Tíminn - 31.08.1973, Qupperneq 10
10
TÍMINN
Föstudagur 31. ágúst 1973.
Föstudagur 31. ágúst 1973.
Um allan heim er i ár haldið upp á 500
ára fæðingarafmæli stjömufræðingsins
Kópemikusar — mannsins, sem harð-
neitaði þvi,að jörðinværimiðpunktur al-
heimsins, og lagði þar með grundvöllinn
að nútima heimsmyndinni. í Danmörku
er afmælisins minnzt með sýningu i Kon-
unglegu bókhlöðunni, og er sýningin
einnig helguð hinum heimsfræga danska
stjörnufræðingi Tycho Brahe.
ÞEIR FÆRÐU
TIL MIÐPUNKT
ALHEIMSINS
Pólski stjörnufræftingurinn
Niculaus Knpernikus lagði grund-
völlinn aö nútima heimsmynd
meft kenningu sinni um aft þaö
væri jörftin, sem snerisl um sól-
ina, en ekki öl'ugt. Þcssi kcnning
kollvarpafti öllu þvi, sem á þeirn
timum var kennt i stjörnufræft-
uin, og var mikift ál'all fyrir kirkj-
una, þvi hún stangaftist á vift
kcnningar i hihliunni. Allt haffti
þetta mikla þýftingu fyrir fram-
vindu visindanna i margar aldir.
t ár eru liftin 500 ár frá fæðingu
Kópernikusar og jafnframt 400 ár
siðan Tycho Brahe gaf út hina
frægu bók sina ,,De Nova Stella”
um uppgötvun súpernóvu, þ.e.
stjörnu, sem springur.
t tilefni þessa hefur verið opnuð
sýning i Konunglegu bókhlööunni
I Kaupmannahöfn, og mun hún
standa i þrjá mánuði. Meðal perl-
anna á sýningunni er frumútgáfa
af riti Kópernikusar, þar sem
hann heldur þvi fram, að sólin, en
ekki jörðin, sé miðpunktur sól-
kerfisins, og aö jörðin snúist bæði
um sólina og sinn eigin möndul.
Margar af bókum Tychos
Brahe um stjörnufræði, meö rit-
hönd hans á, eru einnig á sýning-
unni. ásamt iikönum af tækjum
hans og miklum stjörnuglóbusi,
sem gei’ður var eftir fyrirsöng
hans. Smiðurinn var nemandi
Brahes, Ilollendingurinn Wilhelm
Blaeu.
Sannaði það, sem
átti að afsanna
Þó að þeir Kópernikus og Tycho
Brahe séu taldir brautryðjendur i
stjörnufræðum, þýðir þaðekki, að
þeir hafi verið sammála i skoðun-
um sínum á alheiminum — þvert
á móti. Tycho Brahe var alla sina
æfi sannfærður um, að Kóper-
nikus hefði haft á röngu að standa
og auðvitað væri jörðin mið-
punkturinn. Allar þær mælingar,
sem hann gerði, höfðu þann til-
gang að sanna, að hann hefði
sjálfur rétt fyrir sér og Kóper-
nikus rangt. A siðustu æviárum
sinum fól hann nemanda sinum,
Jóhannesi Kepler, að taka saman
og ljúka við rit um kenningar
Kópernikusar. En Kepler notaði i
staðinn athuganir Brahes til að
sanna, að það var raunar jörðin,
sem snerist um sólina. Þar með
var nafn Keplers einnig komið i
mannkynssöguna. Það hefur
vafalaust glatt hann, að Tycho
Brahe hefði snúið sér við i gröf-
inni, ef hann hefði vitað enda
málsins. Tycho var maður, sem
ekki var hægt að umgangast án
þess að verða fyrir skelfilegum
móðgunum, sagði Kepler eitt sinn
og margir hafa vafalaust verið
sammála þvi.
