Tíminn - 27.10.1973, Blaðsíða 20

Tíminn - 27.10.1973, Blaðsíða 20
f- I s I I MERKIÐ.SEM GLEÐUR Hittumst i kaupféíaghtu fyrir góöan ntat ^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Reyndu að svíkja fé út úr bankabók KADSETTUR maftur kom sér upp bankabók í útibúi Útvegs- bankans vift Hlemmtorg s.l. miðvikudag, og opnaði hann bókina með 10 þús. kr. innleggi. Upp á þennan merkisatburð hclt hann incð þvi að fá sér I staupinu. Um kvöldið var hann svo i slag- togi með tveim ungum mönnum, scm hann þckkti raunar ekkert. Næst ber það til tiðinda, að á fimmtudag gékk gjaldkeri i bankanum illa falsaðan úttektar- seðil i hendur og voru aðstand- endur hans tveir ungir menn sem biðu eftir að fá greitt út hálft tiunda þúsund króna úr nýstofn- uðum bankareikningi. Gjald- kerinn, Erik Hákonarson, sem hefur marga hitíi. háð við ávisna- falsara og ójafnaðarmenn i út- tektarmálum og jafnan borið hærri hlut, brá við hart, þegar hann sá hvers kyns var, og lét lögreglu vita. Falsararnir höfðu gleymt að spyrja drykkjufélaga sinn að nafni, og var þvi annað nafn á út- tektarseðlinum en skrifað var fyrir bókinni, og einnig var bókarnúmerið rangt. -OÖ. Bréznéf sendir gæzlu- lið upp á eigin spýtur Bandaríkin virðast engar áhyggjur hafa af því NTB—Moskvu og Washington— Brézjnéf flokksleiðtogi Sovét- rikjanna tilkynnti i ræðu i Moskvu i gær, að Sovétrikin hefðu þegar sent fulltrúa sina til Mið- Austurlanda til að fylgjast með fram- kvæmd vopnahlésins. Ekki nefndi hann hvers konar fulltrúar þetta væru, en þetta væri gert eftir beiðni Sadats for- seta. Brézjnéf kvaðst vona, að Bandarikin fylgdu þessu fordæmi Bandarisku herdeildirnar, sem i fyrradag fengu skipanir um að vera við öllu búnar, sneru sér flestar að venjulegum störfum i gær, eftir samþykkt öryggis- ráðsins. Tilkynningarnar um að Sovét- rikin hefðu þegar sent menn til vigstöövanna, virðast ekki hafa valdið Bandarikjastjórn neinum áhyggjum. Talsmenn hennar telja, að þarna sé um að ræða menn, sem tilkynna eiga brot á vopnahlénu til öryggisráðsins. 1 Hvita húsinu var sagt i gær, að Nixon-stjórin væri reiðubúin til að Ihuga málið, ef Sþ fara fram á að hún sendi menn i gæzlusveitirnar undir fána Sameinuðu þjóðanna. A blaðamannafundi i Washing- ton i gær, sagði Sclesinger varnarmálaráðherra, að Nixon hefði gefið herdeildum Banda- rikjanna viða um heim skipanir um viðbúnað vegna þess, að fregnir hefðu borizt um að Sovét- menn hefðu skipað öllum fall- hlifasveitum sinum að vera við- búnar, og að sumar þeirra væru þegar á leið til MiðAusturlanda. Sagði hann ákvörðunina. hafa verið tekna eftir fund i öryggis- ráði stjórnarinnar. t fyrsta lagi Gæzlusveitir Sþ á til vígstöðvanna leið NTB—New York— Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á fundi sinum i fyrrakvöld að koma á fót eftirlits- sveitum fyrir botni Mið- jarðarhafs til að fylgjast með að vopnahléð sé virt. Fjöldi manns i sveitunum mun liklega Gagnrýna Bandaríkin Samkvæmt sfðustu fregnum horfir nú mun friðvænlegar i al- þjóðamálum en i gær og fyrra- dag. Bandarikin hafa dregið úr viðbúnaði sinum og gæzlusveitir Sþ fylgjast með ástandinu á vig- stöövunum. mjamenn hafa sætt mik- írýni viða um heim vegna ða þeirra, þegar þeir hersveitum sinum um heim allan að vera við öllu búnar. Það eru ekki sizt bandamenn Bandarikjanna, sem á þá hafa deilt vegna þessa og telja þeir að ekki hafi verið ástæða til svo harkalegra