Tíminn - 23.10.1973, Side 8
8
TÍMINN
Þriöjudagur 23. október 1973.
ÁSTRALÍUMENN
ERU AD DRUKKNA
í KÚAM YKJU
Nú er mengun af ýmsu tagi
mjög til umræðu viðast hvar i
veröldinni. Orsakir mengunar
eru að sjálfsögðu margvisleg-
ar, en óviða mun þó kúamykja
og hrossatað teljast til meng-
unar, þvi að hvort tveggja fell-
ur inn i eðlilega hringrás
náttúrunnar. Þessu er þó ekki
þann veg farið i Ástraliu. Þar
er kúamykja alvarlegt vanda-
mál. Ar hvert ganga saman-
legt 33 milljónir smálesta af
mykju niður af kúnum þar i
landi. Það sem vandræðunum
veldur er það, að i Ástraliu er
mykjan miklu lengur að
hverfa inn i eðlilega hringrás
náttúrunnar en annars staðar.
Orsökin er sú, að mykju-
bjöllurnar áströlsku, skordýr-
in, sem leggja sér mykjuna,
til munns og greiða henni
þannig leið inn i hringrásina,
hafa um tugþúsundir ára van-
iztmykjunni úr pokadýrum og
þeim dýrum öðrum, sem eru
eðlilegur hluti af náttúrufari
álfunnar. Nautgripi ,hross og
sauðfé færðu hinir hvitu land-
nemar með sér fyrir um það
bil tveim öldum, og mykju-
bjöllurnar lita ekki við þvi,
sem niður af þessum framandi
sképnum gengur.
Þessu fylgir ýmiss konar
óhagræði. Mykjan sundrast og
hverfur miklu hægar og flug-
ur, sem sækja i mykjuna, eru
sagðar angra Astraliumenn
óspart. Menn hafa þvi brugðið
á það ráð að reyna að flytja
inn mykjubjöllur frá öðrum
heimshlutum, ef vera mætti
að þær fengjust til þess að
sinna þeim verkum, sem
áströlsku bjöllurnar fást ekki
til þess að vinna.
Bjöllur frá Fiji-eyjum og
Hawai hafa þegar gert nokk-
urt gagn. Þeim er hins vegar
ekki lifvænt nema i ákveðnu
loftslagi og i ákveðnum jarð-
vegi, svo að þær koma ekki að
gagni nema á nokkrum hluta
landsins. Þess vegna þarf að
leita viðar, og ástralskir skor-
dýrafræðingar hafa þvi verið
sendir til Afriku til þess að
rannsaka mykjubjöllur þar i
álfu. Til eru um 1800 tegundir
af afrikönskum bjöllum af
þessu tagi, og talið er að flytja
þurfi um 120 þeirra til Astra-
liu, ef takast á að losa Astra-
liumenn viö óþægindin af
völdum kúamykjunnar.
— HHJ þýddi.
Leikfélag Hornafjarðar
setur Skugga-Svein á svið
Leikféiag Hornafjarðar hóf i
haust æfingar á leikritinu
Skugga-Sveini undir leikstjórn
Kristjáns Jónssonar. Nú eru liðin
rúm 20 ár siðan Skugga-Sveinn
var siðast settur á svið á Höfn.
Ætiunin er að frumsýning verði 3.
nóvcmber.
Með hlutverk Skugga-Sveins
fer Asgeir Gunnarsson, en auk
hans fara með stór hlutverk, Gisli
Arason, Sigrún Eiriksdóttir,
Haukur Þorvaldsson, Ingibjörg
Gisladóttir, Sigurgeir Benedikts-
son og Arni Stefánsson.
A undanförnum árum hefur
félagið fært upp meðal annars
Ævintýri á gönguför, Pilt og
stúlku, Þjófa lik og falar konur,
Þrjá skálka o.fl.
Kristján Jónsson sem nú
stjórnar Skugga-Sveini hefur áð-
ur sett á svið fyrir félagið verk
eins og Vængstýfðir englar,
Tengdapabbi, Andorra og Gullna
hliðið, sem sýnt var á tiu ára af-
mæli félagsins.
SAUMUM
EFTIR MÁLI
ÖLL SNIÐ
EINNIG ÚRVAL
KARLMANNAFAIA
ALAGER
Notaðir bilar til sölu.
1973 Chevrolet Blazer V8
sjáifsk. m/vökvastýri.
1973 Chevroiet Nova sjálfsk.
1972 Chevrolet Chevelle
1972 Vauxhall Viva
1972 Land Rover discl
1972 I'ord Pinto
1971 Opel Record 4ra dyra
1971 Ford Mustang Mach 1
.1971 Chevrolet Malibu 2ja
dyra sjálfsk. m/vökvastýri
197(1 Volvo 142
197« Vauxhall VX4/90
1971) Toyota Crown sjálfsk.
