Tíminn - 23.10.1973, Blaðsíða 9

Tíminn - 23.10.1973, Blaðsíða 9
Þriöjudagur 23. október 1973. TÍMINN 9 ÞRIÐJUDAGSGREININ Jónas Jónsson: HAGURBÆNDA Engum sem til þekkir bland- ast hugur um þaö að hagur bænda hefur fariö verulega batnandi siðustu tvö árin. Allt bendir til þess aö nokkuð hafi dregið saman með þeim og viðmiðunarstéttunum, sem svo eru nefndar. En eins og kunnugt er hefur verulega skort á það á undanförnum árum að bændur hefðu sambærilegar meðal- tekjur og verkamenn, sjómenn og iðnaðarmenn. Fyrir bættri afkomu bænda liggja vitanlega fleiri orsakir, árferði siðustu 3 árin hefur verið verulega betra en það var á árunum 1965-1970. Bændur, sem á kalárunum streittust við að halda bústofninum með árlegum ræktunarauka, miklum kjarnfóðurkaupum, heykaupum og með ræktun ein- ærra jurta, njóta nú aftur eöli- legs afraksturs af túnum sinum. Áburðar og kjarnfóðurkaup eru þvi hlutfallslega minni nú, og meira i samræmi við afurðir. Svo miklu sem batnandi árferði ræður, hefði það ekki eitt nægt til að rétta við erfiðan hag bændanna eftir „Viðreisnar”- og harðindaárin. A fyrri árum „Viðreisnar” var árferði áfalla- laust um mestan hluta landsins, þó varð afkoman ekki betri en svo, að gripa varð til ráðstafana til að létta af bændum _ lausa- skuldum, sem á þá hlóðust. Buskapurinn hefur aldrei verið arðvænlegri en nú Glöggur bóndi hefur sagt við þann er þetta ritar, að bændur byggju nú við betri heildarkjör en nokkru sinni áður. Nú rikir almennt mikil bjart- sýni i sveitum og framkvæmda- hugur er mikill, byggingafram- kvæmdir sem verulega drógust saman eftir 1965, eru meiri en nokkru sinni. Fjós og fjárhús eru byggð með nýju og betra sniöi, þar sem tækni og vinnuhagræðing koma til með að stórlétta störfin. Hvað hefur þá fleira gerzt en bætt árferði. Telja mætti margar bragarbætur i landbúnaðarmálum. Afurðalán voru öll aukin, vextir af þeim lækkaðir og teknir með allir vöruflokkar, sem eðlilegt var að fengjust afurðalán út á. Fullt tillit tekiö til þess sem fer til útflutnings með hærri lánum og lægri vöxtum. Þannig er þetta nú sambærilegt við það sem sjávarútvegurinn býr við. Rekstrarlán til sauðfjárfram- leiðslu voru aukin um helming fyrir þau svæði, þar sem sauðfé er höfuðbúgrein. Sérstök upp- gjörslán hafa siðan verið veitt til að hægt sé að borga sauð- fjárbændum fyrr að fullu fyrir afurðir sinar. Allt þetta gerir að bændur eiga nú aö fá vörur sinar fyrr greiddar en ella. Þróun verðlagsins hefur verið hagstæð Siðastliðin tvö ár, það er á timabilinu frá vori 1971 til júni 1973 hækkaði verðgrunnur búvara um 57,9%. Þetta er JónasJónasson meira en átt hefir sér staö áður á sömu timalengd. Af einstökum liðum grund- vallarins sem máli skipta hafa launin hækkað langmest, eða um 73,3% á fyrrnefndu timabili. A sama tima hafa meðallaun i timavinnu hjá verkalýðs- félögunum hækkað um 60%. Þrjár ástæöur liggja fyrir þvi að laun i verðlagsgrundvelli hafa hækkað meira en hjá viðmiðunarstéttunum. Mestu veldur það, að sú stytting vinnu- vikunnar, sem var ákveðin i samningum verkalýðsfélag- anna i desember 1971 kom bændum til góða, þannig að viðurkennt