Tíminn - 31.08.1973, Qupperneq 9
nmm'
Fostúdagur 31. ágúst 1973.'
$
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson,
Auglýsingastjóri: jSteingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif-
stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif-
stofur I Aðalstræti 7, slmi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug-
íýsingasimi 19523. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands,
I lausasölu 18 kr. eintakið.
Eftir fyrsta árið
Á morgun er liðið eitt ár siðan fiskveiðilög-
saga íslands var færð út i 50 milur. Þegar hefur
náðst mikilvægur árangur af útfærslunni, þótt
fullnaðarsigur sé ekki unninn enn. Árangurinn
er m.a. þessi:
1. Allar þjóðir, sem hafa stundað fiskveiðar á
íslandsmiðum, nema Bretar og Vestur-Þjóð-
verjar, hafa viðurkennt nýju fiskveiðimörkin i
verki. Þannig hefur tugum og jafnvel hundruð-
um erlendra fiskiskipa verið beint frá miðun-
um, þar sem likur benda einnig til, að sókn
þessara þjóða á íslandsmið hefði aukizt, ef út-
færslan hefði ekki komið til sögunnar. Afli
Vestur-Þjóðverja, og Breta hefur minnkað
verulega einkum þó, ef miðað er við siðustu
misserin fyrir útfærsluna.
2. Þrjár þjóðir hafa samið við íslendinga um
landhelgismálið og undirgengizt að veiða sam-
kvæmt islenzkum lögum og takmarka jafn-
framt veiðar sinar verulega.
3. Útfærslan i 50 milur hefur vakið mikla
athygli viðs vegar um heim og styrkt málstað
þeirra, sem berjast fyrir stækkaðri fiskveiði-
landhelgi. Þannig má telja vist, að aðgerðir ís-
lendinga hafi haft úrslitaáhrif á breytta af-
stöðu Norðmanna og Kanadamanna. í þró-
unarlöndunum hefur útfærsla islenzku fisk-
veiðilögsögunnar orðið stjórnmálamönnum
þar mikil hvatning og íslendingar njóta þar
óskiptrar samúðar vegna þorskastriðsins. í
Bretlandi sjálfu hefur útfærsla islenzku fisk-
veiðilögsögunnar mjög styrkt aðstöðu þeirra
fiskimanna, sem veiða á heimamiðum og vilja
fá stækkaða fiskveiðilögsögu. Merk brezk blöð
spá þvi, að sérfræðingar stjórnarinnar muni
brátt leggja til, að Bretar færi út fiskveiðilög-
söguna, sbr. Sunday Telegraph 5. ágúst. Þetta
er lika augljóst hagsmunamál Breta, en á sið-
asta ári veiddu þeir nálægt 5/7 hlutum af afla
sinum á heimamiðum.
Þótt á ýmsu velti nú i þorskastriðinu, geta ís-
lendingar verið ánægðir yfir þeim árangri,
sem hefur náðst, jafnhliða þvi, að þeir geta
verið vissir um sigur þótt þorskastriðið kunni
að haldast enn i nokkra mánuði eða misseri.
Sigurinn verður íslendinga, ef þá brestur ekki
úthald. öll þróun i þessum málum bendir til
þess, að Bretar gefist upp fyrr en siðar. Allt
bendir lika til, að þeir væru búnir að semja við
íslendinga, ef brezka útgerðarihaldið héldi
ekki i ólánssamninginn frá 1961 sem hálmstrá i
trausti þess, að íslendingar bogni fyrir út-
skurði alþjóðadómstólsins, ef hann gengur á
móti þeim.
Það er furðulegt, að til skuli vera þeir is-
lenzkir menn, sem gera litið úr þeim árangri,
sem náðst hefur, og eru þannig óbeint að hvetja
þjóð sina til uppgjafar. Þeir menn eru raun-
verulega að lengja þorskastriðið, þvi að þeir
eru að vekja þær fölsku vonir hjá brezku út-
gerðarauðvaldi, að íslendingar kunni að gefast
upp eins og 1961. En saganfrá 1961 mun ekki
endurtaka sig og undanhaldsmennirnir munu
hljóta maklegan áfellisdóm þjóðarinnar.
Þ.Þ.
Brenda Jones, The Guardian:
Stjórn Kenya hafnar
gjörbyltingu lífshótta
Nefnd sérfræðinga kannaði efnahags- og atvinnu-
ástand í landinu og mælir með fleiri og meiri
breytingum en ríkisstjórnin getur fallizt á
SENDINEFND frá Alþjööa-
vinnumálaskrifstofunni i Genf
fór til Kenya I fyrra sam-
kvæmt beiöni rikisstjórnar-
innar og kannaði orsakir at-
vinnuleyfisins I landinu. Með
I ráðum voru starfsmenn
ýmissa stofnana Sameinuðu
þjóðanna. Samstarfs-
mennirnir komust að lokum
að þeirri niðurstöðu, að þeir
gætu ekki rætt atvinnuleysið á
þess að taka til meðferðar enn
alvarlegri vanda, , eða hið
gifurlega breiða bil milli rikra
og snauðra.