197« Chevrolet Monte Carlo
197« Vauxhall Viva I)e Luxe
19(19 Chevrolet Chevelle stat-
ion
19(19 Scout 8(1«
19(19 Vauxhall Victor 2«0«
station
1969 Vauxhail Victor 1600
1969 Opel Itocord 2ja dyra
196(1 Chevrolet Chevelle
1966 Opel Caravan
ISfc |VAUXHAll ,iTt:i i r Ejjfc U
Greinargerð hdskólaráðs:
Lánveitingar úr
sjóðum Háskólans
Vegna fréttaflutnings i fjöl-
miðlum að undanförnu varðandi
lánveitingar úr sjóðum i vörslu
Háskóla Islands, vill háskólaráð
nú taka fram eftirfarandi:
1. 1 vörslu Háskólans eru all-
margir sjóðir, flestir fremur.
smáir, en nokkrir verulegir. Sjóð-
irnir eru flestir stofnaðir i
ákveðnu augnamiði og umsjón
þeirra og ávöxtun falin yfirstjórn
Háskólans. Nokkrir hinna stærri
sjóða eiga að jafnaði verulegar
innistæður I bönkum og þegar það
hefur eigi brotið i bága við mark-
mið sjóðanna, hefur föstum
starfsmönnum Háskólans alloft
verið veitt lán úr þeim, fyrst og
fremst til lausnar húnæðisþarfa.
Samkvæmt sjóðayf irliti
Háskólans fyrir árið 1972, voru
sjóðir 81 að tölu og heildareignir
hinn 31. desember 1972 alls kr.
64.099.975.
starfsmanni hafi verið synjað um
úrlausn. Hins vegar ber að geta
þess, að lánastarfsemi þessi hef-
ur aldrei verið auglýst innan Há-
skólans og mun þvi ekki öllum
starfsmönnum hafa verið um
hana kunnugt hin sfðari ár, þótt
svo hafi verið i upphafi.
4. Eins og áður getur er hér um
lögmæta ávöxtun fjár að ræða.
Trygging er næg og vaxtakjör
betri en af sparisjóðsinnstæðum.
Á það hefur verið bent, að betri
ávöxtun væri að festa fé i visitölu-
tryggðum rikisskuldabréfum,
sem stundum hafa verið á boð-
stólum hin siðari ár. Mun sá
möguleiki vissulega verða
ihugaður af yfirstjórn Háskólans.
En frá sjónarhóli Háskólans er sú
fyrirgreiðsla við fasta starfs-
menn, sem felst i margnefndri
lánastarfsemi, að sinu leyti æski-
leg fyrir stofnunina. A það má og
Eignirnar skiptust þannig:
Fasteignir
Rikisskulda-, bankavaxta- og hlutabr.
Veðlán til B.S.S.H.
Veðlán til Félagsstofnunar stúdenta
(vaxtalaust)
Veðlán til einstaklinga
Vixillán til einstaklinga
Ýmsar eignir
Sparisjóðsinnstæður
kr. 32.085.108
1.484.500
824.677
1.000.000
3.540.524
70.000
211.400
24.883.766
Alls kr. 64.099.975
Tiðarfar hefur verið fremur
gott hér að undanförnu. Tveir
bátar stunda sildveiðar i reknet
og fá þetta frá 20-60 tunnur i lögn,
og má það teljast aligott, og er
sildin fryst til beitu.
Nokkuð ber á að fólk vanti til
vinnu þegar vel aflast, enda mik-
ið um byggingaframkvæmdir.
Hluti hinnar nýju gagnfræða-
skólabyggingar hér i Höfn var
tekinn i notkun nú við upphaf
skólaársins.
— A.A.Höfn.
'js'rr'lTTtíý :í""
Eru þannig lán til einstaklinga
tæp 6% af heildareign sjóðanna
og tæp 13% af reiðufé þeirra.
2. Lánveitingar úr sjóðum
Háskólans hófust að marki árið
1947, þegar Byggingarsamvinnu-
félagi starfsmanna Háskóla Is-
lands var lánuð 1 milljón króna úr
Sáttmálasjóði til byggingar
svonefndra prófessorabústaða
við Aragötu og Oddagötu. Ráð-
stöfun þessi var á sinum tima tal-
in mikil lyftistöng fyrir Háskól-
ann og starfsemi hans, vegna
húsnæðiseklu kennara og lágra
launa.
Siðan mun hliðstæð lánastarf-
semi úr sjóðum Háskólans hafa
átt sér stað, þégar eftir lánum
hefur verið leitað og fjármagn
verið fyrir hendi umfram aðrar
þarfir sjóðanna- Hafalánsfjárhæð-
ir með árunum farið minnkandi i
hlutfalli við byggingarkostnað.
Reikningar sjóða Háskólans
hafa ætið verið háðir opinberu
eftirliti. Þeir eru endurskoðaðir
af þar til kjörnum endurskoðend-
um innan skólans og eru siðan
sendir rikisendurskoðun, rikis-
bókhaldi og rikisskattstjóra.
