i Kópavogi vegna lágra skatt- greiðslna hans. Þjóðviljinn hefði mátt láta hann vera, eða jafnvel birta i staðinn hólgrein um þá þjónustu, er hann veitir af litlum efnum þeim launþegum, er vinna fram til kl. 7 á kvöldin. Þess má geta að þessi kaupmaður á Kársnesbrautinni og starfsfólk hans, á sérstakar þakkir skildar fyrir, hve hlýlegt og alúðlegt það er. Afgreiðslufólk þarna er til sannrar fyrirmyndar, en sérstaklega má þó nefna pilt- inn i kjötafgreiðslunni. Sem sagt, þessi verzlun veitir þrælandi launþegum i Reykjavik þá þjónustu að geta verzlað fram á kvöld, það hefði Þjóðviljinn mátt þakka. Það er annars furðulegt, hvern- ig flokkur framtaks- og einstaklingsfrelsis hefur hneppt alla verzlun og viðskipti i fjötra. 011 viðleitni til góðrar þjónustu við neytendur er barin niður af Glava ^lerullar- einangrun Hlýindinaf góðri hitaeinangrun vara lengur en ánægjan af lagu verði r — ihaldsmeirihlutanum i borgar- stjórn, og þeir sem fá að verzla á kvöldin, verða helzt að láta neytendur standa úti hálfbogna við smágöt á verzlununum. Það er sjálfsögð krafa neyt- enda, að verzlunarmönnum verði frjálst að verzla, a.m.k. fram til kl. 23.30 og með þá vöru, sem al- mennt er á boðstólum i verzlun- um (ekki aðeins matvöru). Neytendur i Reykjavik ættu að hrinda þessum svikurum við mál- stað frjálsrar verzlunar frá völd- um i vor. Sjálfstæðisfólk i Reykjavik ætti að athuga, að borgarstjórnarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins i Reykjavik eru helztu fulltrúar haftastefnu á Is- landi i dag, það sýna verkin. Það er ekki nóg að hafa frelsi i orði. Það verður og að vera á borði. Fyrrverandi Heimdellingur. PÖST- OG SlMAMÁLASTJÓRN Sérleyfisleiðir lausar til umsóknar Sérleyfisleiðirnar Siglufjörð- ur-Sauðárkrókur-Varmahlið og Reykjavik-Höfn i Hornafirði eru lausar til umsóknar. Umsóknir skulu sendar umferðarmála- deild Pósts og sima, Umferðar- miðstöðinni i Reykjavik fyrir 15. september 1973. Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um bif- reiðakost umsækjenda. Reykjavik, 29. ágúst 1973. Umferðarmáladeild Pósts og síma. Vinna úti á landi Hjón óska eftir vinnu úti á landi. íbúð þarf að fylgja. Maðurinn vanur vélum og viðgerðum, konan hjúkrun og saumaskap. Tilboð sendist blaðinu merkt úti á landi 1523. Stuðningsmenn séra Póls Pólssonar hafa opnað skrifstofu í Miðbæ við Háaleitisbraut Símar: 8-26-86 og 8-26-55 Vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.