Skýrsla rannsóknanefnd-
arinnar er 600 blaðsíður og þar
er mælt með ýmsu, sem hefði i
för með sér gjörbyltingu á
stjórnarstefnu i ýmsum mála-
flokkum, svo sem heilbrigðis-,
mennta- og fjármálum. Til-
lögur nefndainnar fela i raun
og veru I sér byltingu á lifs-
háttum i Kenya.
Skýrslan kom rikisstjórn
landsins að ýmsu leyti á óvart
og hefir stjórnin haft hana til
athugunar i niu mánuði.
Niðurstöðurnar verða birtar i
sérstöku riti nú um mánaða-
mótin. Mwai Kibaki fjármála-
og áætlunarráðherra Kenya
segir stjórnina fallast á þrjá
fimmtu af tillögum rannsókna
nefndarinnar. En i þeim
tveimur fimmtu hlutum, sem
stjórnin fellst ekki á, er allt
það róttækasta.
VANDINN, sem rann-
sóknarnéfndin kannaði, er
mikið áhyggjuefni bæði i
Kenya og öðrum vanþróuðum
rikjum. Siðan rikið öðlaðist
sjálfstæði hefir hagvöxturinn
verið 6—7 af hundraði á ári. Er
það með þvi mesta hjá van-
þróuðum rikjum, en aukin vel-
megun hefir ekki náð til hinna
fátækustu.
Rikið hefir verið sjálfstætt i
tiu ár, en sex milljónir manna
(helmingur ibúannahafa ekki
atvinnu. Tvær milljónir
fjölskyldna að auki hafa
minna en sem svarar 43 þús.
Isl. kr. i árstekjur.Fjórðungur
allra barna i landinu þjáist af
næringarskorti og 80 til 85 af
hundraði landsmanna eru
hvorki læsir né skrifandi.
Rannsóknanefndin komst að
þeirri niðurstöðu, að orsakir
erfiðleikanna væri að leita i
sjálfri uppbyggingu efnahags-
lifsins, sem mótað var á ný-
lendutimunum. Þá lifði mjög
fámennur minnihluti við alls-
nægtir, en allur þorri manna
við sára fátækt. „Munurinn er
miklu meiri en i flestum
rikjum Asiu og Suður-
Ameriku,” segir i skýrslu
rannsóknanefndarinnar. Við
sjálfstæðistökuna hefir sú ein
breyting oröið á, að innlendir
forréttindamenn hafa tekið
við af Bretum.
1 SKÝRSLU nefndarinnar er
bent á margt, sem breytt gæti
efnahagslifinu til aukins jafn-
aöar. Til tekjujöfnunar mælir
nefndin með, að kaup fjórð-
ungs launamanna verði fest i
sjö ár, meðan hlutur hinna
gengur til kosninga að ári og
mun þvi láta sér hægt i þessu
efni að sinni. Staðreyndir
málsins blasa eigi að siður við
og undan þeim verður ekki
vikizt, en sennilega verður
reynt að fara með gát og
reyna þær aðferðir, sem hafa
minni stjórnmálaháska i för
með sér en hávaðasöm alls-
herjar sókn.
Mwai Kibaki
fjármálaráðherra Kenya.
Rikisstjórn Kenya ætlar
ekki að hafa endaskipti á þjóð-
lifinu. Hún ætlar að einbeita
sér að framkvæmd nokkurra
tuga skynsamlegra tillagna,
en þær er að finna á flestum
blaðsiðum skýrslunnar. Vegir
verða lagðir og athugað af
gaumgæfni, hvort unnt sé að
koma við undirstöðumenntun i
einföldum atriðum, sem
komið geti að notum.
LöGÐ verður aukin áherzla
á að efla „hliðargreinar”
atvinnulifsins, eins og komizt
er að orði i skýrslunni. Er þar
meðal annars átt við af-
greiðslustaði meðfram alfara-
leiðum, litil viðgerðaverk-
stæði og leigubilaakstur til
fólks- og vöru-flutninga, en
hann hefur reynzt mikilvægur
til atvinnu- og tekju-öflunar.
Þá mun rikisstjórnin einnig
reyna að veita smálán, sem
svari til eitt til þrjú þúsund
króna isl., en oft nægir slik
aðstoð til þess að koma smá-
rekstri á fót.
Hinar skynsamiegu tillögur
i skýrslunni eru góðra gjalda
verðar viðar en I Kenya, enda
hafa fleiri vanþróaðar þjóðir
ákveðið að notfæra sér hana.
Megintillögurnar um gjör-
breytingu verða lagðar til
hliðar að sinni, þar sem rikis-
stjórn landsins telur sig hvorki
hafa afl né vilja til að fram-
kvæma þær að svo stöddu.