Lánastarfsemin hefur þvi tiðkast
um áratuga skeið með vitund
yfirvalda og án athugasemda
þeirra, enda um fullkomlega lög-
lega ávöxtun fjár að ræða.
3. Hin siðari ár hefur upphæð
lána til einstaklinga yfirleitt verið
kr. 100—150 þúsund. Lánstimi
hefur oftast verið 10 ár og lánin
tryggð með veði i fasteign. Fyrr á
árum voru ársvextir fastbundnir
allt lánstimabilið, en siðustu árin
hafa ársvextir verið hæstu lög-
leyfðu veðlánavextir, eins og þeir
hafa verið ákveðnir af Seðla-
banka tslands á hverjum tima.
Lánveitingar hafa siður en svo
verið bundnar við prófessora eða
háskólaráðsmenn, heldur hefur
hver fastur starfsmaður Háskól-
ans getað notið slikrar fyrir-
greiðslu, þó að oft hafi verið um
nokkurn biðtima að ræða vegna
þess að laust fé var ekki fyrir
hendi. Háskólaráði er ekki kunn-
( ugt um, að nokkrum föstum
benda, að hluti útistandandi lána
endurgreiðist árlega og er þvi um
minni bindingu fjármagns að
ræða en i rikisskuldabréfum.
5. Akvarðanir um lánveitingar
hafa verið i höndum rektora i
samráði við háskólaritara
kvæmt 36. gr. háskólalaga hefur
háskólaráð yfirumsjón með sjóð-
um háskólans, en hefur þó ekki til
þessa haft afskipti af lánveiting-
um til einstaklinga.
6. 1 samræmi við það, sem hér
hefur verið rakið, litur háskóla-
ráð svo á, að hér hafi verið um
réttmæta starfsemi að ræða og
sérstaklega sé fráleitt að tengja
orð eins og t.d. „brask” og „spill-
ing” nöfnum þeirra starfsmanna,
er i góðri trú og á lögmætan hátt
hafa sótt um og þegið lán úr sjóð-
um i vörslu Háskóla Islands. Að
hinu leytinu skal fúslega viður-
kennt, að skort hefur á skipulag i .
umræddri lánastarfsemi. Frá
upphafi þessa árs hefur lánamál-
in borið af og til á góma i háskóla-
ráði i óformlegum umræðum, er
snúist hafa um það, hvort halda
bæri starfsemi þessari áfram, ef
til vill i breyttri mynd og þá með
fastara skipulagi, eða leggja
hana niður. Skrifleg hugmynd að
föstum lánveitingareglum, er
gera ráð fyrir þvi, að háskólaráð
verði framvegis ákvörðunaraðili
um lánveitingar, kom fram hinn
8. júni sl„ eða nokkru áður en mál
þessi bar fyrst á góma i fjölmiðl-
um. Endanleg ákvörðun um
breytingar á lánveitingareglum
um mun væntanlega tekin nú á
næstunni.
7. Háskólaráð vill loks taka
fram, að það er alrangt, sem
fram kom i einu dagblaðanna
þann 9. okt. sl„ að ráðið hafi sam-
þykkt,,að mælast til þess við
rektor, að hann segði ekkert opin-
berlega um þetta mál”.
Hið rétta er, að ráðið taldi betur
á þvi fara, að beðið yrði með að
fjalla um sjóðamál háskólans á
opinberum vettvangi, þar til um-
beðin greinargerð rektors og há-
skólaritara til ráðsins lægi fyrir.
F.h. háskólaráðs,
Ólafur Björnsson
varaforseti
liltíma
KJÖRGARÐI
Sinfóníutónleikar
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands
hélt 2. tónleika sina i Háskólabiói
fimmtudaginn 18. október.
Stjórnandi var aðalhljómsveitar-
stjóri hljómsveitarinnar, Karsten
Andersen, og einleikari Kjell
Bækkelund. Flutt voru verk eftir
Pál isólfsson, Haydn, Gershwin
og Ravel.
Að morgni föstudags 19.
október hélt hljómsvéitin fyrstu
skólatónleika á þessu starfsári
fyrir Menntaskólana, fyrir troð-
fullu húsi,og var þar endurtekinn
hluti af efnisskrá tónleikanna frá
kvöldinu áður. Kynnir var Atli
Heimir Sveinsson.
Næstu tónleikar hljómsveitar-
innar utan Reykjavikur verða á
Akranesi á vegum Tónlistar-
félags Akraness fimmtudaginn
25. október og hefjast kl. 21 i Bió-
höllinni. Stjórnandi verður Páli
P. Pálsson og einsöngvari John
Speight. Flutt verða verk eftir
Bizet, Smetana, Tsjaikovsky,
Mozart, Gounod og Beethoven.