Tíminn - 27.10.1973, Blaðsíða 7

Tíminn - 27.10.1973, Blaðsíða 7
Laugardagur 27. október 1973 TÍMINN 7 Hvaðsegir fólkið á Selfossi? SÍDASTLIÐINN fimmtudag fóru blaöamaöur og ljósmyndari á Selfoss til að reyna að komast að þvi, hvað fólkið hygðist gera i atkvæðagreiðslunum á sunnu- dag. Spurningarnar, sem lagðar voru fyrir fólkið, voru svohljóð- andi: Ætlar þú aö greiða atkvæði Gunnar Kristmundsson verzl unarmaður: Ég er bæði á móti þvi að Vot- múlajörðin veri keypt og að Sel- foss fái kaupstaðaréttindi. Vot- múlinn er alltof dýr alltof mikið fyrirtæki, og kaupin myndu koma niður á öðrum framkvæmdum, þegar fara þarf að greiða vextina. Auk þess er landið óheppilegt. Að gera Selfoss að kaupstað væri eins og að reka' rýting i bakið á fólkinu, sem býr hér i kring. Magnús Vilhjálmsson, húsvörð- ur: Ég er mjög mikið á móti þvi að Selfoss verði kaupstaður. Um Votmúlamálið vilég helzt ekkert segja. Mér finnst hann nú anzi dýr og held, að 3 milljónir væri nægjanlegt verð fyrir hann. Sigriöur A. Sæmundsdóttir húsmóðir: Já, ég mun kjósa. Ég er á móti þvi að Selfoss fái kaupstaðar- réttindi, og einnig er ég mótfallin Votmúlakaupunum. Jörðin er allt of langt frá Selfossi, hún er slæm og alltof dýr. Ef hægt væri að nota hana.væri þetta ef til vill allt i lagi. á sunnudaginn? Ef svo er, hvernig ætlar þú þá að greiða at- kvæði, með eða á moti Votmúla- kaupunum og með eða móti kaupstaðarréttindum ? Heldur voru svörin einhliða, eins og fram kemur hér fyrir neð- an. Gekk það reyndar svo langt, að reynt var að finna einhverja, sem hefðu aðra skoðun á málun- um en þeir, sem búið var að tala við. Fyrir utan oddvitann fannst aðeins einn sem hafði þá skoðun, sem okkur fannst vanta i myndina. Þess ber að geta, að ekki var þessara ákveðnu skoðana leitað mjög lengi, en leitað samt. Yfirleitt voru menn mjög fúsir til að tjá sig um þessi mál, enda hefur talsverður hiti verið i kolunum undanfarið, og menn al- mennt búnir að mynda sér skoðanir. Það er þó athyglisvert að kvenfólkið vildi litið um málin segja, og litið bar á gallhörðum rauðsokkum, en eftir þvi sem mér hefur skilizt, hafa þær skoðanir á flestu. Ef til vill var kvenfólkinu bara illa við ljósmyndavélina, sem er kannski skiljanlegt, þvi að veður var slæmt og hárinu illa til haldið. Menn láta nefnilega ekki taka mynd af sér við hvaða tækifæri sem er. Margt skemmtilegt var sagt ! þessu sambandi. Meðal annars kom fram sú skoðun, að hesta- mannapólitik væri farin að ráða nokkru um afstöðu manna til Votmúlakaupanna. Hestamenn á Selfossi gerðust æ meira fylgjandi kaupunum. Það kæmi til af þvi, að þeir sæju fram á.að jörðin yrði ekkert nýtt á næstu árum, og hún yrði þvi tilvalið beitiland fyrir hestana þeirra. Selfoss, séður úr iofti — þar krossa þeir giatt á morgun. Hafsteinn Pétursson prent- smiðjustjóri: Ég er enn ekki búinn að mynda mér skoðun á kaupstaðarmálinu, á eftir að lesa eitt blað. Þjóðólf, áður en ég geri það. Sama er að segja um Votmúlann. Guömundur Sigurðsson húsa- smiður: Ég er eindregið á móti kaupum á Votmúlanum. Jörðin er alltof dýr. Ég held.að allir telji eitthvað gruggugt við þessi kaup, en enginn þorir að segja neitt. Ennþá er ég óákveðinn um það, hvort Selfoss eigi að verða kaup- staður. Óskar Vigfússon, starfar við vöruafgreiðslu: Ég er nú svo til nýfluttur hingað frá Vestmannaeyjum, en hef þó aðeins kynnt mér málin. Ég held að þetta sé hvort tveggja óheppilegt. Jörðin er eins og tunga út frá Selfossi, og við kaupstaðarréttindi er ekkert að gera. Leif Österby rakari: Ég er andvigur því, að Selfoss verði gerður að kaupstað. Ég hef ekki fundið neitt, sem mælir með þvi.Ég held að Votmúlaatkvæða- greiðslan dragi kaupstaðarat- kvæðagreiðsluna með sér i gröf- ina. Ég er algjörlega á móti kaupunum, við höfum ekkert við ræmuna að gera. Helgi Ingvarsson, vöruhílsstjóri: Ég læt kosningarnar örugglega ekki framhjá mér lara. Ég reikna ekki með að greiða atkvæði með kaupstaöarréttindum, og um Vot- múlakaupin segi ég þvert nei. Þau eru ekki einu sinni til um- ræðu. Gústaf Sigurjónsson fram- kvæmdastj.: Votmúlinn verður bara keypt- ur. Jörðin á ekki að vera i eigu einhverra meramanna úr Reykjavik. Selfoss er orðinn það stór, að ég vil að staðurinn fái kaupstaðarréttindi. TEXTI: -HS- MYNDIR: -GE- Tveir þeirra, sem talað var við, höfðu verið að skokka eða trimma í nágrenni fbúðar- húsanna á Votmúla, og ekki leizt þeim á húsnæðið, enda allt fullt af hænuungum, sem auk þess höfðu verið settir i lögbann. Þeim skildist, að vesalings hænuungun- um væri meinað að stækka, eftir að þeir fengu á sig lögbannið. Ekkert mætti breytast, ekki einn einasti sjálfstæður einstaklingur, og þaðan af siður heildin. Það má engan veginn taka þetta sem skoðanakönnun, til jiess er úrtakið alltof lítið og ekki valið eftir neinum visindalegum reglum. Ef þetta væri skoðana- könnun, sem mark væri takandi á, væri engin þörf á atkvæða- greiðslu. Niðurstöðurnar væru ljósar. Hér koma svörin er fengust, er talað var við fólk á förnum vegi: Guðmuiidiir K. Guðmundssoii: Ég hef nú frekar litinn áhuga á þvi að Sell'oss verði kaupstaður. Um Votmúlann vil ég ekki tjá mig, vegna starl's mins. Dagur Dagsson, kaupmaður: Ég vil ekki að Selfoss verði kaupstaður: Selfoss og sveitirnar eru tengdar sérstökum höndum, og mér finnst þetta jafnvel bera vott um yfirlæti. Þetta gæti auk þess ýtt undir rig milli þétt- býlisins og dreifbýlisins, svo að eitthvað sé nefnt. Votmdlajörðin er of dýr, miðáð við notagildi hennar og legu Stefán Jónsson, afgreiðslu- maður: Það er enginn ávinningur að þvi að Selfoss verði gerður að kaupstað. Um Votmúlann er það að segja, að ég er eindregið á móti kaupunum. Við höfum ekk- ert við landið að gera i nánustu framtið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.