Kenyatta forseti hefir aldrei
verið vinsælli en nú, en hann
vill ekki hafa frumkvæði um
gjörbreytinguna. Eftirmaður
hans mun varla hafa tök á þvi,
enda sennilega enn erfiðara
um vik þá. Breytingarnar,
sem mælt er með I skýrslunni,
eru svo miklar, að þeim
verður varla komið á nema
með byltingu eða einræði,
Kenyamenn virðast ekki hafa
löngun til slikra hluta. Hvort
sem það verður talið sýna
veikleika eða styrk er það
óneitanlega ánægjulegt út af
fyrir sig.
lægst launuðu sé réttur litið
eitt.
Nefndin bendir á, að mikið
land sé i eigu stórra bújarða,
sem skili mun minni afrakstri
en vera ætti, ýmist af þvi, að
eigendurnir séu önnum kafnir
við viðskipti og hafi ekki tima
til að sinna rekstrinum, eða
skorti nægilegt rekstrarfé. Vill
nefndin, að rikisstjórnin skipti
slikum jörðum i þúsundir
smábýla, sem framfleyti einni
fjölskyldu hvert.
Nefndin vill stemma stigu
við fólksflutningum úr land-
búnaðarhéruðuum til örbirgð-
ar I borgum með þvi að tak-
marka fjárfestingu i Nairobi,
þar sem skýjakljúfar risa af
grunni hver af öðrum, en gera
I staðinn skylt að fjárfesta lág-
marksupphæð i úthéruðum.
Rikisstjórninni er einnig
ráðlagt að hætta að hvetja eig-
endur einkafjármagns (sem
oftast eru erlendir) til þess að
reisa i Kenya verksmiðjur að
vestrænni fyrirmynd, sem
byggjast á mestu á sjálfvirkni
og nota mjög litinn vinnukraft.
Nefndin vill heldur láta reisa
einfaldar verksmiðjur, sem
þurfa mikið vinnuafl og nota
vélar, sem Kenyamenn geti
lært að stjórna og jafnvel að
smiða. Þá leggur nefndin fast
að rikisstjórninni að leita allra
tiltækra ráða til þess að draga
úr barneignum.
ÖLLUM framangreindum
tillögum nefndarinnar verður
hafnað. Tillagan um óbreytt
laun i sjö ár hefir mætt afar
harðri andstöðu Sambands
verkalýðsfélaga. Sambandið
fagnaði tillögum rannsókna-
nefndarinnar#þegar þær voru
settar fram i nóvember i
fyrra, en krefst nú allsherjar
launahækkunar um 150 af
hundraði.
Rikisstjórnin er ekki reiðu-
búin að gera grundvallar-
breytingar á notkun lands.
Kibaki fjármálaráðherra
segir það góða hugmynd að
skipta stórjörðum i smábýli,
en erfitt sé að koma þvi á með
þvingunum. Keypt verður það
land sem boðið verður til sölu
og skipt I skákir. Þetta veldur
þó tæplega mikilli breytingu,
þar sem flestir Kenyamenn
halda dauðahaldi i það land,
sem þeir eignast. Rikis-
stjórnin telur vandann ekki
það mikinn, að hann réttlæti
þvingun eða eignaupptöku.
EKKI mun heldur ætlunin
að draga úr athafnasemi i
Nairobi. Kibaki segir þessa
tillögu „ekki skynsamlega. I
henni er gengið út frá þvi, að
rlkið hafi tögl og hagldir i
efnahagslifinu, en sú er ekki
raunin”. Rikisstjórnin telji sig
ekki geta neitað manni um að
fjárfesta þar, sem hann vill, ef
hann hefir fé á reiðum
höndum. Athafnamenn vilji
heldur ekki láta segja sér fyrir
um, hvers konar verksmiðju-
rekstur þeir eigi að fást við.
„Höfundur skýrslunnar eru
þarna á villigötum”, segir
Kibaki fjármálaráðherra. Val
milli sjálfvirkni og einfaldari
tækni sé ekki um að ræða, þar
sem Kenyamenn bresti meira
að segja kunnáttu til þess að
starfrækja hinar einföldustu
verksmiðjur. Umfangsmikil
breyting i þessu efni leysi ekki
atvinnuleysisvandann, enda
yrði eftir sem áður að flytja
inn fjármagnið, tæknina og
fólkið, sem verksmiðjurnar
starfrækti.
ERFIÐAST verður að fást
við takmörkun barneigna.
Stór barnahópur telst hluti
eðlilegra lifshátta i Afriku og
litið verður á baráttu gegn þvi
sem árás á afriska menningu.
Ekki bætir úr skák, að vestræn
samtök leggja yfirleitt fram
bæði fé og starfsfólk til slikrar
baráttu.
Þessi hluti skýrslunnar olli
mestum deilum þegar hún var
birt þinginu. Rikisstjórnin