Tíminn - 27.10.1973, Side 17

Tíminn - 27.10.1973, Side 17
Laugardagur 27. október 1973 TÍMINN 17 þaö likar áhorfendum aö sjálf- sögðu mjög vel. Þaö verður þvi gaman að fá að sjá Geir leika hér i Laugar- dalshöllinni gegn landsliði Frakklands 4. nóvember n.k. Það getur svo farið, að hann komi islenzka landsliðinu i HM-úrslitin i Austur-Þýzka- landi 1974. Geir var spurður um það i stórblaðinu BILD, en það er eitt viðlesnasta blað i heimi, hvort tsland gæti hugsanlega unnið VesturÞýzkaland i HM-keppn- inni. Geir sagði að islenzka liðið gæti unnið, ef það dytti niður á góöan leik. Nú er bara að vona, að Island detti niður á góðan leik, þegar Geir leikur með þvi gegn Frakklandi. Geir fær mjög góða dóma i v-þýzku blöðunum eftir leiki Göppingen, enda hefur honum gengið mjög vel og átt góða leiki bæði i sókn og vörn, en vörnin hefur ekki verið sterk- asta hlið Geirs. ,,Stórskyttan frá eyju langskyttanna”, hef- ur Geir oft verið nefndur i V-Þýzkalandi. Hann er nú markhæsti leikmaður Göppingen, og hinir fjölmörgu áhorfendur, sem koma til að sjá Geir, leika, eru mjög ánægðir með hann. Enda er hann fjölhæfur leikmaður, skorar mörk með langskotum, hraðupphlaupum og gegnum- brotum. Hann hefur allt til að bera, sem góðum handknatt- leiksmanni er nauðsynlegt, og GEIR HALLSTEINSSON... hefur verið bezti leikmaöur Göppingen. Hér á myndinni sést hann skora i v-þýzku 1. deildinni. Bp 1 ' nn lljjgll ^ iMlttttfM ' I MSStofilílK?!: k. V V Reykjavíkurmótinu í körfuknattleik lýkur á morgun A SUNNUDAGINN fæst úr þvi skoriö, hvort KR-ingar verða Reykjavikurmeistarar i körfu knattleik eða hvort ÍR-ingar tryggja sér aukaútslitaleik. Það getur lika farið svo að þrjú liö þurfi að leika aukaleiki um Reykjavikurmeistaratitilinn. Þá verður ÍR að vinna KR og Vals- menn að vinna Armann i siðasta leik mótsins. Fyrri leikurinn, leikur IR og KR, fer fram i Laugardalshöllinni annað kvöld kl. 20.00, og strax á eftir mætast Valur og Armann. Ef KR-ingar vinna leikinn gegn IR fá þeir afhentan Reykjavikur- bikarinn eftir leikinn. Eftir leik Vals og Armanns, verða verð- launin fyrir vitahittni og varnar- leik afhent. Það er ómögulegt aö spá um úrslit leikjanna annað kvöld, en þeir verða örugglega spennandi. STOR- SKYTTAN FRÁ EYJU LANG- SKYTTN- ANNA — Geir Hallsteinsson fær mjög góða dóma í v-þýzku dagblöðunum. — Hann er nú markhæsti leikmaður Göppingen ,,Ég held þvi fram, að v-þýzku félagsliðin séu þau sterkustu í heimi, en aftur á móti er ég ekki nógu ánægður með v-þýzka landsliðið”... þetta segir Geir Hallsteinsson i viðtali við v-þýzka dagblaðið Göppingen Kreisnachrichten i siðustu viku, og svo heldur hann áfram: „Mismunurinn á hand- knattleiknum i V-Þýzkalandi og heima á íslandi, er sá, að markverðirnir hér eru betri og varnar- leikurinn fastari. Það sést beztá þvi að, einhver meiðist yfirleitt i hverjum leik hjá okkur i Göppingen”. ÍTALÍA ÚR LEIK? Landsleik Ítaiíu og Frakklands í HAA hefur verið frestað ALLT bendir nú til þess að framkoma ítala gagnvart íslendingum i heimsmeistarakeppninni i handknattleik verði til þess, að ítalia verði dæmd úr keppninni. Enda er framkoma þeirra mjög ámælisverð þvi að islenzka landsliðið þurfti sem kunnugt er að ferðast langar leiðir til þess að leika landsleik, em ekkert varð úr fyrir trassaskap ítala. Nú er búið að fresta siðari leik Frakklands og ítaliu, og bendir það til þess, að ítalia verði að öllum likindum dæmd úr HM-keppninni. Wadmark, formaður skipulagsnefndar alþjóða handknattleikssambandsins, hefur sagt, að hann standi með tslendingum i hinu umdeilda máli. Það er ekki ónýtt að hafa þennan sænska formann með sér, þvi að hann hefur verið einn aðalmaður alþjóða handknattleikssambandsins undanfarin ár. STOÐVAR IR KR-INGA?

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.