Tíminn - 27.10.1973, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Laugardagur 27. október 1973
Og hann lifir enn
John Wayne er 66 ára, og enn i
fullu fjöri, þótt útlitið sé
kannske orðið heldur skugga-
legra heldur en það var fyrir
nokkrum árum. Hann er eins og
allir vita siðasta hetja vesturs-
ins úr gömlu góðu kúrekamynd-
unum, sem mörgum hefur þótt
gaman að horfa á. Wayne er
mjög mikill föðurlandsvinur, og
gerir allt, sem i hans valdi
stendur til þess að halda uppi
frægð Bandarfkjanna. Eitt af
uppáhaldsupphrópunum hans
er: Ég þakka guði svo sannar-
lega fyri að börnin min (hann á
sjö börn) skuli hafa fengið að
fæðast i bezta landi heims.
Menn héldu ekki alls fyrir
löngu, að úti væri um John
Wayne, þegar hann fékk
lungnakrabba og var skorinn
upp. Svo var þó ekki, og hann
lifir enn góðu lifi, og hefur heitið
aðdáendum sinum þvi, aö hann
skuli að minnsta kosti lifa þar til
hann verður áttræður og leika i
kvikmyndum til siðasta dags.
Nýjasta tízka
Þessi glæsilegi kjóll var nýlega
sýndur á tizkusýningu i Paris.
Ekki vitum við, hver átti hug-
myndina að honum, né heldur
hver lagði til efnið i hann, en
trúlega hefur það verið einhver
af hárskurðarmeisturum
Parisarborgar. Pilsið og
ermarnar eru nefnilega úr
mannshári!
Þetta hlýtur að era rándýr
flik, og ósennilegt þykir okkur,
að margir slíkir séu á markaðn-
um. Sú sem kemur til með að
kaupa kjólinn, ef hann er þá
ekki þegar seldur, getur þvi
áreiðanlega veriðóhrædd um að
„hitta sjálfa sig,” eins og finu
frúrnar kalla það vist, þegar
þær eru svo óheppnar að mæta
tvær, eða jafnvel fleiri i eins
kjólum i einni og sömu
veizlunni.
TUNGUS-fyrirbærið
enn óleyst góta
Visindaleiðangur starfar nú i
nágrenni við þorpið Podka-
mennaja Tunguska i
Vestur-Siberiu. Sá leiðangur
vinnur að rannsókn á sporum
eftir risaloftstein, sem féll niður
þar þann 30. júni 1908. Stjórnar-
vottar lýstu þvi, hvernig lýsandi
hnöttur fór með geysihraða yfir
himininn frá austri til vesturs og
siöan hreyöist feykileg spreng-
ing. Visindamenn hafa lengi
unnið að rannsókn á þessum at-
burði,og reynt að finna ýmsar
skýrinar á þvi, hvernig stóð á
þvi, að hnötturinn sprakk með
svo óskaplegri orku, að
jafngildir mörgum vetnis-
sprengjum. A hverju ári fara
vfsingaleiðarngrar til Tungus til
rannsókna. M.a. hefur þvi nú
verið slegið föstu, að hér hafi
ekki verið um venjulegan loft-
stein að ræða, eins og i fyrstu
var ætlað, heldur hafi þetta ver-
ið litil halastjarna, sem sprung-
ið hafi þarna.
1»
Eftirsóttasta
stúlka heims
Fyrir einu ári var Tricia O
’Donnel kjörin eftirsóttasta
stúlka heims. Titilinn hlaut hún
með þvi skilyrði, að hún héti að
giftast ekki næsta árið. Þetta
var heldur erfitt skilyrði, þvi
Tricia hafði einmitt ætlað að
fara að gifta sig vini sinum
Pat. Þau ákváðu þó að fresta
giftingunni um eitt ár, og strax
daginn eftir að árið var liðið
mátti heyra kirkjuklukkurnar
hringja i tilefni brúðkaupsins.
Hér heldur brúðguminn á hinni
fallegu og eftirsóttu brúði sinni
að hjónaviglsunni lokinni.
isaf.HiSliij
fóoo'vo o
0 0 0 6 0
— Fyrst þú veist allt um vegg-
fóðrun, geturðu þá ekki agt mér,
hvernig við eigum að komast
héðan út?
— Ég sé unga, fallega stúlku, en
skil ekki, hvað hún sér við yður.
— Vitleysa Halli. Þú veisF að
læknirinn sagði þér að hreyfa'þig
svolitið.
DENNI
DÆMALAUSI
Segðu þeim aö hringja aftur, en
ekki segja að ég sé i baði.
Geturðu hringt aftur, hún er á
klósettinu.