Tycho Brahe var sem sé einkar
þrár og stíflyndur maður. Þegar
um tvitugsaldurinn missti hann
mestan hluta nefsins i einvigi við
aðalsmann, og upp frá þvi notaði
hann sérlega haglega gert gervi-
nef, sem lærðir menn eru enn að
rifastút af. Sumir halda þvi fram,
að það hafi verið úr gull- og silfur-
blöndu, en aðrir meina það hafi
verið úr kopar. Siðari kenningin
er nýrri og byggist á þvi, að i
kistu Brahes fundust ekki aðrir
málmar en Kopar. Hins vegar
hefur gröf hans i Prag verið opn-
uð svo oft, að verðmætur málm-
moli gæti hæglega hafa horfið á
miður heiöarlegan hátt.
Töframaður
og óvinur bænda
Meðal bændanna á Hven, þar
sem Brahe hafði hina frægu rann-
sóknastöö sina, var hann nánast
hataður og þekktur sem plága á
bændum.
Arið 1597 varö hann að yfirgefa
Hven og stööina Úraniumborg
vegna ósamkomulagt út af þvi, að
háttsettur starfsmaður hirðar-
innar sparkaði i hund hans og
Brahe gerði i þvi siöan að hrella
manninn. Maöurinn beitti sér
hins vegar fyrir þvi, að rikis-
styrkurinn, sem Brahe fékk til
rannsókna sinna, var af honum
tekinn. Að lokum varð stjörnu-
fræðingurinn svo peningaluus, að
hann nánast hrökklaðist úr landi
og tók með sér mikið af beztu
tækjum sinum.
Jafnskjótt og Tycho Brahe
\ hafði yfirgefið eyna, hefndu
bændurnir sin með þvi að rifa
Úraniumborg gjörsamlega i tætl-
ur og nota grjótið i sin eigin hús.
Nú sjást þar aðeins nokkur
veggjabrot og brunnur. En gert
hefur verið likan af Úranium-
borg, einn tiundi af stærð. Likanið
var gert i Þýzkalandi um alda-
mótin og gefiö Svium 1958, en var
látið vera i kössunum þar til i
fyrra.
Hinn frægi stjörnuglóbus Brahes. Hann var tveggja metra hár,
smíftaftur úr tré og þakinn messingplötum. Afteins þaft, aft búa tii
nákvæmar kúlur i þessari stærð, var afrek á þeim timum.
Tycho Brahe i Úraniumborg-umkringdur bókum og nokkrum þeirra nemenda, sem streymdu til hans úr allri
Évrópu.
Úraniumborg hefur verið ein af
merkari byggingum sins tima.
Tycho Brahe hagnýtti sér efna-
fræðikunnáttu sina til að koma
fyrir alls kyns tæknilegum smá-
atriðum og varð það ekki sizt til
að koma á fót orðrómi um, að
hann væri töframaður og iðkaði
galdra. Stóri kúpullinn i þakinu
gegndi einnig hlutverki sem
vatnsturn og vatnsþrýstingurinn
fékk stóra hluti til að hreyfast.
Hið eiginlega verkefni Tychos
Brahe var að vera stjörnuspá-
maður og segja m.a. fyrir örlög
konungsins úr stjörnunum. Skipt-
ar skoðanir eru um hversu mikið
hann sjálfur trúði á stjörnurnar,
en hann gerði að minnsta kosti
mikið til að fá aðra til að trúa
stjörnuspám.
Hann hafði ætið um tug nem-
enda hjá sér i Úraniumborg, og til
að kalla á þá, lét hann setja upp
litlar bjöllur. Klukkustrengirnir
lágu um vei faldar rásir á veggj
unum að einkaherbergjum Bra-
hes. Brahe tók i strengina svo
enginn sá og nefndi samtimis
nafn einhvers nemenda sinna.
Fólki fannst stórkostlegt, að hann
skyldi geta kallað til sin fólk með
þvi einu að nefna nafn þess i lág-
um hljóðum.