viðbragða Bandarikjamenn hafa að sinu leyti átalið hátterni bandamanna sinna og segja, að þeir hafi ekki veitt Bandarikjunum þann stuðn- ing, sem þau hefðu vænzt. verða um 7000, og eru 000 manns, þegar komnir til bardaga- svæðanna t gær komu 25 Sviar, 39 Finnar og 37 Austurrikismenn með brezkum flugvélum til Mið-« Austurlanda frá Kýpur. í gær- kvöldi útnefndi Kurt Waldheim, framkvæmdastjóri Sþ. Finnan Ensio Siilasvou yfirmann gæzlu- sveitanna til bráðabirgða. Þó að stórveldin megi sam- kvæmt samþykkt öryggisráðsins ekki eiga menn i gæzlusveitunum, kvað ekkert standa i vegi fyrirþvi, að þau leggi þeim til flutningabifreiðar jeppa eða fjar- skiptatæki. Auk Finnlands, Sviþjóðar, og Austurrikis er Waldheim sagður hafa rætt við Panama, Singapore og Kenya um möguleika á að þau taki þátt þátt i gæzlunni. Búizt er við, að þess verði einnig farið á leit við Kanada. Gæzlusveitirnar höfðu i gær- kvöldi byrjað að koma sér fyrir meðfram viglinunni i Sýrlandi, og 18 manns kváðu vera komnir til stöðva viö Súez. Sænska stjórnin tilkynnti I gærkvöldi, að hún myndi senda viðbótarmannskap til gæzlusveitanna. Gífurlegt magn úrgangs fer árlega í Norðursjó MEIRI mengun er i Norður- sjónum en nokkru ööru hafi i heiminum, segir þýzki visinda- maöurinn dr. Gunther Weichard við vatnsfræöistofnunina i Ilamborg. Norðurhlutinn er þó ntun hreinni en suöurhlutinn, að þvi er hann segir i siðasta hefti af AMBIO, timariti, sem sænska vfsindaakademian gefur út. Norðurhluti Norðursjávar fær sifellt nýtt vatn úr Atlantshafinu, sem enn er tiltölulega hreint. En suðurhlutinn skiptist á vatni við Eystrasalt og Ermasund, en þau skipti eru tæplega til að hreinsa vatnið. Stórfljótin bera óhemju mikið magn af úrgangi frá iðnaðar- rikjunum fram i Norðursjó. Þar eru helzt Belgia, Holland, Þýzka- land, Danmörk og Noregur, og meira að segja Sviss og Tékkó- slóvakia. Aðeins Rin ber árlega með sér 25 þús. lestir af fosfati, 400 þús. lestir af köfnunarefni, 80 þús. lestir af járni. 100 þús. lestir af krómi, 8000 lestir af Mangani. 2000 lestir af nikkel, 2000 lestir af blýi og 1000 lestir af arseniki. Arlega er iðnaðarúrgangi sökkt á mörgum stöðum i Norðursjó. Dr. Weichard bendir á 10 slika staði nálægt landi, þar sem miklu magni af iðnaðarútgangi einkum kemiskum er sökkt. I Helgoland- flóa sökkvir titanoxydfram - leiðandi árlega um 650 þúsund lestum af úrgangi, og 700 þúsund lesturntil viðbótar af sama efni er árlega sökkt rétt fyrir utan strendur Belgiu. Utan við strönd N-Englands er árlega sökkt mill- jónum lesta af úrgangi frá kola- framleiðendum. Alls munu 10- 20% af mengun Norðursjávarins stafa af þvi, að úrgangsefnum er sökkt frá skipum —SB hefði ferðum sovézkra flugvéla til Karió fækkað mikið á miðviku- dag, og hafi þá verið talið, að verið væri að nota þær til að flytja hermenn. Einnig hefðu ein sex sovézk skip, sem nota mætti til mannflutninga, sameinazt sovézka flotanum á Miðjarðar- hafi. Siðan komu 10 flutninga- flugvélar af gerðinni AN-22 til Karfó á fimmtudag, og þá var talið nokkurn veginn vist, aö nú væru Sovétmenn farnir að flytja hermenn til svæðanna. Til viðbótar þessu öllu hefi svo Dobrynin sendiherra Sovét- rikjanna, afhent Kissinger orð- sendingu, sem i hefði staðið, aö Sovétrikin ihuguðu að senda menn til Mið-Austurlanda á eigin spýtur, þar sem landið fengi ekki að hafa menn i gæzlusveitunum. Enn er barizt. Saka hvorir aðra um