var að vinnumagn þeirra við búið gæti ekki minnkað. Þetta fengu bændur inn i verðlagið i marz 1972. Sama máli gengdi um orlofs- lenginguna. Bændur fengu þá og viðurkennda 7% hækkun á launaliö vegna orlofs. En 1. september 1972 var þaö hækkaö i 8,33%, sem svarar til fulls orlofs. Þá munar það ekki minnstu, að leiöréttingar vegna fram- reiknings á verðlagsgrundvelli, hvort sem er vegna verðhækk- ana á rekstrarvörur eða hækk- unará kauptöxtum viðmiðunar- stettanna hafa nú komið fyrr inn í grundvöllinn en áöur var, og þvi sem næst jafnóðum. Samningarnir á síðastliðnu hausti 1 samningum sexmanna- nefndar um verðlag, sem tók gildi á s.l. hausti, náðist síöan verulegur áfangi, þar sem þá fengust viöurkenndar hækkanir á fjármagnslið grundvallarins. Fyrir þessum hækkunum hafa fulltrúar bænda lengi barizt og náðist nú loks samkomulag um að taka þær inn i áföngum. Fjórir þessara áfanga koma á þessu ári og þrir á þvi næsta. Ekki eru enn fyrir hendi upplýsingar um það, hve mikill tekjumunur er enn á milli bænda og viðmiðunarstéttanna á árinu 1972. En samkvæmt athugun, sem gerð hefur verið meö úrtaki úr skattaskýrslum bænda frá 1972, virðast meðal- tekjur kvæntra bænda hafa aukizt um 37% frá árinu 1971. Eftir spá Framkvæmdastofn- unarinnar ættu tekjur viðmiðunarstéttanna að hafa aukizt um 28% á sama timabili. Með þeim leiðréttingum, sem að framan er iýst, ættu tekjur bænda enn að hafa batnað á þessu ári sem nú er að liða. Nú má ekki leggja þennan samanburð út á þann veg, að bændum sé þaö ekki til góös að kjör annarra stétta i landinu batni, þvert á móti, það er einnig þeirra hagur. Það skiptir einnig miklu máli fyrir þá og þjóðarbúið allt, að markaðir eru nú góöjr fyrir landbúnaðarvörurnar, sala þeirra eykst yfirleitt innan- lands, og það sem ekki fer i neyzlu hér er auðselt erlendis fyrir miklu betra verð en áður. Ekki er að efa það, að enn eru þeir til i þjóöfélaginu, sem sjá ofsjónum yfir hvaðeina, sem til bænda og sveitafólks rennur, og telja nú að landbúnaðarvörur séu hér óhóflega dýrar. Það er þó alls ekki hvernig sem á málin er litið. Ekki miöað við þaö sem þær kosta erlendis, og ekki miðað viö það, sem fólkið, sem að framleiðslu þeirra vinnur, leggur á sig. Þess er þá einnig holltað minnast, að það sem bændur bera úr býtum fer að minna leyti i eyöslu, og meira til fjárfestingar en hjá flestum öðrum Sú fjárfesting er nauðsynleg fyrir landbúnaðinn og þjóðina, hann verður við það hæfari, og skilar enn betur sinum mikilsverða hlut i þjóðarbúið. Jón Múli Arnason og stórhlj ómsveit FÍH kynna úrslitalögin í Trimmkeppni ÍSÍ/FÍH í Súlnasalnum í kvöld GLÆSILEG VERÐLAUN Höfundar þriggja vinsælustu laganna hljóta glæsileg verðlaun. 1. Verðlaun: Radionette-útvarps- og hljómburðartæki frá E. Farestveit & Co. 2. Verðlaun: Pioneer-hljómburðartæki frá Karnabæ. 3. Verðlaun: Philipps-hljómburðartæki frá Heimilistæki, hf. AUKAVERÐLAUN FYRIR ALMENNING: Dregið verður úr nöfnum þeirra, sem geta rétt um vinningslagið, 10 þeirra hljóta tvær S.G.-hljómplötur eftir eigin vali. Félag íslenzkra hljómlistarmanna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.