Siðustu árum sinum eyddi
Brahe i Prag undir vernd Rúdólf
II, keisara. Það hljómar næstum
eins og hefnd, að þessi þrái
rifrildisseggur lézt af völdum
kurteisi. 1 miðdegisverðarboði
hjá baróni einum þurfti hann
nauðsynlega að skreppa fram, en
sat þó kyrr i sæti sinu til að vekja
ekki óþarfa athygli. Þegar hann
loks gat leyft sér að fara, hafði
þvagrásin stiflazt og hann lézt
skömmu siðar.
Þorði ekki að gefa
út lifsverk sitt
Kópernikus var andstæða
Brahes i næstum öllu tilliti. Hann
var rólegur, næstum feiminn.
Hann bjó i pólska bænum Frauen-
burg, upptekinn við lifsverk sitt,
sem átti eftir að gera hann að ein-
um mesta manni mannkynssög-
unnar. Tiu ára nám á ítaliu hafði
gefið honum innsýn i m.a. guð-
fræði, stærðfræði, stjörnufræði og
sigildar bókmenntir. Hið siðast-
nefnda kom honum þannig aö
gagni, að hann gat lesið verk
gömlu stjörnufræðinganna á
frummálinu og haldið áfram, þar
sem þeim lauk.
Margir þeirra, m.a. Aristarkus
frá Samos og Heraklit höfðu ver
ið þeirrar skoðunar, að jörðin
snerist um sjálfa sig og sólina, en
á þeim timum var slikt talið til
villukenninga. 90 árum eftir
dauða Kópernikusar varð nátt-
úrufræðingurinn Galilei að faila
frá þessari kenningu til aö kom-
ast hjá að verða brenndur (það er
sagt, að eftir á hafi hann tautað
lágt: En hún snýst nú samt.) Að
Kópernikus skyldi yfirleitt hafa
sloppiö lifandi frá kenningum sin-
um er sennilega þvi að þakka, að
hann bjó i öðrum heimshluta —
ekki þeim kaþólska. Samt sem
áður liðu mörg ár frá þvi hann
lauk verki sinu, þar til hann þorði
aö gefa það út. En sögur um
Tvcho Brahe
kenningar hans bárust út meðal
lærðra manna og náðu eitt sinn til
Wittenburg, þar sem Rheticus
nokkur prófessor varð svo æstur,
að hann tók sér þegar ferð á hend-
ur til Frauenburg til að koma vit-
inu fyrir þennan vitlausa Kópe-
rnikus.
En það fór á annan veg. Endir-
inn varð sá, aö Rheticus lét sann-
færast um kenningar Kóp-
ernikusar og það var honum að
þakka, að timamótaverk Kóper-
nikusar komst loks á prent árið
1543, sama ár og Kópernikus lézt.
Þvi miöur fylgdist Rheticus
ekki með siöasta áfanga prentun-
arinnar — hann fól það lúthersk-
um guðfræðingi, Osiander að
nafni, en sá notaði tækifærið til að
skrifa formála, þar sem hann
sagöi, aö þetta væri allt saman
getgáta og þyrfti alls ekki að vera
satt.Formálinn var ekki undirrit-
aður og i áraraðir taldi fólk, aö
Kópernicus hefði sjálfur skrifað
hann. Hið rétta i málinu kom loks
fram I dagsljósið árið 1609 fyrir
tilstilli Jóhannesar Kepler.
ÞýttSB.
Nicolaus Kopernikus
TÍMINN
11
Konnun húsnæðis d Norðurlandi:
HUSNÆÐISAUKNINGIN MEST A
ÓLAFSFIRÐI
SB-Reykjavik — Af íbúðarhúsum
á Norðurlandi voru 38% byggð
fyrir árift 1930, en 39,8% á árunuin
1950—1969. ibúðarhús úr steini á
Norfturlandi eru 70,9% af heildar-
fjöida. 1 ár eru 590 Ibúftir i smíft-
um á N'orfturlandi. lllutfailslega
mest nníftaaukning i kaupstöftum
Norfturlands er á Ólafsfirði. Þetta
og margt fleira fróftlegt keinur
fram i fréttabréfi frá Fjórftungs-
sambandi Norfturlands, um hús-
næftiskönnun á Norðurlandi.