vopnahlésbrot NTB-Tel Aviv og Kairó — Um það bil 20 þúsund egypzkir hermenn sem voru umkringdir, reyndu i gær að koma að nýju á sambandi sinu við aörar deildir hersins, að þvi er ísraelskir talsmenn segja. Þeir reyndu m.a.að gera brú yfir Súez-skuröinn, og harðir bardag- ar urðu við suðurenda skurðarins i margar klukku- stundir, áður en Egyptar voru sigraðir. Talsmenn i Kairó harðneita hins vegar, að Egyptar hafi rofið vopnahléð. Jafnframt var tilkynnt frá Tel Aviv, að liberiska oliuskipið „Siris” hefði i gær siglt á sprengju i Súezflóa. Skipið er með mikla slagsiðu, en er ekki sokkið, segja israelskir talsmenn. Áhöfninni var bjargað upp i israelskar þyrlur, og höfðu aðeins tveir menn slasazt litillega. Siðdegis i gær fóru egypzkir skriðdrekar og stórskotalið á stúfana til að reyna að leysa egypzku hermennina úr járn- hring tsraela, og telja Israels- menn það alvarlegt brot á vopna- hlénu. Egyptar segja tsraelsmenn hins vegar hafa sent út fréttir af þessu til að fá góða og gilda ástæðu til að rjúfa vopnahléð sjálfir. Ritstjóri Kairó-blaðsins A1 Ahram, Heykal, skrifaði i gær, að Sadat sakaði Bandarikin um bein afskipti af styrjöldinni. Sadat hafi sagt, að Egyptar hefðu greitt tsraelsmönnum högg, sem þeir myndu aldrei gleyma, og að Bandarikin væru smátt og smátt að dragast inn i bardagana við hlið tsraelsmanna. Foreldra- og kennarafélag Fossvogsskóla: SKORA Á BORGAR- STJÓRN AÐ EFNA ORD SÍN FJÖLSÓTTUR stofn- fundur Foreldra- og kennarafélags Foss- vogsskóla var haldinn 23. október siðastliðinn. Undirbúningsnefnd hafði unnið að stofnun félagsins um nokkurn tima. í nefndinni áttu sæti af hálfu foreldra Helga Björnsson, Ingi- björg Jóhannesdóttir, Þyri Laxdal, Árni Stefánsson og Helgi Samúelsson, og auk þess skólastjóri Fossvogs- skóla, Kári Arnórsson. A stofnfundinum voru sam- þykkt lög fyrir félagið, og eru þau sniðin eftir lögum Foreldra- og kennarafélags Hliðaskóla. 1 stjórn félagsins voru kosnir: Jón Reynir Magnússon formaður og meðstjórnendur Bergur Jónsson, Héðinn Emilsson og Þyri Laxdal af hálfu foreldra, og frá kennur- um Sigriður Guðmundsdóttir og Valborg Oddsdóttir, auk skóla- stjóra. Markmið félagsins er að vinna að heill og hamingju nemenda skólans og styrkja skólann i hvi- vetna. Markmiði sinu hyggst félagið ná með þvi m.a., ... að veita skólanum lið til þess að núverandi kennslufyrir- komulag (opinn skóli) búi við sem beztar aðstæður, í.. að veita skólanum aðstoð vegna ákveðinna verkefna og starfa i skólanum, ... að koma á umræðufundum um skóla- og uppeldismál almennt I samráði við skólann, ... að koma fram með óskir um breytingar á starfi skólans, ... að fjalla um félagslega aðstöðu barna i skólahverfinu. Fyrsta verkefni félagsins er að vinna að þvi að byggingu Foss- vogsskóla verði lokið sem fyrst, svo að börn úr hverfinu geti lokið þaðan barnaprófi. Eins og er getur skólinn ekki tekið viö nemendum eldri en 9 ára, og verða þvi eldri nemendur að sækja skóla i öðru borgar- hverfi. Vegalengdir úr Fossvogs- hverfi yfir i næsta skóla (Breiða- gerðisskóla) eru mjög miklar, og meiri en viðast hvar annars stað- ar i borginni. Auk þess eiga öll börn, sem skóla þurfa að sækja út úr hverfinu, yfir mjög mikla um- ferðargötu að fara þar sem Bústaðavegurinn er. Fossvogsskóli er eini opni skól- inn i borginni, og er þetta annað árið sem hann starfar sem slikur. Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.