Sambandið lét nýlega gera
þessa könnun, en slik könnun
hefur áður farið fram á Austur-
landi og Vestfjörðum. Voru 20
þéttbýlisstaðir norðanlands með i
könnuninni.
Til samanburðar má geta þess,
að á Austurlandi voru 35,5%
ibúðarhúsa byggð fyrir 1930 og
40,7% á Vestfjörðum. A Hofsósi
og Svalbarðsströnd var meira en
helmingur ibúðarhúsa byggður
fyrir 1930, en á átta stöðum var
það minna en 25%.
Arin 1950—1969 byggðu Norð-
lendingar 39,8% ibúðarhúsa
sinna, en i Revkjahlið, Rauíar-
höfn. Grenivik og Kópaskeri
hefur meira en helmingur húsá
verið byggður á þessu timabili. Á
Hofsósi, Hjalteyri, Siglufirði og
Svalbarðseyri hafa hins vegar
færri en 25% húsa verið byggð á
þessum árum.
A árunum 1963—1972 hafa 1536
ibúðir verið teknar i notkun, þar
af 825 á Akureyri, 144 á Sauðár-
króki, 140 á Húsavik og 104 á
Ólafsfirði. A öllum hinum stöð-
unum eru þær þvi 423. 1 ár smiða
Akurevringar 357 íbúðir, Húsvik-
ingar 60 og Sauðkræklingar 35. A
hinum stöðunum eru alls i
smiðum 138 ibúðir.
Áætlað er aö byggja 900-1000
ibúðir næstu 3 ár og eiga Akureyri
og Húsavik þar stærstan hlut, eða
375 og 120 ibúðir. A átta stöðum
hefur verið áætlað að sækja um
án til Húsnæðismálastofn-
unarinnar, skv. lögum um
byggingu leiguibúða og fleiri
staðir Iiugsa það mál.
Hlutfallslega mesta ibúða-
aukningin er á Ólafsfirði, 11,7
ibúðir á 1000 ibúa sl. fimm ár.
Næst er Sauðárkrókur með
11,4 fbúðir. Grenivik, sem ekki er
kaupstaður er með 25,3 ibúðir á
1000 ibúa sl. 5 ár.
A 17 stöðum, sem með voru i
könnuninni, kom i ljós, að einhver
skortur er á iðnaðarmönnum i
byggingariðnaði og bagar hann
einkum smærri stáði
Fjórðungssamband Norður-
lands hefur ákveðið að halda fund
i samráði við Húsnæðismáia-
stofnunina um húsnæðismál á
Norðurlandi. Mun hann verða urn
miðjan september.
FEGURÐ - ENDING
Gólfteppi yfir allt gólfið
Innréttingabúöin býöur úrval gólfteppa í fimmtiu mismunandi
tegundum og litum. Ný véltaekni sem viö höfum komið
okkur upp, gerir nú kleift aö breiöa á svipstundu úr heilum
rúllum á stóran gólfflöt svo aö viöskiptavinir geti afráðið
kaup sín viö æskilegustu aðstööu.
Sérhæft starfsfólk annast teppalagningar fljótt og vel,
hvort sem um er aö ræöa íbúðir, stigaganga, skrifstofur,
eöa samkvæmissali, o.fl. o. fl.
Viö kostum kapps um, aö veita mönnum upplýsingar og ráö,
sem þeir geta örugglega treyst.
Muniö, aö beztu og vönduðustu teppin þurfa ekki endilega
að vera hin dýrustu.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
GÆÐI
i
S5
Hofum einkaumboð fyrir Shaw Carpets
Ltd. sem er ein allra stærsta og
þekktasta teppaverksmiöja í Evrópu, o
og á aö jafnaöi 10-20 þúsund fermetra
gólfteppalager í Tollvörug. í Reykjavík.
SÉRVERZLUN MEÐ GÓLFTEPPI OG VEGGFÓÐUR